Morgunblaðið - 17.08.1999, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Hörð átök vörpuðu skugga á minningarathöfn í bænum Omagh á Norður-frlandi um helgina
Úrskurðar að vænta
um vopnahlé IRA
Belfast. Reuters.
MO Mowlam, ráðherra Norður-ír-
landsmála í bresku ríkisstjórninni,
sagði í gær of snemmt að segja til
um hvort írski lýðveldisherinn
(IRA) hefði rofíð vopnahlé sitt í
síðasta mánuði með morðinu á tutt-
ugu og tveggja ára kaþólskum
manni í Belfast. Mowlam lagði hins
vegar áherslu á að hún myndi ekki
hika við að refsa Sinn Féin, stjóm-
málaarmi IRA, með því að banna
flokknum þátttöku í friðarumleit-
unum í héraðinu kæmi í ljós að
IRA hefði rofið vopnahlé sitt.
„Ef ég þarf að grípa til ráðstaf-
ana - og ég hef áður þurft þess -
mun ég gera það. Ég mun ekki
hlaupast undan þeirri ábyrgð,“
sagði Mowlam við fréttamenn í
gær og vísaði þar til þess að Sinn
Féin var tímabundið ýtt út í kuld-
ann skömmu fyrir undirskrift frið-
arsamkomulagsins, sem kennt er
við fostudaginn langa, í apríl 1998.
Hún sagðist ætla að meta gögnin í
málinu á næstu dögum og síðan til-
kynna um ákvörðun sína.
Bæði írskir og breskir stjórn-
málamenn lýstu í gær vonbrigðum
sínum með að óeirðir í Belfast og
Derry um helgina skyldu varpa
skugga á athöfn sem fram fór í
bænum Omagh á sunnudag til
minningar um þá 29 sem létust í
sprengjutilræði „hins sanna IRA“,
klofningshóps úr IRA, fyrir ári.
Ódæðisverkið er það mannskæð-
asta í sögu átakanna á Norður-ír-
landi.
Talið er að um tíu þúsund manns
hafi komið saman i Omagh, m.a.
sumir þeirra þrjú hundruð sem
særðust í sprengjutilræðinu.
Minntust menn hinna látnu með
einnar mínútu þögn en síðan var
haldin guðsþjónusta, sem fulltrúar
allra trúarhópa tóku þátt í.
Milljónatjón í Derry
Fulltrúar n-írsku lögreglunnar
sögðu í gær að nítján lögreglu-
menn hefðu orðið fyrir meiðslum í
átökum í Belfast á laugardags-
morgun. Um þrjú hundruð kaþ-
ólskir íbúar Lower Ormeau-göt-
unnar efndu þá til mótmæla vegna
þeirrar ákvörðunar yfirvalda að
leyfa göngu sambandssinna í gegn-
um hverfið, sem að mestu er byggt
kaþólikkum. Þurfti lögreglan að
fjarlægja íbúana af götunni svo
göngumenn kæmust sína leið og
gekk það ekki átakalaust.
Óeirðimar í Derry voru þó öllu
alvarlegri og stóðu með hléum alla
helgina. Talið er að eyðilegging í
Nokknr íbúar Derry í hnapp við flök tveggja bfla sem brenndir voru í
óeirðum í borginni um helgina.
miðbæ borgarinnar nemi hundruð-
um milljónum króna en kaþólsk
ungmenni brenndu bíla og vörpuðu
bensínsprengjum að lögreglunni til
að lýsa reiði sinni vegna þeirrar
ákvörðunar yfirvalda að leyfa
göngu sambandssinna um hverfi
kaþólskra.
Þjóðhátíð
Ung stúlka selur pappírsfána á götum Bombay á
þjóðhátíðardegi Indverja sem haldinn var hátíðleg-
ur í gær, 16. ágúst. Sex milljónir manna mynduðu
Reuters
á Indlandi
keðju frá þorpinu Daijeeling í HimalajaQöIlum
austur til Bengalflóa til að sýna ósk Indveija um
frið og einingu þjóðar og trúarhópa í landinu.
Atökum afstýrt
í bænum Kos-
ovska Mitrovica
Kosovska Mitrovica. AP.
YFIRMENN í Frelsisher Kosovo,
KLA, og bæjarstjóri albanska
hluta Kosovska Mitrovica aflýstu í
gær mótmælafundi á brúnni sem
tengir íbúðarhverfi Albana og
Serba í bænum.
Bæjarstjórinn, Bajram Rexhepi,
sagði að samningamenn bæjar-
stjómarinnar væru að ganga frá
samkomulagi við fulltrúa Samein-
uðu þjóðanna um að daglega
fengju 25 Kosovo-albanskar fjöl-
skyldur að snúa aftur til húsa sinna
í því hverfi Kosovska Mitrovica þar
sem Serbar eru í meirihluta, hand-
an árinnar Ibar.
Að boðuðum mótmælafundi
skyldi verða aflýst þykir vísa á gott
í þessum námabæ í norðurhluta
Kosovo, þar sem spenna hefur ver-
ið mikil undanfamar vikur og ít-
rekað slegið í brýnu milli æstra
Kosovo-Albana og friðargæzluliða
KFOR.
Það þykir ennfremur jákvætt
teikn íyrir þróun mála í Kosovo, að
í gær komu 200 serbneskir jám-
brautaverkamenn til Kosovo Polje,
en þetta er stærsti hópur Serba
sem snýr aftur til héraðsins frá því
stríðsátökum lauk þar. Hefndar-
þorsti Kosovo-Albana olli því að
flestir hinna á að gizka 200.000
Serba sem bjuggu í Kosovo forð-
uðu sér frá heimahögunum er her-
sveitir Serba drógu sig út úr hér-
aðinu í júní.
Terry Stewart, starfsmaður SÞ í
Kosovo, sagði serbnesku verka-
mennina munu hefja störf strax að
lokinni skráningu. „Þetta er
stærsti hópur Serba sem snúið hef-
ur aftur í sex vikur. Ég vona að
þeir verði héma áfram.“
Skotið á
friðargæzluliða
Um helgina bjargaði skothelt
vesti þýzkum friðargæzluliða í
Kosovo frá alvarlegum meiðslum,
er hann var við eftirlitsstörf ásamt
fleiri KFOR-liðum í bænum Zjum í
suðvesturhluta héraðsins. Atvikið
hefur aukið áhyggjur manna af ör-
yggi liðsmanna KFOR-friðar-
gæzluliðsins.
Mannréttindabrot hersins í Chile
Pinochet lýsir
yfír ábyrgð sinni
Santiago, Reutcrs
AUGUSTO Pinochet, fyrrum ein-
ræðisherra í Chile sagðist í viðtali,
sem birtist í chilesku dagblaði á
sunnudag, bera
ábyrgð á mannrétt-
indabrotum er
framin voru í
stjórnartíð hans
1973-1990. Pin-
ochet hefur setið í
stofufangelsi
skammt frá
London frá því í
október 1998 þar
sem hann bíður réttarhalda er
ákvarða eiga um framsal hans til
Spánar.
„Ég tek fulla ábyrgð á öllu, meira að
segja þeim tilfellum sem ég kom
ekki nálægt,“ sagði Pinochet í um-
ræddu viðtali. Aðspurður um tilfelli
þar sem vinstrisinnaðir voru pyntað-
ir af hermönnum eftir valdaránið
sagði hann, „það má vel vera að her-
menn mínir hafi stöku sinnum misst
stjórn á skapi sínu, slíkt hendir, mér
þykh' það mjög leitt.“ Hann sagðist
aftur á móti enn þeirrar skoðunar að
hann hafi barist íyrir réttum málstað
og lagt sitt af mörkum til að forða
landinu úr klóm kommúnismans.
I skýrslu, sem birt var árið 1991,
er talið að um þrjú þúsund manns
hafi horfið og/eða sætt pyntingum á
meðan á stjórnartíð Pinochets stóð.
Mál þeirra einstaklinga hafa fram til
þessa enga áheym hlotið fyrir
dómsvöldum í Chile.
Mandelson enn á ný
sakaður um spillingu
London. Reuters, The Daily Telegraph.
TALSMÉNN Tonys Blairs, for-
sætisráðherra Bretlands, sögðu í
gær „út í hött“ staðhæfingar um
að milljónamæringurinn Geoffrey
Robinson, fyrrverandi ráðherra í
fjármálaráðuneytinu, hefði lagt
Blair til 250 þúsund pund, um
þrjátíu milljónir ísl. króna, fyrir
síðustu þingkosningar í Bretlandi
árið 1997. Á sama tíma virtist
sem Peter Mandelson, fyrrver-
andi iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, væri enn á ný kominn í
vond mál en hann var í gær sak-
aður um að hafa reynt að skjóta
sér undan því að borga stimpil-
gjöld vegna íbúðarkaupa.
Robinson hvarf úr ríkisstjórn
Blairs í desember á síðasta ári
eftir að því hafði verið ljóstrað
upp að hann hafði lánað Mandel-
son 373 þúsund pund, eða um 45
milljónir ísl. króna, fyrir einbýlis-
húsi í Notting Hill-hveifinu í
London. Mandelson neyddist
einnig til að segja af sér vegna
málsins og ákvað í kjölfarið að
selja húsið í Notting Hill til að
endurgreiða Robinson lánið.
Mandelson er nú borið á brýn
að hafa falsað raunverulegt
kaupverð íbúðar, sem hann
keypti sér í staðinn fyrir húsið í
Notting Hill, til að komast hjá
því að greiða af því stimpilgjöld.
Sakaði Francis Maude, fjármála-
ráðherra í skuggaráðuneyti
íhaldsflokksins, leiðtoga Verka-
mannaílokksins um hræsni í gær.
„Það virðist sem ein lög gildi fyr-
ir ráðherra Verkamannaflokks-
ins og önnur fyrir okkur almenn-
ing,“ sagði Maude.
Þessi uppákoma kemur á
versta tíma fyrir Mandelson sem
undanfarið hefur leitað leiða til að
komast aftur í ríkisstjórn. Mun
hann m.a. hafa horft hýru auga til
ráðherrastóls George Robertsons
varnarmálaráðherra eftir að til-
kynnt var að Robertson tæki við
framkvæmdastjórahlutverki hjá
Atlantshafsbandalaginu (NATO)
í október.