Morgunblaðið - 17.08.1999, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
*
Afrýjunarnefndin staðfestir úrskurð Samkeppnisráðs í meginatriðum
Landssíminn vinnur að
gerð nýrrar gjaldskrár
Starfsár umboðsmanns
barna árið 1998
Sífellt
fleiri er-
indi berast
frá stjórn-
völdum
í NÝÚTKOMINNI skýrslu um-
boðsmanns barna, Þórhödar Líndal,
fyi-ir starfsárið 1998 kemur m.a.
fram að skráð munnleg erindi til
embættisins á árinu hafi verið 1.043.
Er það tæp 40% aukning frá árinu
1997, en þá voru skráð munnleg er-
indi 750. Flest erindanna vörðuðu
vandamál barna og fullorðinna í
kjölfar skönaðar og sambúðarslita,
en einnig snerust þau um skólamál
og málefni bamavemdar „í víðum
sköningi," eins og Þórhildur orðar
það í skýrslunni.
„En ég vil taka fram að fæst
þessara erinda varða beinlínis van:
rækslu eða illa meðferð á bömum. I
þeim tilvikum að embættinu berast
tökynningar af slíkum toga, er þeim
tafarlaust komið áfram tö barna-
verndaryfirvalda í viðkomandi
sveitarfélagi," segir hún.
Skrifleg mál voru 55
á síðasta ári
Þá kemur fram í skýrslunni að
alls 55 skrifleg mál hafi verið til
meðferðar hjá umboðsmanni bama
á síðasta ári og að mörg þeirra hafi
borist embættinu frá Alþingi eða
stjórnvöldum. „Á árinu veitti ég 10
umsagnir um frumvörp og þingsá-
lyktunartdlögur sem voru til með-
ferðar í þinginu,“ segir Þórhildur
m.a. „Ég hef lagt mig fram um að
fylgjast mjög náið með allri mál-
efnavinnu á Alþingi, sem varðar
hagsmuni, þarfir og réttindi um-
bjóðenda minna með beinum eða
óbeinum hætti, og tel ég því bæði
sjálfsagt og eðlilegt að Alþingi leiti
eftir umsögn minni þegar það hef-
ur mál til umfjöllunar sem varða
sérstaklega börn og unglinga."
Önnur skrifleg erindi sem emb-
ættið fékkst við á síðasta ári sner-
ust m.a. um umfjöllun fjölmiðla um
böm, hedsufar þeirra, aðbúnað og
næringu svo dæmi séu tekin. „Ein-
staklingserindi heyra nú til undan-
tekninga, en þau erindi einstak-
linga sem ég tek fyrir eru þá nán-
ast eingöngu frá börnum." Sem
dæmi um slíkt erindi er mál er
varðar höfnun á umsókn um
menntunarmeðlag.
í ÚRSKURÐI áfrýjunarnefndar
samkeppnismála í máli Landssím-
ans gegn samkeppnisráði kemur
fram að Landssími íslands hf. hafi
einstæða yfirburðaaðstöðu í síma-
þjónustu hérlendis. Samkeppnisráð
hafði í úrskurði sínum í júní síðast-
liðnum lagt til við samgönguráð-
herra að hann hlutaðist til um að
stofnað yrði sérstakt dótturfyrir-
tæki um rekstur GSM-þjónustu
Landssímans. í úrskurði áfrýjunar-
nefndar segir að svo lengi sem
GSM-þjónusta Landssímans sé rek-
in sem hluti af Landssíma Islands
skuli félagið árlega senda Sam-
keppnisstofnun áritaða yfirlýsingu
löggilts endurskoðanda um uppgjör
fyrir GSM-þjónustu Landssímans.
Landssíminn ætlar að vinna nýja
gjaldskrá þar sem áskriftarflokkar
verða byggðir á nýjum kostnaðarút-
reikningum. Talsmaður Landssím-
ans segir að sé það ásetningur sam-
keppnisyfirvalda að banna Lands-
símanum að bjóða viðskiptavinum
sínum mismunandi áskriftarleiðir
fyrir mismunandi notkun verði látið
á það reyna fyrir dómstólum.
I úrskurðinum segir að stórnot-
endaáskrift og mánaðarlegur af-
sláttur af verði í GSM-þjónustu
Landssímans eigi sér enga hlið-
stæðu á öðrum þjónustusviðum fyr-
irtækisins. Landssíminn hafi tekið
þessa ákvörðun án þess að fyrir lægi
nokkur kostnaðarútreikningur um
áætlaðan spamað og hagnað Lands-
síma íslands og þá hafi fyrirtækið
heldur ekki lagt fram fuönægjandi
gögn í þá veru þótt eftir væri leitað.
Landssíminn hafi ekki gefið fram-
bærilegar skýringar á því hvers
vegna afslátturinn sé svo miklu
minni í NMT-þjónustu en GSM-
þjónustu. Hér hafi verið um athöfn
að ræða sem hafi haft skaðleg áhrif
á samkeppni. Áfrýjunamefndin
staðfestir því bindandi fyrirmæli
samkeppnisráðs um að stjórnendur
Landssímans felli umræddan magn-
afslátt úr gildi.
„Við erum að meta úrskurðinn
og þau áhrif sem hann hefur og
heldur snemmt að segja til um
hver viðbrögð okkar verði,“ segir
Ólafur Stephensen, forstöðumaður
upplýsinga- og kynningarmála
Landssímans.
„Samkvæmt úrskurðinum er
stórnotendaáskrift og magnafsláttur
í núverandi formi óheimill frá og
með 1. september. Samkeppnisyfir-
völd kvarta undan því að það fyrir-
komulag að veita afslátt vegna mik-
illa viðskipta, sem er nú reyndar við-
haft hjá öllum farsímafyrirtækjum í
Evrópu sem við þekkjum tö, sé ekki
stutt nægjanlegum útreikningum.
Við höfum í þessu efni fyrst og
fremst farið eftir því sem tíðkast hjá
öðrum farsímafyrirtækjum í ná-
gi-annalöndunum og þykir þar eðli-
legt. Við ætlum í þessu ljósi að vinna
nýja gjaldskrá þar sem áskriftar-
flokkar verða byggðir á nýjum
kostnaðarútreikningum. Við erum
staðráðin í því að okkar viðskipta-
vinir fái að njóta sambærilegra
kjara og viðskiptaskilmála og við-
skiptavinir annarra farsímafyrir-
tækja í Evrópu. Við höfum ekki lagt
endanlegt mat á það hvort þessi úr-
skurður torveldi það en ef það er
ásetningur samkeppnisyfii'valda að
Landssímanum eigi einu evrópskra
farsímafyrirtækja að vera óheimilt
að hafa mismunandi áskriftarleiðir
fyrir viðskiptavini með mismunandi
notkun þá getum við ekki unað við
það og slíkt myndum við láta reyna
á fyrir dómstólum,“ segir Ólafur.
Varðandi stjórnunarlegan að-
skilnað sem farið er fram á í úr-
skurði áfrýjunarnefndarinnar segir
Ólafur að Landssíminn telji sig í
raun hafa náð honum fram með nýju
skipuriti. Hann segir að Landssím-
inn telji einnig að þau mál hafi verið
í lagi sem snúi að því að trúnaðar-
upplýsingar frá Taö berist ekki
GSM-deild Landssímans. „Það er
kannski ástæða til að auka traust og
trúverðugleika í þeim samskiptum
með því að við setjum okkm- skýrar
starfsreglur í því efni sem við kynn-
um viðskiptavinum okkar og sam-
keppnisyfirvöldum," segir Ólafur.
Snorra-
verkefni
lokið
HÉR á landi hafa í 6 vikur dvalið
ungmenni frá Kanada og
Bandaríkjunum sem þátttakendur
eru í svonefndu Snorra-verkefni.
Norræna félagið og
Þjóðræknisfélag íslendinga standa
að framkvæmd verkefnisins sem
stuðlar að auknum tengslum við
ungt fólk af íslenskum uppruna frá
téðum löndum. Landafundanefnd
styrkti verkefnið auk tuttugu
fyrirtækja.
Ungmennin þáðu boð forseta
Islands um heimsókn að
Bessastöðum á laugardaginn en á
sunnudaginn lauk dvöl þeirra hér.
Samkvæmt upplýsingum Óðins
Albertssonar starfsmanns
Norræna félagsins hefur dagskrá
verkefnisins verið mjög fjölbreylt.
„Þau dvöldu fjórar vikur í
heimabyggð forfeðranna eftir
kynningarviku hér í Reykjavík,"
segir hann og bætir við að síðustu
vikuna hafi þau farið í
ævintýraferð um landið.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Ungmenni af íslenskum uppruna frá Kanada og Bandarikjunum heimsóttu á laugardaginn forseta íslands,
herra Ólaf Ragnar Grímsson. Með á myndinni eru starfsmenn Norræna félagsins, Oðinn Albertsson og
Margrét Pétursdóttir.
Vísitasían
hefst í
Möðrudal
ÓLAFUR Sigurðsson,
fyrrverandi yfirlæknir
á Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri, lést á
Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri hinn
13. ágúst sl., 84 ára að
aldri. Ólafur fæddist 4.
ágúst 1915 í Reykja-
vík, sonur Sigurðar
Guðmundssonar,
kennara og síðar
skólameistara
Menntaskólans á
Akureyri, og Halldóru
Ólafsdóttur húsfreyju.
Ólafur lauk læknis-
prófi frá Háskóla ís-
lands 1941. Hann
stundaði framhaldsnám í lyflæknis-
fræði við Duke University Hospital
í Durham í Norður-Karólínu í
Bandaríkjunum 1943-45 og á
sjúkrahúsum í Lundúnum 1949-51.
Ólafur starfaði sem
læknir á Akureyri
1945-49 og 1951-53 og
í Reykjavík um nokk-
urra mánaða skeið
1951. Hann var yfir-
læknir við lyflækn-
ingadeöd FSA frá
1954 til 1985.
Ólafur var formaður
Hjarta- og æðavemd-
arfélags Akureyrar frá
stofnun 1964 og for-
maður læknaráðs FSA
frá stofnun þess 1976
tö 1980. Hann var
heiðursfélagi í Lækna-
félagi íslands, Lyf-
læknafélagi Islands og
í Læknafélagi Akureyrar.
Eftirlifandi kona Olafs er Anna
Björnsdóttir og áttu þau saman tvö
börn. Ólafur átti eitt barn fyrir
hjónaband.
GERÐ fjárlaga var rædd á ríkis-
stjómarfundi í síðustu viku. Geir H.
Haarde fjármálaráðherra segir að
fjárlagagerðin taki mið af stjómar-
sáttmálanum.
„Stjórnarsáttmálinn tekur tö alls
kjörtímabösins og það verður að
fara eftir fjárlögum á því kjörtíma-
bili. Við erum að feta okkur áfram í
þessu. Það em mörg markmið í
þessum stjómarsáttmála og líka í
ályktun landsfundar Sjálfstæðis-
flokksins í vor. Núna tel ég mikö-
vægasta markmiðið að halda vel ut-
an um stjórn efnahagsmála og
brýnast í mínum huga er það verk-
efni sem snýr að þætti ríkisfjármála
í stjóm efnahagsmála. Menn geta
síðan lesið það sem þeir vilja út úr
því,“ segir Geir.
Einstakir þættir ekki ræddir
Aðspurður um einstaka þætti
frumvarpsins, þar á meðal örorku-
bætur, tekjutryggingu og eööífeyri,
en á landsfundi Sjálfstæðisflokksins
í vor var meðal annars samþykkt
ályktun um afnám tekjutengingar
lífeyrisgreiðslna almannatrygginga,
auk þess sem t.d. heilbrigðisráð-
herra lýsti því yfir að örorkubætur
hefðu ekki hækkað nægjanlega
mikið á undanfömum árum, kvaðst
ráðherra ekki vilja tjá sig um ein-
staka þætti frumvarpsins. Engu sé
hægt að svara um innihald fjórlag-
anna á þessu stigi undirbúnings
þeirra, annað en að þau séu á hefð-
bundnu róli miðað við árstíma og
það vinnuferö sem að baki þeim
liggur.
„Það er ekki eðlilegt að svara til
um einstaka þætti eða málaflokka í
fjárlagafrumvarpinu. Hlutirnir
hafa sinn gang og síðan verða
menn að bíða til 1. október til að
sjá hvað í fjárlögum stendur,“ seg-
ir Geir.
FYRSTA guðsþjónusta biskups ís-
lands, Karls Sigurbjörnssonai', á
vísitasíuferð sinni um Múla- og Aust-
fjarðaprófastsdæmi verður í Möðru-
dalskirkju í kvöld. í framhaldi af
guðsþjónustunni verður síðan fund-
ur með kirkjubóndanum.
Á morgun hittir biskup prófast og
sóknarprest að Hofi í Vopnafirði,
hefur guðsþjónustu í Hofskirkju kl.
13 og í Vopnafjarðarkirkju um
kvöldið eftir fund með sóknarnefnd-
inni. Á fimmtudag verður biskup á
Fljótsdalshéraði. Þá em þrjár mess-
ur, sú fyrsta í Kirkjubæjarkirkju kl.
14, síðan í Hjaltastaðakirkju kl. 17
og kl. 20.30 er messa í Eiðakirkju. Á
föstudagskvöld verður messað í
Bakkagerðiskirkju en fyrr um dag-
inn heimsækir biskup Desjarmýri og
messar í Húsavík.
Aös messar Karl Sigurbjörnsson
37 sinnum í þessari vísitasíuferð
sinni og heldur fjölmarga fundi með
sóknarnefndum og prestum pró-
fastsdæmanna.
Andlát
OLAFUR
SIGURÐSSON
Ólafur
Sigurðsson
Gerð fjárlaga í undirbúningi
„Halda þarf vel um
stjórn efnahagsmála“