Morgunblaðið - 17.08.1999, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1999 67
FÓLK í FRÉTTUM
Gæfuleg
brjósta-
höld
BRANDI Chastain, sem
skoraði vinningsmarkið fyr-
ir bandaríska liðið 10. júlí
síðastliðinn í úrslitaleiknum
í Heimsmeistarakeppni
kvenna í knattspyrnu gegn
Kína, sést hér halda á svört-
um íþróttabrjóstahaldara
líkum þeim sem hún klædd-
ist og sýndi alheiminum eft-
ir að hún skoraði vinnings-
markið. I sigurvímunni af-
kiæddist Chastain íþrótta-
peysu sinni á veilinum og
var þá í svörtum íþrótta-
brjóstahaldara frá Nike-fyr-
irtækinu. Framleiðendur
brjóstahaldarans höfðu
samband við Chastain í kjöl-
farið og fengu hana til að
auglýsa íþróttaundirfot í
verslun sinni í Sanford í
Flórída, enda ekki verra að
tengja heppni og gott gengi
stúlkunnar við íþróttaundir-
fötin.
Alvöru
pönk
TÖIVLIST
GEISLADISKUK
Verð að fá meira, þriðja útgáfa hljómsveitarinnar
Örkuml. Meðlimir sveitarinnar eru Gunnar Karl
Sigurðsson, Ingimar Bjarnason, Magnús Óskar
Hafsteinsson og Olafur Guðstcinn Kristjánsson. Ör-
kuml gefa sjálfir út geislaplötuna.
VEGUR hljómsveitarinnar Örkuml fer vaxandi
ef marka má útgáfur þeirra félaga, eftir að hafa
gefíð út snældu árið 1995 og smáskífu 1996 gáfu
þeir út fyrir nokkru geislaplötuna Verð að fá
meira. Og enn er nóg svigrúm fyrir hljómsveitina
til að stækka við sig í útgáfumálum því þrátt fyrir
að hún sé talsvert stökk frá síðustu útgáfu þá er
hún aðeins rúmlega tuttugu mínútna löng og lögin
sjö. Örkuml hefur á síðustu árum verið ein fárra
sveita sem enn halda uppi merkjum pönksins, þeir
hafa m.a. verið ásamt öðrum í forsvari fyrir tón-
listarhátíðum að nafni Pönk frá því árið 1996. Tón-
listin er í stuttu máli pönk, það er hressandi bein-
línis að rekast á pönksveit sem stendur undir nafni
nú á þessum síðustu og verstu tímum þegar önnur
hver rokkhljómsveit kallast pönk. Þetta þýðir auð-
vitað það að Örkumlsmenn eru ekki að dufla við
nýtísku tónlist, hún er mjög í anda hins gamla
pönks, og einkum þess íslenska. Andi Fræbblanna
og Purrks pillniks svífur yfír vötnum auk þess sem
vottar fyrir áhrifum frá Dead Kennedys sálugum,
að stórum hluta er það söngurinn sem gerir þetta
að verkum, söngur Ólafs Guðsteins minnir um
margt á söng Valgeirs í Fræbblunum.
Hljóðfæraleikur er einnig til fyrirmyndar hvað
þetta varðar, hvergi vottar fyrir of miklum tilþrif-
um eða rembingi í hljóðvinnslu og komast þeir fé-
iagar frá þessu nokkuð vel án þess að hljóma hroð-
virknislega. Meðal þeirra laga sem hvað best
hljóma eru t.d. fyrsta lag geisladisksins, Pönklag-
ið, stórgott læg með píanóundarleik sem reyndar
minnir ískyggilega á Purrkinn áðumefnda, án
þess að það þó spilli. Einnig má nefna Pabbalagið
hvar helgarpabbinn er tekinn fyrir og svo líklega
besta lag plötunnar, Ungfrú lundapysja, þar
takast textasmiðum sveitarinnar hvað best upp í
háði að verslunarmannahelgarstemmningunni.
Það sem hvað helst háir plötunni er hvað lögin
hljóma keimlíkt, einkum við endurtekna hlustun,
lögin eru svipað upp byggð, hljómurinn eins á allri
plötunni og við það verða kostir piötunnar einnig
að hellstu göllum hennar, pönkið er í eðli sínu ein-
hæft og ef á að gera alvöru pönk er afar erfítt að
ætla að vera með frumiegheit.
Umbúðir geisladisksins eru í stíl við innihaldið
og gera því einnig góð skil með þvi að birta alla
texta, sem annars er flestir ágætir. Það er
svart/hvítt, hæfilega fráhrindandi og gefur við
fyrstu sýn rétta hugmynd um tónlistina, pönk.
Gísli Árnason
a/r V'er'gtfar
íýá oliar/
éÆé^M
tm
Einfaldlega þægilegra
Sfml 565 3900
Innritun
er hafin!
Ný námskeið byrja 30. ágúst
Staðfesta þatf
patitanii'
fyrir 24. ágúst-
I
NÝTT-NYTT:
j \ 1. tívni Vd. 7.46 á
morgnana
•ILVAUN UEIÐ M>
FUNDIR
VIGTUN
MÆLING
MATARÆÐI
jsb - góður staður fyrir konur
IHDDDBDE
taar
FRÁ TOPPITIL TÁAR1.
Námskeið sem hefúr veitt ótalmörgum
konum frábæran árangur.
Þetta kerfi er eingöngu ætlað konum,
sem beijast við aukakílóin.
Uppbyggilegt, lokað námskeið. Fimm tímar
í viku, niu vikur í senn. Góður matarkúr
sem fylgt er eftir daglega með andlegum
stuðningi, einkaviðtölum og fyrirlestrum um
mataræði og hollar lífsvenjur. Heilsufundir þar
sem farið er yfir förðun, klæðnað, hvernig á
að bera líkamann og efla sjálfstraustið.
FRA TOPPITIL TAAR n.
- framhald
Námskeið fyrir þær sem vilja
halda áfram í aðhaldi.
Fijálsir tímar, 9 vikur.
Fundir lx í viku í 9 vikur.