Morgunblaðið - 20.08.1999, Qupperneq 20
20 FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Góð afkoma hjá Þróunarfélagi islands hf,
Rúmlega 349 millj-
óna króna hagnaður
ÞRÓUNARFÉLAG íslands hf.
skilaði rúmlega 349 milljóna króna
hagnaði á fyrri helmingi þessa árs
en skilaði 133 milljónum á sama
tímabili í fyrra. Hagnaður félagsins
fyrir skatta nam 518 milljónum og
er það aukning um 270% milli ára.
Raunávöxtun hlutabréfaeignar
félagsins á fyrri hluta ársins nam
46% á ársgrundvelli að teknu tilliti
tO arðgreiðslna. Til samanburðar
má nefna að heildarvísitala Aðall-
ista Verðbréfaþings hækkaði um
8,6% á sama tíma, sem samsvarar
18% ávöxtun á ársgrundvelli.
Gengishagnaður hlutabréfa nam
alls 547 milljónum króna, þar af er
innleystur hagnaður vegna sölu
hlutabréfa á tímabilinu 155 milljón-
h- og óinnleystur gengishagnaður
392 milljónir.
Hækkað verð hlutabréfa
skýring góðrar afkomu
Á fyrri hluta þessa árs hefur Þró-
unarfélagið keypt hlutabréf í 13 fé-
lögum að fjárhæð 120 milljónir
króna og selt bréf fyrir alls 246
milijónir í 15 félögum. Að sögn
Andra Teitssonar, framkvæmda-
stjóra Þróunarfélagsins, hafa verið
seld bréf í Opnum kerfum hf., Ný-
herja hf., Granda hf., Þormóði
ramma hf., Árnesi hf. og Fjölmiðlun
hf., en í tveimur síðastnefndu félög-
unum voru öll bréf Þróunarfélags-
ins seld. „Ástæðan var sú að gengi
bréfa í þessum félögum hefur verið
hátt og við vildum nýta tækifærið
og leysa tO okkar hagnað. Af nýjum
fjárfestingum okkar, það sem af er
árinu, má hins vegar tO dæmis
nefna kaup á bréfum í Urði-Verð-
andi-Skuld og ístúni hf. Að auki
höfum við bætt við hlut okkar í
Vaka hf.-fiskeldiskerfum og Net-
verki hf., svo dæmi séu nefnd. Bætt
afkoma Þróunarfélagsins á fyrri
hluta ársins er að þakka almennt
hækkuðu verði hlutabréfa í íslensk-
um fyrirtækjum, einkum upplýs-
ingatæknifyrirtækjunum. Megin-
skýringin á því að ávöxtun bréfa
okkar er þetta miklu hærri en sem
nemur hækkun markaðarins að
jafnaði, er mikil hlutafjáreign okkar
í Opnum kerfum og Nýherja," segir
Andri.
Þróunarfélagið á alls hlutabréf í
78 fyrirtækjum, þar af eru 34 skráð
á Aðallista Verðbréfaþings, 11 eru
skráð á Vaxtalista og 33 eru óskráð,
þar af 7 erlend. HeOdareignir fé-
lagsins námu rúmum 3,6 mOljörðum
í lok fyrri helmings þessa árs, þar af
eru 77% eigna í hlutabréfum, 16% í
skuldabréfum, 5% í handbæru fé og
2% í öðrum eignum. Eigið fé var í
lok tímabOsins rúmir 2,6 milljarðar
og var eiginfjárhlutfallið 72%.
Hlutabréf skráð á Verðbréfaþingi
Islands nema 70% af heOdareignum
Þróunarfélagsins. Að sögn Andra
má því vænta þess að afkoma fé-
lagsins íylgi þróuninni á markaðn-
um. Hann segir einnig að félagið
hafi nýlega keypt hlutabréf í
DeCODE fyrir 203 mOljónir króna.
Þróunarfélag Islands hf.
Milliuppgjör 30. júní 1999
Rekstrarliðir Milljónir króna 1999 1998 Breyting
Fjármunatekjur Fjármagnsgjöld 601,7 67,4 183,6 30,4 +228% +122%
Hreinar fjármunatekjur Rekstrargjöld 534,3 15.4 153,3 13,1 +249% +18%
Hagnaöur f. skatta Reiknaðir skattar 518,9 169.4 140,2 7,0 +270%
Hagnaður tímabilsins 349,5 133,2 +162%
Efnahaqsliðir 30. júní 1999 1998 Breyting
| Eignir: | Milliónir króna
Fastafjármunir 29,5 30,0 •2%
Hlutabréf 2.845,1 1.851,1 +54%
Aðrir veltufjármunir 805.9 472.8 +70%
Eigniralls 3.680,5 2.353,8 +56%
| Skuldir og eigið fé: |
Eigiö fé 2.646,7 1.982,4 +34%
Tekjuskattsskuldbinding 632,0 317,0 +99%
Skuldir 401.8 54.4 +639%
Skuldirog eigið fé alls 3.680.5 2.353,8 +56%
Sióðstrevmi oa kennitölur 1999 1998 Breyting
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 579,9 168,9 +243%
Handbært fé frá rekstri 130,4 102,1 +28%
Eiginfjárhlutfall 72% 84%
Innra virði 2,41 1,80
Arðsemi eigin fjár 32% 15%
Skagstrendingur birtir afkomutölur
fyrir fyrstu sex mánuði ársins
Hagnaður eykst
um tæp 80%
Skagstrendingur hf. Úr milliuppgjöri 1$99 fcfeöÉÉ
SAMSTÆÐA MÓÐURFÉLAG
Rekstrarreikningur 30/6 1999 30/61998 Breyting
Rekstrartekjur Milljónir króna Rekstrargjöld 1.162,1 (922,0) 985,2 (839,3) +18,0% +9,9%
Vergur hagnaður Afskriftir Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) Skattar 240,0 (76,6) (10,3) (2,9) 146,0 (80,9) 3,8 (2,0) +64,4% -5,3% +45,0%
Afkoma af reglul. starfsemi Aðrar tekjur og gjöld Áhrif hlutdeildarfélaga 150,2 (23,4) 3,5 66,9 5,7 0,0 +124,5%
Afkoma tímabilsins 130.3 72,5 +79.7%
SAMSTÆÐA MÓÐURFÉLAG
Efnahagsreikningur 30. júní 1999 1998 Breyting
lEignin I Milljónir króna
Veltufjármunir 771,2 400,6 +92,5%
Fastafjármunir 2.170,6 2.244,5 -3,3%
Eignir samtals 2.941,8 2.645,1 +11,2%
I Skuldir og eigið fé: ,MS| Skammtímaskuldir 795,8 548,4 +45,1%
Langtímaskuldir 1.272,5 1.348,5 -5,6%
Eigið fé 873,6 748,2 +16,8%
Skuldir og eigið fé samtals 2.941,8 2.645,1 +11.2%
Sjóðstreymi 1998 | 1997 Breyting
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 173,9 ;i 100,9 +72,3%
Sportleigan og Útilíf sameinast
*
Aframhaldandi
sjálfstæður rekstur
SKAGSTRENDINGUR hf. á
Skagaströnd var rekinn með 130
milljóna króna hagnaði fyrstu sex
mánuði ársins 1999, að því er fram
kemur í tOkynningu frá félaginu. Á
sama tíma í fyrra var hagnaðurinn
73 milljónir króna og eykst því um
tæp 80%. Rekstrartekjur félagsins
jukust um 18% á milli ára og
rekstrargjöld um 10%.
Skagstrendingur hefur stofnað
erlent félag um rekstur Örvars,
Örvar Ltd, og þess vegna er reikn-
ingur félagsins samstæðureikning-
ur. Örvar Ltd. er að fullu í eigu
Skagstrendings og því á saman-
burður á rekstri móðurfélagsins á
síðasta ári og rekstri samstæðunn-
ar á þessu ári fullan rétt á sér að
sögn Jóels Kristjánssonar, fram-
kvæmdastjóra Skagstrendings hf.
Góð aflabrögð og
hátt afurðaverð
Auknar rekstrartekjur má rekja
tO góðra aflabragða skipa félagsins
auk þess sem afurðaverð á sjó-
frystum afurðum hefur haldist hátt
það sem af er árinu. Velta skipa fé-
lagsins eykst um 57% á milli ára en
velta landvinnslunnar minnkar um
12% fyrir sama tímabil, að því er
fram kemur í tilkynningunni.
Skagstrendingur hf. og dótturfé-
lag þess á og gerir út tvö skip,
frystitogarann Arnar HU-1 og
rækjufrystiskipið Örvar EK-9904.
Félagið rekur rækjuvinnslu á
Skagaströnd og frystihús á Seyðis-
firði. Starfsmenn eru 170 talsins.
Skagstrendingur kemur einnig
að útgerð Tahkuna EK-9903 (áður
Helga Björg HU-7) í samstarfi við
Naseo ehf. í Reykjavík. Með tO-
komu Örvars og samvinnunnar við
Nasco ehf. eru horfur í hráefnis-
málum rækjuvinnslunnar á Skaga-
strönd góðar, en nú þegar er búið
að tryggja vinnslunni nægjanlegt
hráefni út árið, segir ennfremur í
tilkynningunni.
„Ég er nokkuð sáttur við þessa
niðurstöðu og tel að við séum á
réttri leið eins og þetta árshluta-
uppgjör ber með sér. Þær aðgerðir
sem notaðar hafa verið til að laga
reksturinn að núverandi rekstrar-
umhverfi hafa skilað árangri og
þar á starfsfólk Skagstrendings
stóran hlut,“ segir Jóel.
„Góð aflabrögð hjá skipunum og
hátt afurðaverð það sem af er ár-
inu eru samverkandi þættir en ég á
ekki von á því að þetta háa verð
haldist út árið, það myndast oft
þrýstingur á afurðaverð eftir
kvótaáramótin. Kvótastaða félags-
ins er góð og ég á von á að afkoman
á árinu í heild sinni ætti að verða
ágæt ef ekki verða stórar breyting-
ar á aflabrögðum og afurðaverði,"
segir Jóel.
„Hvað aukna veltu skipanna
varðar, kemur þrennt t0,“ segir Jó-
el. „Góður afli, hátt afurðaverð og
eins þær breytingar sem gerðar
vora á skipastól félagsins um síð-
ustu áramót. Frystitogarinn
Blængur var keyptur af Sfldar-
vinnslunni og er gerður út á
Flæmska hattinum í samvinnu við
eistneska aðfla. Þar hafa aflabrögð
verið ágæt frá því í mars en skipið
hefur ekki verið í rekstri allt árið,“
segir Jóel.
Óvissa vegna breytts
eignarhalds
Heiðar Guðjónsson, miðlari hjá
Islandsbanka É&M, segir uppgjör-
ið gott. „Reksturinn skilar meiru
en fyrir ári, þrátt fyrir erfíðleika í
rækju, og framlegðin er nú um
22% sem er það sama og Þormóður
Rammi-Sæberg hf. sýndi, enda
fyrirtækin áþekk. Arnar, einn afla-
hæsti frystitogari landsins, malar
félaginu gull en ætla má framlegð
yfir 30% af rekstri skipsins. Fyrir-
tækið nýtur góðs af gengisþróun,
auk þess sem verðbreytingar-
færsla kemur til tekna sem nemur
40 milljónum króna, þannig að
segja má að fjármagnsliðir séu
óeðlilega hagstæðir. Talsverð
óvissa ríkir nú um fyrirtækið
vegna breytinga á eignarhaldi og
hefur gengi íyrirtækisins spennst
upp vegna þessa,“ segir Heiðar
Már. Að hans dómi er ekki tilefni
til frekari gengishækkana í kjölfar
uppgjörs Skagstrendings hf.
SAMKOMULAG forsvarsmanna
útivistaiyerslananna Sportleigunn-
ar og UtOífs um samruna fyrir-
tækjanna hefur verið undirritað og
stendur nú yfir nánari frágangur.
Baugur hf. er eigandi Utilífs frá
því í maí sl. þegar gerður var
samningur um kaup Baugs á versl-
uninni fyrir 170 milljónir króna.
Ein verslun er nú rekin undir nafni
Utilífs en tvær á vegum Sportleig-
unnar. Að sögn Einars Eiríksson-
ar, eiganda Sportleigunnar, er bú-
ist við að útivistarverslanirnar
þrjár starfi áfram og einni jafnvel
bætt við á árinu.
„Þetta er svar við kalli tímans,“
segir Einar. „Það hafa orðið miklar
breytingar í þessum geira og við
gerðum samkomulag um samrun-
ann meðal annars til að styrkja
samkeppnisstöðu okkar. Þetta er
það sem er að gerast á öllum mörk-
uðum.“ Að sögn Einars munu bæði
nöfnin fyrst um sinn verða notuð
og verslanirnar reknar sjálfstætt.
„Utilíf er stæni aðilinn en ekki
hefur enn verið gengið frá eignar-
hlut hvors fyrirtækis um sig í nýju
fyrirtæki," segir Einar.
Sportleigan hefur byggingarleyfi
fyrir 300 fm húsi á lóð fyrirtækis-
ins í Vatnsmýrinni og fyrirhugað
var að hefja byggingu nú í haust.
Einar segir byggingarframkvæmd-
ir ennþá fyrirætlaðar en hugsan-
lega muni þær tefjast eitthvað, ný
stjórn eigi eftir að taka ákvarðanir
um slíkt. Einar Eiríksson verður í
stjórn nýs fyrirtækis en fram-
kvæmdastjóri þess verður Halldór
Hreinsson.
Ekki náðist í Jón Ásgeir Jóhann-
esson, forstjóra Baugs, í gær.
Yfirtaka
Alcoa á
Reynolds
verður að
veruleika
Pittsburgh. AP.
ALCOA, stærsta álframleið-
anda heims, hefur tekist það
ætlunarverk sitt að taka yfir
þriðja stærsta álfyrirtæki
heims, Reynolds Metals, fyrir
4,4 miíljarða dollara eða 325,6
milljarða íslenskra króna. Til-
boðsstríð Alcoa og Michigan
Avenue Partners hefur því
ekki orðið að veruleika.
Hlutabréf beggja
lækka
Hlutabréf í báðum fyrir-
tækjum lækkuðu í verði eftir
tilkynninguna í gær en áður
höfðu hlutabréf í Reynolds
hækkað í verði vegna vænt-
inga um hátt tilboð í fyrir-
tækið.
Alain J.P. Belda, forstjóri
Alcoa, segir nýja fyrirtækið í
betri aðstöðu til að takast á
við alþjóðavæðingu í málmiðn-
aði og breytt samkeppnisum-
hverfi sem hlytist þar af.
Stjórn Reynolds hafnaði á
sunnudag tilboði Alcoa sem
hljóðaði upp á 65 dollara
greiðslu í peningum og hluta-
bréfum fyrir hvern hlut í
Reynolds. Alcoa tók því á það
ráð að bjóða hluthöfum
Reynolds 65 dollara peninga-
greiðslu fyrir hvern hlut í fyr-
irtækinu og hefur það nú leitt
tO samkomulags um sámruna
fyrirtækjanna.
Sjötti hluti
heimsframleiðslu
Við yfirtökuna verður til
fyrirtæki með sölutekjur upp
á 20,5 mflljarða dollara eða
um 1.500 milljarða íslenski-a
króna. Starfsmenn verða
120.000 í 300 verksmiðjum í
36 löndum. Sérfræðingar
segja sameinað fyrirtæki ráða
yfir sjötta hluta af álfram-
leiðslu heimsins. Sú staðreynd
gæti leitt til þess að sam-
keppnisyfirvöld gerðu athuga-
semd.