Morgunblaðið - 17.08.1999, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1999 55
KÍNAFERÐ LÖGFRÆÐINGAFÉLAGS ÍSLANDS
Varaforseti kínverska þingsins,
Cao Zhi, upplýsti okkur um helstu
störf þingsins og tók síðan við fyr-
irspurnum. Kínverskir þingmenn
eru tæplega 3000 og eru þeir kosn-
ir á 5 ára fresti. Vegna hins mikla
mannfjölda er þinghúsið stórt og
rúmar einn salurinn t.a.m. 10.000
manns.
Laga- og stjórnmála
fræðiskóli Kína
Farið var í heimsókn í Laga- og
stjórnmálafræðiskóla Kína (China
University of Political Seience &
Law) sem heyrir beint undir kín-
verska dómsmálaráðuneytið.
Yfir 10.000 nemendur stunda
nám við skólann. Það sem vakti
sérstaka athygli okkar var að tvær
lögmannastofur, FADA Law
Office og Everbright Law Firm,
eru starfræktar á vegum háskól-
ans. Þar eru hinir 120 prófessorar
skólans ýmist í fullu starfi eða
hlutastarfi og nemendur fá tæki-
færi til að kynnast störfum á lög-
mannastofu. FADA er t.a.m. ein af
stærstu lögmannastofum í Kína.
Okkur var sagt að með þessu móti
gætu prófessorarnir þjónað samfé-
laginu og eins væri þetta góður
grunnur fyrir laganema þar eð
með þessu móti væri unnt að sam-
eina fræðilegan og verklegan hluta
námsins.
King&Wood er nútímaleg lög-
mannastofa og mikið lagt upp úr
alþjóðasamskiptum, þ.á m. sam-
vinnu við lögmannastofur í Banda-
ríkjunum, Ástralíu, Evrópu og
Hong Kong.
Meðal umbjóðenda Kings &
Wood eru erlendar bankastofnan-
ir, váti-yggingafélög, fjölþjóða fjár-
festingarfyrirtæki, aðilar í inn- og
útflutningi og flugfélög, en King &
Wood er eitt fárra fyrirtækja í
Kína sem sér um leigusamninga
fyrir flugfélög.
Að áliti King & Wood mun er-
lendum fjárfestum, bæði fyrir-
tækjum og einstaklingum, í Kína
fjölga eftir því sem efnahagsum-
bætur þar aukast. Því er við búið
að skapast muni aukin þörf á sér-
hæfðri kínverskri lögfræðiráðgjöf.
Lögmenn King & Wood hjálpa
umbjóðendum sínum að skilja kín-
versk lög og eins eru erlendum
fjárfestum t.a.m. veittar upplýs-
ingar um fjármagnsmöguleika t.d.
lántökur hjá bankastofnunum eða
um kínversk skattamál. Nú er er-
lendum fjárfestum t.d. veitt 2
vikna skattfrelsi (tax-holiday) og
fyrirtæki njóta skattahagræðis,
þ.e. þurfa ekki að borga nema
helming í skatt.
Mjög fróðlegt var að fá innsýn í
störf einkarekinnar lögmannastofu
í Kína en stofan endurspeglar vel
hve hratt allt lagakerfi og -um-
hverfi í Kína er að breytast.
I Lama-hofínu
Síðast á dagskránni á þriðja
degi okkar í Kína var að skoða
Lamahofið (Yonghegong) þar sem
búddamunkar biðja fyrir samlyndi
og friði í heiminum. Yonghegong
var byggt árið 1694 og var upphaf-
lega bústaður keisarans
Yongzheng, áður en hann fór frá
völdum 1722. Þegar valdaskipti
urðu í Kína til foma varð að breyta
höll keisarans í hof og því sendi
sonur Yongzheng, Qianlong, eftir
300 munkum frá Tíbet og 200 nem-
endum þeirra og kom þeim fyrir í
höll sinni, en hann tók við af föður
sínum. Höll Qianlong, er þannig
varð að hofi, var álitið eitt mikil-
vægasta höfuðvígi Lama-búdd-
isma utan Tíbet á árunum
1744-1960. í menningarbylting-
unni (1966-1976) var Lama-hofinu
lokað af rauðliðum en þeim var
bannað að eyðileggja það eða ræna
það, samkvæmt skipun forsetans,
Zhou Enlai. Margir búdda-
munkanna voru þó stimplaðir rót-
tæklingar og sendir til sveita til
þess „að læra af bændum“.
Nú tilheyrir hofið trúarsöfnuði
Gula hattarins eða Gelugpa-söfn-
uðinum, sem er ríkjandi í Tíbet, og
í því lifa og starfa 70 munkar.
Andlegur leiðtogi safnaðarins er
hinn útlægi Dalai Lama. Annar
andlegur leiðtogi búdda-munka,
Panchen Lama, býr í Peking. Tí-
undi Panchen Lamainn dó
snemma á árinu 1989 og árið 1993
buðu kínversk stjórnvöld Dalai
Lama að taka þátt í leit að nýjum
Panchen Lama. Dalai Lama bjó
þá í hálft ár í Lama-hofinu. Þess
skal getið að það tókst að finna
nýjan Panchen Lama sem nú er 10
ára gamall.
Lama-hofið samanstendur af 5
smáhofum sem í eru allskyns
búdda-líkneski sem ekki mátti
taka mynd af. Mikilvægustu hofin
og þau er virtust laða að sér flesta
ferðamenn voru annars vegar Fa-
lundian-hofið, en i því er hjól sem
búddamunkarnir snúa stöðugt til
þess að skapa breytingu. Hjólinu
er víst snúið ákaft þessa dagana
og þess beðið að friður skapist í
Kosovo. Hitt hofið er hof tíuþús-
undfaldrar hamingju (Wanfuge)
en í því er mantra-búddalíkneskið
Maitreyja. Líkneskið er meitlað
úr einum stökum 26 metra ljósum
og ilmandi sandalaviðarbúti og er
það hæsta sinnar tegundar í heim-
inum. Meitreyja-líkneskið í Yong-
hegong komst m.a. í heimsmeta-
bók Guiness, í ágúst 1990.
Höfundur er lögfræðingur.
5 690691'20000»
Nýr sumarleikur
vinnið ferð til Gran Canaria
igust. 1999 VERÐ KR
Öðruvisi kaffihús - Undir fölsku flaggi - Of margar vinkonur
Kim Basinger - Streituvaldar - Eldhúsengill og margt fleira
Fjögurra króna afsláttur af hverjum
eldsneytislítra við sjálfsafgreiðslu
á Gagnveginum!
+80 aurar
á hvern lítra
á Safnkortið
%
Kannaðu
k
*
Fréttir á Netinu
0mbUs