Morgunblaðið - 22.08.1999, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 22. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Millilandaflug
Flugleiða
Vona að
flugið kom-
ist í samt
horf í dag
ENN urðu tafir á áætlunarflugi
Flugleiða frá Keflavíkurflugvelli í
gær. Starfsfólk Flugleiða vonast til
að áætlunarflug komist í eðlilegt
horf í dag, en röskun á flugi félags-
ins stafar af bilun sem varð í tveim-
ur Boeing 757-vélum í vikunni. Að
sögn starfsmanna á Keflavíkurflug-
velli hafa farþegar tekið seinkuninni
misjafnlega. Sögðu þeir að Flugleið-
ir hefðu reynt að gera allt sem í
þeirra valdi stæði til að röskun á
ferðaáætlun farþega yrði eins lítil
og kostur væri.
--------------
Maraþon
í dag
RIGNINGARVEÐUR í Reykjavík
í gær dregur að líkindum nokkuð
úr þátttöku í Reykjavíkurmara-
þoninu, sem fram fer í dag miðað
við það sem gert var ráð fyrir.
Gunnar Jóhannsson, sem sá um
skráningu í hlaupið, sagði að búast
mætti við að þátttakendur yrðu
nokkuð færri en gert var ráð fyrir
vegna veðursins í gær, en þá blés
nokkuð og rigndi á borgarbúa.
Aðstandendur Réykjavíkur-
maraþons eiga þó von á líflegu
hlaupi og Gunnar bendir á að
hægt sé að skrá sig til keppni í
Lækjargötu skömmu fyrir hlaup í
dag. Ræst verður í línuskauta-
hlaup klukkan 9.50, lengri hlaupin
klukkan 10 og þau styttri klukkan
12.30.
FRETTIR
__ *
Sjávarútvegsráðherrar Rússlands og Islands
Samningur um tví-
hliða samstarf tilbúinn
TEXTI tvíhliða samnings Rúss-
lands og íslands um samstarf land-
anna á sviði sjávarútvegsmála ligg-
ur nú fyrir eftir viðræður sjávarút-
vegsráðherra landanna, Nikolajs A.
Ermakovs og Árna M. Mathiesen, í
Reykjavík síðustu daga. Ráðgert er
að undirrita samninginn þegar Árni
M. Mathiesen heimsækir starfs-
bróður sinn í Moskvu síðar á árinu.
Á fundi með fréttamönnum eftir
viðræðurnar í gær lýstu báðir ráð-
herrarnir ánægju með gagnlega
fundi. „Við fórum yfir ýmis mál sem
við eigum sameiginleg á sviði sjáv-
arútvegsmála og samstarf á sviði
sjávarútvegs. Aðalatriðið var frá-
gangur á tvíhliða samningi ríkjanna
um samstarf á sviði sjávarútvegs-
mála,“ sagði Árni M. Mathiesen.
Umræður ráðherranna snerust
að öðru leyti um þríhliða samning
Noregs, Rússlands og Islands um
veiðar í Barentshafi og bókun
Rússlands og Islands um veiðar Is-
lendinga í rússneskri landhelgi.
Einnig var rætt um samstarf og
samræmingu á afstöðu landanna
innan alþjóðlegra samstarfsstofn-
ana á sviði sjávarútvegs.
Nikolaj A. Ermakov kvaðst
ánægður með heimsókn sína til ís-
lands. Auk gagnlegra viðræðna við
Árna M. Mathiesen, þar sem sér
hefði m.a. verið kynnt fiskveiði-
stjórnunarkerfi íslendinga, hefði
verið fróðlegt að heimsækja fisk-
vinnslufyrirtæki og Háskólann á
Akureyri. Sagði ráðherrann mögu-
legt að kynna ýmislegt, sem hann
kynntist hér, heima fyrir. Rúss-
neski sjávarútvegsráðherrann
ræddi í fyrradag einnig við Davíð
Oddsson forsætisráðherra og Hall-
dór Ásgrímsson utanríkisráðherra.
Morgunblaðið/Sverrir
Nikolaj A. Ermakov og Árni M. Mathiesen luku undirbúningi vegna
undirritunar samnings um samstarf landanna á sviði sjávarútvegs-
mála sem fara á fram í Moskvu síðar á árinu.
Þorir Guðmundsson, upplýsingafulltrúi Rauða krossins, í Tyrklandi
Mikil sorg hér
„ÞAÐ er ákaflega mikil sorg hér og
menn hálfringlaðir," segir Þórir
Guðmundsson upplýsingafulltrúi
Rauða kross Islands. Þórir er nú
staddur í Tyrklandi á vegum Rauða
krossins.
„Fólk er mjög slegið en allir
menn sem maður hittir hér eiga
ættingja eða kunningja sem eiga
heima á þeim svæðum sem hörm-
ungarnar dundu yfir. Núna er ég
staddur í Yalova, bæ í grennd við
Istanbúl, þar sem var mikið af sum-
aríbúðum og heilu fjölskyldurnar
búa yfir sumartímann. I mörgum
tilfellum var fyrirvinna fjölskyld-
unnar ekki á staðnum, heldur stödd
í Istanbúl en fjölskyldan, amma, afi
og bömin, voru hér. Sorgin er mikil
því jarðskjálftinn fór mjög illa með
bæinn.“
Þórir kom til Tyrklands í gær og
hóf störf sín í Istanbúl. Þau felast í
því að meta hjálparþörf á hörmung-
arsvæðum og koma boðum áleiðis,
hvemig ástandið sé og hvað þurfi að
senda á staðinn.
í Istanbúl skoðaði Þórir hverfi
þar sem byggingar höfðu hmnið til
grunna. „Það var verið að reyna að
hlusta eftir fólki inni í byggingunum
og sprauta sótthreinsandi efnum yf-
ir götumar í kring og yfir þessar
byggingar. Það þýðir að menn ótt-
ast að enn séu mörg lík þama inni
og það þarf að sótthreinsa til að
koma í veg fyrir farsóttir."
Viðamikið
hjálparstarf
Þórir segir hjálparstarfið afar
viðamikið og mikinn velvilja í garð
þess alls staðar í heiminum. Einnig
sé einstaklega mikill velvilji gagn-
vart erlendum hjálparstarfsmönn-
um í Tyrklandi. „Ég get nefnt sem
dæmi að þegar ég var á leið til Ya-
lova þurfti ég að fara inn í lyfjabúð
og kaupa ýmislegt. Þegar maðurinn
sá merki Rauða krossins þá hristi
hann höfuðið og sagði að ég ætti
ekki að borga fyrir.“
Þórir segir almenning einnig
vera allan af vilja gerðan að hjálpa
til. „Óbreyttir borgarar eru alls
staðar á ferð á leið á staðina í bíl-
um fullum af hjálpargögnum,
vatni, mat og lyfjum. Þetta er
reyndar vandamál fyrir okkur því
þetta skapar heilmikla umferð og
öngþveiti sem torveldar skipulegt
hjálparstarf."
s Morgunblaðið/Ingólfur Guðmundsson
I guðsgrænni náttúrunni
ÞAÐ er erfitt að hugsa sér betra umhverfi fyrir hvolp að leik en Fantur uni sér vel þar sem hann teygir trýnið í átt að ljósmyndara á
guðsgræna náttúruna. Ekki er annað að sjá en labrador-hvolpurinn björtum sumardegi í grasi grónu umhverfí.
er góður skattur
► Fiskihagfræðiprófessorinn
Rögnvaldur Hannesson segir
tímabært að innheimta gjald fyrir
aðgang að fiskistofnunum. /10
Aftur til Eiríks rauða
► Reisulegur bær Eiríks rauða og
Þjóðhildarkirkja eru nú óðum að
komast i endanlegt horf í
Brattahlíð við Eiríksfjörð á
Grænlandi. /22
Með lífið í lúkunum
► í tímans rás hefur starfsaðstaða
ljósmæðra breyst. /24
Tölvutæknin eins
og matvaran
►Viðskiptaviðtalið er við Olgeir
Kristjónsson, forstjóra EJS. /30
► l-20
Vargur í véum
► Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
veittist sá sjaldgæfi heiður að
fylgja refaskyttum Biskups-
tungnamanna á greni. /1&2-4
Ýtur og ævintýri
► Beltavélar hafa gegnt
þýðingarmiklu hlutverki í
íslensku samfélagi, og verið
áhrifamiklar í ýmsum jarða- og
samgöngubótum. /6
Ástarjátning
úr marmara
►Einar Falur Ingólfsson
heimsótti Taj Mahal, frægustu
byggingu Indlands, grafhýsi löngu
látinnar drottningar. /10
Ég vildi bara dansa
► Hildur Óttarsdóttir steig sín
fyrstu bailettspor aðeins sjö ára
gömui og hefur dansinn dunað alla
tíð síðan. /12
^&FERÐALÖG
► l-4
ísiensk hótel ná ekki
fimm stjörnum
►Nýr gæðaflokkunarstaðall fyrir
gististaði. /1
Prag
► List og menning er þar á hverju
homi. /2
D
m0BlLAR
► l-4
Spáð mikilli aukningu
dísilbíla í Evrópu
► Markaður fyrir dísilknúna
fólksbíla tekur við sér á ný eftir
fjögurra ára stöðnun. /3
Reynsluakstur
►Trooper með góða vél en spar á
búnaðinn. /4
Eatvinna/
RAÐ/SMÁ
►l-16
Nýtt fyrirtæki á
fjarskiptasviði
► Byggist á TETRA-staðli. /1
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir l/SVWbak
Leiðari 32
Helgispjall 32
Reykjavikurbréf 32
Skoðun 34
Minningar 38
Myndasögur 48
Bréf til blaðsins 48
í dag 50
Brids
Stjömuspá
Skák
Hugvekja
Fólk í fréttum
Útv/sjónv. 52,62
Dagbók/veður 63
Mannlífsst. 14b
Dægurtónl. 18b
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6
ESSSS