Morgunblaðið - 20.08.1999, Page 18
18 FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1999
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Um 700 gestir skoðuðu ýtur á
ýtusýningu á Hvanneyri
Sýndi 57 ára ýtu
sem enn er notuð
Grund - Beltavélar og ýtur í 80 ár
var yfirskrift á stórskemmtilegri
ýtusýningu, sem haldin var á
Hvanneyri helgina 14.-15. ágúst
sl. Um 700 gestir heimsóttu
Hvanneyri sýningardagana, en að
sýningunni stóðu Búvélasafnið á
Hvanneyri, verktakafyrirtækið
Jörfi í Borgarfirði, Vegminjasafn-
ið, Vegagerð ríkisins og Hekla hf.
Tilefni sýningarinnar var 80 ára
saga beltavéla á íslandi og þáttur
þeirra í túnrækt bænda og sam-
göngubótum.
Sýningin var tvíþætt: Á úti-
svæði voru sýndar beltavélar og
jarðýtur frá ýmsum tímum, m.a.
beltavél frá fjórða áratugnum
(Caterpillar TEN) og fyrsta jarð-
ýtan, sem notuð var við túnrækt
og vegagerð hérlendis. Þetta er
TD 9, sem tekin var í notkun 14.
ágúst fyrir 57 árum. Hún er í full-
komnu lagi og enn í notkun á
Hvammi í Hvítársíðu. Eigandinn,
Torfi Gunnlaugsson, sýndi hæfni
sína og kosti ýtunnar, en ekkert
stóð fyrir henni, sem henni var
beitt á.
Vegagerðin frumsýndi tvær ný
uppgerðar grafvélar, Caterpillar
og Prestman. Vélar þessar hafa
verið snilldar vel uppgerðar á
verkstæði yegagerðarinnar í
Borgamesi. Á sjötta áratugnum
var Prestman afkastamesta
ámokstursvél, sem mokaði á vega-
gerðarbíla. Það tók skamma stund
að moka fullu hlassi á hvern bíl.
Þegar skóflan er skoðuð nú finnst
manni hún ansi smá, sem í hugan-
um var feikilega stór á sínum
tíma. Flestar vélanna á sýning-
unni voru teknar til kostanna og
menn léku listir sínar með jarðýt-
um og grafvélum við haugalögun,
mokstur, plönun svo og
skerpiplægingu, en þau mikilfeng-
legu vinnubrögð voru aflögð fyrir
aldarþriðjungi. Þetta gerði góða
lukku meðal gesta.
Sögusýningin
stendur út ágúst
Þá hafði verið komið upp sögu-
sýningu í sumarhótelinu, þar sem
dregin var fram saga beltavélanna
og atburðir úr sögu þeirra hér-
lendis. Voru þar sýndar margar
myndir frá fyrstu árum túnrækt-
unar og vegagerðar með jarðýt-
um. Þessi hluti sýningarinnar
vakti ekki síður athygli en gömlu
vélarnar.
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Margar áhugaverðar ýtur voru til sýnis á ýtusýningunni á Hvanneyri.
Laugardagskvöldið 14. ágúst
var efnt til ýtumannavöku á
Hvanneyri. Þar hittust nær 60 ýtu-
menn, eldri og yngri, úr öUum
landshlutum og rifjuðu upp sögur
og sagnir tengdar ýtunni. Var þar
glatt á hjalla og margar kátlegar
og merkilegar ýtumannasögur
sagðar. í hópnum voru meðal ann-
ars ýtumenn, sem tekið höfðu til
starfa fyrir meira en 50 árum.
Veitinga var notið í boði Jörfa
hf., sem er vaxandi beltavélaeig-
andi með 21 árs starfsferil að baki.
Gestir sýningardagana skoðuðu
einnig hið vaxandi búvélasafn á
Hvanneyri. Það hefur verið opið
alla virka daga milli kl. 13 og 18
síðan í byrjun júní og verður svo út
ágúst mánuð. Gestir það sem af er
þessu ári nálgast nú 3.000.
Forstöðumaður búvélasafnsins,
Bjami Guðmundsson, var stjórn-
andi og talsmaður sýningarinnar.
Meó einu
handtaki býróu
til boró í
miðaftursætinu.
Einnig fáanlegt
meó kæliboxi.
„Flugsætisboró“
fyrir yngri
farþega
í aftursæti.
Mikió
farangursrými sem
hægt er aó stækka
enn meira.
Auóvelt er aó taka
aftursætin úr, eitt,
tvö eóa öll þrjú.
Þau eru
ótrúlega létt.
Fjarstýró
hljómtæki meó
geislaspilara,
stjórnaó úr stýri.
4 loftpúóar:
bílstjóri, farþegi
í framsæti
og hlióarpúóar.
Tvö hólf í gólfi fyrir
framan aftursæti.
Renault Mégane varvalinn öruggasti bíll ársins í sínum flokki í Evrópu 1998.
Grjótháls 1
Sími 575 1200
Söludeild 575 1220
Alkþetiamnmií Mé<j<m Scénic
Aukabúnaður á mynd: Álfelgur