Morgunblaðið - 22.08.1999, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 22. ÁGÚST 1999 39 ±
MINNINGAR
Við þökkum þér fyrir allar góðu
stundirnar sem þú gafst honum.
Fjölskyldu þinni og Auði sendum
við samúðarkveðjur okkar á þessari
erfiðu stundu.
Ásdís og Þórir.
Elsku Hanna mín.
Þú varst mér eiginlega sem önnur
móðir í vetur þegar mamma byrjaði í
skólanum. Þú varst svo dugleg að
leika við mig og við gátum verið heil-
lengi í bíló, kubbó eða bara að lesa
bækur. Stundum kom Auður með
þér og þá komst ég í feitt því að þá
fékk ég helmingi meiri athygli og
tvær voru að leika við mig. Mamma
reyndi að útskýra fyrir mér að þú
værir farin til Guðs en ég skildi ekki
af hverju þú þurftir að fara. Hún
sagði að það væri vegna þess að það
væri svo mikið af litlum bömum sem
þýrfti að passa þar. Mér fannst
óþarfi að þau fengju Hönnu mína en
spurði samt hvort hún gæti ekki
komið aftur þegar þau væru orðin
stór. Ég veit að þú fórst til Himna
eins og Múfasa, pabbi hans Simba,
sem var það dna sem hægt var að
tengja við. Ég sakna þín og mig
langar til að fá þig aftur, en mamma
segir að það sé ekki hægt. í vega-
nesti langar mig að lána þér uppá-
haldsbænina mína.
Láttu nú ljósið þitt
logaviðrúmiðmitt
hafðu þar sess og sæti
signaði Jesú mæti.
Takk fyrir allt.
Þinn
(Höf. ók.)
Axel Valur.
Nú í sumar hóf Hanna Björg Pét-
ursdóttir störf hjá okkur í Gufunes-
kirkjugarði. Hún birtist hæglát með
sitt glansandi rauða hár. Hún barst
ekki mikið á, en gaf af sér þokka og
hlýleika sem gott var að finna. Yfir
engu kvartaði hún og gekk hreint til
verks af fumlausri ákveðni. Hún vai-
ósérhlífin og reyndist afskaplega
góður og þægilegur starfskraftur.
011 eigum við eftir að sakna þess að
fá hana ekki til okkar aftur.
Við vottum fjölskyldu hennar og
vinum dýpstu samúð og biðjum al-
góðan guð að láta henni líða vel í
nýjum heimkynnum.
Samstarfsfólk í Gufunes-
kirkjugarði.
Nú, þegar daginn tekur að stytta
og sumarið er senn á enda berst
okkur sú harmafregn að Hanna
Björg Pétursdóttir sé látin.
Hanna Björg hóf nám við Kvenna-
skólann í Reykjavík haustið 1997.
Hún setti fljótlega sinn svip á bekk-
inn og ljóst var þar var á ferðinni
sjálfstæður og hæfileikaríkur nem-
andi sem hikaði ekki við að fara sínar
eigin leiðir í náminu ef því var að
skipta. Hún var afburða námsmaður
því auk þess að vera samviskusöm
og nákvæm í vinnubrögðum hafði
hún til að bera frjóan og skapandi
huga. Þessir hæfiieikar hennar nutu
sín til dæmis vel í allri ritun en þar
var hún í essinu sínu. Hún var feiki-
góður penni og hrein nautn að lesa
þann texta sem hún lét frá sér fara.
Þegar Hanna Björg hóf nám á
öðru ári í Kvennaskólanum kom í
ijós að hún hafði valið sér tungu-
málabraut. Hún var svo fjölhæf að
hún hefði sjálfsagt notið sín á hvaða
braut sem var en augljóst var að
hún var ánægð í þessum bekk.
Bekkjarandinn var mjög góður og
samskipti nemenda innbyrðis hlý og
innileg. Hennar verður sárt saknað
af samnemendum sínum og öllu
starfsfólki Kvennaskólans.
Erfitt er að koma orðum að þeirri
ólýsanlegu sorg sem ríkir í hjarta
okkar við fregnina um fráfall
Hönnu Bjargar en eftir lifir minn-
ing um einstaklega hæfileikaríka og
sérstaka stelpu.
Starfsfólk Kvennaskólans vottai'
foreldrum hennar og systrum
ásamt öðrum aðstandendum dýpstu
samúð.
Fyrir hönd Kvennaskólans í
Reykjavík,
Ingibjörg Guðmundsdóttir og
Sólveig Einarsdóttir.
Okkur langar til að kveðja bekkj-
arsystur okkar, Hönnu Björgu, með
örfáum orðum. Við eigum mjög
erfitt með að trúa því að Hanna
skuli vera farin og að hún eigi ekki
eftir að sitja með okkur í tímum
lengur. Okkur fannst Hanna alltaf
vera í góðu skapi og til í að taka þátt
í einhverju gríni með okkur og
manni leiddist ekki í félagsskap
hennar.
Við viljum þakka fyrir þann tíma
sem við fengum með henni, þótt
hann hafi verið alltof stuttur. Við
munum sakna hennar og bekkurinn
mun ekki verða samur.
Við viljum senda fjölskyldu henn-
ar okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur og vonum að Guð styrki ykkur í
sorginni.
Gyða, Lilja, Sólveig og Þóra.
Ég sit og hugsa um vinkonu mína
sem fór alltof fljótt í burtu frá okk-
ur. Hanna Björg var yndisleg stelpa
sem mér þótti mjög vænt um. Þegar
hún fæddist var eins og fyllt væri
upp í tóm hjá mér en mig hafði
alltaf langað að eignast lítið systkini
og þar sem Guðný, systir hennar og
ég, vorum óaðskiljanlegar vinkonur
má segja að Hanna Björg hafi kom-
ið í þess systkinis stað. Skömmu
fyrir fæðingu Hönnu var ég á leið-
inni í mína fyrstu utanlandsferð
með foreldrum mínum. Við Guðný
ræddum mikið um það hvort væri
nú meira spennandi að fara til út-
landa eða eignast systkini. Við
komumst að þeirri niðurstöðu að
auðvitað væri miklu meira spenn-
andi og skemmtilegra að eignast
systkini þar sem það mundi endast
en undanlandsferðinni mundi ljúka.
Sem betur fer grunaði okkur ekki
að ævi elsku Hönnu okkar endaði
svo fljótt.
Hanna Björg var sterkur sólar-
geisli inn í líf okkar á Eiðum. Hún
var svo ljúf og góð og brosið og
glettnin aldrei langt undan. Ein-
hverra hluta vegna tók hún miklu
ástfóstri við mig og það var því
mikili söknuður þegar fjölskyldan
flutti á Kjalarnes. Þá var ekki
hægt að skreppa í heimsókn en
alltaf voru fagnaðarfundir þegar
við hittumst hvort sem það var fyr-
ir austan eða á Kjalarnesinu. Eftir
að ég flutti suður hittumst við öðru
hvoru og oft fyrir jólin hitti ég þær
systurnar til að skiptast á jóla-
pökkum. Æskuárin höfðu tengt
okkur sterkum böndum og stund-
irnar dýrmætar og góðar þegar við
hittumst. Þegar ég lít til baka vildi
ég að þær stundir hefðu verið fleiri
en þannig er það alltaf þegar sorg-
in kveður dyra.
Eitt kvöld er mér mjög eftir-
minnilegt en þá fórum við Hanna
Björg í langa gönguferð niður í
fjöru, en þetta var eitt af þessum
fallegu kvöldum eins og þau gerast
best á Kjalarnesinu. Sjórinn spegil-
sléttur og allt svo kyrrt og hljótt.
Ég skil oft ekki hvað þessi heimur
getur verið erfiður. Ung, falleg og
hæfileikarík stúlka hverfur af sjón-
arsviðinu og við sem stöndum eftir
með þúsund spumingar fáum engin
svör.
Elsku Pétur, Guðrún, Guðný og
Kolla. Ég votta ykkur mína dýpstu
samúð í þessum erfiðleikum. Ég bið
Drottin Jesú Krist að gefa ykkur
styrk tii að halda lífinu áfram sem
breyttist svo snögglega við fráfall
ástkærrar dóttur og systur. Öllum
öðrum aðstandendum samhryggist
ég innilega.
Hildur Margrét Einarsdóttir.
Okkur langar til að minnast
Hönnu Bjargar Pétursdóttur.
Hanna og Auður kynntust síðast-
liðið haust þegar þær byrjuðu í
sama bekk á öðru ári í Kvennaskól-
anum. Vinátta þeirra varð strax ein-
stök. Þær voru öllum stundum sam-
an og Hanna varð fljótt eins og hluti
af fjölskyldu okkar. Yngri systkini
Auðar, þau Edda og Daníel, dýrk-
uðu Hönnu og þótti óskaplega vænt
um hana. Helgina áður en Ilanna dó
voru þær vinkonur að undirbúa sig
fyrir skólann, kaupa bækur o.þ.h.
Það verður erfitt fyrir Auði að
mæta í skólann í haust án Hönnu.
Erfitt að halda áfram án Hönnu.
Hanna var besta og nánasta vin-
kona Auðar. Auður hafði aldrei áður
eignast slíkan vin og við foreldram-
ir glöddumst innilega yfir þessari
vináttu. Missir Auðar er mikill.
Missir foreldra Hönnu og systra er
mikill. Við sendum fjölskyldu
Hönnu og öðmm ástvinum inniieg-
ustu samúðarkveðjur og biðjum
Guð að styrkja þau í sorginni. Minn-
ingin um Hönnu mun lifa með okk-
ur alla ævi.
Áslaug, Sighvatur, Edda
og Daníel.
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson,
útfararstjóri útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300
AUan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
Áralöng
Þegar andlát ber að höndum
Útfararstofan annast meginhluta allra útfara
á höfuðborgarsvæSinu. Þar starfa nú 15 manns
við útfararþjónustu og kistuframleiðslu.
Alúðteg þjónusta sem byggir á langri reynslu
Útfararstofa Kirkjugarðanna ehf.
Vesturhlíð 2-Fossvogi-Sími 551 1266
LEGSTEINAR
Komið og skoðið
í sýningarsal okkar eða
fáið sendan myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík
sími: 587 1960, fax: 587 1986
t
Ástkær maðurinn minn, sonur, faðir, tengda-
faðir og afi,
PÁLL KR. STEFÁNSSON
auglýsingastjóri,
Blómvangi 10,
Hafnarfirði,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 19. ágúst.
Útförin auglýst síðar.
Anna Guðnadóttir,
Hildur E. Pálsson,
Guðný Pálsdóttir, Kári Ingólfsson,
Stefán Pálsson
og barnabörn.
t
Hjartans móðir okkar og tengdamóðir,
MARÍA JÓNSDÓTTIR,
Norðurbrún 1,
áður til heimilis á Grettisgötu 28B,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 24. ágúst kl. 13.30.
Erla Ólafsdóttir,
Vilhjálmur Ólafsson,
Sigurður Jón Ólafsson, Ásta Lilja Kristjánsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn,
barnabarnabarnabörn
og tengdabörn.
t
Ástkær systir mín, mágkona og frænka,
HEDVIG ARNDÍS BLÖNDAL,
Leifsgötu 30,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánu-
daginn 23. ágúst kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
Heimahlynningu Krabbameinsfélags íslands.
Ingibjörg Blöndal Stenning, Alan Stenning,
Ragnheiður I. Blöndal,
Ágúst I. Sigurðsson, Sigrún Óskarsdóttir,
Kristín Blöndal, Pétur Björn Pétursson
og börn.
t
Ástkær frændi okkar,
GUÐMUNDUR MARGEIR GUÐMUNDSSON,
Miðtúni 50,
Reykjavik,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 25. ágúst kl. 15.00.
Guðmundur Elías Níelsson, Karólína Guðmundsdóttir,
Elsa Margrét Níelsdóttir, Jacob A. de Ridder,
Guðmundur Margeir Skúlason,
Skúli Lárus Skúlason, Sigrún Ólafsdóttir,
Ingi Þór Skúlason, Björk Gísladóttir.
t
Okkar ástkæri
EÐVARÐ SIGURGEIRSSON
Ijósmyndari,
Möðruvallastræti 4,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju þriðju-
daginn 24. ágúst kl. 13.30.
Marta Jónsdóttir,
Egill Eðvarðsson, Sigríður Guðlaugsdóttir,
Elsa Friðrika Eðvarðsdóttir, Bjarni Torfason,
Anna Dóra Harðardóttir, Hjörleifur Einarsson,
Kristin Huld Harðardóttir,
Jón Guðlaugsson, Hanna Stefánsdóttir
og barnabörn.