Morgunblaðið - 12.08.1999, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Grunnskólar á Akureyri og Tónlistarskólinn
Enn vantar kenn-
ara við skólana
Djass á heitum
fímmtudegi í
Deiglunni
Tónleikar
Jóels Páls-
sonar
JÓEL Pálsson saxófónleikari
heldur tvenna tónleika með
efni á plötunni „Prím“ á næst-
unni. Fyrri tónleikarnir verða
í Deiglunni á Akureyri í kvöld,
fimmtudag, kl. 21.30 og þeir
seinni í Kaffíleikhúsinu
sunnudaginn 15. ágúst kl. 21.
Þeir sem koma fram, auk
Jóels, eru Hilmar Jensson,
gítar; Eyþór Gunnarsson, pí-
anó; Þórður Högnason,
kontraþassa og trommararnir
Einar Scheving og Matthías
Hemstock. Sigurður Flosason
saxófónleikari verður enn-
fremur sérstakur gestur í
Hlaðvarpanum.
Jóel hefur nýverið gert
samning við hina þekktu
hljómplötuútgáfu Naxos og
verður „Prím“ endurátgefin í
október í 40 löndum um allan
heim.
Ferðafélag Akureyrar
Spennandi
gönguferðir
um helgina
FERÐAFÉLAG Akureyrar stend-
ur fyrir gönguferð frá ósum Hörg-
ár inn með Eyjafírði til Akureyrar
laugardaginn 14. ágúst. Á þessari
leið verður litast um á Gáseyri þar
sem hinn forni verslunarstaður
Gásar var og rústimar skoðaðar.
Gásar eru einn kunnasti staður
við Eyjafjörð úr fornum sögum
enda aðalsiglingahöfn og verslun-
arstaður á öllu Norðurlandi um
nær 5 alda skeið, eða til 1400. Mjög
merkar fornleifar eru á Gáseyri og
má þar enn sjá óvenju skýrt á vall-
grónum búðatóttunum alla skipan
hins forna kaupstaðar. Eru þær
taldar í röð merkustu fornleifa á
landinu og eru friðlýstar.
Kirkja var á Gásum en hún fauk
1390. Kirkjugarður og kirkjutótt
sjást þar og eru þær minjar frið-
lýstar. Þá verður komið við á Dag-
verðareyri þar sem áður var mikil
síldarsöltunarstöð og síldarverk-
smiðja. Fararstjóri í þessari ferð er
Gylfi Traustason, bóndi á Gásum.
Helgina 14.-15. ágúst er göngu-
ferð úr Hvalvatnsfírði á Flateyjar-
dal. Ekið verður að morgni 14.
ágúst í Kaðalstaði í Hvalvatnsfírði,
gengið þaðan um Bjamarfjalls-
skriður á Flateyjardal og gist þar.
Daginn eftir verður gengið um
Ytri-Brettingsstaðadal og Jökul-
brekku í Kaðalstaði og ekið heim.
Upplýsingar og skráning er á
skrifstofu Ferðafélags Akureyi'ar,
sem er opin alla virka daga frá kl.
16-19. Síminn á skrifstofunni er
462 2720.
----------------
Söngvaka í
Minjasafns-
kirkjunni
I KVÖLD verður söngvaka í
Minjasafnskirkjunni á Akureyri.
Þar munu Rósa Kristín Baldurs-
dóttir og Hjörleifur Hjartarson
flytja sýnishorn úr íslenskri tón-
listarsögu í tónum og tali.
Söngvakan hefst kl. 21 og er miða-
verð 700 kr. Innifalið í miðaverðinu
er aðgangseyrir að Minjasafninu
sem er opið alla daga kl. 11—17, en
einnig þriðjudags- og fímmtudags-
kvöld frá kl. 20 til 23.
GRUNNSKÓLAR á Akureyri
hefjast 1. september næstkomandi,
en enn er óráðið í allnokkrar kenn-
arastöður. Að sögn Gunnars Gísla-
sonar, deildarstjóra skólamála hjá
Akureyrarbæ, er þetta gamalkunn-
ugt ástand. Oft hafi gengið illa að
fá faglært fólk til starfa. Enn er þó
verið að auglýsa stöðumar og því
ekki öll von úti enn, að sögn Gunn-
ars. Hjá Tónlistarskóla Akureyrar
fengust einnig þær upplýsingar að
ekki væri búið að ráða í allar kenn-
arastöður fyrir veturinn, en
kennsla byrjar þar um miðjan
september.
Leiðbeinendur
hugsanlega ráðnir
„Enn er óráðið í um það bil tíu
almennar kennarastöður hjá Akur-
eyrarbæ og svo einnig liðlega tíu
stöður sem snúa þá aðallegu að
sérkennslu og tónmenntakennslu.
Á BÆNUM Hóli utan við Dalvík
eru þessir svarðarhraukar, eða
móhrauka eins og þeir kallast
einnig. Að sögn Sigurbjargar
Einarsdóttur á Hóli er svörður-
inn tekinn úr svarðargröfum við
Sauðanes, sem er eyðibýli utan
VERKMENNTASKÓLINN á
Akureyri og íslenska menntanetið
gerðu mér sér samstarfssamning í
júní sl. um þróun í fjarkennslu og
sameiginlegt námskeiðahald um
notkun upplýsingatækni í skóla-
starfí.
Þessa vikuna er fyrsta námskeið-
ið haldið sem fellur undir þennan
samning. Á námskeiðinu er fjallað
um uppbyggingu, rekstur og þjón-
ustu staðarneta í skólum, þann vél-
búnað sem þarf og hvemig hann er
uppbyggður. Einnig er kennt á inn-
viði tölvunar, þær rifnar í sundur og
settar saman aftur, nýjar vélar
byggðar upp frá gmnni, settur inn
margvíslegur hugbúnaður og fleira.
Þátttakendur á námskeiðinu eru
24 og koma víðs vegar af landinu.
Flestir þeirra era netstjórar í
grunn- og framhaldsskólum lands-
ins en þar er nú í gangi mjög hröð
uppbygging í notkun upplýsinga-
tækni í kennslu.
Kennarar á námskeiðinu era þrír,
Adam Óskarsson kerfisstjóri Verk-
menntaskólans, Bjöm Haraldsson
kerfisstjórí Islenska menntanetsins
Staðan er ekkert ósvipuð því sem
verið hefur,“ sagði Gunnar.
Gunnar sagði að varðandi úrræði
ef ekki fengist fólk í allar stöðurnar
þá væri það skólastjóranna að sjá
um þau mál, ráðningamálin væru á
þeirra könnu. „Þessu er nú yfirleitt
bjargað á einhvern hátt. Það er
hliðrað til, menn færðir til eða að
þeir bæta á sig yfirvinnu og þar
fram eftir götunum,“ sagði Gunnai'.
Gunnar sagði hins vegar að ef það
vantaði marga kennara í einn skóla
þá væri staðan slæm en yfirleitt
hefði tekist að ráða einhverja aðila
til að sinna þessum störfum og það
væra þá yfírleitt leiðbeinendur. Að
sögn Gunnars vantar flesta kenn-
ara í Brekkuskóla, en það er
stærsti grannskólinn í bænum.
Eins og áður sagði þá hefst
kennsla við skólana 1. september
næstkomandi og þá munu um 230
sex ára böm hefja skólagöngu.
við Hól. Sigurbjörg sagði að
svörðurinn yrði siðan notaður til
að reykja hangikjöt fyrir heimil-
ið í vetur. Að sögn Sigurbjargar
er misjafnt hvað það tekur svörð-
inn langan tíma að þorna en í
þetta skiptið hafi þau verið nyög
og Jón Eyfjörð forstöðumaður ís-
lenska menntanetsins. Meðal fyrir-
lesara á námskeiðinu er Karina
Enig Dam, kerfisstjóri Danmarks
Kemur niður á biðlistum
Helgi Svavarsson, skólastjóri
Tónlistarskólans á Akureyri, sagði
að staða þeirra í kennaramálum
væri ekkert allt of góð. Þar væri
enn óráðið í fjórar og hálfa stöðu.
„Ef ekki fæst í allar þessar stöður
þá mun ekki vera hægt að taka inn
eins marga nemendur af biðlista og
ella væri hægt. Hins vegar kemur
það ekki niður á fjölda þeirra hljóð-
færa sem í boði verða til kennslu.
Það er helst að okkur vanti undir-
leikara eins og við söngkennslu,"
sagði Helgi.
Helgi segir að eins og staðan sé í
dag þá sé hægt að taka á móti um
400 nemendum í vetur, en hægt
verði að grynnka eitthvað á biðlist-
um ef það tekst að ráða í eitthvað
af þessum stöðum. Kennsla við
Tónlistarskólann hefst um miðjan
september.
heppin með vind og þurrk og tók
þvi aðeins hálfan mánað að
þurrka hann. Það voru þeir Ein-
ar Hallgrímsson, faðir Sigur-
bjargar, og Elvar Kristjánsson,
11 ára vinnumaður, sem hlóðu
hraukana glæsilegu.
Lærerhojskole. Hún hefur mikla og
víðtæka reynslu af rekstri tölvuneta
í skólum og er leiðandi á því sviði í
norrænu skólasamfélagi.
LANDIÐ
Morgunblaðið/Sig. Sigm.
HÖRÐUR, Ævar, Aldís Þóra,
Brynhildur, Elva og Erla Björk.
Buslað í
blíðunni
Hrunamannahreppi - Mikil blíða
hefur verið víðsvegar á landinu
undanfarna daga og sumstaðar
inn til landsins hefur hitinn farið
vel yfír 20 gráður. Börnin hafa
notfært sér góða veðrið ekki síð-
ur en aðrir. Þessi börn á Flúðum
busla og synda sér til ánægju í
Litlu-Laxá, sem er bærilega heit
um þessar mundir.
-----♦-♦-♦---
Hafnardagar í
Þorlákshöfn
Þorlákshöfn - í tilefni af 70 ára af-
mæli hafnarinnar í Þorlákshöfn
verða haldnir hafnardagar þar um
helgina. Bjóða heimamenn uppá
bryggjustemmningu bæði á laug-
ardag og sunnudag.
Sýndur verður björgunarbúnað-
ur, lifandi sjávarfiskar ásamt því
sem harmonikkuleikarar leika sjó-
mannalög. Bryggjuhlaup verður a
laugardag og dorgveiðikeppni og
um kvöldið varðeldur, flugeldasýn-
ing og fjöldasöngur. Á sunnudags-
morgun verður messa í Þorláks-
kirkju og kl. 14 hefst keppni um
titilinn hafnartröllið 1999. Skip og
bátar verða til sýnis alla helgina,
vörakynningar og boðnar veitingar
í tjaldi á hafnarsvæðinu. Frítt
verður í golf og ókeypis á tjald-
stæðin alla helgina.
--------------
Borað eftir
heitu vatni
Grundarfirði - Boranir eftir heitu
vatni eru hafnar á ný í Eyrarsveit,
nú við Grandarfoss skammt frá
Grundarfirði. Fundist hefur heitt
vatn við Berserkseyri en það þykir
fullmikil vegalengd og kostnaðar-
söm.
Þetta er sameiginlegt verkefni
RARIK og Eyrarsveitar og eru
það verktakar frá Ræktunarsam-
bandi Flóa og Skeiða sem sjá um
borunina. Áætlað er að bora allt að
6-700 metra. Nú þegar eru þeir
komnir 300 m niður og miðar verk-
inu vel. Á meðan bíða Grundfirð-
ingar eftirvæntingarfullir eftir nið-
urstöðunni, því óneitanlega yi'ði
þetta mikill fengur fyrir íbúa sveit-
arinnar.
Morgunblaðið/Kristján
Svarðarhraukar þurrkaðir
Netstjórar grunn- og framhaldsskóla á námskeiði í VMA
Hröð uppbygging í notkun
upplýsingatækninnar
Morgunblaðið/Kristján
ÞÁTTTAKENDUR á námskeiðinu rýna í tölvuskjá í skólastofu Verk-
menntaskólans á Akureyri.