Morgunblaðið - 07.09.1999, Side 20

Morgunblaðið - 07.09.1999, Side 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Einar Bjarni Sigurðsson sjóðstjóri - VIÐSKIPTI Raunhækkun hlutabréfa Eimskips frá byrjun árs 1997 1 Gjaldeyris- forðinn minnk- aði í ágúst GJALDEYRISFORÐI Seðlabank- ans dróst saman um 1,8 milljarða króna í ágúst og nam í lok mánaðar- ins 31,6 milljörðum króna, en frá áramótum hafði forðinn styrkst um 1,8 milljarða króna. Seðlabankinn átti engin viðskipti á innlendum millibankamarkaði með gjaldeyri í ágúst. í frétt frá bankanum kemur fram Bandaríkin Störfum fjölgar Washington. Reuters. STÖRFUM í Bandaríkjunum fjölg- aði hægar í ágúst en áætlað var, að því er fram kemur í opinberri skýrslu, sem m.a. liggur til grund- vallar ákvörðunum bandaríska seðlabankans. Bandaríski seðla- bankinn hefur hækkað vexti tvisvar á tveimur mánuðum og atvinnustig í landinu er mikilvæg viðmiðun við slíkar ákvarðanir. Störfum fjölgaði um 124.000 síð- asta mánuðinn en bandarískir hag- fræðingar höfðu gert ráð fyrir fjölgun um 220.000. Atvinnuleysi í Bandaríkjunum var 4,2% í ágúst miðað við 4,3% í júlí og var sam- kvæmt áætlunum. að rýmun gjaldeyrisforðans í mán- uðinum skýrist af endurgreiðslu er- lends langtímaláns bankans. Erlend skammtímalán bankans jukust, en nokkru minna en sem nam endur- greiðslu langtímalánsins. í lok ágúst námu erlend langtímalán bankans 1,3 milljörðum króna og höfðu lækkað um 3,8 milljarða frá ársbyrjun. Erlend skammtímalán bankans námu 2,5 milljörðum króna og höfðu lækkað um 1,4 mhljarða króna frá ársbyrjun. Gengi íslensku krónunnar mælt með vísitölu geng- isskráningar hækkaði um 0,6% í mánuðinum. Heildareign Seðlabankans í mark- aðsskráðum verðbréfum nam 10,2 milljörðum króna í ágústlok miðað við markaðsverð og lækkaði um 1,4 milljarða króna í mánuðinum. Kröfur Seðlabankans á innláns- stofnanir hækkuðu um 2,6 milljarða í ágúst og námu þær 17,6 milljörð- um í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu einnig um 2,6 milljarða króna í mánuðin- um, einkum vegna endurhverfra viðskipta, og voru 7,9 milljarðar í lok hans. Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 4,98 milljarða króna í ágúst og voru þær neikvæðar um 6,9 millj- arða í lok mánaðarins. Grunnfé bankans dróst saman um 3 millj- arða króna í mánuðinum og nam það 23,8 milljörðum í lok hans. Stærsta bakarísvörufyrirtæki í Evrópu KAMPS bakarísfyrirtækið í Þýska- landi afréð í gær að kaupa keppi- nautinn Wendeln Brot und Backwaren fyrir tæpa 80 milljarða króna. Með því verður til stærsta bakarísvörufyrirtæki í Evrópu með ársveltu upp á rúma 117 milljarða króna. Kamps mun greiða fyrir kaupin með eigin hlutabréfum og breytanlegum skuldabréfum. Búist er við því að kaupin, sem þurfa að öðlast samþykki stjómvalda, muni ganga í gegn fyrir árslok. Kamps rekur fyrir 1.251 bakarís- verslanir í Þýskalandi og 718 til við- bótar í Hollandi, og sagt er að fyrir- tækið sé að leita að fyrirtækjum til að kaupa á Spáni og Italíu. Kamps er einnig stærsti framleiðandi Þýskalands á pakkaðri bakarísvöru, en framleiðendur þar í landi hafa þurft að sameinast til að lækka kostnað vegna þess að verð hefur lækkað til framleiðenda í kjölfar samruna stórmarkaða. Ársveltan rúmir 117 milljarðar Hærri en gengis- hækkun ein og saman SÍÐASTLIÐINN laugardag kom fram í Morgunblaðinu að gengi hlutabréfa í Eimskipafélagi Islands hefði hækkað um 8% árið 1998 og að engin hækkun hefði orðið á gengi bréfanna frá ársbyrjun til ársloka árið 1997. Einar Bjarni Sig- urðsson, sjóðsstjóri hjá Verðbréfa- markaði Islandsbanka, sagði að raunhækkun hlutabréfa í Eimskip hefði verið meiri, ef tilliti væri tekið til áhrifa af arðgreiðslum og útgáfu jöfnunarhlutabréfa. Hann bendir á að við útgáfu jöfn- unarhlutabréfa aukist eign hlut- hafans í félaginu að nafnverði sem nemur jöfnuninni. Yfirleitt ætti gengi hlutabréfa að lækka til sam- ræmis, en oft nái gengið sömu stöðu og það hafði fyrir aðalfund fé- lagsins þar sem jöfnunarhlutafénu var úthlutað. Því feli það í sér aukn- ingu á eign hluthafans, og getur það munað verulegu fyrir hann. Einar Bjarni segir að vissulega hafi gengi hlutabréfa í Eimskipafélagi Islands hækkað um 12,89% sam- kvæmt skráðu verði á Verðbréfa- þingi Islands á tímabilinu frá byrj- un árs 1997 til loka júlí á þessu ári. En ef arður og jöfnunarhlutabréf væru tekin inn í útreikningana kæmi í ljós að eign hluthafa hefði aukist um 79,87% á sama tíma. Hann sagði að í lok júlí hefði endurmetið gengi bréfa félagsins samkvæmt þessari aðferð verið 13,40 en ekki 8,41. í lok síðustu Morgunblaðið/Ásdís Góðar fréttir 27,8% Hlutabrefasjoðurinn hf Nafnavöxtun sl. 5 ar! Hefur þú áhuga? Komdu við í dag! Áhættudreifing á einum stað • Sjóðurinn fjárfestir í helstu fyrirtækjum landsins en einnig í skuldabréfum og erlendum hlutabréfum. • Sjóðurinn er á meðal þeirra fyrirtaekja á Islandi sem greitt hafa hluthöfum sínum hæst hlutfall tekna í arð og hefur skilað hæstu ávöxtun hlutabréfasjóða sl. 5 ár. • Fjöldi hluthafa er yfir 8.000. • Hlutabréfasjóðurinn hf. er fyrir þá sem vilja fjárfesta til langs tíma (innlendum og erlendum hlutabréfum til að fá góða ávöxtun og njóta skattafsláttar. Ávöxtun í fortíð er ekki vísbending um ávöxtun í framtíð. yfp VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKAI IR' | Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími 560 8900. Myndsendir: 560-8910.Veffang: www.vib.is viku hefði gengið verið 15,45 end- urmetið en ekki 9,72. Tekið skal fram að þetta á við um hluthafa sem átt hefur hlutabréfin frá upp- hafi árs 1997. Lítil viðskipti með Eimskipsbréf Sú mikla hækkun sem orðið hef- ur á bréfum Eimskipafélagsins frá byrjun ágúst til loka seinustu viku, þegar hlutabréf í félaginu hækkuðu um 15,7% en inni í þeirri hækkun eru engin áhrif arðgreiðslna og jöfnunarhlutabréfa, gekk lítillega til baka í gær þegar gengi lækkaði úr 9,72 í 9,67. Aðeins ein viðskipti urðu með hlutabréf Eimskips á Verðbréfaþingi Islands í gær að nafnverði 1,049 milljónir, og var markaðsvirðið um 10,14 milljónir króna. Flöggun á Verðbréfaþingi Hampiðjan selur hluta- bréf í ÚA FLÖGGUN var á Verðbréfaþingi íslands í gær þegar Hampiðjan hf. seldi hlutabréf í Útgerðarfélagi Akureyringa hf. að nafnvirði 11 milljónir króna, en markaðsvirði hlutabréfanna var tæpar 74 milljón- ir króna. Við þetta minnkaði eignar- hlutur Hampiðjunnar í ÚA úr 5,4% í 4,2%. Reikningshaldslegur sölu- hagnaður eftir reiknaðan tekjuskatt er um 30 milljónir króna af sölunni, að því er fram kemur í tilkynningu Hampiðjunnar til Verðbréfaþings Islands. Jón Guðmann Pétursson, fjár- málastjóri Hampiðjunnar, sagði í samtali við Morgunblaðið að fjár- munimir verði meðal annars nýttir hjá Hampiðjunni í markaðs- og þró- unarmálum og í vélafjárfestingum. „Hampiðjan á hlutafé í tveimur út- gerðarfélögum, Granda og ÚA, íyr- ir um einn mOJjarð að markaðsverði og er félagið að minnka eignarhluti sína í öðrum félögum,11 segir Jón Guðmann og bætir við að fyrr á ár- inu hafi þeir einnig selt hlutabréf sem og á seinasta ári. Hann segir að salan á hlutabréf- um í ÚA sé alls ótengd fjárfestingu Búnaðarbankans í ÚA.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.