Morgunblaðið - 07.09.1999, Qupperneq 1
201. TBL. 87. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Vargöld ríkir í A-Tímor eftir úrslit atkvæðagreiðslu
Þrýst á um komu
friðargæsluliðs
ta, Genf, Lissabon, SÞ. AFP, AP, Reuters.
ERLEND ríki þrýstu í gær á stjórn-
völd í Indónesíu um að leyfa komu
alþjóðlegs gæsluliðs til að freista
þess að stilla til friðar í vargöld
þeirri er geisar í A-Tímor. Ofstækis-
fullir stuðningsmenn stjórnvalda í
Jakarta hafa gengið berserksgang í
höfuðborginni Dili og víðar eftir að
úrslit þjóðaratkvæðagreiðslu um
framtíð A-Tímor urðu ljós á laugar-
dag, með þeim afleiðingum að þús-
undir manna neyddust eða voru
neyddir til að flýja.
Alexander Downer, utanríkisráð-
herra Ástralíu, sagði í gærkvöldi að
Habibie, forseti Indónesíu, myndi
setja á herlög í Austur-Tímor vegna
ástandsins. Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
sagði í gærkvöldi að Habibie hefði
samþykkt að grípa til „frekari ráð-
stafana", og aðspurður svaraði hann
því að til greina kæmi að setja her-
lög.
Sérleg sendinefnd öiyggisráðs
Sameinuðu þjóðanna lagði af stað til
Indónesíu í gærkvöldi til að þrýsta á
stjórnvöld um að grípa í taumana.
Astralir hafa hersveitir í viðbragðs-
stöðu og Madeleine Albright, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, lýsti
því yfir í gær að annaðhvort stillti
Indónesíustjórn til friðar í A-Tímor
eða umheimurinn gripi til sinna ráða.
Erlendir fréttamenn sem eru í A-
Tímor og sjónarvottar að óhæfu-
verkum þeim er framin voru í Dili í
gær fullyrða að hersveitir indó-
nesíska hersins aðstoði ofstækis-
menn við að hrekja íbúa A-Tímor úr
landi. Jose Ramos Horta, friðarverð-
launahafi Nóbels og annar tveggja
helstu baráttumanna fyrir sjálfstæði
A-Tímor, sagði í viðtali við CNN í
gær að ofbeldisverkin í Dili væru
runnin undan rifjum afla innan hers-
ins er enn væru hliðholl Suharto for-
seta er sagði af sér á liðnu ári.
Fólk streymir frá A-Tímor
þúsundum saman
Þúsundir manna leituðu skjóls í
gær og sunnudag á lóðum skrifstofa
eriendra hjálparstofnana, SÞ og í
kirkjum og klaustrum. Var fólkið
flæmt frá stöðum þessum og stefnt
út úr landinu. Greindu talsmenn Al-
þjóðaráðs Rauða krossins frá því að
fólk streymdi þúsundum saman yfir
til Vestur-Tímor. I yfirlýsingu
Rauða krossins sagði að „svo virðist
sem lög og regla hafi verið algerlega
brotin niður“. Flest erlent starfsfólk
í A-Tímor hafi flúið landið.
Sameinuðu þjóðirnar voru í gær
undir miklum þrýstingi um að grípa
til aðgerða en öryggisráð SÞ virtist
vera klofið í afstöðu sinni um að
senda friðargæslusveitir inn í A-
Tímor. Vilja menn ekki senda gæslu-
lið án samþykkis Indónesíustjórnar
sem þverskallast hefur við að veita
það. Hafa þarlend stjórnvöld enn-
fremur verið sökuð um að tefja fyrir
því að senda aukaherlið til A-Tímor
og stilla til friðar.
Telja menn að Bandaríkin, Bretar
og Frakkar, þrjú af fimm fastaríkj-
um öryggisráðsins, séu reiðubúin til
að samþykkja för friðargæsluliðs til
A-Tímor en Kína, auk Bahreins og
Reuters
Austur-Tímorbúar flýja til Vestur-Tímor í gær.
Malasíu, séu hins vegar mótfallin
beinni íhlutun með umboði SÞ.
Heimildamenn AFP innan SÞ telja
að unnt væri að senda herlið til
landsins innan skamms, „í samvinnu
við sjálfboðaríki“ og Jorge Sampaio,
forseti Portúgals, sagði í gær að það
yrði ekki erfitt að setja _ saman
gæslulið hersveita frá Ástralíu,
Nýja-Sjálandi og Portúgal, með að-
stoð t.d. Breta og Frakka.
Mary Robinson, yfirmaður Mann-
réttindaskrifstofu SÞ, hvatti ríki
heims til að grípa til aðgerða svo
koma megi í veg fyrir ógnir og
fjöldamorð.
■ Vopnaðir/24
Tilræði við Hosni Mubarak Egyptalandsforseta
Arásarmaðurinn var
skotinn til bana
Reuters
Javier Solana, framkvæmdastjóri NATO, heilsar Kosovo-Albönum í
borginni Prizren í suðurhluta Kosovo í gær, en hann var í eins dags
heimsókn í héraðinu.
Rússar skutu á
Serba í
Pristina. Reuters.
RÚSSNESKIR friðargæsluliðar í
Kosovo skutu þrjá Serba til bana í
gær, eftir að Serbamir höfðu ráðist á
fimm óvopnaða Kosovo-Albana við
bæinn Ranilug í suðausturhluta hér-
aðsins.
í tilkynningu frá friðargæsluliði
Atlantshafsbandalagsins í Kosovo,
KFOR, segir að nokkrir Serbar hafi
gert árás á bíl Kosovo-Albana í dög-
un í gær. Serbarnir höfðu skotið einn
Albananna til bana og voru að berja
á tveimur særðum mönnum er frið-
argæsluliðarnir komu á vettvang og
reyndu að skakka leikinn. Hófu
Serbarnir þá skothríð að Rússunum,
sem svöruðu í sömu mynt. Þrír Serb-
ar lágu í valnum, en friðargæslulið-
ana sakaði ekki.
Kosovo
Spenna milli Serba og Kosovo-Al-
bana hefur farið vaxandi á þessu
svæði undanfama daga, og vom átta
manns myrtir þar um síðustu helgi.
Ranilug er á friðargæslusvæði
Rússa í Kosovo. Serbum hefur líkað
vera rússneska friðargæsluliðsins vel,
en Kosovo-Albanar hafa haft hom í
síðu þess, og talið hættu á að það
dragi taum Serba. Rússamir hafa þó
hlotið lof yfirmanna NATO fyrir fag-
mennsku og hlutleysi í störfum sín-
um, og lét Javier Solana, fram-
kvæmdastjóri NATO, ummæli falla á
þá leið í gær, er hann heimsótti
Kosovo-hérað. Sagði hann atvikið í
gærmorgun sýna að rússnesku frið-
argæsluliðarnir sinntu störfum sínum
á sama hátt og aðrir liðsmenn KFOR.
Kaíró, Port Said. AFP, AP, Reuters.
LÍFVERÐIR Hosni Mubaraks, for-
seta Egyptalands, skutu mann til
bana sem ógnaði forsetanum með
eggvopni í gær. Mubarak sakaði
ekki.
Forsetinn var á ferð í bifreið í
borginni Port Said við Súes-skurðinn
í Egyptalandi og veifaði mannfjölda
úr bílglugganum er maður kom að-
vífandi og ógnaði honum með egg-
vopni. Lífverðir Mubaraks skutu
manninn umsvifalaust til bana. I op-
inberri yfirlýsingu sem lesin var upp
í egypska sjónvarpinu sagði að Mu-
barak hefði hlotið „skrámu á hendi“,
en ekki sakað. Einn lífvarða forset-
ans hlaut einnig minniháttar áverka.
Árásarmaðurinn
fertugur götusali
Samkvæmt upplýsingum frá
egypska innanríkisráðuneytinu hét
árásannaðurinn El-Sayed Seliman
og var hann fertugur götusali. í yfir-
lýsingu ráðuneytisins segir að ekki
sé vitað til þess að Seliman hafi verið
í tengslum við neinn hóp hryðju-
verkamanna, en að hann væri
„þekktur fyrir fávíslegt athæfi".
Heimildamenn innan öryggislögregl-
unnar sögðu að hann hefði áður verið
handtekinn fyrir líkamsárásir og
þjófnað.
Haft var eftir ónafngreindum ná-
grönnum Selimans í gær að hann
hefði ávallt borið á sér hníf, og að
þeir teldu að hann hefði verið öfga-
fullur bókstafstrúarmaður.
Vitni að atburðinum sögðu að
Seliman hafi ekki haldið á vopni í
hendi, heldur rituðu bænaskjali, er
hann kom aðvífandi að forsetanum.
Egypska sjónvarpið sýhdi beint frá
for forsetans í Port Said, en mynda-
vélunum var beint frá bifreið hans að
mannfjöldanum rétt áður en atvikið
átti sér stað. Heyra mátti hleypt af
þremur skotum.
Er árásin var gerð var Mubarak á
leið til stjórnsýslubyggingarinnai- í
Port Said, þar sem hann átti að
halda ræðu. Var gert að sárum for-
setans, sem hélt svo áfram för sinni.
Sjónvarpað var beint frá ræðu Mu-
baraks, sem var rólegur og virtist
ekki brugðið.
Hefur áður
sloppið naumlega
Mubarak hefur verið við völd í
Egyptalandi í 18 ár, og gefur kost á
sér fjórða kjörtímabilið í röð í kosn-
ingum sem fram fara í næsta mán-
uði. Forveri hans, Anwar Sadat, var
ráðinn af dögum af múslímskum
öfgamönnum árið 1981, til að hefna
fyrir friðarsamninga sem hann
gerði við Israel árið 1979. Árásin á
Mubarak var gerð rúmum sólar-
hring eftir að hann var viðstaddur
undirritun friðarsamkomulags Isra-
ela og Palestínumanna í Sharm el-
Sheik í Egyptalandi, en hann hafði
átt þátt í að miðla málum milli þjóð-
anna tveggja.
Forsetinn hefur áður slogpið
naumlega frá banatilræðum. Árið
1994 voru foringjar úr egypska flug-
hernum dæmdir til dauða fyrir að
skipuleggja sprengjutilræði gegn
Mubai'ak, og ári síðar réðust
múslímskir öfgamenn að bifreið hans
með vélbyssuskothríð í Addis Ababa
í Eþíópíu, þar sem hann sótti ráð-
stefnu Einingarsamtaka Afríkuríkja.
Kartöflubyssa gerð upptæk
Ósló. Reuters.
LÖGREGLAN í Kristiansand í
Noregi hefur gert upptæka
heimagerða fallbyssu, sem getur
skotið kartöflum eða líkum hlut-
um allt að 50 metra, og sögð er
lífshættuleg.
Sex unglingar í Kristiansand
settu byssuna saman eftir leið-
beiningum sem þeir fundu á Net-
inu. Settu þeir kartöflur í plaströr,
sem tengt var við kveikibúnað á
gasgrilli. Þeir úðuðu svo eldfimu
gasi inn í rörið og settu lok fyrir
opna endann, og gátu þannig skot-
ið kartöflunum með því að þrýsta
á kveikihnappinn á gasgrillinu.
„Þetta heimagerða vopn er gíf-
urlega hættulegt, bæði fyrir þá
sem nota það og fyrir þá sem
skotið er á,“ sagði talsmaður lög-
reglunnar við dagblaðið Fædre-
landsvennen.