Morgunblaðið - 12.08.1999, Page 27

Morgunblaðið - 12.08.1999, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999 27 ERLENT Bandaríkin buðu lið til A-Tímor Canberra. Reuters. EMBÆTTISMENN í bandaríska hernum tjáðu áströlskum vamar- málasérfræðingum í júní sl. að Bandaríkjastjóm teldi koma til greina að senda fimmtán þúsund manna herlið til Austur-Tímor er blóðug átök breiddust þar út. Ástralska dagblaðið The Melbourne Age greindi frá þessu á mánudag. Hafði blaðið eftir háttsettum stjórnarerindrekum að bandarísku embættismennimir hefðu lagt áherslu á að þessi möguleiki kæmi einungis til greina í ýtrastu neyð, ef stöðva þyrfti án tafar umfangsmikl- ar ofbeldisaðgerðir hermanna er njóta stuðnings indónesískra stjórn- valda. Austur-Tímor, fyrrverandi portú- gölsk nýlenda í indónesíska eyjakla- sanum, var hertekin af Indónesum 1975 og hefur heyrt undir Indónesíu síðan. Þar hefur geisað blóðug borgarastyijöld. I lok mánaðarins mun fara fram atkvæðagreiðsla meðal íbúanna um hvort héraðið lýsi yfir sjálfstæði eða verði full- valda sem hluti af Indónesíu. Utanríkisráðherra Ástralíu, Alex- ander Downer, sagði á mánudag að bandarískir embættismenn hefðu nefnt óformlega möguleika á friðar- gæsluliði í A-Tímor og spurt hvort Astralar vildu taka þátt í slíkri gæslu. Hefði ástralski herinn engu lofað um það. „Þetta var hvorki formleg beiðni frá Bandaríkjastjóm né til marks um stefnu Bandaríkja- stjórnar," sagði Downer á ástralska þinginu á mánudag. Hann sagði að sér hefði verið tjáð að málið hefði ekki verið nefnt við áströlsk stjórn- völd og heldur ekki við bandarísk stjórnvöld. Lögleiðing líkn- ardrápa á döf- inni í Hollandi Amstcrdam. Reuters. HOLLENSKA stjómin lagði á mánudag fyrir þing landsins sögulegt stjómarframvarp, sem kveður á um lögleiðingu líknar- drápa. Þykja allar líkur á að framvarpið hljóti samþykki, en fari svo verður heimilt að lina þjáningar barna allt niður í tólf ára aldur. I framvarpinu er þeim lækn- um, sem fylgja nákvæmum regl- um um framkvæmd líknardráps, heitið lagalegri friðhelgi. Jafn- framt verður gefin heimild fyrir því að lina þjáningar ungra barna, sem þjást af ólæknandi sjúkdómum, en einungis ef for- eldrar bamanna veita vilyrði sitt. Við tilteknar aðstæður gæti læknir þó orðið við óskum bams um að lina þjáningar þess án samþykkis foreldranna. Hollenska læknafélagið hefur fagnað frumvarpi stjórnvalda en það þykir veita frjálslyndum reglum um líknardráp í Hollandi þá lagalegu stoð, sem vantað hefur. Á hinn bóginn er talið víst að Kristilegi demókrataflokkur- inn og nokkrir minni flokkar kalvínista muni beita sér hart gegn samþykkt framvarpsins. Sameini stjórnarflokkamir þrír krafta sína ætti hins vegar ekki að verða erfiðleikum bundið að fá frumvarpið samþykkt á þingi. Einungis einu sinni áður hefur verið reynt að lögleiða líknar- dráp í heiminum en það var í september 1996 þegar slíkt laga- framvarp var samþykkt á Norð- ursvæði Ástralíu. Lögin vora hins vegar numin úr gildi í mars árið eftir. kynning verður föstudaginn 13. ágúst frá ki. 13-18 í Kaupfeiagi lúnvetninga, Hvammstanga. 15% afsláttur Ný 120 síÖna handbók um vörur og þjónustu BM*Vallá — iL Rómarslofa S ' i «1 Hí 1>1 ii áá'ji'J m & t X- % HUSOG GAP.ÐUR Fegraðu hús og garð BMA/allá cmðveldar þér verhið! Komdu í heimsókn og fáðu ókeypis eintak af handbókinni „HÚS OG GARÐUR“ í söludeild okkar í Fornalundi. í handbókinni finnur þú meðal annars upplýsingar um steinsteypu, þakskífur, milliveggja- einingar og loftaplötur. Ef þú ert að byggja eða breyta tryggir bygginga- ráðgjöf BM*ValIá þér bestu lausnirnar. Borgarskífa Steinklædning Sérþjónusta © BM-VAIIÁ Söludeild t Fornalundi Breiðhöfða 3 Sími 585 5050 Fax 585 5051 handbolc@bmvalla.is AJ.LAN SOLAR- HRINGINN S 800 5050 www.bmvalla.is Opnunartímar: Virka daga kl. 9:00-18:00. Opið á laugardögum kl. 10:00-14:00. ÍD6A grofíik hönnun

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.