Morgunblaðið - 20.08.1999, Page 47
MORGUNB LAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1999 4 7
FRETTIR
Börnin á leikjanámskeiði Neskirkju fóru m.a. niður að Tjörn.
Leikj anámskeið
í Neskirkju
EINS og undanfarin sumur hefur
Neskirkja boðið upp á leikjanám-
skeið fyrir börn á aldrinum 6-12
ára. Haidin hafa verið sjö nám-
skeið í sumar. Námskeiðin hafa
verið vel sótt og börnin ánægð
með íjölbreytta dagskrá sem felst
í leikjum, skoðunarferð um bæinn
og víðar, að því er fram kemur í
fr éttatilkynningu.
Á lokadegi hvers námskeiðs er
farið í ferð og grillað. Farið hefur
verið í kajakferðir við Stokkseyri,
á hestbak hjá Eldhestum í Ölfusi,
Sædýrasafnið í Höfnum var heim-
sótt og á einu námskeiðanna var
farið að Úlfljótsvatni.
I næstu viku verður síðasta
leikjanámskeið sumarsins og er
það ætlað börnum á aldrinum
6-10 ára. Hvert námskeið kostar
2.000 krónur. Innifalið í því er
nesti alla dagana, ferðir með rút-
um og strætó innanbæjar sem ut-
an og grillveisla á lokadegi. Enn
eru nokkur pláss laus og fer skrán-
ing fram í kirkjunni á morgnana
milli kl. 10 og 13 í síma 511 1560.
Stjórn Samtaka um betri byggð
Framkvæmdir
við flugvöll í óþökk
almennings
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá stjóm
Samtka um betri byggð:
„Stjórn Samtaka um betri byggð
harmar undirritun verksamnings
um byggingu nýs flugvallar í mið-
borg Reykjavíkur. Hún telur að
þessi framkvæmd sé í óþökk al-
mennings. Flugvöllur í hjarta höf-
uðborgarinnar getur aldrei orðið í
sátt við íbúana og um hana mun
alltaf standa styr. Stöðugar deilur
um tilvist hans eru til tjóns fyrir
alla aðila ekki síst flugið sjálft.
Flugvöllur á þessum stað fær ekki
staðist til lengdar, framtíðin mun
setja hann til hliðar. Pess vegna
þýðir fyrirhuguð nýbygging hans
nú mikla sóun fjármuna.
Stjóm samtakanna telur að borg-
ai’stjórn Reykjavíkur hafi gætt
hagsmuna borgarinnar slælega í
þessu máli og fengið flugmálayfir-
völdum og samgönguráðuneyti
óeðlilegt áhrifavald í skipulagsmál-
um höfuðborgarinnar. Einhliða til-
kynning samgönguráðhema um um-
ferðarmiðstöð í Óskjuhlíð í tengsl-
um við nýja flugstöðvarbyggingu án
nokkurs samráðs við borgarstjórn
eða borgarbúa styður þá skoðun.
Stjórn samtakanna skorai- á
borgaryfirvöld að halda fullu for-
ræði í skipulagsmálum höfuðborg-
Lokaátak söfnunar vegna
veggj atftluhússins
EINS og flestir vita var heimili fjöl-
skyldunnar að Langeyrarvegi 9 í
Hafnarfirði fjarlægt og brennt til
kaldra kola 6. mars sl. vegna út-
breiðslu og skemmda af völdum
veggjatítlu. Af sömu ástæðu varð
fjölskyldan að eyða húsgögnum,
bókum og fleiru úr innbúi sínu.
Þetta var gert að höfðu samráði við
Hafnarfj ar ðarbæ.
Fjölskyldan hefur því misst al-
eigu sína, hús og heimili, án þess að
fá rönd við reist og án þess að fá
tjónið bætt með tryggingum, segir í
fréttatilkynningu. I dag er fjöl-
skyldan á vergangi og á ekki ann-
arra kosta völ en að leggja út í
kostnaðarsamar framkvæmdir við
endurbyggingu hússins, sem metið
var á um 9 milljónir króna.
Landssöfnun þessi hefur staðið
frá því í apríl og er Sparisjóður
Hafnarfjarðar fjárgæsluaðili henn-
ar. Fram til þessa hafa um 965 þús-
und krónur borist söfnuninni frá
einstaklingum og félagasamtökum
en þar fyrir utan hefur fjölskyld-
unni verið veittur einnar milljón
króna styrkur frá Hafnarfjarðarbæ
og 3,4 milljónir króna frá Bjarg-
ráðasjóði. Samanlagðir styrkir eru
því um 5,4 milljónir króna og því
ljóst að enn vantar töluvert upp á að
endar nái saman.
Til viðbótar endurbyggingar-
kostnaði fjölskyldunnar, sem met-
inn er um 10,5 millj. króna, hvíla á
ónýta húsinu 3,5 milljóna króna
húsbréf sem fjölskyldan þarf að
flytja á nýja húsið og hefur það í för
með sér töluverða skerðingu á lán-
tökumöguleikum hennar.
Aðstandendur landssöfnunar til
styrktar fjölskyldunni hafa, með
velvilja og stuðningi fyrirtækja, lát-
ið útbúa sérstakan gíróseðil sem nú
hefur verið sendur til allra fyrir-
tækja í landinu með ósk um styrk til
að endurreisa heimili fjölskyldunn-
ar að Langeyrarvegi 9 í Hafnarfirði.
Sparisjóður Hafnarfjarðar er sem
fyrr fjárgæsluaðili söfnunarinnar og
er tekið við frjálsum framlögum á
söfnunarreikning 1101-26-12000.
arinnar og hefja nú þegar endur-
skoðun á aðalskipulagi Reykjavíkur
með það að leiðarljósi að breyta
sem fyrst landnotkun í Vatnsmýri.
Nauðsynlegt er að borgarstjóm
taki af skarið um það að flugvöllur-
inn verði farinn þaðan í síðasta lagi
árið 2016 svo glæst höfuðborg Is-
lands geti óhindrað þróast inn í
næstu öld.
Stjóm samtakanna skorar á rík-
isvaldið að falla frá áformum um
nýjan flugvöll en vinda þess í stað
bráðan bug að eðlilegu viðhaldi
flugbrauta til að tryggja flugöryggi
strax.
Stjórn Samtaka um betri byggð
skorar á yfirvöld sveitarfélaga og á
yfirvöld samgöngumála að hefja
strax leit að framtíðarlausn fyrir
innanlandsflug á höfuðborgarsvæð-
Fjölþjóðleg-
ur málsverð-
ur nýbúa
FÉLAG nýrra íslendinga heldur
fjölþjóða málsverð í Miðstöð nýbúa,
Skeljanesi, laugardaginn 21. ágúst
kl. 18 þar sem hver þátttakandi
kemur með sinn rétt sem dugar
handa nokkrum, og úr verður hið
glæsilegasta veisluborð.
Félag nýrra Islendinga sam-
anstendur af erlendu fólki og fjöl-
skyldum þeirra, uppmnnum frá
víðri veröld, sem búa á Islandi og
hittast af og til, segir í fréttatil-
kynningu.
GÓLFEFNABUÐIN
Mikið urval
fallegra flísa
Borgartún 33 • RVK
Laufásgata 9 • AK
VETRAR- 0G
SKÓLASKÓR
FRÁ
W5mkm:(\
Tegund 3389. Verð kr. 3.995.
Stærðir: 23-33.
Litir: Svart, brúnt. Loðfóður.
Tegund 3284.
Verð frá kr. 3.995.
Stærðir: 23-40. Litur: Svart.
Tegund 3235.
Verð frá kr. 4.995.
Stærðir: 31-40.
Litir: Grátt, brúnt.
Gambrellafóður.
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
DOMUS MEDICA
við Snorrabrout - Reykjovík
Sími 551 8519
KRINGLAN
Kringlunni 8-12 - Reykjovík
Sími 568 9212
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
Líttu vel út. Keyrðu öruggasta
bílinn í sínum flokki.
Renault Mégane fékk bestu einkunn allra bíla í sínum flokki í Euro NCAP
árekstrarprófinu. Renault Mégane fékk einnig öryggisverðlaun tímaritsins
Wliat Car 1999.
f Mégane er engin málamiðlun milli öryggis og útlits. Áherslan er lögð
á tækninýjungar sem samræma öryggi, aksturseiginleika og fegurð.
Veldu öryggi. Reynsluaktu Renault Mégane.
Grjótháls 1
Sínti 575 1200
Söludeild 575 1220
RENAULT
I
IomIWM
J Be-L fe |
Hosttvus L \ GpötrvUs
VAEÍwVSeteOt] I
nQr Mégane
Classic