Morgunblaðið - 17.08.1999, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1999 23
SKODA FELICIA 1,3 kostar aöeins
865.000
Uaugavegur 170
i
VIÐSKIPTI
Sex mánaða uppgjör Sparisjóðs Keflavíkur
Hagnaður 49,2 milljónir
SPARISJÓÐUR Keflavíkur hagn-
aðist um 70 milljónir króna fyrir
skatta fyrstu sex mánuði ársins
1999, í samanburði við um 55 millj-
ónir króna á sama tímabili ársins
1998. Vaxtatekjur Sparisjóðsins
námu 569,2 milljónum króna á tíma-
bilinu og vaxtagjöld 362,1 milljón
króna á fyrstu sex mánuðum ársins.
Hreinar vaxtatekjur námu því 207
milljónum króna á þessu tímabili
samanborið við 185 milljónir króna
á sama tímabili í fyrra, segir í
fréttatilkynningu frá Sparisjóði
Keflavíkur.
Geirmundur Kristinsson, spari-
sjóðsstjóri Sparisjóðs Keflavíkur,
segir að þetta tímabil hafí verið
mjög gott. „Bæði var staðið í endur-
skipulagningu og útvíkkun á starf-
semi Sparisjóðsins. Við höfum verið
að fara inn á aðrar brautir. Við hóf-
um verðbréfaviðskipti og höfum
unnið að kostnaðaraðhaldi, og fylgj-
um aðhaldssamri stefnu í okkar
rekstri en höfum einnig mjög góðu
starfsfólki á að skipa. Auk þess má
nefna að dótturfélög okkar ganga
vel,“ segir Geirmundur.
í fréttatilkynningunni kemur
fram að heildarinnlán í Sparisjóðn-
um 30. júní 1999 ásamt lántöku
námu 8,1 milljarði króna og heildar-
útlán ásamt markaðsskuldabréfum
námu 9,0 milljörðum króna. Arð-
semi eiginfjár fyrstu sex mánuði
ársins 1999 var 16,3%, eiginfjárhlut-
fall var 9,41% og kostnaðarhlutfall
70,1%. Eiginfjárhlutfall Sparisjóðs-
ins samkvæmt CAD-reglum er
9,41% en var 9,71% árið áður.
FELICIA
Bestu
bílakaupin
' f lokki
nýrra bíla!
Ráðstefna
um net-
tölvulausnir
OPIN kerfi og Nútíma samskipti
halda í dag ráðstefnu um nettölvu-
lausnir í Iðnó við Tjörnina milli kl. 10
og 13. Á ráðstefnunni munu notend-
ur nettölva ræða um reynslu sína og
skyggnst verður til framtíðar, að því
er fram kemur í fréttatilkynningu.
Aðgangur að ráðstefnunni er ókeyp-
is en skráning fer fram á vefnum
www.nutima.is.
Framsögumenn verða Hermann
Valsson, framkvæmdastjóri Nútíma
samskipta, Rob Vemes, þróunarsviði
Boundless Technology, Stefán Hrafn
Hagalín, markaðsstjóri Opinna
kerfa, Trausti Elísson, forstöðumað-
ur tölvudeildar VÍS og Þorvaldur
Geirsson, yfírmaður tölvusviðs
Frumherja. Ráðstefnustjóri verður
Gunnar Á Bjarnason, sölu- og mark-
aðsstjóri Teymis.
Beinar útsendingar
frá kauphöllinni í
New York
Sjónvarps-
stöðvar
berjast
New York. AP.
MIKIL samkeppni ríkir á meðal við-
skiptafréttadeilda sjónvarpsstöðv-
anna CNN og CNBC í Bandaríkjun-
um. Talsmenn beggja stöðva hafa til-
kynnt um daglega sjónvarpsþætti
sem sendir verða út frá kauphöllinni
og hvor stöð um sig ætlar sér forskot
á hina.
CNBC hefur verið talin í forystu
viðskiptasjónvarpsstöðva en þáttur-
inn „Moneyline" á CNN er mjög vin-
sæll og fleiri horfa á hann en þátt
CNBC „Business Center“, að því er
mælingar gefa til kynna. Nú stendur
til að breyta „Business Center" hjá
CNBC á þann hátt að senda beint út
frá kauphöllinni í New York, tveimur
tímum eftir lokun. „Þegar Lou
Dobbs hætti með Moneyline hjá
CNN sáum við tækifæri til frekari
sóknar og höfum ákveðið að hraða
framkvæmdum,“ segir Bill Bolster,
forstjóri CNBC.
„Moneyline" verður óbreyttur hjá
CNN en áætlað er að hefja nýjan
þátt, „Street Sweep“ sem sendur
verður út frá kauphöllinni og hefst
einni mínútu fyrir lokun markaðar-
ins. Steve Korn, varaformaður
stjórnar CNN, segir það vænlegra
til árangurs að senda út þátt um leið
og markaðnum er lokað.
Árið 1995 voru fyrst leyfðar bein-
ar útsendingar frá kauphöllinni í
New York og nú hafa 22 sjónvarps-
stöðvar leyfi til útsendinga þaðan.
Verið er að rýma fyrir sérstökum
borðum svo CNN og CNBC geti
sent heilu þættina frá kauphöllinni
enda þótt ekki sé leyfilegt að senda
beint út á meðan viðskipti standa yf-
ir.
Enn einu sinni hefur breska tímaritið Auto Express sæmt
Skoda Feiicia titlinum "Bestu bílakaupin" í flokki nýrra bíla.
m
HEKLA
í tímaritinu er Skoda Felicia lofaður í bak og fyrir:
"Hinn sterkbyggði Skoda eröllum þeim kostum búinn, sem
unnt er að krefjast af ódýrum bíl."
"Skoda Felicia skarar enn og aftur fram úr fyrir fallegt útlit
og gæði miðað við verð."
"Vinsældir og árangur þessar bifreiðar er reyndar dyggilega
staðfestur með stórlega aukinni sölu um allan heim."
Sparisjóðurinn I Ksflavik
Úr milliuppgjöri 1999 :$61999 $61998 Breyting
Hreinar vaxtatekjur Milljónir króna 207,1 185,2 +11,8%
Aðrar rekstrartekjur 124,3 98,7 +26,0%
Hreinar rekstrartekjur 331,4 283,9 +16,8%
Önnur rekstrargjöld 232,4 204,0 +13,9%
Framlag til afskr.reiknings útlána 29,7 25,1 +18,7%
Skattar 20,1 15,6 +28,8%
Hagnaður tímabilsins 49,2 39,3 +25,3%
30/61999 31/121998
Heildareignir Milljónir króna 10.128,5 9.331,0
Skuldir og skuldbindingar 9.439,8 8.727,1
Eigið fé 688,7 603,9
Skuldir og eigið fé samtais 10.128,5 9.331,0
$é1999 $61998
Handbært fé frá resktri 250,7 195,8 +28,0%
www.heklo.is
hokla@hekla.is