Morgunblaðið - 20.08.1999, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1999 9
FRÉTTIR
Forstöðumaður upplýsinga- og kynningarmála Landssímans
Stjórnmálamanna að
grípa til byggðaaðgerða
ÓLAFUR Þ. Stephensen, forstöðu-
maður upplýsinga- og kynningar-
mála Landssíma Islands hf., segir að
langar leigulínur verði alltaf dýrari
en stuttar og að því leyti geti fyrir-
tæki í strjálbýli, sem þurfa á slíkum
línum að halda, staðið verr að vígi en
sams konai' fyrirtæki til dæmis á
höfuðborgarsvæðinu. Hann segir
ennfremur að Landssímanum sé
ekki heimilt samkvæmt evrópskum
reglum að láta allar leigulínur kosta
það sama og því sé það í höndum
stjórnmálamanna að grípa til ein-
hverra byggðastyrkja á þessu sviði
en ekki Landssímans.
Ólafur getur þess einnig, vegna
ummæla Svavars Kristinssonar,
framkvæmdastjóra Islenskrar miðl-
unar, í Morgunblaðinu í gær um að
fyrirtækið hafi fengið tilboð frá
Landssímanum upp á 350 þúsund
krónur án virðisaukaskatts á mánað-
arleigu á ATM-tengingu og að þess
vegna hafi reikningur upp á 600 þús-
und komið á óvart, að tilboð Lands-
símans hafi hljóðað upp á 470 þúsund
ki'ónur fyrir rnánaðarleigu en ekki
350 þúsund. „Eg veit ekki alveg hvað-
an þessi 350 þúsund króna tala er
komin, en það var einhver misskiln-
ingur í kringum það að við gerðum
upphaflega tilboð bara í Raufarhafn-
arendann, upp á eitthvað tæplega 393
þúsund með virðisaukaskatti, en síð-
an bættist Reykjavíkurendinn við og
þá var tilboðið komið upp í 470 þús-
und með virðisaukaskatti," segir
Ólafur og bætir við að að teknu tilliti
til afsláttar sem Landssíminn ætlar
að bjóða Islenskri miðlun og nýlegrar
lækkunar á gjaldskrá fyrir svokallaða
Frame Relay-þjónustu muni íslensk
miðlun borga 426 þúsund krónur á
mánuði íyrir umrædda leigu, sem sé
talsvert lægra en upphaflega tilboðið.
Villur í reikningnum
Um sex hundruð þúsund króna
reikninginn sem barst Islenskri
miðlun vegna mánaðarleigu á ATM-
tengingu segir Ólafur: „Svavar hafði
samband við okkur á mánudaginn og
spurði út í þennan reikning og hefði
verið ágætt að fá tíma til að svara
honum án milligöngu fjölmiðla."
Ólafur útskýrir að þegar reikningur-
inn hafi verið skoðaður nánar hafi
komið í ljós villur um einhverja tugi
þúsunda króna og að auki hefðu 160
þúsund krónur af reikningnum verið
vegna stofngjalda fyrir þjónustuna,
sem eingöngu er rukkað fyrir einu
sinni. Eftir hafi staðið rúmlega 330
þúsund krónur.
Eins og fram hefur komið í Morg-
unblaðinu er gjaldskráin fyrir leigu-
línur í endurskoðun og að sögn Ólafs
má gera ráð fyrir því að gerðar verði
tillögur um að lækka leiguverðið á
löngu línunum. „Með nýjum kostnað-
anitreikningum sjáum við að löngu
línurnar eiu of dýrar hjá okkur.
Stuttu línurnar í þéttbýli, hvort sem
er úti á landi eða hér á höfuðborgar-
svæðinu, hins vegar eru í rauninni
verðlagðar undir kostnaðarverði, svo
það kann að vera að þær þurfi að
hækka eitthvað svolítið. En þó að
þessi endurskoðun gangi í gegn
breytir það ekki því að langar leigu-
línur verða alltaf dýrari en stuttar og
þar af leiðandi munu kannski fyrir-
tæki í strjálbýli alltaf standa verr að
vígi hvað þetta varðar en fyrirtæki til
dæmis hér á höfuðborgarsvæðinu.“
Ólafur heldur áfram og segir að
Landssímanum sé ekki heimilt sam-
kvæmt evrópskum reglum að láta
allar leigulínur kosta það sama. Það
sé ekki í samræmi við nein viðskipta-
eða kostnaðarlögmál og auk þess
þekkist það ekki. hjá símafyrirtækj-
um í Evrópu að leigulínur kosti það
sama óháð lengd. „Ef menn eru að
tala um að landsbyggðin eigi að
greiða sama verð fyrir leigulínu,
óháð lengdinni, held ég að þar verði
menn nú frekar að leita til stjórn-
málamanna og kanna hvort þeir telji
nauðsynlegt að grípa til einhverra
byggðastyrkja á þessu sviði heldur
en að ætla að leggja það á fyrirtæki,
sem ber að reka á arðsemisgrund-
velli, að framkvæma byggðastefn-
una.“
NÝJA
VÖR
Fréttir á Netinu
ég'mbl.is
■
SIÐUSTU
DAGAR
Föstudag til þriöjudags
10% aukaafsláttur
viö kassann
SKÚVERSLUN
KÓPAV0GS
HAMRAB0RG 3 • SÍMI 554 1754