Morgunblaðið - 22.08.1999, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 22. ÁGÚST 1999 41
hjarta verður aldrei lýst. Ég tel það
mín forréttindi að hafa fengið að
eiga þig sem vin. Þú áttir engan
þinn líka.
Þú varst minn gleðigjafi á góðum
stundum sem slæmum. Þú varst
traustur og vinur vina þinna. Þú
gerðir lífið skemmtilegt og hvar
sem þú komst ljómaði lífsgleðin úr
augum þínum. Þú varst ljósið í
myrkrinu. Það breytir ekkert þeirri
staðreynd að þú ert farinn frá mér
og ég get ekki sagt þér með orðum
hversu sár söknuður minn er. Ég
lofa þér því, Raggi, að ég mun
drekka þína skál á afmælisdeginum
okkar um ókomin ár. Ég gleymi þér
aldrei.
Hvíl í friði, minn kæri vinur, og
megi guð blessa þig.
Saknaðarkveðja,
Angela Agnarsdóttir.
Jæja, elsku vinur, þá er komið að
kveðjustund. Á slíkri stund er svo
margs að minnast, að það verður
ekki skrifað í fáum orðum.
Ég man þegar þú komst hingað
íyrst árið 1995. Þá fannst mér þú svo
lítill og mér fannst eins og einhver
þyrfti að passa þig, en svo sá ég að
þess þurfti ekki þegar ég kynntist
þér.
Einu man ég sérstaklega eftir, og
ég get enn hlegið að því, og það er
þegar við krakkarnir vorum stödd
hjá ykkur strákunum í Nónási 6. Þú
varst svo sæll og ánægður með fjólu-
bláu peysuna hennar Rakelar, þú
tróðst þér í hana og komst svo inn í
stofu og dillaðir þér í henni vel og
lengi. Eg man líka hvað þú áttir gott
með að koma öðrum í gott skap og
það var alltaf svo stutt í hláturinn
hjá þér.
Margra fleiri góðra stunda er að
minnast og ótal fleiri smáatriði sem
ég geymi í minningu minni um þig.
Með þessum orðum kveð ég þig,
elsku vinur, og bið góðan guð að
styrkja foreldra þína og systkin.
Hafið er vettvangur orku og anda,
athafnasvæði og fyrirheit.
Auðlindin mikla, huga og handa,
Hrikalegt oft - eins og margur veit.
(Hjalti Friðgeirsson)
Þín vinkona
Hugrún Elva Þorgeirsdóttir,
Raufarhöfn.
Jæja, elsku vinur. Þá er komið að
því að kveðja í bili, en ég mun alltaf
minnast þín sem besta vinar míns.
Við gerðum mikið og margt
skemmtilegt saman.
En Boysen, vinur minn. Þá kveð
ég þig nú, en við munum hittast á ný.
Þinn ástkæri vinur
Björn R., Raufarhöfn
Elsku vinur. Nú kallið er komið, af
hverju þú?
Þetta er spurning sem enginn get-
ur svarað, hvorki ég né þú. Þú varst
mér alltaf svo góður vinur. Manstu
þegar við sátum saman og hlustuð-
um á Frelsið sem var þitt uppáhalds-
lag, þá varstu alltaf tilbúinn að
hlusta á vinkonu ef eitthvað bjátaði
á. Þú varst trúr, elskaðir lífið, vinn-
una, en fyrst og fremst voru vinirnir
þér kærastir.
Elsku foreldrar, systkini og aðrir
aðstandendur, ég votta ykkur mína
dýpstu samúð. Megi guð styrkja
ykkur á erfiðri stund. Eg kveð þig,
kæri vinur, með þessum línum.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Kveðja,
Þín
Eva Guðrún.
Elsku Raggi. Að skrifa minningar-
grein um þig er eitthvað sem mig
óraði ekki fyrir að ég ætti eftir að
gera. Það er svo margt sem mig
langar að segja og þakka þér fyrir,
en ég veit ekki hvar á að byrja. Ég á
svo margar minningar um þig og
þær verða mér dýrmætar í framtíð-
inni.
Við áttum margar góðar stundir
saman sem aldrei gleymast. Þú varst
alltaf þú sjálfur, svo eðlilegm- og gott
að eiga þig að.
Margt hefur gerst á þessum árum
sem ég er búin að þekkja þig og það
er ekkert eitt sem uppúr stendur, þú
varst svo mikill grallari og þú komst
mér alltaf til að brosa, enda var oft
margt brallað, þá sérstaklega þegar
þú bjóst úti á verbúð.
Þú átt alltaf þinn stað í hjarta
mínu og verð ég ævinlega þakklát
fyrir að hafa fengið að kynnast þér
og eyða þessum tíma með þér. Ég
mun sakna þín sárt.
Megi guð styrkja foreldra þína,
systkin og aðra aðstandendur á þess-
ari erfiðu stund. Þá kveð ég þig að
sinni, elsku vinur minn.
Þín vinkona
Sara Jenkins.
Ragnar Már vinur minn, nú ertu
horfinn á braut og óbætanlegt skarð
stendur eftir í hjarta mínu.
Við sem ætluðum að eiga svo
skemmtilegar stundir saman í
Grænuhlíð, en nú ertu farinn frá mér
og öllum vinum okkar, en þú verður
alltaf með mér í huganum.
Við áttum margar góðar stundir
saman í starfi og leik heima í Vogi,
Raufarhöfn og í Reykjavík. Síðasta
daginn sem við vorum saman í þessu
lífi baðst þú mig að geyma litla gripi
sem þú hafðir til skrauts í bflnum
þínum þar til við hittumst er þú
kæmir í land. En nú geymi ég þá
lengur en ætlað var til minningar um
þig-
Eftir að ég var búinn að keyra þig
upp á Akranes og kveðja þig datt
mér ekki í hug að það væri í síðasta
skipti sem við sæjumst.
Hvíl í friði, vinur.
Samúðarkveðjur til bróður þíns,
Árna, og alls þíns fólks.
Ingvaldur Jóhannsson.
Hví var þessi beður búinn
bamið kæra, þér svo skjótt?
Svar af himni heyrir trúin
hljóma gegnum dauðans nótt.
Það er kveðjan „kom til mín“
Kristur tók þig heim til sín.
Þú ert blessuð hans í höndum,
hólpin sál með ljóssins öndum.
(Bj.Halld.)
Við kveðjum Ragnar Má, vin okk-
ar, með sárum trega, sem hrifinn var
burt í blóma lífsins.
Ragnar kom til okkar um vor til að
vinna í vorverkum, sauðburði og
ýmsu öðru sem unnið er við í sveit-
inni. Ragnar var að taka við af Áma,
eldri bróður sínum, sem búinn var að
vera hjá okkur um tveggja ára tíma-
bil og hafði verið sem einn af fjöl-
skyldunni.
Þú varst ekki búinn að vera lengi
þegar þú varst búinn að vinna hug og
hjarta alls heimilisfólksins. Einstakur
dugnaðarmaður, hjálpsamur og vildir
hverjum manni greiða gera. Þótt þú
værir nú farinn til annarra starfa
komstu oft og dvaldir hjá okkur um
lengri eða skemmri tíma og varst eins
og einn af okkar fjölskyldu.
Nú segir enginn með gleði í róm
„Ragnar Már er kominn" og þú birt-
ist brosandi og fallegur.
Þannig lifir þú í minningu okkar
glaður og hjartahlýr.
Innilegar samúðarkveðjur sendum
við vini okkar, Ama bróður hans,
foreldrum og öðmm aðstandendum.
0, sólarfaðir signdu nú hvert auga
en sér í lagi þau sem tárin lauga.
Og sýndu miskunn öllu því sem andar
en einkum því sem böl og voði grandar.
(Matt. Joch.)
Jóhann og Þórunn, Vogi.
Skilafrestur
minning-
argreina
EIGI minningargrein að birtast
á útfarardegi (eða í sunnudags-
blaði ef útför er á mánudegi), er
skilafrestur sem hér segir: I
sunnudags- og þriðjudagsblað
þarf grein að berast fyrir hádegi
á föstudag. í miðvikudags-,
fimmtudags-, föstudags- og
laugardagsblað þarf greinin að
berast íýrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrii' birtingar-
dag. Berist grein eftir að skila-
frestur er útranninn eða eftir að
útfor hefur farið fram, er ekki
unnt að lofa ákveðnum birting-
ai-degi. Þar sem pláss er
takmarkað getur þurft að fresta
birtingu greina, enda þótt þær
berist innan hins tiltekna
skilafrests.
Legsteinar
í Lundi
v/Nýbýlaveg
SOLSTEINAK 564 3555
Slómabwðin
öa^ðskom
v/ T-ossvogski^kjwga^ð
Símij 554 0500
Blómastofa
Friðfinns
Suðurlandsbraut 10,
108 Reykjavík, sími 553 1099.
Opið öll kvöld
til kl. 22 - einnig um helgar.
Skreytingar fyrir öll tilefni.
Gjafavörur.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og jarðarfarar elsku-
legs föður okkar, tengdaföður og afa,
ÓLAFS ÞORSTEINSSONAR,
Snæfelli,
Reyðarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Fjórðungs-
sjúkrahússins á Neskaupstað fyrir góða
umönnun.
Jarþrúður Ólafsdóttir,
Gunnar Bjarni Ólafsson,
Sigríður Ólafsdóttir,
Jóna Valgerður Ólafsdóttir,
Þorsteinn Ólafsson,
Höskuldur Ólafsson,
barnabörn og
Guðlaugur Erlingsson,
Guðrún Margrét Kjerúlf,
Sigurbjörn Marinósson,
Sigfús Valur Sigfússon,
Liiian Jensen,
barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur ómetanlega vináttu, hlýhug og
samúð við andlát og útför elskulegs eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
HARALDS FREYS ÞORVALDSSONAR,
Víðimel 63.
Sérstakar þakkir sendum við Hjúkrunar-
þjónustunni Karítas, starfsfólki líknardeildar
Kópavogs og starfsfólki deildar A-3 á Sjúkrahúsi Reykjavíkur fyrir góða
umönnun.
*
Stefanía Baldursdóttir,
Baldur Úlfar Haraldsson, Edda Hrönn Gunnarsdóttir,
Þorvaldur Haraldsson, Guðrún Helga Jónsdóttir
og barnabörn.
<•
+
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
vináttu og hlýhug við andlát og útför
SKÚLA JÓNSSONAR
frá Þórormstungu
í Vatnsdal.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Ljósheima,
Selfossi, fyrir alúð og umhyggju.
Sigurjón Skúlason, Arnþrúður Kristín Ingvadóttir,
Bryndís Sigurjónsdóttir, Eðvarð Ingólfsson,
Skúli Heimir Sigurjónsson, Linda Ólafsdóttir,
Ingvi Arnar Sigurjónsson
og langafabörnin.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ást-
kæru
MARÍU SVEiNSDÓTTUR,
Víðigrund 8,
Sauðárkróki.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss
Sauðárkróks.
Guð blessi ykkur öll.
Þórarinn Sveinsson, Halldóra Pálsdóttir,
María Þórarinsdóttir, Þórarinn J. Þórarinsson,
Margrét Björk Andrésdóttir, Pétur Önundur Andrésson
og fjölskyldur.
+
Þökkum öllum þeim sem vottuðu virðingu,
sýndu samúð og hlýju við andlát og útför föður
okkar,
GÍSLA GUÐMUNDSSONAR
fyrrv. forstjóra vélsmiðjunnar Kletts hf.,
Hafnarfirði.
Ólöf Elínbjört, Hiidur, Ágústa,
Auður og Sigrún Gísladætur.
+
Þökkum samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar sonar míns og
föður okkar,
ARNALDAR VALDEMARSSONAR,
Skaftahlíð 10,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Reykjavíkur og allra þeirra
sem gerðu honum lífið léttara í veikindum hans.
V
Jóhanna Björnsdóttir,
Arnhildur, Óttar, Gauti og Daði.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför
JÓNS SVEINSSONAR,
Þverholti 30,
áður Skipholti 47.
Anna G. Helgadóttir,
Hulda Jónsdóttir,
Svavar Svavarsson.