Morgunblaðið - 20.08.1999, Síða 46
46 FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Hundalíf
lara þetta venj u/eqa,Á
leiðinlega, niðurskorna J
brauðl^.
Ju ífr'" TpP' T
w c ^ÍF i' MÆ 7
’ 1 °—mm\
T 1—1 , f \\
Smáfólk
Þú getur tekið niður grímuna..við
erum ekki að fara í sumarbúðir..
Mér þykir það leitt að þú gast ekki
stundað dýfingar..þú er mjög fær..
Ég datt einu sinni í laugina..
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Borgarstjóri hlustar
ekki á fólkið
Frá Alberti Jensen:
„LÁTUM gamminn geisa, ekki
vægir Þráinn." Svo mælti íslenski
höfðinginn Þráinn Sigfússon eftir
að hafa fórnað vináttu góðra
manna fyrir
varidræðamann.
Þessi undarlega
ákvörðun Þráins
var kannski ekki
svo ólík því sem
gerist með ýms-
um hætti enn í
dag.
Stundum er
eins og ráða-
menn viti ekki
hvað er og hvað
sýnist og haldi að sigur í kosningu
geri þeim allt leyfilegt. Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir varð fljótt áber-
andi í stjórnmálum og heillaði fólk
með skörugleik sínum og skilningi
á mismunandi kjörum þess. Nú er
orðin mikil breyting þar á, engu
líkara en hún hafi farið sálförum,
skilningurinn horfinn og hags-
munaklíkur áhrifameiri en borgar-
búar. Nýjasta dæmið er að hún
skuli láta sér til hugar koma að út-
hluta manni með skuggalega for-
tíð, eins og Hannes Hólmsteinn
Gissurarson (Mb. 28.7. 1999) segir
Jón Ólafsson vera, lóð undir leik-
tækjasali og bíó og það næstum of-
an í stærsta útivistarsvæði lands-
ins þar sem börn og unglingar
væru berskjaldaðir fyrir slæmum
áhrifum. Hannes telur að borgar-
stjóri sé að launa Jóni Ólafssyni
fjárstuðning við R-listann og það
að maður Ingibjargar Sólrúnar
vinnur hjá honum. Jón Ólafsson
keypti nýlega land í Arnarnesi til
að braska með og gerði um leið al-
menningi ómögulegt að kaupa þar
lóð. Háttvirtum forsætisráðherra,
Davíð Oddssyni, þótti ástæða til að
taka til athugunar kaup fárra á
stórum hlut í FBA. Einn af þeim
er Jón Ólafsson. Eiginlega virðist
hann vera alls staðar þar sem pen-
inga er von, en aldrei er minnst á
hvaðan honum kom höfuðstóllinn.
Jón gefur ekki mikið af sér í þjóð-
arbúið, hann kaupir fyrir mörg
hundruð milljónir og er með upp-
gefnar mánaðartekjur 70-80 þús-
und kr. eða um 20 þúsund kr.
meira en öryrkjar. Óþolandi er að
borgarstjóri komist upp með að út-
hluta Jóni tækifæri til að laða börn
og unglinga af útivistarsvæði og
hollu umhverfi inn í gerviveröld
hávaðamikilla leiktækja þar sem
neikvæðni ríkir. Fjölmiðlar hafa
mikil völd í gegnum áhrifamáttinn
og því er hættulegt að óvandaðir
geti keypt sig þar inn. Slíkir menn
geta stýrt áróðri og sett hömlur á
að blaða- og fréttamenn komi því
til skila sem þeir kjósa og lokað á
þau skrif sem þeim líkar ekki. Við
slíkar aðstæður gefst þeim er það
hugnast tækifæri til að hagræða
sannleikanum. Yfirborð blekkir
oft.
Á baklóð Hverfisgötu 105 hefur
þremur margra hæða blokkum
verið troðið niður og svo þétt að ef
kviknar í einni á eldur greiða leið í
glugga næstu, en í þær allar er
öldruðum pakkað. Engin nauðsyn
er að þrengja að Laugardalnum en
ef svo verður eiga aldraðir að
ganga fyrir með þær lóðir, þeir
eiga það skilið og hafa góð áhrif,
en þar á eftir væri það tónlistar-
hús. Mín skoðun er, að engu skuli
úthlutað í Laugardalnum, og hafa
framsýni Eysteins Jónssonar ráð-
herra í þeim málum að leiðarljósi.
Tökum menningarborgir Evrópu
til fyrirmyndar þar sem trúlega er
litið á óbyggð svæði innan þeirra
sem djásn eða varasjóði. Borgar-
stjóra væri hollt að líta sér nær og
nota mælskuna til annars en telja
fólki trú um að hún sé yfir það haf-
in að taka mark á tillögum þess og
kvörtunum. Það vantar land til að
byggja á og það mál er auðleyst ef
hún hlustaði ekki bara á þá sem
hafa hag af Reykjavíkurflugvelli
og skammsýni glepur. Hún hlustar
ekki á fólkið sem finnst klámbúllur
lýti sem niðurlægir manneskjur og
dregur eiturlyf inn í tilveru þess.
Hún hlustar ekki á fólkið sem vill
takmarka töku auðra svæða undir
hús en vægir fyrir frekum einstak-
lingum og fyrirtækjum. Hún hlust-
ar ekki á fatlaða fólkið sem er
þakklátt þeim er byggðu upp
ferðaþjónustu fyrir það en sem
hún nú virðist stefna í útboð með
þeim afleiðingum sem það hefði í
versnandi þjónustu. Fatlaðir vilja
ekki að hin frábæra ferðaþjónusta
þeirra verði gróðatæki einkaaðila
eins og t.d. Allra handa, eða líkra,
og er auðvelt að koma með rök fyr-
ir því. Eg mun síðar koma að fleiri
atriðum. Borgarstjóri sýnist vera í
óðaönn að ýta hinum mannlegu
þáttum út í horn.
ALBERTJENSEN,
Háaleitisbraut 129, Reykjavík.
Albert
Jensen
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Mikið úrvai af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavördustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
*
Ymis tilboð
í hverri viku.