Morgunblaðið - 20.08.1999, Síða 22
22 FÖSTUDÁGUR 20 ÁGÚST 1999
UR VERINU
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Byggðastofnun aðeins staðfest eina úthlutun á byggðakvóta
Búist við fleiri
tillögum næstu daga
STJÓRN Byggðastofnunar hefur
aðeins staðfest eina úthlutun
byggðakvóta en gera má ráð fyrir
að gengið verði frá úthlutuninni í
flestum byggðarlögum á næstu
dögum. Sveitarstjórnir á Hofsósi,
Breiðdalsvík og Borgarfirði eystri
hafa ákveðið skiptingu byggðarlag-
anna og bíða tillögur þeirra stað-
festingar Byggðastofnunar.
Sveitarstjórnum á viðkomandi
stöðum var falið að útdeila
byggðakvótanum milli einstakra
aðila. Nú þegar hefur bæjarstjórn
Isafjarðarbæjar ákveðið að allur
sá byggðakvóti sem féll í skaut
bæjarfélagsins renni óskiptur til
fiskvinnslufélagsins Fjölnis á
Þingeyri og hefur Byggðastofnun
staðfest þá úthlutun. Þá hefur
sveitarstjórn Skagafjarðar ákveðið
að þau 114 tonn sem féllu í hlut
Hofsóss verði afhent fiskvinnsl-
unni Höfða hf. en Byggðastofnun
hefur ekki staðfest þá úthlutun.
Árni Egilsson, framkvæmdastjóri
Höfða, segir að nú sé rætt við aðila
um að veiða kvótann fyrir vinnsl-
una. Eins hefur verið ákveðið að
útgerðarfélagið Njörður fái
byggðakvóta Breiðdalsvíkur en
fyrirtækið hefur gert löndunar-
samning við Útgerðarfélag Breið-
dælinga.
Sérstakur pottur fyrir nýliða
Hreppsnefnd Borgarfjarðar-
hrepps hefur sent Byggðastofnun
tillögur um skiptingu þeirra 112
tonna sem í hlut sveitarfélagsins
komu. Að sögn Magnúsar Þor-
steinssonar, oddvita, var kvótanum
var úthlutað á 7 heimabáta og féllu
11 tonn í hlut hvers, en afgangur-
inn, um þriðjungur, er sérstaklega
ætlaður nýliðum. „Reyndar var
þessum potti ráðstafað til tveggja
nýliða ef þeir uppfylla öll skilyrði.
Þar er um að ræða tvo unga menn
sem lengi hafa haft fullan hug á að
byrja í útgerð en hingað til hafa
þeir ekki séð neina möguleika á
því. Hugsanlega gefur þessi kvóti,
þó lítill sé, þeim örlitla viðspyrnu
svo þeir komist af stað,“ segir
Magnús.
Magnús segir talsverðan tíma
hafa tekið að komast að þessari
niðurstöðu, enda tilefnið óvenjulegt
auk þess sum sumir hreppsnefnd-
armenn hafi verið vanhæfir og
varamenn þurft að koma í þeirra
stað. Einnig hefur þurft að kalla til
varamenn í hreppsnefnd Skeggja-
staðahrepps til að skipta þeim 72
tonnum sem úthlutað var til
Bakkafjarðar. Þar hefur ekki verið
gengið endanlega frá tillögum um
skiptingu, en búast má við þeim á
næstu dögum. Þá sat bæjarstjórn
Seyðisfjarðar á fundi í gærkvöldi
þar sem rætt var um skiptingu
þeirra 67 tonna sem komu í hlut
bæjarfélagsins, en ekki lágu fyrir
tillögur um endanlega skiptinu
þegar síðast fréttist. Gert var ráð
fyrir að sveitarstjórn Búðahrepps
fundaði um málið í dag og þá yrði
gengið frá tillögum til Byggða-
stofnunar. Þá fengust þær upplýs-
ingar hjá hreppskrifstofu Kald-
rananeshrepps að þar væri enn
verið að móta reglur varðandi
skiptinguna en búast mætti við til-
lögum innan tíðar. Eins fengust
þau svör á bæjarskrifstofu Vestur-
byggðar að það lægju ekki fyrir
endanlegar tillögur. Sveitarstjórn
Stöðvarhrepps fundaði í gær um
skiptingu þeirra 94 tonna sem
sveitarfélaginu var úthlutað. Að
sögn Björgvins Vals Guðmunds-
sonar, oddvita, má búast við að
Snæfell hf. fá stærstan hluta kvót-
ans en einnig hafi aðrir aðilar sóst
eftir hluta af honum.
r Wfsienska sjávarútvegssýningin
í Smáranum í Kópavogi
ít. se/ttB/tifjer
Sérútgáfa 1. september
Sýningin kynnt í máli og myndum
og birt kort af sýningarsvæðinu.
Skilafrestur auglýsingapantana er til kl. 12
þriðjudaginn 24. ágúst.
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar
á auglýsingadeild í síma 569 1111.
IHnrpttUáMk
AUGLÝSINGADEILD
Sími 569 1111 • Bréfasími 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is
Reuters
Rándýr bjalla
ÞESSI 80 millimetra langa hjart-
arbjalla, sem kölluð er svarti
demanturinn, seldist fyrir met-
verð í skordýraverslun í Tókýó.
Kaupandinn greiddi alls tíu millj-
ónir jena, eða sem svarar tæp-
lega 6,5 milljónum íslenskra
króna, fyrir kvikindið, sem er
óvenju stórt af hjartarbjöllu að
vera.
Friðarumleitanir í Afganistan
Masood hafnar
boði Pakistana
Kabúl. Reuters.
STUÐNINGSMENN Ahmads
Shahs Masoods, eins helsta stjórnar-
andstæðings í Afganistan, sögðust í
gær hafa hafnað boði Pakistana um
að þeir tækju að sér hlutverk sátta-
semjara miili Masoods og Talebana,
sem fara með stjórn í landinu, í við-
ræðum um hvernig hægt sé að binda
enda á átökin í Afganistan.
„Við sögðum sendimönnum
Pakistans að stjórnin í Islamabad
væri ekki í neinni aðstöðu til að leika
hlutverk milligöngumanns í átökum
okkar og Talebana. Við sögðumst
telja að Pakistan væri alls ekki hlut-
laust í átökunum í Afganistan og
gæti þess vegna ekki leikið hlutverk
sáttasemjara," sagði Younis Qa-
nooni, einn helsti ráðgjafi Masoods, í
samtali við Reuters í gær.
Bardagar milli herja Talebana og
sveita Masoods hafa geisað á mörg-
um vígstöðvum undanfarnar vikur
og eru þeir verstu í meira en tíu
mánuði. Þeir hófust seint í júlí þegar
Talebanar hófu umfangsmiklar
hernaðaraðgerðir til að vinna
fullnaðarsigur á sveitum Masood,
sem er öflugastur þeirra stjómar-
andstæðinga sem halda uppi baráttu
gegn stjórnvöldum í Kabúl.
Stjórnarandstæðingar segja um
fimm þúsund pakistanska hermenn
hafa tekið þátt í bardögunum með
herjum Talebana en þessu neita
bæði Talebanar og stjórnvöld í
Pakistan. Pakistan er hins vegar
aðeins eitt af þremur ríkjum sem
viðurkenna stjórn Talebana í
Afganistan.
Hulunni svipt af leyndardómum
sovésks lífefnavopnaiðnaðar
Vísindamenn ótt-
ast banvæna sjúk-
dóma í Kasakstan
Alamaty. Reuters.
KASÁKSTAN ætlar að svipta hul-
unni af leyndardómum tilrauna Sov-
étmanna í lífefnavopnaiðnaði, en höf-
uðstöðvar þeirra voru á eynni
Vozrozhdeniye í Aralvatni, sem eftir
hrun Sovétríkjanna féll að hluta í
hendur Kasaka. Niðurstöður nýlegra
rannsókna sýna að fyrri vangaveltur
um að banvænir sjúkdómar gætu
borist með sýktum örverum á nag-
dýrum frá eynni til meginlandsins,
eru ekki úr lausu lofti gripnar.
Vozrozhdeniye er hrjóstrug,
óbyggð eyja er skiptist á milli Ús-
bekistans og Kasakstans eftir hrun
Sovétríkjanna. Á árunum 1960-1990
minnkaði mikið í Aralvatni sem varð
til þess að eyjan bætti við sig sem
svarar um tíföldu eigin landsvæði.
Stækkar hún stöðugt og leiða vís-
indamenn nú líkur að því að hún sam-
einist meginlandinu um 2010.
Dastan Yeleukenov, sem fór fyrir
sendinefnd nýlega sjálfstæðra ríkja á
alþjóðlegri ráðstefnu um skaðsemi til-
rauna í lífefnavopnaiðnaði sem haldin
var fyrir skömmu, sagði ærna ástæðu
til að óttast að banvænir sjúkdómar
bærust með örverum og nagdýrum til
meginlandsins samfara auknum vexti
eyjunnar. Grunur leikur á að Sovét-
menn hafi í trássi við alþjóðasamn-
inga um bann við tilraunum með líf-
efnavopn, er þeir samþykktu árið
1972, haldið þeim áfram í mörg ár.
Bandaríkjamenn bjóða aðstoð
Yeleukenov, sem er einnig höfund-
ur nýútkominnar bókar um hlutverk
Kasakstan í lífefnavopnaiðnaði Sov-
étmanna, segir tilraunir Sovétmanna
með sýktar örverur, sem innihalda
smitbera banvænna sjúkd.óma eins
og miltisbrands, hérasóttar, útbrota-
taugaveiki og bólusóttar svo einhver
dæmi séu nefnd, hafa verið gerðar á
eynni. Fóru tilraunirnar fram á dýr-
um, einkum öpum þar sem þeir kom-
ast næst því að sannreyna hugsanleg
viðbrögð mannslíkamans við ön'er-
unum.
Vísindamönnunum eru kunn fáein
tilfelli banvænnar bólusóttar í héruð-
um umhverfis Aralvatnið en að sögn
Yeleukenov er frekari rannsókna
þörf til sönnunar á því hvort smit-
berar hafi borist frá Vozrozhdeniye.
Yeleukenov hyggur nú á ferð til
Bandaríkjanna í þoði Pentagon til að
ræða hugsanlega fjárhagsaðstoð
Bandaríkjastjórnar til áframhald-
andi rannsókna.