Morgunblaðið - 20.08.1999, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Aðstoðarmaður borgarstjora um fram-
tiðarstaðsetningu flugvallar
Allsherjarat-
kvæðagreiðsla
skynsamleg
Morgunblaðið/Kristinn
Myglusveppur ógnar
kartöfluuppskeru á Suðurlandi
Treyst á árang
urúðunar
AÐSTOÐARMAÐUR borgarstjóra
segir að verið hafi til umræðu hjá
borgaryfirvöldum að efna til alls-
herjaratkvæðagreiðslu um það
hvort flugvöllur eigi að vera áfram í
miðborg Reykjavíkur. Hann segir
að með 1,5 milljarða fjárframlagi til
endurbóta á flugvellinum hafi ekki
verið tekin ákvörðun um að völlur-
inn verði í miðborginni um ókomna
framtíð.
Árni Þór Sigurðsson, aðstoðar-
maður borgarstjóra og formaður
skipulagsnefndar, segir að sér þyki
skynsamlegt að efna tO atkvæða-
greiðslu um áframhaldandi tilvist
flugvallarins í miðborginni um leið
og skipuiag Reykjavíkurborgar-
verður endurskoðað en sú endur-
skoðun hefst næsta haust. Hann
segir að ef niðurstaða atkvæða-
greiðslu yrði á þann veg að borgar-
búar vildu flugvöllinn burt þá ætti
það að koma til framkvæmda í síð-
asta lagi árið 2016 þegar núgildandi
skipulagstímabil rennur út.
Ásakanir Samtaka um betri
byggð óréttmætar
Ámi segir ennfremur ásakanir
Samtaka um betri byggð um að
borgarstjóm hafi „haldið slælega á
RÁÐSTEFNA ríkisstarfsmanna á
Norðurlöndum stendur nú yflr í
Reykjavík og em þátttakendur yfir
fimmtíu frá öllum Norðurlöndunum.
Ráðstefnan var sett í gær og voru á
dagskránni áhrif Efnahags- og
myntbandalags Evrópu (EMU) á
launamyndun og hagstjómun.
Meðal þeirra sem tóku til máls var
Már Guðmundsson, aðalhagfræðing-
ur Seðlabanka Islands. Hann ræddi í
erindi sínu um hagfræðileg áhrif
EMU og valkosti Norðurlandanna
með tilliti til myntbandalagsins. I
niðurstöðum erindis síns sagði Már
m.a. að til að EMU gæti heppnast
þyrfti vinnumarkaður aðildarlanda
að verða skilvirkari og sveigjanlegri
hagsmunum borgarinnar" með því
að undirrita verksamning um bygg-
ingu nýs flugvallar í miðborg
Reykjavíkur og að borgaryfirvöld
hafi eftirlátið flugmálayfirvöldum
og samgönguráðuneyti „óeðlilegt
áhrifavald" í skipulagsmálum borg-
arinnar ekki eiga rétt á sér því að
sú framkvæmd að fjarlægja flugvöll
sé svo umfangsmikjl að ekki verði
hlaupið að henni. Ami segir að ef
menn vilji völlinn burt þurfi að sjálf-
sögðu að huga að því hvert hann
eigi að fara og að sú ákvörðun liggi
hjá ríkisvaldinu.
EndurbæturIöngu
tímabærar
Ámi segir endurbætur á flugvell-
inum vera löngu tímabærar og með
því að verja 1,5 milljörðúm til þeirra
sé ekki verið að festa flugvöllinn í
miðborginni um ókomna framtíð.
Áðspurður segir hann ekki illa farið
með almannafé með háu fjárfram-
lagi til endurbóta nú ef flugvöllur-
inn verði fjarlægður eftir tuttugu
ár. Þetta séu ekki miklir fjármunir
miðað við hve stórt samgöngumann-
virki flugvöllurinn sé og hann hafi
verið í miklu fjársvelti um langt
árabil.
og ríkisfjármál aðildarríkja þyrfti að
taka föstum tökum.
Már sagði einnig að EMU myndi
hafa áhrif á þau lönd sem stæðu fyrir
utan bandalagið og gásti haft þær af-
leiðingar að þau þyrftu að endur-
skoða stefnu í gengis- og fjármálum.
Finnar eru eina Norðurlanda-
þjóðin sem er með frá byrjun í
EMU. Finninn Jukka Pekkarinen,
sem stýrir rannsóknarstofnun laun-
þega í hagfræðirannsóknum, hélt
einnig framsöguerindi í gær. Hann
sagði í samtali við Morgunblaðið að
ólíkt hinum Norðurlöndunum væri
breið samstaða í Finnlandi meðal
launþega og atvinnurekenda um já-
kvæð áhrif þátttöku Finna í Efna-
Pollar í
pollagalla
ÞÓ VEÐUR í Reykjavík hafi ver-
ið nokkuð þurrt að undanfornu
er betra að vera í góðum
poliagalla þegar maður er að
leika sér úti. Þetta vita Hjörtur
Jóhann og Sigurður Bessi, en
þeir eru góðir vinir og leika sér
saman á leikskólanum Laufás-
borg.
hags- og myntbandalaginu. „Þetta á
sér pólitískar skýringar að nokkru
leyti. Það er talið mikilvægt í Finn-
landi, sem er í jaðri Evrópu, að vera
með í Evrópusambandinu af fullum
krafti.“
Jukka Pekkarinen sagðist telja
vissan sveigjanleika í launamyndun
mikilvægan, en að hans mati er
sveigjanleiki ekki í mótsögn við
hefðbundið miðstýrt launakerfi.
Þær kröfur sem lagðar væru fram
af EMU væru vel samræmanlegar
hefðbundnu finnsku launakerfi.
Einnig væri mikil samstaða meðal
launþega og vinnuveitenda í Finn-
landi um að halda í gerð miðstýrðra
kjarasamninga.
Reykj avíkurmaraþon
Hlaupið til
styrktar
Barnaspítala
HVERT barn, 12 ára og yngra, get-
ur styrkt Barnaspítala Hringsins um
1.000 krónur með því að taka þátt í
Reykjavíkurmaraþoni.
„Það ráða allir við 3 km og ég tala
nú ekki um ef þeir eru að leggja eitt-
hvað gott af mörkum,“ sagði Þor-
steinn Gunnarsson, kynningarfull-
trúi Reykjavíkurmaraþons. „Þetta
er í fyrsta skipti sem hlaupið er til
styrktar einhverju einu málefni í
Reykjavíkurmaraþoni, einstaka
menn hafa reyndar verið með áheita-
hlaup en nú getur fjöldinn lagt sitt af
mörkum.“
Þorsteinn sagði að Bónus-verslan-
irnar greiddu með hverjum þátttak-
anda 12 ára og yngri og bætti því við
að Jóhannes Jónsson vildi örugglega
borga sem mest, enda málefnið gott.
KARTOFLUBÆNDUR binda vonir
við að lyfjaúðun muni hægja á eða
stöðva útbreiðslu myglusvepps sem
varð vart í Þykkvabæ og Árnessýslu
seinni hluta síðustu viku. Þeir vona
að úðunin muni varna því að umtals-
verðar skemmdir verði af völdum
sveppsins sem gæti í versta falli
gjöreyðilagt kartöfluuppskeru á
svæðinu. Veður hefur verið hentugt
til úðunar síðustu daga.
„Tíminn verður að leiða í ljós hve
miklum skaða sveppurinn veldur,“
sagði Sigurbjartur Pálsson, kartöflu-
bóndi á Skarði, í samtali við Morgun-
blaðið. Hann segir ómögulegt að
segja til um það núna hvort myglan
hafi þegar valdið skaða og þá hve
miklum. Það komi ekki í ljós fyrr en
farið verði að taka kartöfiurnar upp í
haust og geyma þær.
Sigurbjartur segir myglusveppinn
finnast um allt svæðið, hann sé þó
bundinn við bletti ennþá. „Ekki er
hægt að segja að allir akrar séu und-
irlagðir en þetta dreifist mjög hratt
um svæðið ef skilyrði eru hagstæð,“
sagði Sigurbjartur. Að hans sögn
þrífst sveppurinn best í heitu og
röku loftslagi en síður í veðri eins og
verið hefur síðustu daga; bjart, hlýtt
og þurrt.
Sveppurinn er sjaldgæfur
hér á landi
Myglusveppurinn sem kartöflu-
bændurnir á Suðurlandi glíma nú við
er útbreiddur í Evrópu en þar er
honum haldið í skefjum með sams
konar lyfjaúðun og beitt er hér núna.
LEIGJENDASAMTÖKIN hafa
boðað til stofnfundar hlutafélags á
morgun, laugardag, um byggingu
og rekstur timburhúsa til útleigu.
Ráðgert er að reisa á annað hund-
rað íbúðir og að fengið verði 90%
lán til framkvæmdanna en hér er
um félagslegar íbúðir að ræða.
Haraldur Jónasson, stjórnar-
maður í Leigjendasamtökunum,
tjáði Morgunblaðinu að ætlunin
væri að reisa á annað hundrað
íbúðir, hæfilega stórar íbúðir í rað-
húsum og parhúsum úr timbri og
verða nokkur þeirra hugsanlega
bjálkahús. Leitað verður eftir til-
Sigurbjartur segir þessa meðferð
duga í flestum tilfellum. Sveppurinn
olli miklu tjóni hér á landi árin 1990
og 1991 en er annars lítt þekktur á
landinu enda þarf mjög sérstök veð-
urskilyrði til að hann blossi upp, að
sögn Sigurbjarts.
Gerð var tilraun til úðunar á föstu-
dag en rigningu gerði aðfaranótt
laugardags svo meðferðin ónýttist.
Lyfið þarf að þorna vel á plöntunum
eftir að úðað er. Á mánudag og
þriðjudag voru skilyrði hins vegar
góð og úðað af krafti.
Fugladráp í
SkögaQöru
ÓFAGURT er um að litast í Skóga-
fjöru um þessar mundir en þar gef-
ur að líta marga tugi fuglahræja.
Talið er að fuglarnir hafi verið
skotnir helgina 7.-8. ágúst. Að sögn
lögreglu á Hvolsvelli eru flest hræin
af skúm, en skúmur er friðaður
fugl.
Lögreglan segir að Sigurður Sig-
urðsson, bóndi á Ytri-Skógum, hafi
fundið hræin 9. ágúst og tilkynnt til
Náttúrufræðistofnunar. Lögreglu
bárust spumir af málinu í fyrradag
og biður nú hvem þann sem hefur
vísbendingar um málið að snúa sér
til sín. Fjaran er nokkra kílórnetra
frá byggð og segir lögregla að svo
virðist sem einhver hafi gert sér að
leik að skjóta fuglana.
boðum í framkvæmdirnar innan-
lands og utan.
Að sögn Haraldar er hugmyndin
meðal annars tilkomin vegna sífellt
aukinna erfiðleika á að útvega leigu-
íbúðir og segir hann húsaleigu nú
skýjum ofar. Með nýjum húsnæðis-
lögum sé þessi leið líka fyrir hendi
en þeir sem fá inni í félagslegri íbúð
mega ekki hafa tekjur yín- 1.680
þúsund ki-ónum og eignamörkin eru
1,9 mOljónir króna.
Stofnfundurinn verður haldinn að
Fosshóteli Lind við Rauðarárstíg í
Reykjavík á laugardag og hefst
klukkan 16.
12. - 27. sept.
Einstök ferð til þessa
mikilfenglega lands með
árþúsunda sögu,
menningararfleifö, stórbrotna
náttúru og mannlíf sem er
engu líkt. Ekki missa af
þessari frábæru ferð!
Eiumv«..<^onVr^'aUgar'1'
wv«i.9-».06
Samvinnuferðir
Landsýn
Á VBrði fyrir þigl
Á fundi norrænna ríkisstarfsmanna er rætt um EMU
Þörf á sveigjan-
legum vinnumarkaði
Stofna hlutafélag um
byggingu timburhusa
i
i
I
I
I
I