Morgunblaðið - 12.08.1999, Side 63

Morgunblaðið - 12.08.1999, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ BREF TIL BLAÐSINS FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999 63 1 ROYAL COI’I NHAOl.N GFORG )FNSt-N Sorgleg sýn í Langadal Frá Örnu Hansen: EINS OG undanfarin sumur lagði ég leið mína inn í Þórsmörk með fjölskylduna. Ég hef haft það fyrir reglu að fara að minnsta kosti einu sinni yfir sumarið og alltaf hafa Básar orðið fyrir valinu. Svæðið í Básum hefur verið skemmtilega skipulagt af ferðafélaginu Útivist, göngustígar upp um allar hæðir og yndislegt að njóta stórbrotinnar náttúrunnar þar. Ég ákvað að hafa ferðina lengri þetta sumarið en venjulega og dvaldi í tæpa viku og kom mér vel fyrir á unaðsreiti inn- arlega í Básaskarðinu þar sem ég sofnaði við lækjarnið og fuglasöng. Þegar vel var liðið á vikuna ákváð- um við hjónin ásamt samferðar- fólki okkar að leggja leið okkar yf- ir í Langadal og jafnvel enn lengi-a eða yfir í Húsadal en það átti að ráðast af gönguþoli barnanna. Lagt var í’ann upp úr hádegi og gangan byrjaði vel. Það var hins vegar ófögur sýn sem birtist okkur fljótlega eftir að hafa farið yfír göngubrúna yfir Krossá á leiðinni í Langadal. Sérútbúnir jeppar voru á víð og dreif í ánni og engu líkara en mennirnir héldu að þeir væru að keyra Reykjanesbrautina. Áin hafði vaxið mjög, eftir góðviðri síð- ustu tvo daga enda munaði ákaf- lega litlu að við hefðum orðið vitni að veltu í ánni. Þegar sá bíll hins vegar var kominn á þurrt koma ungir menn út úr honum og a.m.k. var farþeginn drukkinn og bíl- stjórinn leit ekki út fyrir að vera alveg edrú. Jepparnir voru þarna í löngum röðum á bílastæðinu og hávaðinn úr þeim þvílíkur, þ.e.a.s. tónlistin, að ekki var hægt að tala saman. Þegar okkur varð litið á tjaldsvæðið lágu þar ungmenni um allar brekkur ýmist alklædd eða á nærfötunum einum fata. Klósett- pappír, bjórdósir, tómar og fullar vínflöskur voru út um allt. Hérna ætluðum við ekki að stoppa, en ég neyddist þó til að fara með dóttur mína á salernið. Þar var vægast sagt ógeðslegt um að litast og kóf- drukknar unglingsstúlkur að mála sig á milli þess sem þær fengu sér sopa af bjórnum. Ég valdi það að láta dóttur mína pissa úti enda ekki mönnum bjóðandi subbuskap- urinn á salerninu. Annað sem við höfðum ætlað okkur að gera í Langadal var að komast í sjopp- una enda búið að lofa börnunum einhverju að drekka. Hún var hins vegar lokuð en á miða sem hékk á nálægu upplýsingaspjaldi stóð að sjálfsagt væri að leita til skála- varða ef komast þyrfti í sjoppuna utan opnunartíma. Ég ákvað að notfæra mér þessa þjónustu og lagði af stað í skálann. Skíthrædd olnbogaði ég mig í gegnum skar- ann og að skálanum. Þar fann ég „skálaverðina“. Þama sátu 5-6 stelpur og voru að næra sig, með- alaldur þeirra hefur ekki verið hærri en 18 ár. Ég spurði vinsam- lega hvort möguleiki væri á að fá að kaupa gos í sjoppunni og sagði þeim frá loforðum okkar gagnvart börnunum. Ein þeirra lét sig hafa það að líta upp úr samlokunni sinni og svaraði því til að sjoppan opnaði ekki fyrr en klukkan þrjú eða eftir 40 mínútur. Það var þá ekkert annað að gera en að bíða. Þessi stúlka varð þó svo vingjarnleg að koma eftir korter og opna sjopp- una fyrir okkur. Þessi leiðinlega lífsreynsla mín úr Langadal í Þórsmörk varð enn sorglegri þegar ég sá stóran hóp útlendinga með bakpoka, göngustafí og allt tilheyrandi. Ég skammaðist mín svo fyrir landann að ég lagði af stað til baka yfir í Bása. Aumingja útlendingarnir stóðu stjarfir og horfðu á það sem fyrir augu bar. Fararstjórinn hins vegar brosti vandræðalega. Ég ef- ast ekki um að hann velur sér aðra gönguleið með næsta hóp sem hann tekur á móti. Þær spurningar sem brenna á vörum mér eru þessar: Hvar voru þessir 10 lögreglumenn sem áttu að vera inni í Þórsmörk þessa helgi 2.-4. júlí? Ekki hefði verið vanþörf á löggæslu við ána. Hvar er metnaður Ferðafélags Islands, þess rótgróna og virta félags? Er þetta virkilega það sem þeir setja á oddinn, unglinga í drykkjumara- þoni? eða eins og viðtalið við ung- an mann sem var að koma úr Þórs- mörk þessa helgi sýnir: „Nú auð- vitað var ég á fylleríi, til hvers heldurðu að maður fari í Þórs- mörk?“ ARNA HANSEN, hjúkrunarfræðingur, Reykjavík. EÐALVARA TIL GJAFA KUNIGUND SKOl.AVðRÐUSIÍG 8 S 551 3469 Brandtex fatnaður Stretchbuxur kr. 2.900 Konubuxur frá kr. 1.690 Dragtir, kjólar, blússur og pils. Ódýr náttfatnaður. Hvort sem leið þín liggur á Austurvöll eða Austurland; upp á hálendið eða upp í Breiðholt er Honda CR- V rétti ferðafélaginn. Honda CR-V ar vel búinn og sprækur sportjeppi é mjög hagstæðu verði og sameinar bestu kostijeppa og borgarbíls. - betri bill VatnagðrDum 24 ■ Slmi 5201100 ■ www.honda.is i Nýbýlavegi 12, sími 5544433 Akranos: Bífvar sL slmí 431 1985. Akunyrír Höldur hf., slmi 4613000. Egitsstaðk: B9a- og búvólasslan hf., aimt 471 2011. Kmftavik; Bitasaian Bílavík simi 421 7800. Voatmannaayjar: BílaverkstæÖið Biagginn, a(mi 481 1S3B.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.