Morgunblaðið - 26.08.1999, Side 58
MORGUNBLAÐIÐ
¥ 58 FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1999
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Ertu á leið
A
til Alaborgar?
Frá Ágústi G. Valssyni:
FYRIR ári skrifaði ég grein í Morg-
unblaðið um félagslífið í Áiaborg og
vonandi hefur sú grein nýst þeim
sem voru á faraldsfæti til Danmerk-
ur. I framhaldi af þeirri grein fékk
ég og aðrir í Islendingafélaginu í
Alaborg, hringingar, bréf og tölvu-
póst frá íslendingum. Margar fleiri
spurningar brunnu á mörgum. Það
getur verið gagnlegt fyrir þá sem
hyggjast koma til Álaborgar til
náms eða starfa að ná upplýsingar
um starfsemi íslendingafélagsins
þar. I þessari stuttu grein verður
sagt frá starfseminni í grófum
dráttum.
Islendingum hefur fjölgað mikið í
Álaborg. Talið er að félagsmenn ís-
lendingafélagsins í Álaborg og ná-
grenni séu u.þ.b. 500 talsins. Börk-
ur Brynjarsson er formaður nýrrar
stjómar félagsins, en ný stjóm tók
við störfum á síðasta skólaári.
Innan félagsins blómstrar félags-
lífið. Karlarnir æfa saman körfu-
bolta einu sinni á viku og knatt-
spyrnu tvisvar til þrisvar sinnum á
viku. Á hverju ári er haldið fótbolta-
mót milli íslendingafélagana í Dan-
mörku og Svíþjóð, sem kallað er
„Klaka-mótið“, og var það haldið í
Álaborg í október síðastliðnum.
Mótið fór glæsilega fram eftir mikla
skipulagningu og vinnu margra fé-
lagsmanna. Vart þarf að taka fram
að A-lið félagsins í Álaborg sigraði
mótið með glæsibrag. Islendingafé-
lagið í Álaborg átti þrjú önnur lið á
mótinu. Nánari upplýsingar um ár-
angur þeirra á mótinu fást ekki - að
gefnu tilefni.
Yfir 120 íslendingar mættu á
„Klaka-mótið“ og gistu gestimir í
einum grunnskóla borgarinnar. Á
mótinu var margt til gamans gert,
bæði fyrir böm og fullorðna. Meðal
annars fengu bömin loftdýnu til að
leika sér á og auðvitað var boðið
upp á íslenskt sælgæti. Hinir eldri
kneyfuðu danskt „öl“ - í hófi þó
auðvitað! Endað var á glæsilegu
sjávarréttarhlaðborði og var það
mál manna að það sé nauðsynlegt
fyi-ir Islendinga sem búa í Skandin-
avíu, að hitta landa sína frá Fróni
reglulega, skemmta sér saman og
ræða um menn og málefni.
Næsta knattspyrnumót íslendinga-
félaganna verður í Kaupmannahöfn.
Eftir sigurvímuna frá „Klaka-
mótinu“ ákváðu flestir af knatt-
spymustrákunum að fara í
skemmtiferð saman til Þýskalands,
nánar tiltekið til Hamborgar. Sumir
horfðu á knattspyrnuleik, aðrir fóru
í tyrkneskt gufubað. Aðrir sáu sér
ekki fært að gera nokkum skapað-
an hlut vegna „þreytu" og hvíldu sig
á hóteli.
Hjá kvenkyns meðlimum íslend-
ingafélagsins í Álaborg er það fast-
ur liður að fara til Þýskalands í
verslunarferð. Yfirleitt fara þær að
heiman á laugardagsmorgni og
koma heim að kveldi með árangur
erfiðisins eftir heimsóknir í þýskar
verslanir. Þá fara þær stundum
saman í skemmtiferð til Svíþjóðar.
Kvenmennimir æfa saman blak
reglulega og vitað er um tilvist
nokkurra „ekta“ íslenskra sauma-
klúbba en undirritaður getur þó
ekki tjáð sig nánar um starfsemi
þeirra - enda ekki kvenmaður!
Haldin eru leikjanámskeið fyrir
bömin og auk íþróttaæfinga ýmiss
konar. Krakkarnir eru einnig dug-
legir að mæta í sunnudagaskóla og
sér íslenskur prestur um skólann.
Þorrablót eru haldin á hverju ári
og spila íslenskar hljómsveitir fyrir
dansi á „blótinu". Mai'gt annað er
gert hjá Islendingafélaginu og skal
stiklað á stóru. Á lýðveldisdaginn
17. júní er skrúðganga o.fl., jólaböll
era haldin, áramótaball ásamt ára-
mótabrennu, vor- og haustgrill,
spilakvöld, vísnakvöld, „velkomst-
ball“ sem er haldið á hverju hausti
fyrir nýflutta Islendinga. Þá er
starfandi kór í félaginu, og fara kór-
félagar stundum í söng- og skemmti-
ferðir til annarra borga og bæja.
Nánari upplýsingar um starfsemi
Islendingafélagsins í Álaborg og
starfsemi annarra Islendingafélaga
í Danmörku auk upplýsinga um
nám í Álaborg o.fl. er að finna á
heimasíðu Islendingafélagsins í Ála-
borg: http://members.xoom.com/-
difn/. Heimasíða kórsins er http://-
www.bigfoot.com/~alakor
ÁGÚST G. VALSSON,
rafvirki.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í uppiýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Smáfólk
- Þetta hljómar eins og brunabfl!.. Láttu hana fara um það bil tíu fet í
- Eitthvað hlýtur að vera að brenna... burtu..kastaðu þá hanskanum í hana..
- Það er áreiðanlega ekki kastarinn okkar
Vagnhöfða 17
■ 112 Reykjavík
3 Sími: 587 2222
m Fax: 587 2223
Gerið verðsamanburð
£_________Tnlvunðstur: sala@hellustevDa.is
-/elina
Fegurðin kemur innan frá
Laugavegi 4, sími 551 4473