Morgunblaðið - 17.08.1999, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Sendiherra Breta
á Islandi heim-
sækir Norðurland
JIM McCulloch, sendiherra Breta á ís-
landi, hefur þessa dagana verið í árlegri
heimsókn sinni um Norðurland og síðast-
liðið fimmtudagskvöld hélt hann móttöku
á Fosshóteli KEA. í heimsókn sinni fór
sendiherrann m.a. til Húsavíkur þar sem
hann fór um borð í fyrrum varðskipið
Þór, sem nú gegnir hlutverki safns og
veitingastaðar. Einnig fór hann í hvala-
skoðun og hann endaði heimsóknina í
Þórshöfn, en kom þó við á Hvammstanga
á leiðinni suður yfir heiðar. Morgun-
blaðið hitti McCuIloch á Akureyri þar
sem hann var að undirbúa móttökuna
seinna um kvöldið.
Ánægjuleg heimsókn
„Það er árlegur viðburður að ég
heimsæki Norðurland til að kynnast
starfsemi sem hér fer fram og auglýsa
tilveru og starfshætti sendiráðs Breta í
Reykjavík. Norðlendingar eiga ekki allir
leið til Reykjavíkur á hveijum degi og
því verðum við að bregða undir okkur
betri fætinum. Þetta er eins og með
Múhameð og ljallið forðum daga ,“ sagði
McCuIloch. Hann sagði að sér þætti
ávallt ánægjulegt að koma norður og
gott fannst honum að hlutirnir tækju
ekki of miklum breytingum á milli ára.
„Auðvitað breytist margt hér eins og
annars staðar í áranna rás en mér finnst
ánægjulegt að t.d. hér á Akureyri lifir
hefðin góðu lífi,“ sagði McCuIloch.
Heimsókn McCuIlochs hófst á þriðju-
daginn eftir að hann hafði verið
viðstaddur vígslu minnisvarða um breska
hermenn á Selfossi. Hann hitti bæjar-
stjóra Akureyrar á miðvikudagsmorgni
en hélt að því búnu til Húsavíkur þar
sem hann fór í hvalaskoðun og brá sér
um borð í Þór.
Sá togvíraklippurnar frægu
„Ég er ákaflega hrifínn af hvala-
skoðunarferðum og fínnst gaman að sjá
hvað þær ferðir njóta orðið mikilla vin-
sælda hjá erlendum ferðamönnum. Þeg-
ar ég fór í fyrsta skipti fyrir þremur ár-
um voru mun færri en í dag, fjöldi gesta
hefur margfaldast," sagði McCulloch.
Hann var einnig hrifínn af heimsókn
sinni í varðskipið Þór. „Það var skemmti-
legt að sjá togvíraklippurnar frægu sem
Morgunblaðið/Pétur Jónasson
Jim McCulloch, sendiherra Breta, og eiginkona hans hlýða á leiðsögn Ásbjarnar
Björgvinssonar um Ilvalamiðstöðina á Húsavík.
notaðar voru gegn Bretum í þorskastríð-
inu. Einnig mátti sjá blaðaúrklippur frá
því í þorskastríðinu og skopmyndir
hanga þarna á veggjunum. Ég ætla að
reyna að útvega blaðaúrklippur um
þorskastríðið frá Grimsby og Hull svo að
fólk geti séð hvaða augum Bretar litu
þessa rimmu á milli þjóðanna," sagði
McCulloch.
Eins og áður segir kom McCulloch við
á Hvammstanga á leiðinni til Reykjavík-
ur. Þar hitti hann fyrir hóp breskra ung-
menna sem vann að umhverfisverkefni.
„Þetta eru samtök sem hafa komið til ís-
lands einu sinni á ári til að vinna að
margs konar þrifum á umhverfínu, hér
og þar á íslandi," sagði McCulloch að
lokum.
Kennsla að
hefjast í fram-
haldsskólum
NÚ LÍÐUR senn að því að fram-
haldsskólar um land allt taki til
starfa að nýju eftir sumarleyfi. I
Verkmenntaskólanum á Akureyri
hefst kennsla samkvæmt stundar-
skrá 23. ágúst næstkomandi og í
Menntaskólanum á Akureyri hefst
kennsla hinn 15. september næst-
komandi. Samanlagður nemenda-
fjöldi þessara skóla er um 1600
nemendur í dagskóla.
Tryggvi Gíslason, skólameistari
Menntaskólans á Akureyri, sagði að
um 590 nemendur yrðu við skólann í
vetur og eru þeir heldur færri en
áður. Hins vegar eru nýnemar um
185 talsins og hafa þeir yfirleitt ekki
verið fleiri en 180.
Hjalti Jón Sveinsson, skólameist-
ari Verkmenntaskólans á Akureyri,
sagði að fjöldi nemenda í dagskóla
skriði yfir þúsundið en endanleg
tala væri enn ekki Ijós. Að sögn
Hjalta er þetta svipaður fjöldi og
var á síðasta ári.
Morgunblaðið/Kristján
Aðgerðaáætlun fyrir Eyþing lögð fram á aðalfundi í Grímsey
Byggðamálin
verða ofar-
lega á baugi
AÐALFUNDUR Eyþings, sam-
bands sveitarfélaga í Eyjafirði og
Þingeyjarsýslum verður haldinn
fimmtudaginn 19. ágúst og föstu-
daginn 20. ágúst nk. og verður að
þessu sinni haldinn í félagsheimilinu
Múla í Grímsey. Um 50 fulltrúar
sitja aðalfundinn en ráðgert er að
um 60-70 manns heimsæki eyjuna í
tengslum við fundinn.
Pétur Þór Jónasson, fram-
kvæmdastjóri Eyþings, sagði að
fyrir utan hefðbundin aðalfundar-
störf, verði byggðamálin ofarlega á
baugi. „Meginmálið er þessi að-
gerðaáætlun fyrir Eyþing, sem er
verkefni sem við fengum Rannsókn-
arstofnun Háskólans á Akureyri til
að vinna. Það verkefni er unnið á
grundvelli þingsályktunartillögu um
stefnu í byggðamálum og samþykkt
var á Alþingi í vor.“
Pétur Þór sagði að stjórn
Eyþings myndi leggja Að-
gerðaáætlunina fyrir aðalfundinn í
Grímsey, þar verði farið í gegnum
skýrsluna og reynt að forgangsraða
verkefnum. „Við munum reyna að
draga það fram sem er brýnast á
okkar svæði og þá að skapa þrýst-
ing á þá hluti.“
Ingi Rúnar Eðvarðsson dósent
við HA mun kynna aðgerðaáætlun-
ina á fímmtudaginn en auk þess
munu þrír aðrir gestir ávarpa sam-
komuna. Bjarki Jóhannesson, for-
stöðumaður þróunarsviðs Byggða-
stofnunar, mun kynna aðgerðir í
byggðamálum á nýrri öld. Bjami
Kristinsson, framkvæmdastjóri
Reksturs og ráðgjafar Norðurlands,
mun fjalla um upplýsingatækni og
byggðamál og Þorvaldur Jóhanns-
son, framkvæmdastjóri Sambands
sveitarfélaga á Austurlandi, SSÁ
mun fjalla um sveitarfélögin og
landshlutasamtökin í breyttu um-
hverfi.
Pétur Þór sagði að mikið hafí ver-
ið rætt um alls kyns möguleika í
fjarvinnslu og upplýsingatækni út
um land og þá skipti engu máli hvar
menn eru staðsettir. „Þegar menn
hafa svo komist í kynni við raun-
veruleikann hafa þeir uppgvötað að
þar eru ýmsir flöskuhálsar og ekki
allt sem sýnist, fyrir utan að
kostnaðurinn er allur annar ef
menn eru staðsettir úti á landi.
Bjami Kristjánsson hefur verið að
skoða þetta mál sérstaklega og við
fengum hann til að koma með inn-
legg um þetta mál.“
Þorvaldur fjallar um einstaka
landshlutasamtök í breyttu um-
hverfi og þá með tilliti til breytinga
á kjördæmaskipan, auk þess sem
fyrir fundinn verður lögð sam-
starfsáætlun milli Eyþings og SSA.
Pétur Þór sagði að forsvarsmenn
samtakanna hafí rætt saman og vilji
taka strax upp formlegt samstarf.
Jafnframt verði farið strax í að
vinna að sameiginlegum málum og
horfa á þetta sem eitt svæði.
Einhverjir gista
í fellihýsum
Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri á Akureyri og formaður
Eyþings, setur aðalfundinn kl. 15.00
á fimmtudag en áætluð fundarslit
eru kl. 17.30 á föstudag. Þingfulltrú-
ar og gestir verða fluttir til Gríms-
eyjar sjóleiðina með Sæfara og þeir
munu gista á gistiheimimili staðar-
ins, í heimahúsum og í svefn-
pokaplássi í félagsheimilinu. Þá er
ljóst að einhverjir þeirra verða að
gista í hjólhýsum og fellihýsum sem
flutt verða frá Dalvík til Grímseyjar.
„Það verður vonandi gott í sjóinn
á leiðinni út í eyju, því annars er
hætta á að menn verði sjóveikir. Þá
er þetta bara sport fyrir fólk að búa
í tjaldbúðum við sundlaugina.“ Ekki
er GSM-samband í Grímsey og því
er ekki hætta á að síminn verði urr-
andi á menn á meðan fundað er og
taldi Pétur Þór það hið besta mál.
s
Aminning
til öku-
manna mál-
uð á veginn
STARFSFÓLK Vinnuskólans í
Dalvíkurbyggð, þau Guðrún
Björgvinsdóttir yfirflokkssljóri
og Ágúst Guðmundsson flokk-
sljóri, voru að mála tölustafinn
50 á Ólafsfjarðarveg, skammt
norðan Dalvíkurbyggðar, er
ljósmyndari Morgunblaðsins
var þar á ferð í vikunni. Með
þessum framkvæmdum er
verið að minna ökumenn sem
eru að koma frá Ólafsfírði til
Dalvíkur á að hægja ferðina
niður í 50 km á klst. áður en
þeir aka inn í bæinn. _
Þeim Guðrúnu og Ágústi
til halds og trausts var Felix
Jósafatsson varðstjóri í lög-
reglunni í Dalvíkurbyggð,
sem var þó á frívakt og hafði
þeim tekist að setja málningu
á skóinn hans. Utan vegar
sátu þær Elsa Hlín og nýbúinn
Vlora. Felix sagði þetta
sameiginlegt verkefni Dal-
víkurbyggðar, Vegagerðar-
innar og lögreglu og væri
áminnig fyrir ökumenn um
að draga úr hraðanum. Hann
sagði að einnig væri stefnt
að því að setja hraðatakmark-
andi strikamerkingar á vegi-
nn, líkt og sést víða, m.a.
framan við Jólahúsið í Eyja-
ijarðarsveit.
------------
Söngvaka
SÖNGVAKA verður haldin í
Minjasafnskirkjunni í kvöld, 17.
ágúst. Þar munu Rósa Kristín
Baldursdóttir og Hjörleifur Hjart-
arson flytja sýnishorn úr íslenskri
tónlistarsögu í tónum og tali.
Söngvakan hefst kl. 21 og miðaverð
er 700 kr. Innifalið í miðaverðinu
er aðgangur að Minjasafninu sem
er opið alla daga kl. 11-17 og og
einnig þriðjudags- og fímmtu-
dagskvöld kl. 20-23.