Morgunblaðið - 12.08.1999, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999 35
Hafsins mörgu andlit
LEIKLIST
Ljóðleikhds
HAFIÐ
Val á textum og leikstjórn: Eyðun Jo-
hannessen. Leikarar: Borgar Garð-
arsson, Hans Tórgarð, Rune
Sandlund og Varste M. Berndtsson.
Píanóleikari: Vladimir Shafranov.
Ráðgjafar við val texta: Carl Johan
Jensen, Hjörtur Pálsson, Katarina
Gáddnás-Karlsson og Kristian Aajo
Olsen. Norræna húsið 10. ágúst.
ÞAÐ er alltof sjaldgjæft að leik-
hús- og ljóðaunnendum gefist kost-
ur á að hlýða á ljóðleikhús á borð
við það sem fámennur samstarfs-
hópur leikara frá hinum vest-nor-
rænu eyjum, Islandi, Færeyjum og
Grænlandi, auk Álandseyja, bauð
upp á í Norræna húsinu síðastliðið
mánudagskvöld. Slíkur lifandi flutn-
ingur ljóða getur verið afar
skemmtilegur og áhrifaríkur, þegar
vel tekst til, og svo var um þessa
sýningu.
Hér er um að ræða samstarfs-
verkefni Norrænu stofnananna og
húsa eyjanna fjögurra, styrkt af
Norrænu ráðherranefndinni. Hóp-
urinn ferðast með sýninguna á milli
landa og var frumsýningin 24. júlí
síðastliðinn. Dagskráin er að mestu
leyti flutt á sænsku en með græn-
lensku og dönsku ívafi og krydduð
með fagmannlegum píanóleik hins
rússneska Vladimirs Shafranovs og
heillandi látbragðsleik hinnar græn-
lensku Varste M. Bemdtsson.
Sýningin ber yfirskriftina „Hafið“
Lífæðar
1999 opnuð
á Seyðisfírði
MYNDLISTAR- og ljóðasýningin
Lífæðar verður opnuð á Heilbrigð-
isstofnun Seyðisfjarðar í dag,
fimmtudag. Sýningin er opin al-
menningi á opnunartíma Heilsu-
gæslustöðvarinnar og einnig er
hægt að skoða sýninguna í samráði
við starfsfólk stofnunarinnar á öðr-
um tímum.
Sýningunni var hleypt af stokk-
unum á Landspítalanum og kemur
nú frá heilsugæslustöðinni á Vopna-
firði. Tólf myndlistarmenn sýna
samtals þrjátíu og fjögur myndverk
og tólf ljóðskáld birta átján ljóð.
Listamennimir em Bragi Ásgeirs-
son, Eggert Pétursson, Georg
Guðni, Haraldur Jónsson, Helgi
Þorgils Friðjónsson, Hreinn Frið-
finnsson, Hulda Hákon, Ivar Brynj-
ólfsson, Kristján Davíðsson, Osk
Vilhjálmsdóttir, Ragnheiður Jóns-
dóttir og Tumi Magnússon. Ljóð-
skáldin em: Bragi Ólafsson, Gyrðir
Elíasson, Hannes Pétursson, Ingi-
björg Haraldsdóttir, ísak Harðar-
son, Kristín Ómarsdóttir, Sigurður
Pálsson, Sjón, Matthías Johannes-
sen, Megas, Vilborg Dagbjartsdótt-
ir og Þorsteinn frá Hamri.
Sýningunni á Seyðisfirði lýkur 30.
ágúst, en þaðan fer hún til Selfoss.
Það er Islenska menningarsam-
steypan art.is sem gengst fyrir sýn-
ingunni í boði Glaxo Wellcome á Is-
landi.
----------------
Þjóðlagatón-
list í Kaffi-
leikhúsinu
ÞJÓÐLAGAHÓPURINN Bragar-
bót heldur sína þriðju tónleika í
Kaffileikhúsinu í kvöld, fimmtu-
dagskvöld, kl. 21 og verður endur-
tekin efnisskrá tveggja tónleika-
kvölda sem hópurinn flutti nýlega í
kaffileikhúsinu.
■Flutt verða íslensk þjóðlög í þeim
búningi sem þau ímynda sér að hafi
átt sér stað hjá forfeðrum okkar.
Bragarbót skipa Kristín Á. Ólafs-
dóttir, Ólína Þorvarðardóttir, KK
(Kristján Kristjánsson) og Sigurður
Rúnar Jónsson (Diddi fiðia).
og vísar hún til þess að texti sýning-
arinnar er saman settur úr ljóðum
og stuttum brotum úr prósaverkum
sem öll fjalla á einn eða annan hátt
um hafið, það náttúrufyrirbæri sem
hvað sterkast mótar líf eyjaskeggja
hinna norrænu ey-samfélaga. Ljóð-
in og textabrotin eru af ýmsu tagi
og leitast er við að sýna allir hliðar
hafsins, hina góðu og gjöfulu jafnt
sem hina grimmu og gráðugu. Sam-
hliða sýningunni hefur verið gefið
út eigulegt safn ljóðanna (sem
reyndar inniheldur mun fleiri ljóð
en flutt voru á sýningunni í Nor-
ræna húsinu) sem einnig inniheldur
venjulegar leikskrárupplýsingar.
Um valið á textum væri sjálfsagt
hægt að deila, því af ríkulegu efni er
að taka, vafalaust í bókmenntum
allra eyþjóðanna. Þeir textar sem
valdir voru (í samráði við bók-
menntafróða menn frá öllum lönd-
unum) eru flestir úr bók-
menntaflóru „kanónunnar" (þ.e.
þekktir og viðurkenndir af bók-
menntastofnuninni) og allir hafa
þeir mikið til síns ágætis. Hitt verð-
ur þó einnig að viðurkennast að
nokkuð hallar á yngri kynslóð
skálda, svo og kvenskáldin. (Og ég
stenst ekki freistinguna að benda
aðstandendum sýningarinnar á
ljóðabók Isaks Harðarsonar,
Stokkseyri, sem er ein athyglisverð-
asta ljóðabók síðustu ára þar sem
hafið er í aðalhlutverki.)
Fjórir leikarar, einn frá hverju
landi, flytja bókmenntatextana, ým-
ist í formi leiklesturs eða söngs.
Látbragði er yfirleitt í hóf stillt og
umgjörð sýningarinnar er einföld
(ein ljósmynd af hafinu í bak-
grunni). Það eru sjálfir textamir
sem eru í aðalhlutverki og í flestum
tilvikum njóta þeir sín afar vel í
vönduðum flutningi. Leitast er við
að skapa nálægð við áhorfandann,
t.d. kynna leikararnir sig með per-
sónulegum sögum - sem tengjast
hafinu - í byrjun. Flutningurinn var
undantekningarlaust góður, Borgar
Garðarsson flutti m.a. texta úr
Sölku Völku af væntumþykju og
ljóð eftir þá Dag Sigurðarson og
Stein SteinaiT af viðeigandi kímni.
Flutningur hins færeyska Hans
Tórgarð var opinn og lifandi, hinn
álenski Rune Sandlund var hófstillt-
ur en einarður í sínum lestri og hin
grænlenska Varste M. Bemdtsson
var einfaldlega frábær í öllu sínu
framandi látbragði og söngli. í lok-
in, þegar áhorfandinn heldur að allt
sé búið, byrja leikararnir (undir
klappinu) að fara með texta (uppá-
haldstexta sína?) og fyrir undirrit-
aða var það vissulega rúsínan í
pylsuendanum að heyra upphaf
Glataðra snillinga Heinesens og lok
Heimsljóss Laxness áður en haldið
var út í Vatnsmýrarkyrrðina.
Soffía Auður Birgisdóttir
20-70% afsláttur
RUSSELL ATHLETIC
fleece-fatnaður á hálfvirði
Opið í dag til kl. 22:00
HREYSTI
ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL
--Skeilinni 19 - S. 568 1717-
Russell Athletic bómull/fleece - Better Bodies - Columbia fatnaður - Tyr sundfatnaður - Fæðubótarefni o.m.fl.