Morgunblaðið - 07.09.1999, Side 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Albanska
mafían hef-
ur störf í
Kosovo
Andstæðmgar sjálfstæðis A-Tímor og índónesiskir hermenn skipa fólki á brott
Vopnaðir ofstækismenn
ganga berserksgang í Dili
Ibúar jafnt sem starfsfólk
alþjóðasamtaka í hættu
Reuters
Barn grætur sáran eftir að hafa verið komið fyrir á lóð skrifstofu
Sameinuðu þjóðanna í Dili.
Dili, Jakarta, Darwin, Genf. Reuters, AP. AFP.
ALGERT stjórnleysi og ógnará-
stand ríkti í gær í Dili, höfuðborg
Austur-Tímor, er vopnaðir hópar,
andstæðinga sjálfstæðis héraðsins
frá Indónesíu, gengu berserksgang
í borginni með drápum og óhæfu-
verkum. Virtist allt benda til þess
að verið væri að koma sem flestum
stuðningsmönnum sjálfstæðis A-
Tímor, frá eyjunni og líktu sjónar-
vottar aðferðum ofstækismannanna
við „pólitískar hreinsanir“. Flestir
erlendir fréttmenn hafa horfið frá
A-Tímor en nokkrir þeirra er höfð-
ust við í Dili í gær greindu frá því að
hermenn Indónesíustjórnar virtust
hafa tekið höndum saman við of-
stækismenn og rekið fólk, undir
byssukjafti, í átt að flutningabílum
og skipum er flutti það úr landi.
Indónesíustjórn hafi jafnframt
þverskallast við að senda lið til A-
Tímor til að stemma stigu við of-
beldisverkum eða að leyfa komu al-
þjóðlegs gæsluliðs. Astand mála
hefur versnað mikið síðan tilkynnt
var um, á laugardag, að rétt tæp
80% íbúa A-Tímor hafi kosið sjálf-
stæði í kosningunum fyrir viku.
Sjónarvottar greindu frá því í
gær að indónesískir hermenn, sem
hafa það hlutverk með höndum að
halda uppi lögum og reglu, hafi
skotið úr vopnum sínum til að ógna
og reka burt blaðamenn og starfs-
menn SÞ. „Alla nóttina komu þeir,
indónesískir hermenn óku upp og
niður strætin, skutu úr byssum og
vörpuðu sprengjum og skipuðu öll-
um sem enn voru hér að hverfa á
brott,“ sagði Ný-Sjálendingur er
eyddi aðfaranótt mánudags í einu
hverfa Dili þar sem flestir íbúar eru
stuðningsmenn sjálfstæðis A-
Tímor.
Dili lýst sem draugaborg
Starfsmenn alþjóðastofnana og
hjálparsamtaka voru í gær fluttir
frá Dili og lýstu þeir borginni sem
„draugaborg“ þar sem glæpamenn
réðu lögum og lofum. Yfirmaður
indónesísku ríkislögreglunnar lýsti
ástandinu sem algerlega „stjórn-
lausu". David Wimhurst, taismaður
Sameinuðu þjóðanna í Dili, sagði að
verið væri að neyða íbúa A-Tímor
Pyntingar
bannaðar
Jerúsalcm. AFP.
HÆSTIRÉTTUR ísraels bannaði í
gær leyniþjónustu landsins, Shin
Beth, að beita aðferðum við yfir-
heyrslur á sakborningum sem mann-
réttindasamtök hafa sagt jaðra við
pyntingar. Var haft eftir Aharon
Barak, forseta hæstaréttar Israels,
að notkun „aðferða sem miðast að
því að beita fanga þrýstingi“ væri
ólögleg og að þessar aðferðir væri
hægt að skilgreina sem pyntingar.
Urskurðinum var fagnað mjög af
ýmsum mannréttindasamtökum sem
halda því fram að Shin Beth beiti oft
grimmúðlegum aðferðum við yfir-
heyrslur yfir palestínskum sakborn-
ingum, sem síðan eru jafnvel látnir
lausir án ákæru. M.a. væru fangar
hristir illþyrmilega, stundum þar til
þeir misstu meðvitund; þeir hengdir
upp á úlniðunum; bundnir við stóla
með poka yfir höfuðið og gert erfitt
fyrir með að festa svefn.
„Við eigum enn eftir að sjá hvort
leyniþjónustan mun raunverulega
hætta að beita þessum aðferðum við
yfirheyrslur," sagði Tomer Feffer,
talsmaður ísraelsku mannréttinda-
samtakanna Btselem.
til að yfirgefa landið og að þeir
væru fluttir til vesturhluta eyjar-
innar þar sem u.þ.b. 15.000 flótta-
menn hefðu þegar safnast saman á
undanfömum dögum af ótta við við-
brögð anstæðinga sjálfstæðis. Wim-
hurst sagði við fréttamenn í Dili í
gær að „ótilgreindur fjöldi manna“
hafi verið myrtur á götum úti.
„Þetta er alda mikilla ofbeldisverka
sem fram ganga, algerlega óáreitt
af stjómvöldum í Indónesíu, hvort
sem um lögreglu- eða hersveitir er
að ræða“. Þeir sem hafa komist
undan ofstækismönnum bera því
vitni að fólki sé safnað saman og á
það skotið eða ráðist með sveðjum.
Einn sjónarvottur greindi frá því að
hafa séð stað þar sem hundruðum
bambusprika hafi verið komið fyrir
og á hverju þeirra væri afhoggið
höfuð, að sögn Joao Carrasealao,
baráttumanns fyrir sjálfstæði A-
Tímor sem starfar í Ástralíu.
Ian Martin, yfirmaður skrifstofu
SÞ í A-Tímor, sagði að hann gæti
ekki útilokað algeran brottflutning
starfsfólks SÞ ef aðstæður yrðu
þannig að óvarlegt yrði að starfa
þar áfram. Þegar hafa um 200
starfsmenn SÞ verið fluttir frá A-
Tímor til Darwin í Astralíu. Eftir
eru aðeins um áttatíu starfsmenn
sem hafast við í þröngum vistarver-
um í Dili ásamt 1.500-2.000 manns
sem þangað hafa leitað skjóls.
Sögðu talsmenn SÞ í A-Tímor að
vandlega væri fylgst með ástandinu
og ef þörf þykir verði afgangur
starfsmanna fluttur úr landi.
Ráðist á heimili Belos biskups
Auk skrifstofu SÞ var ráðist á
skrifstofu Alþjóðaráðs Rauða kross-
ins og heimili Ximenes Belos, bisk-
ups og friðarverðlaunahafa Nóbels,
í Dili í gær. Þá var skotið að bílalest
Johns McCartys, sendiherra Ástral-
íu í Indónesíu, sem staddur var í
Dili í gær.
Belo biskup var fluttur í skynd-
ingu frá Dili til borgarinnar Bacau
og sagði við komuna; „Allir eru að
hverfa frá heimilum sínum vegna
þess að þeim er ógnað og hús þeirra
brennd". Ekki var vitað um afdrif
um 7.000 manna er safnast höfðu
ÞÝZKIR jafnaðarmenn töpuðu
stórt í kosningum sem fram fóru á
sunnudag til sambandslandsþing-
anna í Saarlandi og Brandenburg,
héruðum þar sem hefð er fyrir
mjög sterkri stöðu Jafnaðar-
mannaflokksins, SPD. Er þessi
niðurstaða áfall fyrir ríkisstjóm
Gerhards Schröders kanzlara, þar
sem kosningar helgarinnar voru
öðrum þræði álitnar vinsældakönn-
un ríkisstjórnarinnar.
I Saarlandi tókst Kristilegum
demókrötum (CDU) að ná hreinum
meirihluta þingsætanna af SPD. í
Brandenburg tapaði SPD 15 pró-
sentustigum en er eftir sem áður
stærsti flokkurinn og mun þurfa að
mynda samsteypustjórn.
í Saarlandi verða á nýkjörnu
þingi sambandslandsins aðeins
fulltrúar stóru flokkanna tveggja;
hvorki Græningjar né frjálsir
demókratar (FDP) náðu tilskildu
5% lágmarksfylgi. CDU fékk
saman á lóð biskupsins og leitað þar
skjóls. „Hermenn og ofstækismenn
hafa hertekið borgina og þar eru
flóttamenn úr báðum fylkingum
[stuðningsmanna og andstæðinga
sjálfstæðis],11 sagði Belo biskup við
BBC í gær.
Yfir 2000 manns höfðu leitað
skjóls á lóð skrifstofu starfsmanna
Alþjóðaráðs Rauða krossins er á þá
45,5% atkvæða og
SPD 44,4%, sem
er 5% minna en í
síðustu kosningum
og í fyrsta sinn í
14 ár sem flokkur-
inn nær ekki
hreinum meiri-
hluta þingsæta.
í Brandenburg,
þar sem SPD hef-
ur einnig - undir
forystu forsætis-
ráðherrans Manfreds Stolpe -
haft hreinan meirihluta frá því
héraðið var myndað á ný eftir
upplausn alþýðulýðveldisins árið
1990, verður mynduð samsteypu-
stjórn. Bæði CDU, sem fékk
26,6% atkvæða, og PDS, arftaki
austur-þýzka kommúnistaflokks-
ins sem fékk 23,3% fylgi, hafa boð-
izt til að hefja stjórnarmyndunar-
viðræður. Áuk þessara þriggja
flokka komst hægriöfgaflokkurinn
var ráðist og þeim smalað út á götur
af vopnuðum ofstækismönnum og
liðsmönnum Indónesíuhers. Vedran
Drakulic, talsmaður Ástralska
Rauða krossins, sagði að ellefu er-
lendum starfsmönnum Rauða
krossins hafi verið komið í skjól en
óvíst sé um afdrif heimamanna sem
störfuðu fyrir samtökin og þeirra er
leitað höfðu á náðir Rauða krossins.
DVU inn á þingið í Brandenburg,
með 5,3% atkvæða.
I báðum kosningum var kjör-
sókn minni að þessu sinni en þegar
kosið var síðast fyrir fjórum árum.
Hindrar samþykkt sparnaðar-
áforma stjórnarinnar
Forystumenn CDU lýstu því yfir
í gær, að flokkurinn myndi beita
breyttu valdajafnvægi í Sambands-
ráðinu, efri deild þýzka þingsins
Pristina. The Daily Telegraph.
ALBANSKA mafían, sem sumir
telja grimmustu skipulögðu
glæpasamtök Evrópu, hefur nú
teygt anga sína til Kosovo-héraðs
þar sem hún innheimtir eigin
skatta á vöruflutningabifreiðar,
gerir íbúðir og hús upptæk, stjórn-
ar eiturlyfjasölu og seilist í alþjóð-
legt hjálparfé.
Glæpamenn hafa verið fljótir að
nýta sér að landamæra Albaníu og
Kosovo-héraðs er tiltölulegá illa
gætt og hafa fyllt tómarúm það
sem Serbar skildu eftir og nýta sér
óspart aðstoð glæpamanna af al-
bönskum uppruna sem búa í hér-
aðinu.
Á meðan loftárásir Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) á Júgóslavíu
stóðu sem hæst hagnaðist mafían
verulega á erlendum hjálparstarfs-
mönnum, blaðamönnum og emb-
ættismönnum sem streymdu til
Balkanskaga er Kosovo-Albanar
flúðu heimahérað sitt. Og um leið
og vopnaðar sveitir Serba hurfu úr
héraðinu héldu albanskir glæpa-
menn innreið sína og aka nú um í
dýrum jeppum sem bera albönsk
skráningarnúmer.
Yfirtaka íbúðir brottfluttra
Talið er að mafían hagnist vel á
því að yfírtaka íbúðir og hús er áð-
ur höfðu verið í eigu Serba er nú
hafa flúið Kosovo og hefur íbúðar-
verð snarhækkað í kjölfarið. Góð
íbúð í miðborg Pristina kostar
andvirði 3,5 milljóna króna. Er
serbneskir íbúar héraðsins eru nú
á bak og burt hefur mafían hert
tök sín á Kosovo-Albönum og fjöl-
mennu erlendu starfsliði alþjóða-
stofnana.
I liðinni viku voru tveir starfs-
menn dönsku hjálparstofnunarinn-
ar Caritas, sem nýverið opnaði
skrifstofu í bænum Klina í Kosovo,
bundnir og keflaðir á meðan hettu-
klæddir þjófar, sem taldir eru hafa
verið albanskir, rændu háum fjár-
hæðum.
Albanska mafían er í örum vexti
og hefur fært starfsemi sína í vest-
urátt í ljósi bágrar efnahagsstöðu
Albaníu og Kosovo-héraðs. Hafa
ungir menn haldið til Sviss, Þýska-
lands og Italíu á fölsuðum vega-
bréfum og unnið fyrir „útibú mafí-
unnar“ sem sjá að mestu leyti um
ólöglegan innflutning fólks frá
Austur-Evrópu og eiturlyfjasmygl.
sem í eiga sæti fulltrúar stjórna
sambandslandanna 16, til að
þvinga fram breytingar á sparnað-
aráformum Schröder-stjórnarinn-
ar.
Peter Muller, sem taka mun við
sem forsætisráðherra í Saarlandi
af jafnaðarmanninum Reinhard
Klimmt, sagði að frá sjónarmiði
sambandslandanna væri að
óbreyttu ekki hægt að fallast á íyr-
irhugaðar sparnaðarráðstafanir.
Varaformaður CDU, Volker Ruhe,
sagði einnig að sparnaðurinn yrði
að vera „skynsamlegur".
Talsmenn vinstriarms SPD, en
til hans teljast bæði Klimmt og
Stolpe, hvöttu Schröder enn á ný
til að taka sínar breytingartillögur
við sparnaðaráformin til greina.
Schröder sagði úrslit helgarinn-
ar ekki breyta neinu um fastan
ásetning stjórnai'innar að hrinda
sparnaðaráformunum í fram-
kvæmd.
Jafnaðarmenn tapa stórt í kosningum til tveggja sambandslandsþinga
Afall fyrir stjórn Schröders
Peter Reinhard Manfred
Miiller Klimmt Stolpe