Morgunblaðið - 12.08.1999, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 12.08.1999, Qupperneq 26
26 FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Að séðum sólmyrkva Er það þess virði að keyra þúsund kílómetra dagleið til að sjá sólmyrkva? Sigrún Davíðsdóttir og samferðamenn hennar eru ekki í vafa um svarið. Reuters ÞESSI sólmyrkvaáhugamaður í Belgíu hafði notað klósettsetu, sérútbúna með sólarsfu, til að horfa á myrkvann í Torgny, í suðurhluta landsins, þar sem um eitt hundrað þúsund manns sáu myrkvann. SÚ RAUÐHÆRÐA hafði komið seint en við höfðum náð stóratburð- inum: Algjörum sólmyrkva. Nú var að birta aftur og við að jafna okkur eftir það sem borið hafði fyrir augu á maísakri fyrir norðan Strassborg. Þeyst suður Þýskaland Ferðin hófst klukkan 7 á þriðju- dagsmorgni í Kaupmannahöfn eftir hraðbrautartafir og nauðsynlega áningu á bensínstöðvum með reglu- legu millibili. Til Strassborgar komum við um klukkan 23.30, fjórir táningar og ég. Það hafði gengið á með skúrum á leiðinni en við höfð- um bægt frá okkur tilhugsuninni um veðrið og næturhiminninn yfir Strassborg var heiður og stjömu- bjartur. Af einskærri heppni römbuðum við á brugghús sem seldi eigin bjór og sérrétt héraðs- ins, eldkökur, sem er flatbrauð með lauk og fleski. Þreytan hvarf sem dögg fyrir sólu en þegar það rann upp fyrir okkur um klukkan eitt, að öll hótel væru yfirfull, var stefnan tekin með hálfum huga á tjaldstæði utan borgarinnar. Þá var farið að hellii’igna og er við spurðum til veg- ar á hóteli nokkru sá fólkið aumur á okkur og bauð okkur fundarher- bergið til að sofa í. í eltingarleik við sólina Klukkan átta var hópurinn kom- inn í bílinn og eftir heimsókn í ávaxtabúð og bakarí var stefnan tekin á sveitina norðan Strassborg- ar því öll vorum við sammála um að sveitin væri rétta umhverfið fyrir komandi undur og stórmerki. Þeg- ar við keyrðum, horfðum við í þög- ulli örvæntingu á svartskýjaðan himininn. Að hugsa sér að hafa keyrt rúmlega þúsund kílómetra til sjá aðeins þennan þungbúna himin. Állir nema bílstjórinn sukku niður í sætin og fólu sig svefninum á vald á ný meðan bílstjórinn hringsólaði um stefnulaust. Sólmyrkvinn átti að hefjast upp úr klukkan ellefu. Und- h- klukkan tíu fór allt í einu að grilla í eitthvað blátt í grámanum, skær- bláan himininn. Það fór eftirvænt- ingakliður um bílinn. Það skyldi þó ekki vera? Jú, sólin birtist í þykkn- inu. Nú hófst æðisgenginn eltinga- leikur við sólina sem ýmist kom fram eða hvarf bak við skýin. Ákaft var leitað eftir sólarblettum og sama gerðu nokkuð hundruð bílar sem keyrðu þama um fullir af skimandi fólki er veifaði pappagler- augum í geimstöðvarstíl. Klukkan var að verða ellefu, nú hlaut eitt- hvað að fai-a að gerast. Sýnd veiði en ekki gefin Meðfram sveitaveginum stóðu bílar hér og þar. Það var engin um- ferðarteppa þarna, allt með kyrrum kjörum. Við renndum út í vegar- kantinn, staðurinn var fullkominn, sólin skein en alveg jafn heil og alltaf undir hádegi. Varla höfðum við náð að koma okkur fyrir þegar grár skýjabakki renndi sér fyrir sólina enn á ný. Við svipuðumst um, sólin skein nú ekki á okkur, heldur hinum megin í sveitinni. 011 sem einn stungum við okkur inn í bílinn og renndum áleiðis á sólarblettinn. Eftir að hafa villst inn á hraðbraut um stund náðum við aftur sveita- veginum og sólinni með öndina í hálsinum. Sjáið, stoppum, kölluðu samferðamenn mínir og viti menn: í sólmyrkvagleraugunum mátti glöggt sjá að nú vantaði svarta sneið á sólina svo sólin var eins og minnkandi tungl. Enn komu skýin, enn var haldið af stað í eltingaleik við sólina. Eftir um 45 mínútur komum við á maísakur en framund- an var himinbláminn í skýjasveig og sólin í honum miðjum. Við geng- um inn á akurinn en sáum að bíl- arnir stoppuðu við veginn einn á eftir öðrum. Það var orðið svalt, áberandi svalt, sólin eins og mjó sigð í ljósmyrkvagleraugunum sem við brugðum á loft í gríð og erg minnug ákafra viðvarana vina, vandamanna og fjölmiðla. Sól tér sortna Framundan var fölnandi sólin, að baki svartur skýjabakki sem hótaði rigningu. U.þ.b. klukkustund eftir að fyrst mátti greina tunglið fyrir sólinni hafði það rennt sér fyrir hana. I kringum hana var ljós baugur. Úti við sjóndeildarhring- inn, að baki beinvöxnum sýprus- trjánum, var dauf birta eins og í Ijósaskiptunum. Stöku stjarna kom fram í skýjaglufunni. Allt var dauðahljótt. I um tvær mínútur ríkti myrkur um miðjan dag, myrk- ur og þó ekki myrkur, birta og þó ekki birta. Sýn, þrungin sársauka- fullri sælu yfir tilhugsuninni um að hún myndi aldrei birtast manni aft- ur. Tíminn sem ekki leið og leið þó alltof fljótt. Svartur skýjabakkinn tók að hreyta rigningardropum yfir okkur, skýjaslæða sveipaði sólina og í gegnum slæðuna glitti í birtu- sigð sem um leið batt enda á myrkvunina. Við gripum andann á lofti bæði yfir birtunni sem færðist aftur yfir og skýjunum sem smátt og smátt birgðu okkur sólarsigðina. Svartur rigningarbakkinn hafði leyst upp á nokkrum mínútum, sól- arbirtan sótti hratt á og þá kom rauðhærða konan sem ekkert hafði séð og spurði brostinni röddu um sólmyrkvann en hún hafði alltént varla keyrt þúsund kílómetra. Það sem eftir var dagsins sáum við ekki til sólar. „Sáuð þið eitthvað?" Á leiðinni inn í smábæinn Hagu- enau keyrðum við framhjá stórri veggauglýsingu með aðvörunum um að gæta augnanna við sólmyrkvann. I öllum bílum mátti sjá fólk með sól- myrkvagleraugun á lofti að fylgjast með hinni vaxandi sól. í unglinga- búð í Haguenau eru til bolir með myndum af sólmyrkva. Þessi pistill var skrifaður síðdegis í gær á dóm- kirkjutröppunum á Haguenau í skjóli fyrir hlýrri rigningunni. I bakaríinu hafði afgreiðslustúlkan spurt hvort við hefðum komið vegna sólmyrkvans. Þegar við kváðum svo vera spurði hún hvort við hefðum séð eitthvað. Já, já, var svarið með bros á vör. Við höfðum séð það sem ekki gleymist, já, ofurdagleið í bíl var þess virði. Ævintýrið varð enn meira er leið á daginn af tilhugsun- inni um að við höfðum rambað á næstum eina staðinn í öllu Alsace og þó víða væri leitað þar sem sást til hinnar sortnandi sólar. Talið er að um tveir milljarðar manna hafí fylgst með er almyrkvi varð á sólu í gær Land’s End, Lundúnir, Alsír. AP, Reuters. Drúídar döns- uðu sóldans JÓHANNES Páll páfi fylgdist með sólmyrkvanum í Róm. ALDREI fyrr hafa eins margir fengið tækifæri til að berja sól- myrkva augum og í gær, en talið er að um tveir milljarðar manna hafi fylgst með honum. Fjölmargir vís- indamenn sem og almenningur lögðu leið sína til staða þar sem myrkvinn sást sem best og kenndi víða ýmissa grasa. Nær alger sólmyrkvi varð í Lund; únum í fyrsta skipti í sjö áratugi. I stað þess að fylgjast með nýjustu tölum verðbréfasölu góndu fjár- málaspekingar verðbréfahallanna upp í himininn. En aðgerðaleysið er af hlaust olli því að viðskipti minnk- uðu um stundarsakir um allt að helming. Verðbólguskýrsla breska seðlabankans þurfti að keppa við sólmyrkvann um athygli markaðar- ins en útgáfu hennar var flýtt um einn dag til að forðast árekstur við sólmyrkvann þar sem búist var við að bæði hefðu töluverð áhrif á gengi verðbréfa. „Við þurfum aðeins að bíða í þrjá mánuði eftir næstu verð- bólguskýrslu, en biðin í næsta sól- myrkva spannar átta áratugi," var haft eftir starfsmanni. Yfírnáttúrleg orka Tveggja tíma sleitulaus sólardans drúídans Ed Prynn og nokkur vel valin orð hans við hið sögufræga eikartré Boris í suðurhluta Eng- lands endurvöktu anda töframanns- ins Merlins sem að sögn Prynn blés skýjum frá sólu aðeins örfáum and- artökum fyrir sólmyrkvann. Þjóð- sagan segir að Artúr Englandskon- ungur hafi komist til valda fyrir til- stilli anda Merlins og stendur eikar- tréð er leiddi krafta hans úr læðingi skammt frá Tintagel, fæðingarstað Artúrs. „Eg hef aldrei á ævinni ver- ið eins hamingjusamur," sagði Ed Prynn blaðamanni óstyrkri röddu. „Undir það síðasta var ég orðinn mjög örvæntingarfullur en einmitt þá svaraði Merlin kalli mínu. Mér leið eins og ég væri á dánarbeði, rétt eins og sólin.“ Þótti honum það allógnvekjandi þegar tunglið myrkvaði sólu. Tvö hundruð manns leigðu þotu Um tvö hundruð manns fóru um borð í þotu á Heathrow sem þau leigðu gagngert til að fylgjast með sólmyrkvanum skýjum ofar í 55.000 feta hæð. „Mig hefur dreymt um þetta augnablik í meira en ár,“ sagði einn farþeganna sem keypti tvo miða í brúðkaupsgjöf handa eig- inkonu sinni. Skuggi tunglsins féll á jörðina yf- ir Mið-Evrópu um hádegisbil í gær. Hann færði sig yfir Miðausturlönd og tók enda yfir Bengalflóa á Ind- landi. Prestar í indverskum þorpum ráðgerðu að hringja bjöllum og skiptast á um að berja stálplötur í þeim tilgangi að verjast hinu illa. Þeir biðja fyrir lausn sólarguðsins úr klóm Rahus, sem er dreki ills myrkrahöfðingj a. I Alsír höfðu allmargir íbúar uppi gamla siði tengda sólmyrkva. Líkt og á Indlandi var víða barið á stál- skildi eða plötur og íbúar fjallahér- aða öskruðu í átt að sólu. Múslímar streymdu hvarvetna í moskur til bænastunda. Yfirvöld í Alsír, Jórdaníu og á Sýrlandi lýstu daginn frídag og skipuðu konum að vera heimavið að líta eftir ungviðinu. Klifraði upp í háspennumastur Tuttugu og fjögurra ára gamall námsmaður klifraði upp í há- spennumastur í bænum Landau i Suður-Þýskalandi með það fyrir augum að nálgast sólu. Olli atvikið stórslysi, en maðurinn var fluttur á gjörgæsludeild eftir að hafa hlotið tuttugu þúsund volta rafstraum. í stórborgum Mið-Evrópu lögðu margir leið sína upp í turna og há- hýsi til að fylgjast með sólmyrkvan- um. Gestir Eiffelturnsins skiptu mörgum þúsundum og kveikt var á Ijósum hans þegar myrkrið færðist yfir borgina, sem olli hátíðar- stemmningu. Við frægar verslunar- götur miðborgarinnar sat fólk á veitingahúsum prýtt gleraugum frægra hönnuða.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.