Morgunblaðið - 20.08.1999, Qupperneq 16
MORGUNBLAÐIÐ
16 FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1999
AKUREYRI
Síðasta
skipa-
koman
SÍÐASTA skemmtiferðaskip
sumarsins rennur inn á Poll-
inn við Akureyri í dag. Þetta
er Rotterdam VI, um 240
metra langt skip, með um
1.500 farþega og 500 manna
áhöfn.
Skipakoman í dag er sú 26.
til Akureyrar í sumar og með
skipunum hafa komið samtals
um 21 þúsund farþegar. Þá
virðist töluverður áhugi fyrir
því að koma til Akureyrar, því
þegar hefur 21 skipakoma
verið tilkynnt íyrir næsta
sumar.
Þar sem þetta er síðasta
skipakoman mun Hjálparsveit
skáta á Akureyri standa fyrir
mikilli flugeldasýningu við
höfnina kl. 22 í kvöld.
Morgunblaðið/Araaldur
Strengjakvartettinn og Örn Magnússon píanóleikari á æfíngu fyrir Berjadagana. F.v. Hildigunnur Halldórs-
dóttir, Sigurlaug Eðvaldsdóttir, Örn, Guðmundur Kristmundsson og Sigurður Halldórsson.
Tónlistarhátíð í Ólafsfírði um helgina
Berjadagar haldnir
í fyrsta sinn
BERJADAGAR er nafn á mikilli
tónlistarhátíð sem fram fer í
Ólafsfírði á morgun, laugardag,
og á sunnudag. Að hátiðinni
stendur Félag um tónlistarhátíð á
Tröilaskaga, í samvinnu við
heimamenn. „Þetta er nýstofnað
félag og er afar fámennt enn sem
komið er en var stofnað um þessa
tónlistarhátíð,“ sagði Örn Magn-
ússon píanóleikari, einn aðstand-
enda félagsins og þátttakandi í
hátíðinni.
Markmiðið með hátíðinni, sem
hér eftir verður haldin á hveiju
ári, er að gefa almenningi kost á
að stunda menningarviðburði og
njóta stórbrotinnar náttúru Trölla-
skagans, sem um þetta leyti skart-
ar sínu fegursta. „Við gerum okk-
ur vonir um góða aðsókn, enda
hefur verið vel tekið í þessa hug-
mynd alls staðar. Það tekur alltaf
tíma að vinna svona hátíð sess og
við gerum okkur fulla grein fyrir
því að það verður ekkert endilega
léttur róður,“ sagði Örn.
Flutt verður fjölbreytt sfgild
kammertónlist en skipulagðir eru
þrennir tónleikar, opnunartón-
leikar á laugardag kl. 16.00 í
Ólafsfjarðarkirkju, miðdegistón-
leikar á sunnudag kl. 14.00 í
kirkjunni á Kvíabekk og lokatón-
leikar í félagsheimilinu Tjamar-
borg á sunnudagskvöld kl. 20.30.
Auk Amar koma fram bróðir
hans Sigursveinn tónlistarmaður,
Einar Kristján Einarsson, gítar-
leikari, Hildigunnur Halldórsdótt-
ir fíðluleikari, Sigurlaug Eðvalds-
dóttir fíðluleikari, Guðmundur
Kristmundsson víóluleikari, Sig-
urður Halldórsson sellóleikari og
söngkonurnar Marta Guðrún
Halldórsdóttir og Sigrún Valgerð-
ur Gestsdóttir.
Þá er ráðgert að gestur úr
annarri listgrein verði á hátíðinni
á hverju ári. Að þessu sinni verða
synd málverk eftir listakonuna
Olöfu Þorláksdóttur, „Grímu“,
sem búsett var í Ólafsfirði um
árabil. Sýningin verður í nýju
Safnaðarheimili Ólafsfjarðar-
kirkju.
Formaður Eyþings um vanda landsbyggðarinnar við upphaf aðalfundar í Grímsey
Umræður og úttektir á
vandanum skortir ekki
SVEITARSTJÓRNARMENN og
konur fjölmenntu til Grímseyjar í
gær, þar sem hófst um miðjan dag-
inn aðalfundur Eyþings, Sambands
sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyj-
arsýslum. Fundinn sitja tæplega 50
fulltrúar en alls fóru um 60-70
manns til Grímseyjar í tengslum við
fundinn, sem lýkur á morgun.
Kristján Þór Júlíusson bæjar-
stjóri á Akureyri og formaður Ey-
þings, sagði í setningarræðu sinni
að dagskrá fundarins bæri þess
merki að byggðamál væru ofarlega í
huga sveitastjómarmanna á starfs-
svæði Eyþings. Hann sagði að sú
áhersla sem lögð væri á þessi mál á
fundinum byggðist á því viðhorfi að
grundvallarforsenda þess að byggð
eflist utan höfuðborgarsvæðisins sé
öflugt og fjölbreytt atvinnulíf.
„Eg vil þó að gefnu tilefni minna
rækilega á að umræður og úttektir
á vanda landsbyggðarinnar skortir
ekki. Það sem á skortir er að úttekt-
um á vanda landsbyggðarinnar og
tillögum um aðgerðir til að draga úr
þeim vanda, hafi verið fylgt eftir
með beinum aðgerðum," sagði Kri-
stján Þór.
Á síðasta þingi var lagt fram
frumvarp að nýjum stjórnskipunar-
lögum sem gerir ráð fyrir jöfnun at-
kvæðavægis og breytingum á kjör-
dæmamörkum.
Atkvæði greidd með fótunum
„Höfuðröksemdin fyrir þessum
breytingum er sögð sú að draga eigi
úr misvægi atkvæða með flutningi
þingsæta frá landsbyggðinni til
þéttbýlis á suðurvesturhorni lans-
ins. Ég fullyrði hins vegar að
misvægið felst í fleiru en misjöfnu
atkvæðamagni og segja má að fólk
hafi á undanfömum árum greitt at-
kvæði með fótunum. Þetta sést m.a.
þegar horft er til þess að misvægi
atkvæða virðist ekki hafa dregið úr
fólksflutningum frá þeim kjördæm-
um þar sem atkvæði hafa vegið
þyngst, til þeirra kjördæma þar
sem fleiri atkvæði hafa verið að baki
hverjum þingmanni."
Stefnu ríkisins skortir
Kristján Þór sagði að þingsálykt-
un um stefnu í byggðamálum 1998-
2001 hafi einnig var samþykkt á síð-
asta þingi. Hann sagði að ýmis úr-
ræði fælust í endurskoðun á skipu-
lagi ríkisstarfseminnar og ýmsum
öðrum ákvörðunum, svo sem að nýj-
um opinberum stofnunum skuh val-
inn staður úti á landi. „Skort hefur
að mótuð sé stefna ríkisins í fram-
angreindum atriðum og henni fylgt
eftir af festu og einurð. Á sama tíma
og við Islendingar miklum það
óskaplega fyrir okkur að byggja
upp starfsemi á vegum ríkisins úti á
landi, tekur þýska þingið sig til og
flytur sig um set á milli borga,“
sagði Kristján Þór.
Aðgerðaráætlun kynnt
lngi Rúnar Eðvarðsson dósent
við Háskólann á Akureyri kynnti á
fundinum í gær, aðgerðaráætlun
fyrir Eyþing, sem unnin var af
Rannsóknarstofnun HA. „Það eru
svo mörg mál brýn að okkar mati
en í stórum dráttum eru það at-
vinnu-, heilbrigðis-, samgöngu- og
mennngarmál sem eru mest í um-
ræðunni. Einnig eru tekin fyrir í
skýrslunni fjarskipti, jöfnun bú-
setuskilyrða og fjölmiðlar, sem eitt
sterkasta valdið í þjóðfélaginu,"
sagði Ingi Rúnar í samtali við
Morgunblaðið.
Hann sagði að farið hafi verið of-
an í markmið og aðgerðir ofan-
greindra mála en að hugmyndin
væri að Eyþing yrði eins konar
hagsmunahópur og þrýstiaðih, eða
sá aðili sem beitti sér í stefnumörk-
um og úttektum á þessum málum
og fylgi þeim eftir.
Fundarboö
Aukaaðalfundur hjá Lífeyrissjóði
Tannlæknafélags íslands verður haldinn
föstudaginn ío. september kl 16:15.
Fundurinn er haldinn í félagsheimili
Tannlæknafélags íslands, Síóumúla 35,4^,
108 Reykjavík. •
m
Dagskrá: 1. Björn Ragnarsson, stjórnarformaöur
lífeyrissjóðs Tannlaeknafélags íslands,
seturfundinn.
2. Nýjarsamþykktirsjóðsins kynntar.
3. Kynnt .samkomulag um sameiginlega
örorkutryggingu sjóðsins.
4. Kosning um nýjar samþykktir sjóösins.
5. önnurmál.
Stjórn Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags fslands.
Rannsóknarlögreglan
á Akureyri
Lagði hald á
mikið magn
fíkniefna
RANNSÓKNARLÖGREGLAN á
Akureyri lagði hald á mikið magn af
fíkniefnum á AkureyrarflugvelM í
fyrrakvöld. I kjölfarið voru fjórir
menn handteknir og teknir til yfir-
heyrslu. Þremur þeirra var sleppt í
gær en einn er enn í haldi og er
málið í rannsókn.
Lagt var hald á 130 grömm af
hassi, 10 grömm af amfetamíni og
smávegis af kókaíni. Daníel Snorra-
son, lögreglufulltrúi á rannsóknar-
deild lögreglunnar, sagði þetta mál
sýna enn betur hver þróunin í þess-
um málum er að verða í bænum.
„Málum fjölgar stöðugt og umfang
þeirra stækkar," sagði Daníel.
Vinnuslys
við Þelamörk
VINNUSLYS varð við grunnskól-
ann á Þelamörk skömmu fyrir há-
degi í gær. Starfsmaður skólans féll
af MtiMi vélknúinni sláttuvél og slas-
aðist í baki. Maðurinn var fluttur á
slysadeild FSA en að sögn lögreglu
fór betur en á horfðist og voru
meiðsli hans ekki talin mjög alvar-
leg.
Starfsmaðurinn var að snúa við á
sláttuvélinni uppi á stalli en þá vMdi
ekki betur til en að bremsumar
gáfu sig og rann vélin afturábak
niður þriggja metra stall og valt.
Við það kastaðist maðurinn af vél-
inni og hafnaði á bakinu ofan á
steyptum vegg.
Kveðjumessa
séra Birgis
Snæbj örnssonar
HINN 31. ágúst næstkomandi mun
séra Birgir Snæbjömsson láta af
embætti sóknarprests í Akureyrar-
prestarkalli. Þar hefir hann starfað
frá því í nóvember 1960. Áður var
hann í samtals átta ár á Æsustöðum
í Langadal og í Laufási.
Kveðjumessa séra Birgis verður
sunnudaginn 22. ágúst kl. 14 og
þætti honum vænt um að sjá sem
flesta. Eftir messu býður sóknar-
nefnd Akureyrarsóknar til kaffi-
samsætis í SafnaðarheimiMnu. Séra
Birgir þakkar ljúft og langt sam-
starf og ótal ánægjulegar samvem-
stundir. Viðtakandi sóknarpresti og
presti biður hann blessunar Guðs,
og væntir þess að söfnuður þeirra
sýni þeim sömu velvild og honum.
Kona séra Birgis, sem mjög hefur
stutt hann í starfi, er Sumarrós
Garðarsdóttir.
Umdæmisþing
Kiwanis
UMDÆMISÞING Kiwanisum-
dæmisins Ísland-Færeyjar verður
haldið í íþróttahöllinni á Akureyri
um helgina 20.-22. ágúst. Árlegt
umdæmisþing Kiwanisfólks er aðal-
vettvangur hreyfingarinnar til
stefnumótunar, innbyrðis kynna
Kiwanisfólks og maka þeirra, ásamt
því að fara yfir störf Mðandi starfs-
árs.
Flöamarkaður
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akur-
eyri, HvannavöMum 10, heldur í dag
flóamarkað er stendur frá kl. 10-18.
Gospelkvöld
HVÍTASUNNUKIRKJAN á Akur-
eyri stendur fyrir Gospelkvöldi í
kvöld, föstudagskvöld, kl. 21 í umsjá
unga fólksins.