Morgunblaðið - 26.08.1999, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1999 55^
Besti ungi sýnandi var Steinunn Þóra Sigurðardótt-
ir, sem sýndi tíbetskan spaniel-hund af mikilli færni.
Stóri púðlinn Ruffe tekur sprett ásamt Sóleyju
Höllu Möller, eiganda sínum. Ruffe er bæði íslensk-
ur og alþjóðlegur meistari og því frábær fulltrúi
sinnar tegundar.
skugga-Stakkur var í þriðja sæti.
Hann er sjö ára og íslenskur
meistari. Silkiterrier-hundurinn
Silfurskugga-Jasmine Amber er
einnig sjö ára og var valinn fjórði
besti öldungur sýningar.
Af ungum sýnendum þótti
Steinunn Þóra Sigurðardóttir bera
af, en hún sýndi tíbetska spaniel-
hundinn Bio Bios Rambo. 19 ung-
lingar voru skráðir til keppni og
sagði fínnski dómarinn Eeva
Anttinen afar erfitt að velja einn
sigurvegara, því þátttakendur
væru sérlega glæsilegir og færir á
sínu sviði.
„Af tólf verðlaunahundum er að-
eins einn innfluttur. Hinir eru allir
ræktaðir hér á landi og það sýnir
að við séum á réttri leið í hunda-
rækt,“ segir Emilía og heldur
áfram: „Hundarækt er hugsjón og
alvöru ræktendur einbeita sér að
einni eða tveimur tegundum. Þeir
hugsa vel um tík og hvolpa, gæta
þess að þau fái rétt fóður og séu í
eðlilegum samskiptum við mann-
fólk inni á heimilinu. Slíkt er mikil-
vægt veganesti fyrir hvolpa áður
en þeir fara út í lífið. Ábyrgir
ræktendur vanda val á nýjum eig-
endum hvolpanna til að tryggja
þeim gott atlæti og rétt uppeldi."
Emilía segir að talsverður fjöldi
eigenda blendingshunda sé í
Hundaræktarfélagi Islands, enda
sé það eina hagsmunafélag hund-
eigenda hér á landi. „Allir hund-
eigendur geta sótt fræðslu, upp-
lýsingar og námskeið hjá okkur,
hvort sem hundur þeirra er hrein-
ræktaður eða ekki.“ Spurð um
mun á hreinræktuðum hundum og
blendingum, segir Emilía að í
hundarækt sé fyrst og fremst leit-
ast við að viðhalda ákveðnum eig-
inleikum. „Blendingar geta verið
yndislegir, hraustir og greindir, en
því miður eru líka mörg dæmi um
afar slæma blendinga, til dæmis
þegar ólíkir eiginleikar hundateg-
unda skarast í sama hundinum.
Blendingar hafa margir náð mjög
góðum árangri í keppni í hlýðni og
hundafimi, en þeir geta ekki tekið
þátt í hundasýningum, þar sem
dæmt er út frá ákveðnum ræktun-
arstaðli hverrar tegundar."
Hún segir afar brýnt að þeir
sem fái sér hvolp vandi valið og
gæti þess að viðkomandi tegund
henti lífsstíl fjölskyldunnar. „Sé
ætlunin að kaupa hreinræktaðan
hvolp, mælum við með því að fólk
gefi sér tíma til að fá upplýsingar
um tegundir, ræktendur og fleira
hjá Hundaræktarfélaginu."
Besti öldungur sýningar var tæplega níu ára gamall írskur setter-
hundur, að nafni Eðal-Darri. Hann er íslenskur meistari og hefur
hlotið fjölda verðlauna gegnum tiðina.
Kínverskur crested-hundur var sýndur í fyrsta sinn á Islandi. Eðli
máls samkvæmt fer hann ekki úr hárum, enda er nakinn skrokkur
helsta einkenni hans.
þriðja sæti var sex mánaða gamall
enskur springer-spaniel hvolpur
að nafni Æsku-Kasper. Hinn níu
mánaða gamli Drauma-Vetur, sem
er af cavalier king charles spaniel-
kyni, var valinn fjórði besti hvolp-
ur sýningarinnar.
Besti öldungur sýningar var ís-
lenski meistarinn Eðal-Darri, tæp-
lega níu ára írskur setter-hundur,
sem hlotið hefur fjölmörg verðlaun
í gegnum tíðina. Annar íslenskur
meistari, springer spaniel-hundur-
inn Larbreck As Promised, sem er
sjö ára, var í öðru sæti og strý-
hærði langhundurinn Silfur-
jþíORNIÐ
Bubbi er mikill keppnismaður og gefst ekki upp fyrr en í fulla
hnefana. Til að verða ekki sleginn út af laginu, þegar á árbakkann
er komið, tekur hann enga sénsa. Hann notar veiðivörur sem
treystandi er á.
VEIÐIHORNIÐ
Veiðibúðin í bænurn
Hafnarstræti S • 101 Reykjavfk • Sími 551 6760 » Fax 561 4800
www.veidihornid.is • olafur@veidihornid.ís
Opið alla daga
EINN, TVEIROG ÞRlR 144.011