Morgunblaðið - 26.08.1999, Síða 61
MORGUNB LAÐIÐ
í DAG
Árnað heilla
STJÖRIVUSPA
^/"kÁRA afmæli. í dag,
I V/fimmtudaginn 26.
ágúst, verður sjötug Júlía
Hannesdóttir, Hæðargarði
23a, Reykjavík. í tilefni
dagsins tekur hún og eigin-
maður hennar, Davíð
Höjgaard, á móti ættingjum
og vinum á morgun, föstu-
daginn 27. ágúst, á heimili
dóttur sinnar að Logafold
31, milli kl. 17-20.
BRIDS
IJnisjón Guðmundnr
Páll Arnarson
AUSTUR er gjafari og
opnar á einu Standard-
laufi, sem getur verið þrí-
litur. Hvað myndi lesand-
inn segja næst á spil suð-
urs? Það eru allir á hættu
Norður
A ÁG1053
¥ D98
♦ 854
* 108
Suður
* 94
¥ ÁG
♦ ÁDG93
*ÁG54
Einn tígul, eitt grand
eða dobl - allt kemur til
greina. Spilið er frá leik
Israela og Bandan'kja-
manna í fjórðungsúrslitum
HM ungmenna, og báðir
suðurspilararnir komu inn
á einu grandi. Norður yfir-
færði í spaða og gaf svo
áskorun í geim með tveim-
ur gröndum, sem suður
hækkaði í þrjú.
Á báðum borðum kom
út hjartasexa, fjórða
hæsta, og nú er það spurn-
ingin: Hvernig á að spila?
Shaham frá ísrael tók
fyrsta slaginn heima á
hjartagosa, spilaði spaða
upp á ás og svínaði svo í
tígli. En þar eð hann átti
ekki aðra innkomu í borð
varð hann að treysta á að
kóngurinn kæmi í ásinn
næst. En austur átti kóng-
inn þriðja, svo sagnhafí
fékk ekki nema fjóra slagi
á tígul og átta í allt:
Vcstur
♦ 86
* K10762
♦ 106
*9632
Norður
A ÁG1053
¥ D98
♦ 854
* 108
Austur
A KD72
¥543
♦ K72
+ KD7
Suður
♦ 94
¥ ÁG
♦ ÁDG93
*ÁG54
Bandaríkjamaðurinn
Wooldridge spilaði betur
þegar hann stakk upp
hjartadrottningu í fyrsta
slag. Þar með nældi hann
sér í aðra innkomu í blind-
an og gat þá svínað tvíveg-
is í tíglinum.
^/\ÁRA afmæli. í dag,
I Vffimmtudaginn 26.
ágúst, verður sjötugur Lár-
us Hallbjörnsson, vélfræð-
ingur. Hann og eiginkona
hans, Hrafnhildur Þórðars-
dóttir, verða að heiman á
afmælisdaginn.
Ljósmynd Sigríður Bachmann.
BRUÐKAUP. Gefin voru
saman 10. júlí sl. í Árbæjar-
kirkju af sr. Þór Haukssyni
Hrefna Björk Jónsdóttir og
Stefán Ágúst Magnússon.
Heimili þeirra er að
Vesturási 12, Reykjavík.
// l/c%mar>qarinnj þinn hefur fengíá S'er
rxýjan- búriín* þettcu ctri^.o
LEIÐTOG I LEIDDUR
Á HÖGGSTOKK
Oddur
(handi)
Halldórsson,
prastur,
skáld.
Prestur
í ofanverð-
um Borgar-
fírðl
(15.-16.
öld.)
Kotungar kirkjuna brutu,
kvalarar byssum skutu...
meiddu mennina marga,
mun þá fátt til bjarga.
111 eru áhlaup varga.
Þeir leiddu hann út um stræti,
kvaddi hann fólk með kæti.
Hélt á helgum krossi
herrann, prýddur hnossi,
fór með flýti og greiðslu
fagnandi sem til veizlu.
Biskup blessaði alla,
en bragnar á kné falla.
Leit eg hans líkann valla.
(Oddur handi um líflát Jóns Arasonar.)
SYSTRABRÚÐKAUP. Gefin voru saman 24. júlí í Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði af sr. Einari Eyjólfssyni Lovísa Wattnes
og Frin Lorenz og Lilja Wattnes og Kristján Helgi Harðar-
son. Brúðhjónin eru búsett í Lúxemborg.
HÖGNI HREKKVÍSI
cftir Franecs Drake
MEYJA
Afmælisbarn dagsins: Þú
ert ákveðinn og fylginn þér
en átt líka auðvelt með að
sjá broslegu hliðar
tilverunnar.
Hrútur -
(21. mars -19. apríl)
Það er ósköp þægilegt að
fara í gegnum sömu gömlu
rútínuna en óvæntir atburðir
og nýjar slóðir geta veitt
gleði og ánægju.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það vandamál sem þú ert nú
að velta fyir þér og þér sýn-
ist óleysanlegt með öllu er í
raun fjarska einfalt ef þú
bara gefur því tíma til þess a
rekja sig sjálft.
Tvíburar ^
(21. maí - 20. júní) nfK
Láttu allar meiriháttar
samningaviðræður bíða fram
á haustið og njóttu þess sem
eftir lifir sumars og sinntu
sjálfum þér og þínum nán-
ustu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Gömul gáta leysist skyndi-
lega og þá sérð þú hvað
lausnin er einföld og fjarri
því að vera eins flókin og þú
varst farinn að halda.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) m
Ekki á hlusta á þá sem segjí
að draumar þínir geti aldre
ræst. Haltu frekar þím
striki því trúin flytur fjöll.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) (Ðtt.
Mundu að það er ekki allt
gull sem glóir og að lífsham-
ingjan felst ekki bara í efnis-
legum gæðum þótt gagnleg
séu. Auðgaðu því anda þinn.
XXX
(23. sept. - 22. október) 4*
Þú verður fyrir vonbrigðum
með framlag annars manns
en láttu það ekki hafa of mik-
il áhrif því þú getur sjálfur
klárað þinn hluta verksins.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Mundu að fara vel með það
sem aðrir segja þér í trúnaði.
Varastu að vilja grípa inn í llf
annarra. Það er þeirra að
ráða sínum málum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) JttO
Það getur reynst erfitt að
snúa blaðinu við þegar deilur
um viðkvæm málefni hafa
farið úr böndunum. Gættu
þess vegna orða þinna.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) ðSf
Þótt þér finnist eitt og annað
kalla á krafta þína þá skaltu
varast að dreifa þeim um of.
Veldu þér ákveðin vekefni og
leystu þau síðan eitt af öðru.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar) CScl
Deildu þekkingu þinni með
öðrum því þú lærir heilmikið
á því að koma henni í þann
búning að auðvelt sé fyrir
aðra að skilja.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Græskulaust gaman er þér
að skapi og það er sjálfsagt
að lífga upp á tilveruna með
þeim hætti. Leyfðu öðrum að
pjóta lífsins með þér.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1999 61\
^ eiqe«dur athu9ið
BMW-goLfmótið verður haldið
föstudaginn 27. ágúst nk.
i Mótið verður haldið á Hlíðarvelli, Mosfellsbæ
(Golfklúbburinn Kjölur)
jVinsamlega tilkynnið skráningu
hjá skiptiborði B&L i síma 575 1200
Skólabyrjun í
/i
Flfspeysur
ÁðUP kP. 4.990
nú kp. 2.990
20% afsláttur af
buxum og peysum
Ótrúlegt úrval
Laugavegi 54, sími 552 5201
Biskupsvísitasía 1999
Austfjarðaprófastsdæmi
Biskup íslands, Karl Sigurbjörnsson, vísiterar
Austfjarðaprófastsdæmi 31. ágúst til 6. september 1999.
Guðsþjónustur verða í öllum kirkjum prófastsdæmisins.
Heimamenn sem og ferðamenn eru velkomnir til þessarra
athafna.
Guðsþjónustur verða sem hér segir:
Þriðjudagur 31. ágúst
17.30 Reyðarfjarðarkirkja: Guðsþjónusta
20.30 Eskifjarðarkirkja: Messa
Miðvikudagur 1. september
11.30 Sjúkrahús Norðfjarðar: Helgistund
13.00 Brekka, Mjóafirði: Guðsþjónusta
20.30 Norðfjarðarkirkja: Messa
Fimmtudagur 2. september
16.00 Fáskrúðsfjarðarkirkja: Messa
20.30 Stöðvarfjarðarkirkja: Guðsþjónusta
Föstudagur 2. september
20.30 Heydalir: Messa
Laugardagur 4. september
14.00 Beruneskirkja: Guðsþjónusta
17.00 Berufjarðarkirkja-. Guðsþjónusta
20.30 Hofskirkja: Guðsþjónusta
Sunnudagur 5. september
11.00 Djúpivogur: Messa
16.00 Papey: Guðsþjónusta
Embætti Biskups íslands
ÞÞ
&co
Þ.ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29 S: 553 8540 & 568 6100
ÞAKVIÐGERÐAREFNI
Á -ÞÖK - VEGGI - GÓLF
Rutland þéttir,
bætir og kætir
þegar þakið
fer að leka
Veldu
Rutland er einn
helsti framleiðandi
þakviðgerðarefna í
Bandaríkjunum
rétta efnið - veldu Rutland!