Morgunblaðið - 07.09.1999, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 07.09.1999, Blaðsíða 16
Enn eykur íslandsflug þjónustu sína. Nú höfum við bætt við fjórðu ferðinni f síðdegisflugi til Akureyrar alla virka daga. Frá Revkiavík Frá Akurevri 07:40 11:40 15:40 18:40 08:45 12:45 16:45 19:45 Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 54.000 eintök á dag. Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru i Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru yfir 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrífstofa í Kaupvangsstræti 1. Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913. Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins. MORGUNBLAÐIÐ 16 ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1999 AKUREYRI Forsvarsmenn tjaldsvæða ánægðir með sumarið ÁRMANN Búason, bóndi á Myrkárbakka og oddviti Skriðu- hrepps, sagði að í skoðanakönnun samfara síðustu sveitarstjórna- kosningum um vilja íbúa til sam- einingar sveitarfélaga í Eyjafirði, hefði ekki einn einasti þeirra valið sameinigu allra sveitarfélaga í Eyjafirði sem fyrsta kost. Eins og fram kom í Morgunblaðinu á laug- ardag hefur Skriðuhreppur hafnað þátttöku í samstarfshópi um sam- einingu sveitarfélaga í Eyjafirði og vantar í eftirtalin hverfi: Gerðahverfi Eyrina HuldugilA/íkurgil Borgarsíða/Móasíða Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur í bæinn. Góður göngutúr sem borgar sig. ► I Morgunblaðið Kaupvangsstræti 1, Akureyri, sími 461 1600 FORSVARSMENN tjaldsvæðanna á Akureyri og í Húsabrekku og á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit eru nokkuð ánægðir með sumarið, enda gistinætur á svæðunum mun fleiri en í fyrra. Valur Hilmarsson, sem tekur tjaldsvæðið á Akureyri fyrir Skátafélagið Klakk, sagði að gesta- komur á tjaldsvæðið við Þórunnar- stræti hafi verið rúmlega 8.500. Um verslunarmannahelgina var skáta- félagið með opið tjaldsvæði í Kjarnaskógi og voru gestakomur á báða staðina samtals rúmlega 11.300 og heildarfjöldi gistinátta upp undir 30.000. Gistinætur í Húsabrekku austan Akureyrar voru á fimmta þúsund í sumar og sagði Haraldur Guð- mundsson rekstraraðili tjaldsvæð- isins að aukningin á milli ára væri 35-40%. Guðmundur Oddsson hót- elstjóri á Hótel Vin á Hrafnagili, sem einnig sér um rekstur tjald- svæðins, sagði að gistinætur þar hafi verið um 900, sem sé nokkur aukning á milli ára. Hann sagði jafnframt að nýting hótelsins hafi einnig verið mun betri í sumar en árið áður. Mjög líflegt í einn mánuð Haraldur sagðist nokkuð ánægð- ur með sumarið en þó hefði ferða- mannastraumurinn mátt fara fyrr af stað. „Það gerðist ekkert fyrr en 6. júlí, þá kom kraftur í þetta sem stóð fram yfir verslunarmanna- helgi. Þó var hér þokkalega líflegt í ágúst.“ Haraldur leigir út 6 sumar- hús og sagði hann að nýtingin á þeim hafi einnig verið góð á þessu sama tímabili. í síðustu viku voru enn nokkir útlendingar á ferðinni í Húsa- brekku en Islendingar eru að mestu hættir að sjást. Haraldur sagði að franskir og ítalskir ferða- langar sem voru í heimsókn hjá sér á bílum sínum, hafi tekið þann Blaðbera pól í hæðina að senda bíla sína af landi brott í gámum með fraktskipi en ætli sjálfir að fljúga til síns heima. Guðmundur sagði að ferðalangar hafi farið að sjást nokkuð snemma á HrafnagOi og þá strax í byrjun júní. „Hins vegar er að hér eins og annars staðar yfirfullt á tímabilinu frá miðjun júlí og fram í miðjan ágúst. Við erum því ánægðir með sumarið,“ sagði Guðmundur. Ferðamátinn breyst mikið Valur sagði að þótt sumarið í fyrra hafi verið lélegt, hafi rekstur- inn sloppið fyrir horn. Hann er hins vegar mjög ánægður með sumarið í ár og sagðist ekki heyra annað en að kollegar sínir á Norðurlandi hefðu sömu sögu að segja. „Það sem hefur gerst nú er að ferðamáti og þá sérstaklega meðal íslendinga hefur breyst gífurlega. Það ferðast nánast enginn Islend- ingur um landið nema með tjald- vagn eða fellihýsi, þannig að á stærstu dögunum erum við að fá færri einstaklinga á svæðið vegna plássleysis. A móti kemur að ferða- mannatímabilið hefur lengst, það byrjar fyrr á vorin og stendur Morgunblaðið/Kristján ERLENDIR ferðalangar eru enn á ferð um Norðurland og í síðustu viku voru ein 10 (jöld á tjaldsvæðinu á Akureyri. Þessir gestir frá Bandaríkjunum voru á hringferð um landið og ætluðu að halda austur á bóginn frá Akureyri. lengra fram á haustið. Og alveg fram undir þetta hefur verið ótrú- legur fjöldi á ferðinni,“ sagði Valur. Eina nóttina í síðustu viku voru ein 10 tjöld á tjaldsvæðinu og þar voru eingöngu erlendir ferðalangar á ferð. Nýtt tjaldsvæði á næsta ári Tjaldsvæðið við Þórunnarstræti minnkaði nokkuð á þessu ári, þar sem neðra svæðið heyrir nú undir sundlaugargarðinn. Þess í stað er verið að byggja nýtt tjaldsvæði á Hömrum, norðan Kjarnaskógs og sagði Valur að stefnt væri að því að taka einhvern hluta af því í notkun á næsta ári. Hann sagði þó nauð- synlegt að hafa tjaldsvæðið við Þór- unannarstræti áfram opið. „Við erum að tala um allt öðru- vísi uppbyggingu á Hamrasvæðinu, þar sem jafnframt verður umhverf- is- og útilífsmiðstöð í framtíðinni og boðið verður upp á ýmiss konar af- þreyingu og að gestir muni þá dvelja lengur. Við munum stíla frekar inn á að fá fjölskyldufólk þangað og stefnum að því að bjóða upp á einhvers konar námskeið," sagði Valur. Oddviti Skriðuhrepps um stóra sameiningu sveitarfélaga í Eyjafírði Armann sagði að úr því að þessi hugmynd um stóra sameiningu hefði komið upp á borðið væri ljóst að Arnarneshreppur tæki ekki þátt í viðræðum um sameiningu hrepp- anna fjögurra. Oddviti Arnarnes- hrepps hefði lýst yfir vilja til að skoða stóra sameiningu. „Það er ekki búið að taka ákvörðun um það hvort hinir hreppamir þrír halda áfram að skoða sameiningu. Við er- um því ekki tilbúnir að taka þátt í viðræðum um stærri sameiningu fyrr en það mál er afgreitt," sagði Armann. Hann sagðist þó persónulega alls ekki útiloka þann möguleika að Skriðuhreppur léti á síðari stigum kanna vilja íbúanna gagnvart sam- einingu hreppanna þriggja og eða stærri sameiningu. „Ég tel allt opið þótt við höfum ekki skipað menn í þessa nefnd um stóra sameiningu a þessum tímapunkti.“ Valið stendur um samstarf eða sameiningu Skriðuhreppur hefur óskað eftir því að ganga til samninga við Akureyrarbæ um ráðgjafarþjón- ustu, vegna grannskóla, barna- vemdarmála og félagsþjónustu. Ármann sagði að í ljósi afstöðunnar til hugmynda um stærri samein- ingu, mætti alveg tala um mótsögn í þeirri beiðni. „Við höfum starfað með þessum sveitarfélögum, Akur- eyrarbæ þar á meðal, í ýmsum málum og þar á meðal héraðsnefnd og höfum ekkert nema gott um það samstarf að segja. Það er líka alveg rétt að smærri sveitarfélög eiga erfitt með það ein og sér að upp- fylla ákvæði laga og reglugerða sem þeim er ætlað. Valið stendur um það hvort sveitarfélög vinna saman að þeim málaflokkum eða þá að um sameiningu verður að ræða. Við erum alls ekki andsnúin Akureyri sem er okkar kaupstaður og hefur alltaf verið.“ Ekki áhugi meðal íbúanna er vísað til áðumefndrar könnunar. Armann sagði að í könnuninni hefði verið boðið upp á fimm val- kosti og hefði góður meirihluti þeirra sem þátt tóku, eða um 60%, valið sameiningu fjögurra hreppa sem fyrsta kost, þ.e. Skriðuhrepps, Amameshrepps, Glæsibæjar- hrepps og Öxnadalshrepps. Þetta em sömu hreppar og reka Þela- merkurskóla saman. „Svar okkar byggist að góðum hluta á því að enginn sem þátt tók í könnuninni valdi þessa stóra sam- einingu í fyrsta sæti. Við eigum eft- ir að vinna úr þessum niðurstöðum og litum þannig á að það væri alls ekki rökrétt í Ijósi niðurstöðunnar að skipa menn í nefnd um þessa stóra sameiningu." ISLANDSFLUG gerír fíoirum fært aö fffúga www.islandsflug.is sfmi 570 8090 Fleiri ferðir til Akureyrar Mun fleiri gistinætur en árið áður í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.