Morgunblaðið - 20.08.1999, Side 36
36 FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
HESTAR
Enn við sama
heygarðshornið
Ég hélt satt að segja
að Páll Sigurðsson, pró-
fessor í lögfræði við Há-
skóla Islands, hefði
komist niður á jörðina
og náð andlegu jafn-
vægi vegna Hveravalla-
málsins. Til marks um
það hafði ég tvær ágæt-
ar greinar hans í Morg-
> unblaðinu, ritaðar fyrr á
þessu ári, þar sem mál-
efnalegur málflutningur
var áberandi. En svo
virðist alls ekki vera því
að Páll geysist fram á
ritvöllinn enn á ný í
Morgunblaðinu föstu-
daginn 13. ágúst sl. og
eins og fyrr eru þau notuð breiðu
spjótin og sem fyrr notar hann mál-
flutning sem notaður var þegar
sannfæra þurfti „pöpulinn" og því
endurtekin sama lygin þangað til
hún yrði álitin stóri sannleikur. Páll
byrjar á því að lýsa atlögu fyrir-
svarsmanna Svínavatnshrepps að
hinu hófsama, friðelskandi og sann-
leiksdýrkandi Ferðafélagi Islands.
Hann kallar það harkalega árás sem
í skjóli fámennis ráðist að fjöldasam-
tökum þeim sem hann er málsvari
fyrir.
„Ja, miklir menn erum við Magnús
minn“, að Svínvetningar undir for-
ystu Jóhanns Guðmundssonar, odd-
vita í Holti Svínadal, skuli leyfa sér
að kanna og vinna að atvinnuskap-
andi verkefnum í heimasveit sinni.
Eða hvað mundir þú gera, Páll, ef at-
vinnumöguleikar þínir yrðu skertir
um allt að 50% á 10 ára tímabili?
Mundir þú ekki líta í kring um þig?
Ég er sannfærður um það að Svín-
vetningar eru það miklir landvernd-
armenn að þeir myndu aldrei stíga
skrefínu lengra en skipulagsyfírvöld
myndu leyfa hverju sinni og ég er
sannfærður um að hugsanlegum
rekstri Svínavatnshrepps var aldrei
beint sérstaklega gegn hagsmunum
Ferðafélags íslands á Hveravöllum,
heldur þvert á móti. Ferðafélagi ís-
lands var tilkynnt um allar hug-
myndir Svínetninga fyrirfram og
ekkert undan dregið. Jafnframt, ef
ég man rétt, var spurt um skipulags-
og stöðuleyfí hins nýja skála Ferða-
félagsins, en ekki finn-
ast neinir pappíi-ar um
að borist hafi beiðni þar
um til sveitarstjórnar
eða bygginganefndar
Svínavatnshrepps og
því sjálfsagt að athuga
hvort færa ætti skálann
eða fjarlægja. Gamla
skálann þótti eðlilegt að
láta standa og var þar
byggt á hefð og starfi
Ferðafélags Islands
sem og leyfa er gefin
höfðu verið áður en til
skipulagsréttar hrepps-
ins kom. Slík var atlaga
Svínvetninga að Ferða-
félagi Islands.
Ég hef áður bent á það að í dag
ráði ef til vill önnur sjónarmið en
beinlínis hugsjónir og á ég þar við
peningasjónarmið. Ég hygg að
tekjur Ferðafélags Islands myndu
Hveravellir
Ég hygg, segir Arnar
-----------------------r-
Einarsson, að tekjur FI
myndu skerðast veru-
lega ef einokunarað-
staða þess yrði trufluð.
skerðast verulega ef einokunarað-
staða þess yrði rofin eða við henni
haggað á einhvern hátt. Mér leik-
ur forvitni á að vita hverjar niður-
stöður hafa orðið á rekstri beggja
skála Ferðafélags íslands á
Hveravöllum undanfarin ár og
skora á Pál Sigurðsson að birta
þær niðurstöður.
Við dómi Hæstaréttar Islands um
eignarrétt á afrétti á Auðkúluheiði
er ekkert að segja, jafnvel þótt hann
hafi ekki fallið Svínvetningum í vil.
Honum verður ekki hnekkt, nema
lög breytist. Hitt þykir mér verra að
lagaprófessorinn hrakyrðir sjálfan
löggjafann, Alþingi Islendinga, fyrir
að fallast ekki á sjónarmið Ferðafé-
lags Islands varðandi skipulagsmál
hálendisins. Það þykir mér sýna hið
rétta andlit hans sjálfs og þess mál-
flutnings sem hann telur sig hafa
fram að færa fyrir hönd Ferðafélags
íslands og verulegs fjölda annarra
íslendinga.
Þeir sem lásu grein Páls hljóta að
lesa á milli lína að hann heldur því
fram að Svínvetningar hafi ekkert
vit á umhverfismálum og vinni leynt
og ljóst að eyðileggingu á hálendinu í
skjóli „illa fengins eða a.m.k. illa
grundaðs skipulagsréttar", með öðr-
um orðum þarna séu á ferðinni
glæpamenn sem beri að stöðva með
öllum ráðum áður en grimmdarverk
þeirra sjái sér stað. Þetta finnst mér
stórt upp í sig tekið, Páll, og illa
sæma lagaprófessor við Háskóla ís-
lands.
Og ekki er hann hættur, hann lýs-
ir yfír hver framvinda mála muni
verða. Hinir fámennu Svínvetningar
muni herðast í sókn sinni og við
blind öfl sé að etja sem ekki verði
unnið á nema með samstilltu átaki
fjöldans. Þarna kemur „andlitið" enn
í ljós á „hófsaman og friðsamlegan
hátt“. Þarna sjáið þið úlfinn undir
sauðargærunni og hvílíkur ofsi leyn-
ist í málflutningi lagaprófessorsins.
Síðan reynir hann, í háðulegum tóni,
að gefa fyrirhuguðum framkvæmd-
um Svínvetninga nöfn eins og Svín-
vetningabúð, sem er í sjálfu sér mjög
gott nafn og „Stóra hryllingsbúðin" .
Þar sem hann enn sýnir andlitið, eða
ef til vill sinn innri mann, því svona
nafngiftir særa fólk og eiga ekkert
að gera í málefnalega umræðu.
Ég hef ekki trú á að Ferðafélag
íslands né aðrir umhverfisverndar-
sinnar afli sér samúðar með mál-
flutningi eins og Páll Sigurðsson
stundar. Það að hrakyrða þá sem
aðrar skoðanir kunna að hafa er ekki
til framdráttar.
Ég held að Ferðafélag íslands,
Svínvetningar og aðrir hagsmunaað-
ilar eigi að reyna meira til þess að ná
saman, þannig að friður og ein-
drægni megi ríkja og allir geti vel við
unað.
Það gerist ekki ef skoðanir Páls
Sigurðssonar verða hafðar að leiðar-
ljósi.
Höfundur er skólastjóri
íHúnavallaskóla Austur-
Húnavatnssýslu.
Arnar Einarsson
Morgunblaðið/Ásdís
Frá veðreiðum Fáks í fyrra. Veðreiðar hefjast á Sýn annan sunnudag
og verða alla sunnudaga út september.
Veðreiðar hefjast
um aðra helgi
BYRJAÐ verður að sjónvarpa veð-
reiðum Hestamannafélagsins Fáks
á Sýn sunnudaginn 29. ágúst næst-
komandi. Veðreiðamar verða síðan
á skjánum allar helgar í september.
Að sögn Þórðar Ólafssonar stjóm-
armanns í Fáki reyndust veðreið-
amar vinsælt sjónvarpsefni eftir til-
raunir sem gerðar vom í fyrra. Veð-
reiðamar verða með svipuðu sniði
að öðru leyti en því að nú hefur ver-
ið gengið til samstarfs við Islenska
getspá og verður hægt að veðja
bæði í gegnum síma og Netið.
Suðurlandsmótið á Gaddstaðaflötum
Funi frá Grænuhlíð og
Sigurður Matthíasson
efstir í B-flokki
FUNI frá Grænuhlíð og Sigurður
Matthíasson em efstir eftir for-
keppni í B-flokki gæðinga á Suður-
landsmótinu sem hófst á miðviku-
daginn á Gaddstaðaflötum. Mikil
þátttaka er á mótinu, en þar fer fram
íþróttakeppni, gæðingakeppni, kapp-
reiðar auk kynbótasýningar.
Keppni hófst í B-flokki gæðinga
og ungmennaflokki á miðvikudaginn
og á fimmtudaginn fór fram keppni í
A-flokki gæðinga og barna- og ung-
lingaflokki. I dag fer fram öll for-
keppni í íþróttagreinum. Á morgun,
laugardag, hefjast kappreiðar kl.
8:30 og yfirlitssýning kynbótahrossa
kl. 11. Að henni lokinni hefjast úrslit
í öllum flokkum gæðingakeppninnar.
Á sunnudaginn verða úrslit í öllum
íþróttagreinum.
Að sögn Moniku Pálsdóttur
mótsstjóra vora skráningar í
keppnisgreinar um 500. Auk þeirra
eru á þriðja hundrað kynbótahross
sýnd.
í B-flokki gæðinga em Funi frá
Grænuhlíð og Sigurður Matthíasson
efstir með einkunnina 8,54 og aðrir
inn í úrslit em Númi frá Miðsitju og
Sigurður Sigurðarson með 8,53,
Tumi Skjaldarvík og Baldvin Ari
Guðlaugsson með 8,50, Fönix frá
Tjarnarlandi og Þórður Þorgeirsson
með 8,43, Garpur frá Krossi og Sig-
urbjörn Bárðarson með 8,42, Kvistur
frá Stóra-Hofi og Kristjón Kristjáns-
son með 8,38, Skundi frá Krithóli og
Sigurður Sigurðarson með 8,37 og
Kormákur frá Kvíarhóli og Vignir
Siggeirsson með 8,37.
Hannes Hólmstein Gissurarson
Fyrirspurn til
Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur
ÞEIR Helgi Hjörvar og Árni
Þór Sigurðsson hafa nú báðir
neitað því opinberlega, að Jón
Olafsson í Skífunni hafi nokkum
tíma veitt R-listanum einhverja
^ fjárhagslega fyrirgreiðslu. Eg
' ‘ skil þá svo, að þeir eigi meðal
annars við það, að Jón hafi ekki
leyst til sín auglýsingaskuldir R-
listans hjá Islenska útvarpsfélag-
inu (Stöð tvö og Bylgjunni),
hvorki fyrir kosningarnar 1994
né 1998, svo að R-listinn skuldi
honum, en ekki Islenska útvarps-
félaginu, fyrir sjónvarpsauglýs-
ingar sínar. Með þessu leggja
þeir Helgi og Ámi Þór pólitíska
framtíð sína að veði, því að þeir
hljóta að sjálfsögðu tafarlaust að
hætta afskiptum af stjórnmálum,
reynist þeir segja ósatt um þetta
mikla mál. Þó getur verið, að þeir
viti ekki betur. Því spyr ég Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur borg-
arstjóra, sem hefur fulla vit-
neskju um allt þetta mál: Ert þú
reiðubúin til að leggja pólitíska
framtíð þína að veði með því að
neita því alfarið opinberlega, að
Jón Ólafsson í Skífunni hafi
nokkurn tíma veitt R-listanum
einhverja fjárhagslega fyrir-
greiðslu, þar á meðal þá að
greiða eða flytja á sitt nafn aug-
lýsingaskuldir R-listans á Stöð
tvö? Jafnframt spyr ég þig
þriggja annarra spurninga. Hef-
ur þú haldið samkvæmi í Höfða
fyrir Jón Ólafsson og erlenda
viðskiptavini hans? Er það rétt,
að eiginmaður þinn sé á fullum
launum hjá Jóni Ólafssyni? Og
gætið þið hjónin komist af með
79 þúsund króna mánaðartekjur
eins og Jón Ólafsson hefur sam-
kvæmt skattframtali hans? Fá-
ist Ingibjörg Sólrún ekki til að
svara þessum spurningum mín-
um hér í blaðinu, þá skora ég á
fjölmiðla að spyrja hana þeirra,
þótt ég búist raunar ekki við, að
þeir fjölmiðlar, sem Jón og sam-
starfsmenn hans ráða yfir, Dag-
ur, DV, Stöð tvö og Bylgjan,
geri það.
Höfundur er prófessor
í stjómmálafræði.
Með blaðinu
á morgun
Dagskrá Menningarnætur
Reykjavíkurborgar fylgir
Lesbók á morgun.
Taktu blaðið með í bæinn!
óðor
' 03 -
ysTin