Morgunblaðið - 17.08.1999, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
PRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1999 45
Um hann má líklega segja, að
hann hafí verið alla stund að yrkja,
enda þótt hann áliti sumt af því ekki
þess virði að koma því á pappír. Og
formtilraunir var hann sífellt að
gera, það veit ég. Gaman er að til-
brigðum hans við íslenzku ferskeytl-
una í sjötta þætti af „Vogsósaglett-
um“ (1981). Og ekki er lengra síðan
en í fyrra, að hann gerði enn eina
formtilraunina, og um hana ræddi
hann við mig sem leyndarmál, enda
þótt ég gerist nú sá ódrengur að
kjafta frá því: Hann lagði í það að
yrkja undir „nýju og áður óþekktu"
ljóðformi það sem hann nefndi „risp-
ur“, mjög knöppu formi og að sínu
leyti sem íslenzka hliðstæðu við hina
japönsku „hæku“. Enga af þessum
„rispum“ hans á ég í fórum mínum,
því miður. En þær eru meðal þeirra
ljóða, sem eftir Ki-istin liggja að hon-
um látnum og þurfa að komast á
prent við tækifæri. I þessum orðfáu
stefjum tjáði hann hug sinn að leið-
arlokum. Og það er eins og mig
minni, að í einhverjum þeirra hafí
kennt þreytu gamals manns, sem
farinn var að finna fyrir dvínandi lík-
amshreysti, en þurfti að búa við
óþægilegan hvin nætur sem daga frá
flugvélagný, sökum þess að fólk með
úreltan hugsunarhátt heldur að það
sé brýn lífsnauðsyn að hafa flug-
brautir inní miðju þéttbýli.
Óteljandi eru þær minningar sem
ég á um Kristin eftir nærfellt sextíu
ára viðkynningu, bæði frá samstarfi
að félagsmálum og samvinnu við
prófarkalestur að flestum bókum
hans. Og ekki má gleyma því, hversu
skemmtilegur hann var á góðum
stundum í vinahópi, þegar góður
matur og gott vín var á borðum. Mér
eru minnisstæðar slíkar stundir, t.d.
frá Moskvuborg sumai-ið 1957, er
saman voru komnir rithöfundar frá
flestum heimshornum og með ærið
sundurleitar skoðanir og viðhorf til
bókmennta og stjórnmála. Vonandi,
að KGB hafi tekið það allt upp á seg-
ulbönd sér til andlegrar heilsubótar.
En nú eru allar gleðistundirnar
löngu liðnar og ævistarfið orðið að
sögu; framtíðin ein er fær um að fella
dóm á verkin. Símtölin skemmtilegu
um þá Reykjavík sem var, þau verða
ekki fleiri. Fallega rithöndin sem árit>
aði bækurnar mundar ekki pentskúf-
inn framar, framkallar ekki fleiri tóna
úr djúpi hljómborðsins.
Hvernig á að kveðja sh'kan mann?
spyr ég sjálfan mig og viðurkenni að
ég kann það ekki. En upp í huga
minn kemur samt ljóð eitt, er hann
orti síðsumars 1954 við andlát kefl-
vísks tónsnillings, Kristjáns Helga-
sonar, sem lézt fyrir aldm’ fram og
hafði verið mikill ljúflmgur hvers
sem honum kynntist. Á sinn hátt
finnst mér það geta átt við höfund-
inn að leiðarlokum.
Vorstef
Hratt flýgur yfir
hamingjustund við fótskör
hljóma og ljóðs.
Líða og daprar
lífsstundir meðal þyma
sem læsast til blóðs.
Hljóðvana starir
harpan í stofú þinni
og hnípin í senn.
Blæjutraf hjúpar
bládýpis augu er lásu
bækur - og menn.
Vorstef í anda
veraldar handan skýja
vitji þín - og
eilífðarsmáblóm
angi við fagurbláan
ódáinsvog.
Guð veri með þér
gjafmildur á sín ljúfu
guðlegu vín.
Hljómi svo guði
heilögum anda og Kristi
hörpustefþín.
Þeir eru margir sem þakka
Kristni Reyr verk hans nú við enda-
dægur, já svo miklu fleiri en kynnt-
ust honum persónulega, þvl hann var
löngu orðinn þjóðkunnur maður af
verkum sínum. Sárast saknar þó
fjölskylda hans og nánustu vinir. í
þeim hópi er sú kona, sem reyndist
honum um langt árabil sannkallaður
verndarvættur og heilladís, Helga
Jóhannsdóttir. Henni og öllum öðr-
um aðstandendum Kristins sendi ég
samúðar kveðjur.
Elías Mar.
Á 30 ára afmælisári Verslunar-
skóla íslands árið 1935 útskrifaðist
hópur bjartsýnna og lífsglaðra ung-
menna. Þessi árgangur var sá fyrsti
sem Vilhjálmur Þ. Gíslason útskrif-
aði og hafði kennt öll árin. Einn úr
árganginum var Kristinn Reyr, sem
nú hefur horfið úr hópnum. Kristinn
er okkur minnisstæður því hann var
afar félagslyndur og fjölhæfur. Hann
var drifkraftur í öllu skólalífi, var
skólaskáldið, samdi lög, málaði, og
við skólaslitin var fluttur leikþáttur
eftii- hann, sem fjallaði á gamansam-
an hátt um skólalífið, og ekki síst
spaugilegar hliðar lærifeðranna.
Tengslin, sem mynduðust í nem-
endahópnum, hafa haldist í sextíu og
fjögur ár. Síðastliðin ár höfum við
skólasystkinin hist árlega og rifjað
upp gömul kynni okkur til mikillar
ánægju. Við erum þakklát fyrir góð-
ar endurminningar sem við áttum
með þessum gjöfula manni og mun-
um við sakna nærveru hans. Við
sendum fjölskyldu hans okkar inni-
legustu samúðarkveðju.
Skólasystkini úr Verslunar-
skdla Islands.
Öðlingur er fallinn frá. Leiðir okk-
ar Kristins lágu saman fyrir liðlega
þrjátíu árum. Mín fyrsta minning er
um virðulegan mann, sem jafnframt
var ákaflega hlýr og „sjentilmaður“
fram í fingurgóma. Æ síðan reyndist
hann sami höfðingi til orðs og æðis.
Kristinn Reyr varð tengdafaðir minn
og ég man enn hve foreldrar mínir
hrifust af honum á þeirra fyrsta
fundi. Annað var varla hægt, því að
auki var Kristinn fróður vel og sögu-
maður góður. Þannig varð hann auð-
veldlega hrókur alls fagnaðar á
mannamótum. En Kristinn var líka
einfari, eins og margir listamenn,
þurfti sinn tíma til að sinna ríkri
sköpunarþörf. Hann var mjög fjöl-
hæfur listamaður, enda kom hann
víða við á listasviðinu. Trúlega var þó
ljóðið og málverkið honum einna
hugleiknast og meðal fjölmargra
verka á þeim vettvangi er margar
perlur að finna. Leikrit skrifaði hann
og hafa nokkur þeirra verið flutt á
sviði, í útvarpi og sjónvarpi. Mörg
gullfalleg lögin samdi hann einnig og
ættu flestir að kannast til að mynda
við Amorellu. Mér er sérstaklega
kært Ljúflingsljóð sem Ki’istinn
samdi (ljóð og lag) í tilefni fæðingar
sonarsonar síns og nafna - og rís í
hæðir í flutningi Þóru Einarsdóttur
á geisladiski höfundar, Sautján
ljóðalög.
Kristinn var einlægur í list sinni
og frumlegur. Hann fetaði fyrst og
fremst eigin slóð, listtjáning hans
var sprottin af innri þörf fremur en
til að þjóna tískusveiflum. Hann var
og maður formsins, enda eru verk
hans almennt afar hnitmiðuð og
vönduð. Alltaf fannst mér áberandi
hin mikla auðmýkt hans gagnvart
starfi sínu og djúpa virðing fyrir list-
um almennt. En það var fjarri
Kristni að bera sjálfan sig á torg eða
trana sér fram. Hann var í eðli sínu
maður hlédrægur og lítillátur.
Heilsteyptur var Kristinn mjög og
traustur, aldrei hafði hann annað en
gott um aðra að segja. En ef málið
varðaði misgjörðir og ranglæti þá
gat hann hvæst, því Kristinn var
pólitískur í besta lagi. Vinátta okkar
hélst óbreytt eftir að við sonur hans
slitum samvistir og fáa átti ég betri
hvatningarmenn varðandi mín list-
tengdu störf en Kristin. Þá var um-
hyggja hans fyrir börnum og ekki
síður barnabörnum einstök alla tíð.
Veit ég að sonur minn saknar nú
góðs vinar í afa sínum. Kristinn bar
gæfu til þess eftir nokkra einveru að
eignast góða vinkonu, Helgu Jó-
hannsdóttur, og er víst að allir sem
til þekkja vita hversu kær hún var
honum og mikil stoð alla tíð.
Ég kveð nú minn kæra Kristin -
með hans eigin ljóði - um leið og ég
votta Eddu og Pétri ásamt þeirra
fjölskyldum, og henni Helgu, inni-
lega samúð mína.
Hvíl í friði, Kristinn Reyr.
Eg símaði oft að sunnan
og sagði:
Mamma eg kem í kvöld
með síðasta bíl
í bæinn í kvöld.
En horfm ert þú
og héðan skal eg.
Vertu þá einsog áður
við opinn glugga
í opnum dyrum
með opinn faðm.
(Kristinn Reyr)
Guðrún Alfreðsdóttir.
Kristinn Pétursson Reyr skáld og
Suðurnesjamaður er dáinn. Hann
var Staðhverfingur að ætt, fæddur á
Blómsturvöllum í Grindavík 1914.
Foreldrar hans voru Ágústa Árna-
dóttir og Pétur Jónsson sjómaður.
1922 fluttist fjölskyldan til Keflavík-
ur. Kristinn var settur til mennta og
lauk prófi frá Verslunarskóla Islands
1935. Skömmu áður eða 1930 dó fað-
ir hans, aðeins fertugur að aldri eftir
nokkur veikindi. I fáein ár vinnur
Kristinn í Reykjavík, m.a. hjá Sigur-
birni í Vísi. Þaðan liggur leiðin aftur
til Keflavíkur og þar gerist hann
bóksali. En 1965 ákveður Kristinn að
helga sig ritstörfum einvörðungu og
flytur til Reykjavlkur. 1942 hafði
Kristinn gefið út sína fyrstu ljóða-
bók, Suður með sjó. Síðan komu út 5
slíkar bækur frá hans hendi og nokk-
ur leikrit, sem mörg voru flutt í Rík-
isútvarpið. Rristinn hafði fágað
aristókratískt yfmbragð, var vinsæll,
vinur Helga S. skátaforingja og Ai-
freðs lögreglustjóra, róttækur í
skoðunum og andvígur dvöl amer-
ísks hers á Keflavíkurflugvelli, orkti
mikið í Faxa, aðalblað Suðurnesja-
manna, um langa hríð. í stuttri
minningargrein er varla rám fyrir
nema fá sýnishorn af kveðskap hans.
I mínum huga ber Kristin hátt sem
ljóðskáld og gamanvísnasmið og
leikritið: 0, tráboðsdagur dýr, var
gott með mergjuðu tungutaki. Auk
þess samdi Kristinn lög og málaði at-
hyglisverðar myndir.
Ljóð
Eg kveð þér ekki kvæði,
en kem sem barn til þín
- elsku mamma mín.
Góðu bömin gefa
gullin sín.
Ég gef þér ekki gimstein,
sem glitrar eða skín
- elsku mamma mín.
Líf mitt verði ljóða-
ljóð til þín.
Keflavík (fyrstu tvær vísurnar)
Alda sunnan úr öldum
öndvegissúlur þvær.
Illt er útnes að byggja,
eystri héruðum fjær.
Pari fjöruna þekur,
þang á vogskeri grær.
Vítt sér af Vífilsfelli.
Vábyþjir ganga hjá,
hrundið er bringuberum
byrðingi á fextan sjá.
Astmögur dregur ýsu
ófúsa úr saltri lá.
Klappalón
Heitar eru klappimar
í kring um lónið góða,
sem gleymir sér í klöppunum.
Smáir era fætumir,
en feta hvítan sandinn
með sauðskinnsskó á fótunum.
Fagrir eru himnamir
á höfði í spegli lónsins
og lagðamir á himnunum.
Ki’istinn var skemmtilegur heim
að sækja, margfróður og víðlesinn.
Ég minnist hans sem sigurvegara í
frægum spurningaleik í Ríkisút-
varpinu fyrir allmörgum árum. I fé-
lagsmálum rithöfunda var hann víð-
sýnn. Á hinum fræga fundi, þegar
rithöfundafélögin sameinuðust
1974, var hann góður fundarstjóri.
Hann lagði sitt af mörkum til fram-
tíðarinnar innan þessara samtaka.
Hann myndaði ásamt Ingólfi Jóns-
syni og Ingimari Erlendi meirihluta
í einni bestu og happadrýgstu
stjórn, sem setið hefur í Rithöf-
undasambandinu. En hann óraði
ekki fyrir framhaldinu, að fámennur
hópur liðléttinga mundi úthluta
sjálfum sér öllum launum og styrkj-
um og í bókmenntasögu yrði hans
að engu getið. Það eru margir sem
sakna Kristins á þessari stundu.
Framlag hans til íslenskra menn-
ingarmála var bæði mikið og gott.
Ég votta aðstandendum djúpa sam-
úð.
Hilmar Jónsson.
Vorstef
Guð veri með þér
gjafmildur á sín ljúfu
guðlegu vín.
Hljómi svo guði
heilögum anda og Kristi
hörpustefþín.
(Kr.Reyr)
Elskulegi vinur minn, Kristinn
Reyr. Nú eru þínar högu hendur og
skapandi hugur farinn heim. Ég
horfi hnípin á eftir góðum dreng,
þakklát fyrir góð kynni, órofa tryggð
og vináttu gegnum árin. Börnum
þínum og fjölskyldum þeirra votta
ég mína dýpstu samúð, og bið þeim
blessunar Guðs. Ég kveð þig með
sálminum, sem þú taldir fegurstan
sálm ortan á íslenska tungu.
Hærra, minn Guð, til þín,
hærra til þín,
enda þótt öll sé kross
upphefðin mín.
Hljóma skal harpan mín:
:;:Hærra minn Guð, til þín,:,:
hærra til þín.
Sofandi sýndu á
sólstigans braut
upp í þitt eilífa
alfóðurskaut.
Hljómi svo harpan min:
:,:Hærra, minn Guð, til þín,:,:
hærra til þín.
Arla ég aftur rís
ungurafbeð.
Guðs hús á grýttri braut
glaður ég hleð.
Hver og ein hörmung mín
hefur mig, Guð, til þín,
:,:hærra, minn Guð, ti! þín:,:
hærra til þín.
(M. Joch.)
Þín,
Helga.
Fyrsta ljóðabók Kristins Reyrs
Péturssonar, sem út kom árið 1942
hét „Suður með sjó“ og var það mjög
að vonum. Kristinn var fæddur í
Grindavík, í Staðarhverfinu þar sem
brimið æðir hátt yfir kamp og grefur
„hlaðvarpann heima í urð / og bæirn-
ir eyðast í veðrum“. Hann sleit
nokkrum barnsskóm í Keflavík,
gekk í verslunarskóla í Reykjavík
ki’eppuáranna, en var um 1940 kom-
inn til Keflavíkur aftm- og lifði þar
við bóksölu, skáldskap og fleira í ald-
arfjórðung.
Suðurnes voru með brimi þeirra,
seltu og fiski, Stapadraugum og
galdramönnum, Bátsendaflóði og
herstöð, virðingarmönnum og sér-
vitringum tilefni kvæða hans, sá
efniviður sem hann fór um fimum
höndum. Um þau efni orti hann
stundum með fögnuði yfir fegurð
heimsins og stundum til að lofa vini
og samferðamenn eða eitthvert gott
framtak í þágu „míns fiskifólks“.
Hann átti líka til trega yfir því að
það mannlíf sem hann var hluti af
hlaut að standa höllum fæti þegar
hefðum og fátækt bundið líf fiski-
fólks lenti í nábýli við sjálfan Völlinn,
við vígbúnað og her og ýmislegt
sukk sem því sambýli fylgdi. I
háðskri reiði orti hann um „kurteist
hernám“ sem kemur „með koltjöru í
fötu“ að bika yfir hreina liti landsins,
blátt, hvítt og rautt. ÖIl erum við
börn okkar tíma, sagði hann eitt sinn
þegar við sátum á spjalli. Og hver og
einn verður að prjóna sinn sokk.
Kristinn var af þeirri kynslóð sem
fannst skáldskaparhefðin þrengja að
sér og byrjaði á atómskáldskap sem
svo var nefndur. Kvæði hans teygja
sig í báðar áttir: þá togstreitu sem
upp var komin í skáldskaparefnum
leysti Kristinn oft með því að bregða
á leik. Hann reyndi að forðast slitið
rím þegar hann var í hefðamussu - ■
eins og þegar hann lýsti barnaskóla-
byggingu í Keflavík sem var „árum
saman þaklaus“ meðan börnin smá
„biðu ung og saklaus“. Inn á atóm-
brautir tók hann svo margt með sér
af arfmum og um leið vissan mynd-
listarleik ef svo mætti segja sem
kom fram í sjálfu uppsetningar-
mynstri ljóðsins.
Hann brá á leik, var áðan sagt.
Kristinn Reyr var í Keflavík minna
uppvaxtarára einn þeirra sem helst
gáfu ráðvilltu fiskiplássi líf og lit.
Hann var kátur maður og glaðbeitt-
ur, gleðibanki á maður víst að segja
nú á þessari gullöld viðskiptanna.
Hann kom víða við sögu: hann orti
bæði á sorgarstundum og við hátíðir ^
og til að hver smáhöfðingi í plássinu
fengi sína sneið í revíu. Hann samdi
lög við kvæði sín, hann skrifaði pistla
í Faxa, hann stóð fyrir málverkasýn-
ingu, málaði sjálfur, hann studdi við
bakið á leikstarfsemi og margt fleira.
Hann var bóksalinn í bænum og sem
slíkur vinveittur strák sem var að
byrja að lesa og honum hollm- í ráð-
um og benti á ýmislegt sem var þá
nýtt og ekki í hvers manns höndum.
Og þegar þessi strákur flæktist
langt að heiman sleppti hann ekki
heldur af mér hendi: sendi tíðindi að <-
heiman og bækur eftir Thor og aðra
Birtingsmenn svo að piltskjáta í
framandlegri stórborg gleymdi þvi
síður hvaðan hann var kominn og að
hollt er að vita af því að stórmerki
verða á mörgum stöðum í senn.
Kristinn Reyr prjónaði á ævi sinni
langan sokk og marglitan og hlýjan.
Verði honum moldin létt sem fiður.
Ámi Bergmann.
Blómastofa
Friðfinns
Suðurlandsbraut 10,
108 Reykjavík, sími 553 1099.
Opið öll kvöld
til kl. 22 - einnig um helgar.
Skreytingar fyrir öll tilefni.
Gjafavörur.
LEGSTEINAR
f rúmgóðum sýningarsölum okkar
eigum við ávallt fyrirliggjandi margar
gerðir legsteina og minnisvarða.
Hvergi meira úrval. Yfir 45 ára
Verið velkomin til okkar,
eða fáið myndalista.
IS.HELGASON HF
I STEINSMIDJA
SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP. SÍMI 557 6677 / FAX 557 8410
*
4.