Morgunblaðið - 17.08.1999, Qupperneq 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Að mörgu ber að huga þegar valin er skólataska
Kassalaga töskur
ekki æskilegar
NÚ FER að líða að því að fjölmörg
börn um allt land hefji fyrsta skóla-
daginn sinn. Flest hafa þau beðið
þessarar stundar með mikilli eftir-
væntingu og eflaust örlitlum kvíða.
Hluti af því að byrja í skóla er að
eignast skólatösku og fylla hana af
því sem nota þarf í skólanum. En
þar er að mörgu að huga og rétt að
foreldrar hugsi sig tvisvar um þeg-
ar valin er taska handa nýja skóla-
barninu.
Undanfarin ár hafa harðar,
kassalaga töskur verið vinsælar hjá
yngstu nemendunum en að sögn
Bertu Sveinbjamardóttur, kennara
sex ára barna í Grunnskólanum í
Borgarnesi, mæla kennarar þar
frekar með því að keyptar séu
mjúkar skólatöskur. Börnin reka
oft hvöss horn hörðu tasknanna
hvert í annað og eru dæmi um að
böm hafí fengið horn skólatösku í
augað og hlotið af því meiðsli.
Fleira ber að hafa í huga við val á
skólatösku því að sögn Ágústu Guð-
marsdóttur sjúkraþjálfara er allt of
algengt að sjá börn sem bera þung-
ar skólatöskur ganga hokin og með
framdregnar axlir sem smám sam-
an getur leitt til verkja í herðum og
baki, sem getur verið upphaf stoð-
kerfisvandamála síðar á ævinni.
Þegar hún er spurð að því hvemig
skólataskan eigi að vera, segir hún
hana þurfa að liggja þétt upp við
hrygg barnsins og sitja á mjöðmun-
um til þess að álagið dreifist jafnt á
líkamann.
„Ennfremur þurfa böndin að vera
bólstruð og stillanleg í lengd,“ segir
Ágústa. „Með einu handtaki þarf að
vera hægt að herða þau og losa.
Þetta auðveldar börnunum að setja
töskuna á sig og taka hana af sér og
ýtir undir að böndin séu hert svo
taskan haldist þétt að bakinu."
Að sögn Ágústu er æskilegt að
hafa brjóst- og mjaðmafestingar á
töskunni til að halda henni sem
næst líkamanum og gerir það barn-
inu kleift að hreyfa sig eðlilega og
jafnvel að hlaupa með hana. Jafn-
framt segir hún nauðsynlegt að
botn töskunnar sé stífur svo fari vel
um bækumar.
Ágústa segir að best sé að máta
skólatöskuna á bamið svo valin sé
rétt stærð og breidd. Brýnt er að
hafa bækur í henni þegar hún er
mátuð og á hún helst ekki að vega
nema 10% af þyngd barnsins þegar
hún er full og alls ekki yfir 20%.
Hvað á að vera
í skólatöskunni?
Foreldrar sex ára bama fá sent
heim bréf frá skóla bamsins þar
sem segir hvað þurfi að kaupa áður
en bamið byrjar í skólanum. List-
inn er nokkuð mismunandi eftir
skólum en að sögn Bertu þurfa sex
ára nemendur í Grunnskólanum í
Borgamesi, auk skólatösku, að eiga
litla íþróttatösku sem hægt er að
binda við skólatöskuna. Einnig
pennaveski, tvo blýanta, strokleður,
yddara með hólfi, vaxliti og 8-12
Stór vélsmiðja
Til sölu alhliða vélsmiðja í Reykjavik með sérhæfingu í ryðfríu stáli
og nýsmíði. Einnig þjónusta við stóra útgerðaraðila. Er í eigin hús-
næði sem einnig er til sölu. Mikill vélabúnaður, fjölbreytileg fram-
leiðsla og traustir viðskiptavinir. Hæfir starfsmenn. Laus strax. Mikil
vinna og stór verkefni framundan sem búið er að semja um.
Útgerðarstöð
Til sölu á Austurlandi heil útgerðarstöð. Sérbryggjur, aðgerðarhús,
kæliskemmur, tæki og færibönd, íbúðarhús, skrifstofur og allt sem til
þarf og á að vera. Frábær aðstaða fyrir þann sem vill fullnýta sinn
eiginn afla. Áhvílandi lán upp á 19 millj. Laust strax.
Frábær fyrirtæki
1. Blikksmiðja í Reykjavík. Lítil blikksmiðja sem hefur næg verkefni.
Yfirfullt að gera. 2—5 störf. Mikill og góður tækjabúnaður. Þarf að
flytja úr húsnæðinu. Laus strax.
2. Líkamsrækt, sólstofa og eróbikk. Er staðsett á besta stað I borginni.
Fullkominn tækjasalur, frábært starfsfólk og einstök aðstaða.
3. Plastverksmiðja. Til sölu sérhæfð plastverksmiðja sem býrtil plastbönd
fyrir iðnað og sjávarútveg.
4. Silkiprentun og innflutningur á glæsilegum fatnaði. Næg atvinna
fyrir þá sem hafa tíma fyrir þetta. Kennsla fylgir með.
5. Til sölu ein þekktasta ísbúð borgarinnar. Nýlegar innréttingar. Selur
einnig brauð og samlokur sem framleiddar eru á staðnum. Er staðsett
á stóru vinnusvæði. Laus strax vegna veikinda eiganda.
6. Lítil heildverslun sem selur alhliða hreinsiefni og flytur þau frá USA.
Bíll fylgir. Gott dæmi til að byrja með og síðan til að stækka.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
F.YRIRTÆKIASAlAIM
SUÐURVE R I
SIMAR 581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
Fyrsta skrefið að öruggu húsnæði!
Umsóknarfrestur til 24. ágúst
2ja herb.
Miðholt 1, Mosfellsbæ
48m2 íbúð, 202 Alm. lán
Búseturéttur kr. 766.745
Búsetugjald kr. 33.122
Frostafold 20, Reykjavík
62m2 íbúð, 603 Leiguíb. lán
Búseturéttur kr. 1.256.548
Búsetugjald kr. 32.030
3ja herb.
Nónhæð 1, Garðabæ
90m2 íbúð, 302 Leiguíb. lán
Búseturéttur kr. 1.119.891
Búsetugjald kr. 34.409
Frostafold 20, Reykjavík
78m2 íbúð, 305/802 Leiguíb. lán
Búseturéttur kr. 1.103.169
Búsetugjald kr. 39.665
Laufengi 5, Reykjavík
81m2 íbúð, 101 Leiguíb. lán
Búseturéttur kr. 843.556
Búsetugjald kr. 30.775
Ibúðir á Akranesi
Lerkigrund 5-7, Akranesi
80m2 íb. 101201/302 Leiguíb. lán
Búseturéttur kr. 986.647
Búsetugjald kr. 35.650
Lerkigrund 5, Akranesi
94m2 íbúð, 302 Leiguíb. lán
Búseturéttur kr. 1.133.898
Búsetugjald kr. 40.505
Nánari upplýsingar á skrifstofu Búseta hsf. Opið frá kl, 8.30 tíl í 5.30 nema miðyikudaga
frá 8.30-12.00. Með umsóknum um íbúðir með leíguíb.lán þárf að skila skatlframfölum síðústu 3ja ára, en
síðustu skatfskvrslu með umsóknum um íbúóir með almennum lánum,
Úthlutun íbúðanna fcr frarn m.iðvikudaginn 25. ágifet frá kl. 12.00-12.30 að Skeifunni 19.
L'msækjendur verða að mæta á tílskvldum tíma <>g staðfesta úthlutun sína, að öðrum kosti gætu þeir misst
réttindí sírt og íbúðinni úthlutað til.annars félagsmanns.
B ú s e t i h s f. S keif u n ni 19 s í m i 5 2 0-5788
www.buseti.is
Morgunblaðið/Ásdís
Margt ber að hafa í huga þegar valin er skólataska. Töskurnar á
myndinni kosta á bilinu 1595-5990 kr. í Máli og menningu.
Morgunblaðið/Golli
Taskan sem stúlkan ber upp-
fyllir flest skilyrði góðrar
skólatösku. Hún er einnig með
áfastri íþróttatösku sem týnist
því síður.
breiða og mjóa tússliti. Ennfremur
þurfa börn að eiga stóra möppu með
20 plastvösum, stóra stflabók og
litla reikningsbók með stórum rúð-
um, pappamöppu með teygjum og
einfaldan, ódýran vasareikni.
Leitað var til tveggja verslana á
höfðuðborgarsvæðinu, Hagkaups og
Máls og menningar þar sem kannað
var verð á ofannefndum vörum.
Reiknaðar voru saman ódýrustu
vörutegundimar annars vegar og
dýrustu hins vegar og var verð mjög
sambærilegt í báðum verslununum.
Skólatöskur sem uppfylltu sem
flest settra skilyrða kostuðu á bilinu
1495-6695 kr. Skriffæri voru á verð-
bflinu 2200-4429 kr. Gert var ráð
íyrir að keypt væru tóm pennaveski
og þau fyllt með skriffærum sem
keypt voru sér. Fyllt pennaveski
sem innihéldu mismikið af skriffær-
um voru hins vegar á verðbilinu
298-1998 kr. en þau eru einnig vin-
sæl meðal verðandi nemenda.
K O S T I R
góðrar skólatösku
0 Þarf helst að vera mjúk
□ Með stífum botni
R71 Þart að liggja þétt við
hrygg barnsins
(^/1 Ekki of breið
0 Böndin breið og bólstruð
og stillanleg í lengd
H Brjóst- og mjaðmafestingar
æskilegar
□ Með endurskinsmerkjum
j | Með sérhólfi fyrir nesti
Morgunblaðið/Ásdís
Hægt er að fá pennasveski og
aðrar skólavörur af öllum
mögulegum gerðum og er verð
því afar misjafnt.
íþróttatöskumar kostuðu frá
469-995 kr.
Samanlagt má því fá allt sem
bamið þarf fyrir fyrsta skóladaginn
á verðbilinu 4.300-12.000 kr. og er
skólataskan dýrasti hluturinn.
Revena
fótakrem
mm