Morgunblaðið - 17.08.1999, Page 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1999
ERLENT
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Svíþjóð og Danmörk
orðin landtengd
Reuters
Friðrik Danaprins og Viktoría Svíaprinsessa hittast á brúnni.
Næsta brúarverk-
efni: Danmörk -
Þýskaland
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
ÞAU hittust á brúnni frændsystk-
inin Friðrik, krónprins Dana, og
Viktoría, krónprinsessa Svía, er
brúin yfir Eyrarsund var tengd á
laugardaginn. Brúin verður þó ekki
opnuð formlega fyiir umferð fyrr
en 1. júlí að ári. Þótt margir bíði
spenntir eftir að sjá hver áhrif
brúin muni hafa, þá var fremur fá-
mennt við hátíðahöldin á laugardag
ef um 500 boðsgestir eru undan-
skildir.
Eftir velheppnaða brúargerð yf-
ir Stórabelti, milli Fjóns og
Sjálands, og nú að því er best verð-
ur séð milli Svíþjóðar og Danmerk-
ur, beinist athyglin að næsta stóra
verkefni: Brú yfir sundið á milli
Danmerkur og Þýskalands, sem
heitir Fehmarn-sund á þýsku og
Femer-sund á dönsku.
Bilið brúað
„Bilið brúað“ kölluðu frönsku
loftfimleikamennimir atriðið, sem
þeir sýndu gestunum á laugardag.
I fjarlægð líktust þeir brúarsmið-
um, þar sem þeir sveifluðust um í
sömu öryggislínum og brú-
arsmiðimir nota, íklæddir app-
elsínugulum göllum með hjálma.
Og bilið var brúað f orðsins fyllstu
merkingu, er síðustu brúareining-
unni var rennt á sinn stað með
Svaninum, hinum 100 metra háa
krana, sem notaður hefur verið við
smíðina. Um leið var hlutverki
hans lokið. Við þetta nákvæmnis-
verk má ekki skeika millimetra og
því notuð nýjasta landmæl-
ingatækni og gervihnattamið.
Nákvæmlega kl. tólf á hádegi
hittust þau á brúnni, Viktoría krón-
prinsessa og frændi hennar,
Friðrik Danaprins, en þau komu
keyrandi hvort frá sfnu landi. Með
faðmlaginu innsigluðu þau stund-
ina en löndin hafa ekki verið land-
fræðilega tengd síðustu 8.500 árin
eða svo, eða síðan ísöldinni lauk.
Mannvirkið, sem tengir löndin
tvö, er samtals 16.380 metra langt.
Frá Kaupmannahöfn er ekið út á
430 metra langt, tilbúið nes,
skammt frá Kastrupflugvelli. Þá
taka við 4.050 metra löng jarðgöng,
gerð úr einingum, sem sökkt hefur
verið í hafið. Upp úr göngunum er
farið út á 4.055 metra langa, til-
búna eyju, sem hlotið hefur nafnið
Piparhólmur til heiðurs Salthólm-
anum, sem liggur þar skammt frá
og íslendingar kannast kannski við
úr Salthólmsferð Jónasar Hall-
grímssonar.
Af eyjunni er keyrt upp á 3.014
metra langa tengibrú en þar var
síðustu einingunni rennt inn á
laugardaginn. Þar tekur við sjálf
hábrúin, sem er 1.092 metra löng
og þar er mest hæð undir brúna 57
metrar. Þá tekur við önnur 3.739
metra tengibrú, sem nær landi við
Málmey í Svíþjóð. Brúin er bæði
fyrir bíla og lestir. Á hábrúnni
liggja brautarteinarnir undir
brúnni, sem er þá eins og á tveimur
hæðum, en annars staðar á þessu
mikla mannvirki liggja vegir og
brautarspor samhliða.
Hin félagslegu
áhrif óviss
Þótt sjá megi fyrir endann á brú-
arsmíðinni er enn óvíst hver þróun-
in verður á því svæði, sem brúin
tekur til. Þarna búa um 3 milljónir
manna og þeir stjórnmálamenn,
sem barist hafa fyrir brúnni, von-
ast til að hún verði svæðinu lyft-
istöng. Það þótti þó áberandi á
laugardaginn að almenningur virt-
ist ekki sýna henni mikinn áhuga
en það kann þó að vera vegna þess
að eingöngu boðsgestir fengu að-
gang að brúnni og hún verður ekki
opnuð umferð strax.
Það vekur einnig áhyggjur að
ferjuútgerðin Scandlines, sem siglt
hefur með bíla milli Drageyrar og
Málmeyjar, hættir siglingum í
haust, en flugbátar sigla áfram
milli Kaupmannahafnar og Mál-
meyjar. Bent er á að þar með sé
hætta á að fólk venji sig á aðrar
bílaleiðir, til dæmis yfir Helsingja-
eyri til Helsingjaborgar og hugsi
þá ekki eins um brúna, þegar sá
kostur opnast. Brúartollurinn hef-
ur einnig verið umdeildur, hefur
þótt of hár. Fullt verð verður 230
danskar krónur, en ódýrast verður
með mánaðarkorti, 68 danskar
krónur.
Reynsla nýtt til
framtíðarinnar
Þegar sænska og danska stjórn-
in gerðu samning um brúarsmíðina
1991 skuldbatt danska stjórnin sig
til að beita sér fyrir brú yfir Fem-
er-sundið milli Lálands og Þýska-
lands. Eyrarsundsbrúin hefur því
alltaf verið hugsuð sem liður í enn
frekari tengingu við meginlandið. í
vor var birt þýsk-dönsk skýrsla um
þá valkosti, sem væru við slíka brú-
argerð.
Giskað var á að sjálf Femer-
brúin gæti kostað á bilinu 23-33
milljarðar danskra króna, en með
nauðsynlegri vegargerð og fram-
kvæmdum í kring væri verðið 34-
46 milljarðar. Enn þykir óljóst
hvort umferðin þama um er nógu
mikil til að standa undir kostnaði,
en talið er, að umferðin um Femer-
brúna verði aðeins um 2/3 af því
sem ætla má að hún verði um Eyr-
arsundsbrúna.
Kaupmannahöfn
Kastrup-
flugvöllur
k
Mesta dýpi í Eyrarsundi milli Kaupmannahafnar og
Málmeyjar er um 8 metrar
Uppfylling -
Siglingarenna
Siglingarenna
Uppfylling: „Piparhólmi"
Eyrarsundsgöng/brú eru gríðarlegt mannvirki
Utskornir fuglar í
N orræna húsinu
í ANDDYRI Norræna hússins
verður opnuð sýning á útskorn-
um fuglum eftir Einar Vigfús-
son í dag, þriðjudag, kl. 17. Þar
má m.a. sjá fálka, lunda,
heiðlóu, músarrindil og stein-
depil sem skornir eru út í lindi-
við frá Manitoba.
Sýningin stendur til 21. sept-
ember og verður opin alla daga
kl. 9-18 nema sunnudaga frá kl.
12-18. Aðgangur er ókeypis.
Einar Vigfússon er frá Ár-
borg í Manitoba og hefur hann
verið í heimsókn á íslandi und-
anfarnar vikur ásamt konu
sinni, Rosalind, og syni. Einar á
ættir sínar að rekja til Skaga-
fjarðar, en afi hans og amma
fluttu búferlum með föður hans
ungan vestur um haf um síð-
ustu aldamót. Hann hélt sýn-
ingu í Vesturfarasetrinu á
Hofsósi í júhmánuði.
Flugleiðir og Þjóðræknis-
félögin í Kanada styrktu
ferðina hingað til lands og
einnig veitti Canada Council for
the Arts fararstyrk.
Útskorinn fálki eftir
Einar Vigfússon.
Ný fornsaga
LEIKLIST
Leikfélagið Sýnir
NÝIR TÍMAR
Höfundur: Böðvar Guðmundsson.
Leikstjóri: Hörður Sigurðarson. Að-
stoðarleikstjöri: Guðrún Halla Jóns-
dóttir. Leikarar: Guðjón Þ. Pálmars-
son. Hrund Ólafsdóttir. Ólafur
Theodórsson. Sigurgeir Hilmar
Friðþjófsson. Margrét Sverrisdóttir.
Hannes Örn Blandon. Jón Marinó
Sigurðsson. Valgerður Arnardóttir.
Guðmundur R. Kristinsson. Guðrún
Lára Pálmadóttir. María Axfjörð.
Guðmundur I. Þorvaldsson. Helgi
Róbert Þórisson. Ármann Guðmunds-
son. Anna Jörunn Stcfánsdóttir. Árni
Grétar Jóhannsson. Brynjólfur
Guðjónsson. Guðjón Óskarsson.
Frosti Friðriksson. Oddur Bjarni
Þorkelsson. Huld Óskarsdóttir. Bene-
dikt Axelsson. Alcxía Jóhannesdóttir.
Unnar Sigurbjörnsson. Sigurður IH-
ugason. Gt'sli B. Gunnarsson. Ingólfur
Þórsson. Búningahönnuður: Alda
Sigurðardóttir. Leikmyndahönnuður:
Frosti Friðriksson. Laugardalsgarð-
ur 15. ágúst
LEIKFÉLAGIÐ SÝNIR er
áhugaleikflokkur, skipaður tæp-
lega þrjátíu leikurum ásamt að-
stoðarliði, sem hefur ferðast um
landið seinnipart sumars og sýnt
undir beru lofti leikritið Nýja tíma
eftir Böðvar Guðmundsson. Tilefn-
ið er kristnitökuhátíð; verkið var
pantað hjá höfundi af Kristnitöku-
nefnd Eyjafjarðarprófastsdæmis
og byggir Böðvar það lauslega á
sögulegum staðreyndum um
kristnitökuna á íslandi og leyfir
hann áhrifum frá íslenskum forn-
sögum að njóta sín í skemmtilegu
samspili við eigið hugarflug og
skáldskap. I verkinu takast á
heiðni og kristni og burðarás þess
er, eins og höfundur orðar það í
leikskrá: „átök hinnar heilögu
hefndarskyldu heiðninnar við kröfu
kristindómsins um fyrirgefningu
og sátt.“
Það eru Sýrhælingar og Saur-
bæingar sem takast á í verkinu og
eru það systkinin Hlédís (Hrund
Ólafsdóttir) og Hlenni goði (Hann-
es Örn Blandon) sem eru, hvort um
sig, höfuð sinnar fjölskyldu og ber-
ast á banaspjót. Óhæfuverk og
hefndarhugur stjórna samskiptum
fjölskyldnanna framan af, en
kristnin sækir á í samfélaginu og
reyna kirkjunnar menn að miðla
málum og milda hugi manna og
hafa þeir sigur áður en yfir lýkur. I
verkinu má sjá gamalkunnug minni
úr Islendingasögunum og ýmis at-
vik og tilsvör vísa beint í hinn forna
bókmenntaarf okkar á skemmtileg-
an hátt. Hlédís húsfreyja minnir
mjög á hinar fornu kvenhetjur.
Hún á harma að hefna eftir að son-
ur hennar hefur verið veginn á
ódrengilegan hátt. Hún eggjar
bónda sinn, Hermund auðga (Ölaf-
ur Theodórsson), mjög til hefnda
en hann er tregur til, enda meiri
búmaður en vígamaður.
Hrund Ólafsdóttir var mjög
sannfærandi í hlutverki Hlédísar.
Hún lék af mikilli tilfinningu og
túlkaði sorg, reiði og hefndarhug á
áhrifaríkan máta. Að öðrum ólöst-
uðum var leikur Hrundar það sem
mesta eftirtekt vakti í sýningunni.
Ólafur Theodórsson lék Hermund
bónda af rósemi og skilaði vel per-
sónu sem er seinþreytt til vand-
ræða og vill forðast átök í lengstu
lög - konu sinni til mikillar skap-
raunar.
í öðrum burðarhlutverkum voru
Guðjón Þ. Pálmarsson, sem lék
bæði son og sonarson þeirra
Hlédísar og Hermundar, Sigurgeir
Hilmar Friðþjófsson, í hlutverki
Skálks þræls, Margrét Sverris-
dóttir í hlutverki Freydísar fagurk-
innar, Jón Marinó Sigurðsson, í
hlutverki Gríms ofláta og Sigurður
Illugason í hlutverki Þorvaldar
víðförla. Þeim má öllum hrósa fyrir
frammistöðuna og var ekki að sjá
að hér væru ekki atvinnuleikarar á
ferð.
Fjöldi aukaleikara tekur einnig
þátt í leiknum og er ekki hægt að
tilnefna þá alla hér. í heild var
sýningin mjög vel unnin og leik-
stjórinn, Hörður Sigurðarson, get-
ur verið ánægður með útkomuna.
Búningar Öldu Sigurðardóttur
féllu vel að söguefninu og
leiksviðið, náttúran sjálf, jók mjög
á áhrifamátt verksins. Ástæða er
til að óska öllum aðstandendum
þessarar sýningar til hamingju
með vel unnið og athyglisvert
verk. Þetta er leikverk sem hæfir
tilefninu, kristnitökuhátíð, full-
komlega.
Soffía Auður Birgisdóttir