Morgunblaðið - 20.08.1999, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
UR VERINU
FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1999 21
Fjölnir
stofnar
fiskmarkað
FISKVINNSLAN Fjölnir hf. á
Þingeyri ætlar að stofna Fisk-
markað Þingeyrar ehf. og samhhða
því er stefnt að því að koma upp
frekari beitningaaðstöðu fyrir
trillusjómenn og verða beitninga-
stæði leigð út.
Tilgangurinn með stofnun fisk-
markaðarins er að laða fleiri báta
til Þingeyrar og fá þannig aukið
hráefni til vinnslu en stefnt er að
því að markaðurinn verði ekki að-
eins uppboðsmarkaður heldur veiti
skipum og bátum ýmiss konar
þjónustu.
-------♦ ♦♦------
Siglingastofnun
Nýtt útibú
stofnað á
Suðurnesjum
SIGLINGASTOFNUN íslands
hefur stofnað nýtt útibú fyrir
skipaskoðun í Reykjanesbæ. Þetta
er sjötta útibú Siglingastofnunar á
skipaskoðunarsviði á landsbyggð-
inni, en fyrir eru útibú í Ólafsvík,
á ísafirði, Akureyri, Fáskrúðsfirði
og í Vestmannaeyjum. Enn frem-
ur mun stofnunin auka þjónustu
sína á Suðurlandi með viðveru
skoðunarmanns í Þorlákshöfn
annan hvern fimmtudag og föstu-
dag.
Skrifstofa Siglingastofnunar á
Reykjanesi er á Víkurbraut 13 í
Keflavík og mun þjóna skipum og
bátum á Suðurnesjum, á svæðinu
fyrir sunnan Straumsvík. Útgerð-
armenn og skipstjórar skipa og
báta á svæðinu geta því leitað
þangað um þjónustu. Nánari upp-
lýsingar gefur Skúli R. Þórarins-
son á skrifstofu Siglingastofnunar
á Suðumesjum í síma 421-1072,
bréfasími 421-1072.
Þjónusta í Þorlákshöfn
Frá og með fimmtudeginum 9.
september nk. verður breyting á
starfsemi útibúsins í Vestmanna-
eyjum. Skoðunarmaður verður
með viðveru í Þorlákshöfn annan
hvern fimmtudag og föstudag. Út-
gerðarmenn og skipstjórar skipa
og báta á Suðurlandi geta því
tryggt sér skoðun á þessum tíma
með því að hafa samband við
Steingrím D. Sigurðsson á skrif-
stofunni í Vestmannaeyjum í síma
481-2145 eða 897-4830, og gefur
hann jafnframt nánari upplýsing-
ar.
Trefjar semja um sölu á plastbátum til Rússlands
Samningur upp á tugi
milljóna undirbúinn
TREFJAR ehf. í Hafnarfirði hafa
smíðað trefjaplastbát sem hefur
verið seldur til Rússlands og verður
væntanlega afhentur fyrir komandi
mánaðamót. Rætt hefur verið um
að gera samning um tugi báta en
gert er ráð fyrir að samið verði um
smíði fimm báta fyrir áramót. Verð
eins báts með öllu er um 18 til 20
milljónir króna svo ljóst er að um
verðmætan samning er að ræða en
rússnesk sendinefnd með Nikolai
Ermakov, sjávarútvegsráðherra
Rússlands, í fararbroddi heimsækir
fyrirtækið í dag vegna þessa máls.
Mikil eftirspum er eftir bátum
frá Trefjum en um er að ræða svo-
nefnda Cleopatra-báta. Að sögn
Högna Bergþórssonar, tæknilegs
framkvæmdastjóra fyrirtækisins,
hafa 20 bátar verið afgreiddir á ár-
inu en gengið hefur verið frá samn-
ingum um afhendingu 40 báta til
viðbótar fram í ársbyrjun 2001.
Fyrirtækið selur einkum 28 feta
báta innanlands en stærri báta er-
lendis og er framleiðslutíminn þrír
til fjórir mánuðir. Unnið er við
marga báta í einu en Rússamir
kaupa Cleopatra 33 og verður um
aðsldlið verkefni að ræða.
Högni segir að lengi hafi verið
unnið að markaðssetningunni í
Rússlandi og heimsókn rússneska
sjávarútvegsráðherrans sé til komin
vegna þess að fyrsti báturinn sé til-
búinn. Rætt hafi verið um mikil
samskipti en nú sé komið að því að
ganga frá samningum.
Sjávarútvegsráðherra
í heimsókn hérlendis
SJAVARUTVEGSRÁÐHERRA
Rússlands, Nikolai Ermakov, kom
til landsins í gærkvöldi. Hann mun í
dag eiga fund með Áma M.
Mathiesen sjávarútvegsráðherra
auk þess sem stofnaður verður
vinnuhópur sem meðal annars mun
fjalla um samning þjóðanna um
samstarf á sviði sjávarútvegs. Unn-
ið hefur verið að gerð samningsins
frá 1997 en hann hefur ekki enn
verið formlega undirritaður. Ekki
er gert ráð fyrir að samningurinn
verði undirritaður á meðan á heim-
sókninni stendur. Samkvæmt upp-
lýsingum frá sjávarútvegsráðuneyL
inu á enn eftir að ganga frá ýmsum
ákvæðum samningsins og er vonast
til að samningurinn liggi efnislega
fyrir að heimsókninni lokinni.
Rússneski ráðherrann mun
einnig ganga á fund Davíðs Odds-
sonar forsætisráðherra og Hall-
dórs Ásgrímssonar utanríkisráð-
herra. Þá mun hann fara til Akur-
eyrar, heimsækja þar fyrirtæki og
Háskólann á Akureyri. Á laugar-
dag mun ráðherrann eiga annan
fund með Ama M. Mathiesen þar
sem meðal annars verður farið yfir
störf vinnuhópsins. Ermakov held-
ur af landi brott á sunnudag.