Morgunblaðið - 20.08.1999, Side 50

Morgunblaðið - 20.08.1999, Side 50
50 FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ 5 30 30 30 M&tsafa qÉi Ira 12-18 œlraniað tynkigu »»i*llrtg.maH11l HÁDEGISLEIKHÚS - kl. 12.00 Fös 20/8 örfá sæti laus Rm 26/8 nokkur sæti laus Fös 27/8 örfá sæti laus mið 1/9. fim 2/9. fös 3/9 SNYR AFTUR Fös 20/8 kl. 23.00 UPPSELT TILBOÐ TIL LEIKHUSGESTA! 20% afeláitur af mat fyrir leiktiúsgesti í Iðró. Bcnðapantanir í síma 562 9700. 6 S.O.S. Kabarett /' leikstjórn Sigga Sigurjónss. lau. 21/8 miðnætursýn. á menningar- nótt Fleykjavíkur örfá sæti laus fös. 27/8 kl. 20.30 örfá sæti laus föstudagurinn 3/9 kl. 20.30 laugardaginn 11/9 kl. 20.30 HATTUR OG FATTUR BYRJA AFTUR EFTIR SUMARFRÍ sunnudag 12. sept. kl. 14.00. Á þín tjölskylda eftir að sjá Hatt og Fatt? Miðasala i s. 552 3000. Opið virka daga kl. 10—18 og fram að sýningu sýningardaga. Miðapantanir allan sólarhringinn. ijiif rmii ÍSLENSKA OPERAN illll .... iiiíi A Ósóttar pantanir seldar daglega Símapantanir í síma 551 1475 frá kl. 10 Miðasala opin frá kl. 13—19 alla daga nema sunnudaga Gamanleikrit í leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar Fös. 20/8 kl. 20.00. Uppselt Fös. 27/8 kl. 20.00. Lau. 28/8 kl. 20.00. Fim. 2/9 kl. 20.00. Lau. 4/9 kl. 20.00. Fös. 10/9 kl. 20.00. FÓLK í FRÉTTUM Tilfíimingaþrimgin þrif Hreingjörningur Austurstræti „ÉG HEF verið í mörg ár heima með börnunum mínum og veit að húsmóður- starfið er erfiðasta starf í heimi,“ segir Anna Rie- hardsdóttir, spunadansari og húsmóðir, sem ætlar að vera með dansspuna og hreingjörn- ing fyrir framan Pennann-Ey- mundsson í Austurstræti kl. 17 í dag og á morgun, Menning- amótt Reykjavíkur, kl. 21. „Mér finnst þrif mjög mikil- vægt hugtak í sjálfu sér. Það þarf að þrífa í kringum sig en einnig er hægt að þrífa innra með sér, taka til í vinskap og Anna lærði spunadans í Þýskalandi og hefur kennt hann hérlendis, í Kramhúsinu og nú á Akureyri. I spunadansi segir hún að dansarinn taki ákvarðanir í augnablikinu og ákveði um leið og hann dansar hvemig dansinn á að vera. „Oft er ég búin að setja mér ákveðinn ramma en aldrei nákvæmlega hvað ég ætla að gera. Ég spinn dansinn út frá tilfinningum mínum, tónlistinni, hlutunum sem ég er með, áhorfendunum og stemmning- unni og verð síðan að bera ábyrgð á þeim ákvörðunum sem ég tek en það er einmitt stór hluti af þessu öllu saman.“ Anna notar mismunandi tónlist við verk sitt, stundum er hún með lifandi tónlist en í dag mun hún nota klassíska tónlist og á laugardagskvöldið verður leikin nútímatónlist undir dansinum. Gamaldags skúringakona Hreingjörningurinn er aldrei eins og það er misjafnt hvað Anna þrífur og hvaða tæki hún notar til verksins. Hún mætir með fötu, vatn og klút og einhver áhöld, t.d. hefur hún tekið upp á því að mæta með strauborð og straujárn eða þrifið bílinn sinn. „Síðan túlka ég hvemig mér líður við þessi þrif. Það er kannski óhefð- bundni hlutinn við þetta. Því skúringakonan sjálf er sett fram sem frekar klisjukennd og pínulítið gamal- dags en innra með henni bærast alltaf ýmsar tilfinn- ingar er hún tekst á við líf sitt. Þannig að notkunin á áhöldunum verður á óhefð- bundnari nótunum." Þegar Anna hefur lokið hreingjörningnum sínum þýðir það ekki alltaf að hreint sé orðið í kringum hana. „Stundum er allt í óreiðu í kringum mig því húsmóðir þarf oft að gera tólf hluti í einu; vera með litla barnið á handleggnum, gefa „ öðru að borða, ganga Að dansa við þnfin heima 1 frá og hugsa um góifið sem hún ætti að vera búin að skúra. I gjörn- ingnum tekst ég á við það að vera ekki sú húsmóðir sem ég upp- lifði að ætlast var til af mér. Þannig að þetta kemur líka inn á jafn- réttismál. Það er stórt hlutverk að vera hús- móðir en það er van- metið.“ í heilt ár hefur stofu er sjálfsagt nokkuð sem margir gera annað slagið. Sunna Ósk Logadóttir hitti konu sem gengur skrefí lengra og dansar á götum úti við þrifin um leið og hún tjáir tilfinningar skúr- ingakonunnar. Anna Itichai’ds- dótlir lcknr lil hcndiiini livar sein luíii cr. hjónabandi og svo þurfa þjóðir að þrífa hver hjá annarri stundum. Þannig að fyrir mér er þetta stórt hugtak." Ábyrgð á eigin ákvörðunum Hugmyndin að hreingjörn- ingnum varð því til þegar Anna fór að takast á við húsmóðurhlut- verkið. „Mig langaði að vera starfandi listakona og sýnileg. Ég vildi ná til fólksins sem ekki fer á hefðbundnar listsýningar og sýna spunadans svo að fólk átti sig á hvað það er. Ég hef mikla þörf fyrir að tjá þessa skúr- ingakonu því ég hef verið í því hlut- verlá.“ Anna vikulega mætt í göngugötuna á Akureyri og þrif- ið og dansað en hún hefur einnig þrifið hjá öðrum þjóð- um. „Maður verður að skúra og þrífa þar sem maður er staddur og ég fór til Gautaborgar í nóvember síðast- liðnum og þreif þar. Svo hef ég einnig þrifið í Ósló og Eistlandi. Hún segir að það sé misjafn hvort áhorfend- ur taki þátt í hreingjörningnum á einhvem hátt eða horfi bara á. „Þetta er svolítið viðkvæmt mál. Ég þarf að finna hvar mörkin liggja og ég er ekkert að reyna að fá áhorfendur með mér. En stundum hefur fólk mætt mjög reglulega í göngugötuna og þá er ég farin að þekkja það og það þekkir mig og er tilbúið að þvo á mér bakið með tuskunni eða eitthvað svoleiðis," segir Anna og hlær létt. Reykvíkingar fá loks að kynnast hreingjömingi Önnu sem segir að lokum að vel geti verið að hún komi aftur að þrífa í Austurstrætinu seinna - ef einhver óhreinindi verða eftir. Robert Carlyle sem hinn alræmdi Begbie í Trainspotting. Carlyle skallar blaðamann í veislu KVIKMYNDASTJARNAN Ro- bert Carlyle réðst að tilefnis- lausu á blaðamanninn Rick Fulton í frumsýningarveislu á nýjustu kvikmynd Pierce Brosn- an, The Thomas Crown Affair, að sögpi blaðsins Daily Record. Leikarinn sem þekktastur er fyr- ir hlutverk sitt í myndunum Tra- inspotting og Full Monty er sagð- ur hafa skallað blaðamanninn og sett hnéð í lærið á honum og skil- ið hann eftir ringlaðan í angist sinni. Fulton fékk blóðnasir og skrámur á ennið en sakaði ekki að öðru leyti. Vinir Carlyle þurftu að draga hann frá blaða- manninum þar sem hann stóð og hélt skammarræðu yfir honum en eiginkona hans tók einnig þátt í árásinni. Hún sló blaðamanninn nokkrum sinnum í höfuðið og svaramaður leikarans Tommy Fl- anagan sem sjálfur er leikari sló einnig til Fultons og æpti á hann. Daginn eftir árásina sagði Fulton: „Carlyle reyndi að setja hnéð í nárann á mér en ég gat beygt mig þannig að það fór í innra lærið á mér og svo skallaði hann mig í nefið. Hann öskraði á mig og sló mig síðan í höfuðið. Ég hef aldrei hitt hann áður og er agndofa og hneykslaður á því að jafn þekktur maður og hann skyldi gera þetta og það á al- mannafæri." Carlyle var sérstak- ur gestur í veislunni því hann leikur ásamt Brosnan í nýjustu James Bond-myndinni „The World is Not Enough". Carlyle lék hinn óforskammaða fíkni- efnasala Begbie í Trainspotting og í Bond-myndinni er hann einnig í hlutverki vonda karlsins. Hann segist hins vegar ekki vera vondur í veruleikanum og neitar að hafa ráðist á blaðamanninn í veislunni. „Það er kjaftæði að ég hafi skallað einhvem í veislunni. Ég vil ekki ræða það sem getur verið að hafi gerst með Fulton en ég játa að ég gæti hafa ýtt aðeins við honum. Það getur líka verið að fætur okkar hafi snerst,“ við- urkenndi hann, en neitaði alfarið að eiginkonan og svaramaðurinn hefðu tekið nokkurn þátt í árásinni. Stutt Bardot æf út í Kínverja ► FRANSKA leikkonan Brigitte Bardot hefur hafið herferð gegn Kína fyrir það sem hún kallar „ógeðslega meðferð á dýrum“. Bardot skrifaði afar harðort bréf til forseta Kína, Jiang Zemin, þar sem hún segir að Kína gangi enn aftur fram af heimsbyggðinni með illri meðferð á dýmm og að í hugum fólks sé Kínverjar „fólk sem hefur enga samúð með dýr- um“. Bréfið var birt í franska tímaritinu VSD á miðvikudaginn og í því kemur fram að Bardot ásakar Kínveija um að misþyrma bjarndýmm og að þeir séu á góðri leið með að útrýma tígris- dýmm og nashyrningum til þess eins að búa til ástarlyf. Bardot, sem hefur undanfarna áratugi helgað líf sitt dýravernd, hefur iðulega vakið harkaleg viðbrögð fyrir harða stefnu sína. I fyrra var hún dæmd fyrir frönskum rétti fyrir að kynda undir kyn- þáttahatri eftir að hún úthúðaði múslimum fyrir aðferð þeirra við slátran sauðfjár. Grafhýsið vinsælt ► GRAFHÝSI kúbanska uppreisn- armannsins Ernesto Che Guevara er einn af vinsælustu stöðunum sem ferðamenn heimsækja í Kúbu. Þegar jarðneskar leifar Che Guevara fund- ust í Bólivíu fyrir tveimur árum voru þær fluttar til Santa Clara og graf- hýsið reist. Talsmenn grafhýsisins segja að ennþá sé meirihluti þeirra sem heimsækja grafhýsið Kúbverj- ar, en af þeim 420 þúsund manns sem heimsótt hafa grafhýsið eru 300 þúsund Kúbverjar en 120 þúsund er- lendir ferðamenn. „Gestirnir koma til að sýna virð- ingu sína og aðdáun á uppreisnar- manninum og fylgismönnum hans sem voru drepnir árið 1967 í Bólivíu við tilraun þeirra til að koma á bylt- ingu í Suður-Ameríku,“ segir Teresa Garcia forstöðumaður grafhýsisins. Fannst úti á engi ► NAUT frá Bandaríkjunum sem strauk í Montreal í Kanada stuttu áður en áætlað var að það tæki þátt í portúgölsku nautaati í borg- inni er komið í leitimar. „Nú þarf að athuga heilsufar nautsins eftir strokuferðina," sagði Suzanne Thomas talsmaður Montreal Feria nautaatsins sem haldið er á morg- un í Montreal. Nautaat er umdeild íþrótt í Kanada og kannski að nautið hafi fundið það á sér þegar það strauk af vettvangi síðasta sunnudag. Bandarískur landamæravörður fann nautið síð- astliðinn þriðjudag þar sem það var í mestu makindum að næra sig á engi nokkru rétt fyrir norðan Champlain í New York fylki. Ruglaðist á tegund ►NORSKA blaðið Verdens Gang birti á dögunum viðtal við 28 ára norskan mann sem segir höfrung nokkurn hafa sýnt sér óviður- kvæmilega athygli sem jaðri við nauðgunartilraun. Maðurinn, sem ekki vill láta nafn síns getið, segir að höfrungurinn hafi ruglast á hon- um og kvenhöfrungi eftir að þeir höfðu synt samhliða í sjónum undan ströndum Farsund í Suður-Noregi fyrr í þessum mánuði. Maðurinn segir að honum hafi brugðið illilega við og reyndi hann strax að synda af öllum krafti að bát sínum. Vinur mannsins, sem er kennari í köfun og varð vitni að at- burðinum, sagðist hafa lent í svip- uðum aðförum af hálfu höfrungsins, en hann hafi verið betur varinn því hann hefði verið í kafarabúningi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.