Morgunblaðið - 12.08.1999, Page 43

Morgunblaðið - 12.08.1999, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999 43* 1 I 'É MENNINGARNÓTT í miðborg Reykjavíkur, sem nú verður haldin í fjórða sinn, hefur í huga margra tryggt sér sess sem ein af helstu hátíðum sum- arsins. Það er líkt og borgin breyti um svip í rökkri þessarar nætur, hún tekur á sig mynd stórborgar með iðandi mannlífi og nánast á hverju götuhorni er eitthvað um að vera. Sumir hafa líkt and- rúmsloftinu við kjöt- kveðjuhátíðir í Suður- Ameríku eða listahátíðir í Suður- Evrópu, og hvort sem veðrið leikur við okkur eða ekki, er ekki laust við að andrúmsloftið sé suðrænt. Hvarvetna um miðbæinn eru dyr opnaðar upp á gátt og boðið er upp á eitthvað til skemmtunar. Fjöldi fólks kemur saman til að njóta list- ar, veitinga eða bara samvista, í stuttu máli sagt, til að njóta lífsins. Gildi Menningamætur er ótvírætt, vakin er athygli á því blómlega menningarlífi sem í borginni dafn- ar og hve samtvinnun menningar og atvinnulífs getur verið gjöful. Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Menningamótt 1998 Síðasta Menningarnótt var hald- in í blíðskapai'veðri. Nálega 30 þús- und manns lögðu leið sína í mið- borgina. Sjá mátti alla aldurshópa á göngu um bæinn komna til að njóta þess sem í boði var. Margir buðu fram krafta sína og meðal fjölsóttustu við- burðanna má nefna Nótt hinna löngu ljóða í Iðnó, sýningu á verk- um Dieters Roths í Ráðhúsinu og fjöl- breytta dagskrá í Hallgrímskirkju allt frá setningu Menning- arnætur fram til mið- nættis. Hjálparsveit skáta lauk foiTnlegri dagskrá með tilkomumikilli flug- eldasýningu við Tjörnina meðan blásaraflokkurinn Serpent flutti „Flugeldasvítuna" eftir Hándel. Álls áttu um 100 aðilar þátt í að móta þá dagskrá sem í boði var og voru Seyðfirðingar sérstakir gestir borgarinnar. Menningamótt 1999 Menningarnótt er haldin að frumkvæði Reykjavíkurborgar og ávallt sem næst afmæli höfuðstað- arins 18. ágúst. í ár hefur henni verið valinn laugardagurinn 21. ágúst. Verkefnisstjóm hefur fengið fjölda aðila til liðs við sig til að gera þessa hátíð eftirminnilega, jafnt menningarstofnanir sem fyrirtæki, verslanir, gallerí, listamenn, veit- ingastaði, félagasamtök, kirkjur, banka, sagnaþuli, tískusýningar- Menningarnótt í sumarlok minnir hún okkur á alla þá fjöl- breytilegu flóru menn- ingar og lista, segir Signý Pálsdóttir, sem tekur að blómstra þeg- ar annar gróður fölnar. fólk og slökkviliðið, svo eitthvað sé nefnt. Isfirðingar verða sérstakir gestir borgarinnar að þessu sinni og standa fyrir menningardagskrá í Ráðhúsinu. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri setur hátíðina í Lýð- veldisgarðinum við Hverfisgötu klukkan fjögur síðdegis. Við það tækifæri mun Hallgrímur Helga- son rithöfundur flytja ávarp og hópur ungmenna frá Marokkó, Túnis, Finnlandi og íslandi dansa, syngja og leika tónlist. Þá tekur við fjölbreytt dagskrá vítt og breitt um miðborgina fram yfir miðnætti. Flugeldasýningin mikla hefur verið flutt frá Tjöminni að Reykjavíkur- höfn og hefst hún um hálfellefu þegar rökkvað er orðið. Á hafnar- bakkanum verður þá einnig fram- flutt tónverk fyrir átta trommur eftir Gunnlaug Briem. Nánari til- högun dagskrárinnar verður kynnt á næstunni í fjölmiðlum og dreifi- ritum sem hægt verður að nálgast hjá þátttakendum í miðborginni. ítarlegar upplýsingar verða á heimasíðunni www.reykja- vik.is/menningamott. Þar má fylgj- ast með dagskránni þróast, því sí- fellt bætast fleiri atriði við. Dag- skrá Menningamætur er öllum op- in og er enginn aðgangseyrir. Menningamætur erlendis Menningamótt í miðborginni á sér margar erlendar fyrirmyndir. Nefna má Kulturnatten í Kaup- mannahöfn, sem haldin verður í sjöunda sinn 15. október nk. Talið er að á síðasta ári hafi 70 þúsund manns sótt þá menningarviðburði sem í boði vora á menningamótt Kaupmannahafnar. Sú hátíð er haldin í tengslum við haustfrí skól- anna. Markmið borgaryfírvalda í Kaupmannahöfn með menning- amóttinni er tvíþætt: annars vegar er almenningi gefið tækifæri til að njóta menningarviðburða og hins vegar er ætlunin að glæða almenn- an áhuga á menningu svo fólk leiti hennar í auknum mæli sjálft síðar. Síðasta haust var undirrituð við- stödd Uitmarkt, menningarhátíð- ina í Amsterdam sem stendur yfir síðustu helgina í ágúst og verður í ár haldin í 22. sinn. Hún er fyrir- myndin að þeim menningamóttum sem auðgað hafa mannlíf borga víða um Evrópu. Fyrir utan ótal atr riði innanhúss og utan var upplýs- ingamarkaður á götunum. Þar kynntu 250 menningarstofnanir starfsemi sína á komandi vetri. Að auki lagði bókamarkaður Amster- dam undir sig heila götu þar sem um hundrað útgefendur kynntu nýjustu bækurnar. Á Uitmarkt era sýnishorn af því sem í boði verður um veturinn í öll- um listgreinum og Hollendingar _________________UMRÆÐAN Menningarnótt í miðborginni 21. ágúst Signý Pálsdóttir líta á Uitmarkt sem upphafið á menningarlífi vetrarins. Kannanir sýna að 20% þeirra sem sækja við- burði Uitmarkt hafa aldrei sótt listviðburð áður. Uitmarkt evf. stærsti menningarviðburður Hollands og er sóttur af um hálfri milljón gesta auk þess sem sjón- varpað og útvarpað er beint frá at- riðunum. Menningarhátíð með þjóðhátíðarbrag Menningamótt í Reykjavík er enn ný af nálinni og á vafalítið eftir að þróast og breytast á komandi áram. Eins og fyrirkomulag henn- ar er nú má segja að hún sé blanda alþýðumenningar og hámenningar, eins konar óformleg menningarhá- tíð með þjóðhátíðarbrag. Menning- arnótt gefur íslenskum listamönn- um tækifæri til að kynna list sína og borgarbúum og gestum þeirra færi á að njóta hennar. Hún er há- tíð okkar allra og gefur okkur kost á að uppgötva eitthvað nýtt á að- gengilegan og skemmtilegan hátt. I lok sumarsins minnir hún okkur á alla þá fjölbreytilegu flóra menn- ingar og lista sem tekur að blómstra í Reykjavík þegar annar gróður fölnar og komið er haust- hljóð í vindinn. Höfundur er menningarmálastjóri Reykjavíkurborgar. ERTU FITUB0LLA? Viltu snúa við blaðinu? Hjálp fæst! S. 426 7426 f. hádegi. Díana.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.