Morgunblaðið - 20.08.1999, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Stefnt að því að hefja stækkun álvers Norðuráls á árinu
Sílaveiðar
í Reykjavík
Launavísitala hefur
hækkað um 21% frá
ársbyrjun 1997
AÐ VEIÐA síli er skemmtileg
iðja, nema kannski fyrir sílin.
Þessir krakkar voru nýverið við
sflaveiðar í Reykjavíkurtjörn við
Ráðhúsið. Engum sögum fer af
veiði, en myndin var tekin þegar
kominn var veiðihugur í menn.
Morgunblaðið/Ásdís
Leitað til innlendra
aðila með Qármögnun
NORÐURÁL hf. ráðgerir að hefja framkvæmdir á þessu ári vegna
stækkunar álversins á Grundartanga úr 60 þúsund tonna fram-
leiðslugetu á ári í 90 þúsund tonna framleiðslugetu. Leitað verður
eftir fjármögnun innanlands og erlendis. Viðræður við Landsvirkjun
um gerð nýs orkusamnings eru á lokastigi og hefur Norðurál jafn-
framt óskað eftir viðræðum vegna fyrirhugaðrar stækkunar í 180
þúsund tonna framleiðslugetu á næstu árum. Vonast er til að gengið
verði frá fyrstu samningum vegna stækkunarinnar í nóvember nk.
Ragnar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri fjármála- og stjórn-
unarsviðs Norðuráls, segir að
ganga þurfí frá þremur meginþátt-
um áður en framkvæmdir geti haf-
ist. Ljúka þurfí gerð orkusamn-
ings við Landsvirkjun og segir
Ragnar að samningar verði vænt-
anlega undirritaðir í september.
Þá þurfi að ganga frá fjármögn-
un framkvæmdanna og segir
Ragnar það mál styttra á veg kom-
ið. Þó sé búið að kynna það fyrir
hugsanlegum lánveitendum og sé
að vænta viðbragða frá þeim í lok
ágúst eða byrjun næsta mánaðar. I
þriðja lagi sé beðið eftir ýmsum
leyfum til stækkunarinnar frá op-
inberum aðilum og unnið sé að því
að afla þeirra. Auk þess er verið að
vinna að samningum um helstu að-
föng til framleiðslunnar og sölu af-
urða.
Endurfjármögnun
eldri lána
„Við stefnum að því að endur-
fjármagna núverandi lán fyrirtæk-
isins ásamt því að fjármagna
stækkunina í einum pakka. Inn-
lendum aðilum hefur verið boðin
þátttaka í fjármögnuninni að því
marki sem þeir geta. Þar eru
stærstir FBA og Landsbanki Is-
lands,“ segir Ragnar.
Heildarupphæðin, þ.e. endur-
fjármögnun eldri skulda og til
framkvæmdanna, er 16-17 millj-
arðar króna. Gert er ráð fyrir að
innlendir aðilar fjármagni um
fjórðung upphæðarinnar, eða
4-4,25 milljarða króna. Kostnaður
við stækkunina er talinn verða
a.m.k. 5,5 milljarðar króna. Ekki er
gert ráð fyrir að aukið verði við
hlutafé fyrirtækisins.
Norðurál hefur starfsleyfi fyrir
180 þúsund tonna ársframleiðslu.
Fyrirtækið þarf engu að síður sam-
þykki opinberra aðila íyrir stækk-
uninni. Gert er ráð fyrir að þriðja
áfanganum, sem er stækkun úr 90
þúsund í 180 þúsund tonna árs-
framleiðslu, verði hrundið í fram-
kvæmd síðar. „Við höfum óskað
eftir viðræðum við Landsvirkjun
um hvenær af því geti orðið,“ segir
Ragnar.
Aðsókn
í leikhús-
in eykst
SAMANLÖGÐ aðsókn í leikhús á
síðasta leikári jókst frá fyrra ári og
dreifðist hún jafnar en oft áður. Að-
sókn í Iðnó var vonum framar en
þangað sóttu ríflega 40 þúsund gest-
ir leiksýningar, tónleika og dans-
leiki.
Rúmt ár er síðan endurbótum við
Iðnó lauk og húsið var opnað á ný
sem menningarhús. Að sögn stjórn-
enda Leikfélags íslands, sem rekur
starfsemina í Iðnó, gekk rekstur
hússins mjög vel fyrsta leikárið.'Sett
voru upp 10 leikverk og haldnir 43
tónleikar. Efnt var til leikritasam-
keppni og bárust 56 leikrit í keppn-
ina. Tjarnardansleikir voni endur-
vaktir og var heildarfjöldi viðburða
fyrir utan ráðstefnur og fundi 320
talsins og heildarfjöldi gesta á þá
viðburði var 40.558. Karl Pétur
Jónsson, stjórnarfoimaður Leikfé-
lags íslands, segir ánægjulegt til
þess að vita að aðsókn í önnur leik-
hús hafí aukist þrátt fyrir tilkomu
Iðnó og bendir það ótvírætt til þess
að samfara auknu framboði á leíklist
í borginni fari áhugi vaxandi.
90 þúsund gestir í
Borgarleikhúsinu
Aðsókn í Borgarleikhúsið tók
verulegan kipp frá leikárinu á undan
og voru gestir frá því í ágúst í fyrra
til loka júní í ár rétt innan við 90
þúsund. Eru þá sýningar íslenska
dansflokksins og leiksýningar ann-
arra en Leikfélags Reykjavíkur ekki
meðtaldar. Ef bætt er við áhorfend-
um í júlí og ágúst í sumar á Litlu
hryllingsbúðina nálgast talan 100
þúsund. Einstakar sýningar standa
að sjálfsögðu upp úr hvað aðsókn
varðar og t.a.m. sáu nær 30 þúsund
manns söngleikinn Grease og 23
þúsund manns sáu Sex í sveit í
Borgai'leikhúsinu á síðasta leikári.
í Þjóðleikhúsið komu rúmlega 90
þúsund gestir og er það einnig um-
talsverð aukning frá fyira ári en þá
voru gestir rúmlega 71 þúsund.
Stefnt að sáttum innaii Neytendasamtakanna
Formaður bað vara-
formanninn afsökunar
LAUNAVÍSITALA hækkaði um
0,1% í júlímánuði. Á síðustu 12 mán-
uðum hefur vísitalan hækkað um
Ung stúlka
slasaðist
á höfði
UNG stúlka var flutt á
slysadeild Sjúki'ahúss
Reykjavíkur í gærkvöldi með
höfuðáverka eftir slys í
sölutumi í Skipholti.
Stúlkan hrasaði í
sölutuminum og skall í gólfíð.
Að sögn læknis á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur var hún lögð inn á
bamadeild. Hún var með
meðvitund og virtust áverkar
hennar ekki eins alvarlegir og
óttast var í fyrstu. Hún átti að
gangast undir rannsókn.
6,8% og frá ársbyrjun 1997 hefur
hún hækkað um 21%. Vísitala
neysluverðs hefur á sama tíma
hækkað um 6,8%. Kjarasamning-
amir, sem renna út á næsta ári,
vom flestir gerðir á fyrri hluta árs-
ins 1997.
Launavísitalan hækkaði um 8,1%
á árinu 1997, um 7,8% á árinu 1998
og það sem af er þessu ári hefur
vísitalan hækkað um 5%. Vísitalan
hefur hækkað í hverjum einasta
mánuði á þessu tímabili öllu.
Dæmi em hins vegar um að
neysluverðsvísitala hafi lækkað
milli mánaða. Vísitalan hækkaði um
2% á árinu 1997, um 1,3% í fyrra, en
það sem af er þessu ári hefur
neysluverðsvísitala hækkað um
3,5%.
Hagstofan hefur einnig reiknað
út byggingarvísitölu fyrir júlímánuð
og hækkaði hún í þeim mánuði um
0,04%. Hækkun vísitölunnar síðustu
þrjá mánuði samsvarar 0,9% hækk-
un. Síðastliðna 12 mánuði hækkaði
byggingarvísitala um 2,3%.
JÓHANNES Gunnarsson, formað-
ur Neytendasamtakanna, bað vara-
formann þeirra, Jón Magnússon, af-
sökunar á ummælum sínum um að
Jón hefði hagsmuni neytenda ekki
að leiðarljósi á fundi samtakanna í
gærkvöldi. Jón sagði eftir fundinn
að unnið yrði að því að ná fullum
sáttum innan samtakanna.
Forsaga málsins er sú að Jóhann-
es Gunnarsson krafðist innköllunar
kjúklinga tiltekins framleiðanda úr
verslunum eftir að Heilbrigðiseftir-
lit Suðurlands gerði athugasemdir
við umgengni á kjúklingabúi hans.
Jón var ósáttur við þessar aðgerðir
formannsins og taldi að Jóhannes
hefði brugðist of sterkt við fréttum
af sýkingum í búinu. Þessi viðbrögð
Jóns Magnússonar urðu tilefni um-
mæla formannsins, sem hann hefur
nú beðist afsökunar á.
Aðspurður sagðist Jón enn vera
þeirrar skoðunar að þær upplýsing-
ar sem fyrir lágu þegar Jóhannes
krafðist innköllunar á kjúklingun-
um úr verslunum hefðu ekki rétt-
lætt innkallanir frá einum ákveðn-
um framleiðanda.
Á fundi Neytendasamtakanna í
gær var samþykkt tillaga þess efnis
að neytendur gætu ekki sætt sig við
að ólögleg matvæli, það er matvæli
sem hættuleg eru heilsu manna,
væru til sölu í verslunum.
Þá var þeim tilmælum beint til
heilbrigðisyfírvalda að þau kæmu
annars vegar á læsilegum og góðum |
varúðarmerkingum vegna með- fc
höndlunar við matreiðslu kjúklinga p
og hins vegar að rannsóknum á
kamphýlóbakteríum í íslenskum
kjúklingum verði hraðað og sýktar
vörur innkallaðar úr verslunum í
kjölfarið.
Sérblöð í dag
Gersemar
handa konum
og körlum
Svalt
að vera
skáti
|§j|
A FOSTUDOGUM
Auðun Helgason frá
vikum saman / C1
Fylkismenn komnir með 11
stiga forystu í 1. deild / C3
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
.
>