Morgunblaðið - 07.09.1999, Síða 2

Morgunblaðið - 07.09.1999, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Yfír 18% hækkun grænmetis HÆKKUN á grænmetisverði milli mánaðanna júlí og ágúst um 18,2% olli því að vísitala neysluverðs hækkaði um 0,2%. Tómatar og agúrkur hækkuðu um 22% í verði og kál hækkaði um rúm 60% milli mánaðanna. Samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar olli 3,3% hækk- un matvæla milli júlí og ágúst því að vísitalan hækkaði um tæplega hálft prósent. Stærsti liðurinn er hækkun á græn- metisverði en ávextir hækk- uðu einnig um 11%, sem olli 0,1% áhrifum á vísitöluna. Hækkun vegna ávaxta og grænmetis varð því samtals 0,32%. Aðrir liðir sem einnig hækkuðu voru brauð og korn- vörur, sem leiddi til 0,04% hækkunar vísitölu, kjötverðs- hækkun olli 0,05% hækkun vísitölu og hækkun á mjólk, osti og eggjum hafði 0,02% áhrif til hækkunar. Verðsveiflur á grænmeti eru árvissar á sumrin en frá 15. mars og 15. apríl og fram til 15. október og 15. nóvember leggj- ast háir vemdartollar á inn- flutt grænmeti til verndar markaðsstöðu innlendrar framleiðslu. Mál Árborgar gegn Félagi íslenskra leikskólakennara Krafíst frávísunar frá Félagsdómi LÖGMAÐUR Félags íslenskra leik- skólakennara (FIL) krefst þess að máli sem sveitarfélagið Arborg hef- ur höfðað gegn FIL verði vísað frá Félagsdómi. Árborg höfðaði málið í þeim tilgangi að fá skorið úr um lögmæti uppsagna leikskólakennara sem starfa hjá sveitarfélaginu. Frá- vísunarkrafan var tekin fyrir í Fé- lagsdómi í gær. Frávísunarkrafa Gests Jónsson- ar, lögmanns FÍL, er byggð á þeim rökum að málið snúi ekki að Félagi íslenskra leikskólakennara heldur varði það Árborg og þessa tilteknu starfsmenn sveitarfélagsins sem sagt hafa upp störfum. Samkvæmt lögum um kjarasamning opinberra starfsmanna skal Félagsdómur dæma í málum sem rísa milli samn- ingsaðila um lögmæti boðaðra eða þegar hafinna vinnustöðvana. Ár- borg segir að málið sé risið vegna ákvörðunar 12 starfsmanna sveitar- félagsins, sem sé stefnt í málinu, og því haldið fram að ákvörðun þeirra um að segja upp hafi falið í sér brot á réttindum Árborgar. Engin krafa sé gerð á hendur stéttarfélaginu um annað en málskostnað. Kært vegna athafna félagsmanna Lögmaður Árborgar hafnar þess- um rökum og bendir á að sam- kvæmt lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna megi stefna stéttarfélagi vegna athafna félags- manna þess. Þessu hafnar lögmaður FIL. Hann bendir einnig á að félag- ið eigi ekki í neinni deilu við Árborg og hafi ekki lögvarða hagsmuni af úrslitum málsins. Því er mótmælt að uppsögn leikskólakennara megi jafna til vinnustöðvunar. Það sé ekki vinnustöðvun þótt hluti leik- skólakennara hætti störfum vegna óánægju með ráðningarkjör sín. Lögmaðurinn bendii' á að FIL hafi engan þátt tekið í ákvörðun leik- skólakennaranna að segja upp og hafi ekki gert neina kröfu um breyt- ingar á kjarasamningi þeirra. Á það er bent að stjóm og starfsmönnum FÍL hafi ekki verið kunnugt um uppsagnirnai- fyrirfram og fyrst heyrt af þeim í útvarpsfréttum. Sæstrengur er margfalt dýrari Morgunblaðið/Egill Egilsson Indíáninn Mio HANN Mio litli tók sig svo sann- arlega vel út með indíánafjaðrir og heimasmíðaðan boga og í staðinn fyrir ör notaði hann sleikipinna og vildi endilega fá mömmu sína, Diönu, í indianaleik með sér í góðviðrinu. RÍKISKAUP hafa fyrir hönd Námsgagnastofnunar auglýst eftir tilboðum í að semja kennsluefni í íþróttum, líkams- og heilsurækt. Þetta er í fyrsta sinn sem gerð námsefnis er boðin út á þennan hátt en til stendur að fleiri námsgreinar fylgi í kjölfarið. Ingibjörg Ásgeirsdóttir, forstjóri Námsgagnastofnunar, segir að þessi breyting sé í takt við nútíma- vinnuaðferðir. Prentun námsefnis hafi verið boðin út um margra ára skeið og nú hafi verið ákveðið að gera tilraun með að bjóða einnig út sjálfa námsefnisgerðina og sjá svo til hvernig það reynist. „Vonin er sú að þetta verði hagstæðara fyrir stofnunina og þar af leiðandi skóla landsins," segir Ingibjörg. „En HAUKUR Tómasson, ráðgjafi hjá Orkustofnun, telur hugmynd Katrínar Fjeldsted alþingismanns, um flutning raforku með sæstreng til Austurlands, fela í sér margfalt meiri kostnað en væri raforkan flutt landleiðina. Katrín hefur viðrað þá hugmynd að í stað þess að virkja Jökulsá í Fljótsdal yrði unnt að virkja ann- ars staðar og flytja orkuna með sæstreng til Reyðarfjarðar. Hauk- ur segir að ef hugmyndin felur í sér að flytja raforku frá virkjunar- svæðunum sunnanlands sjóleiðina austur á land þurfi fyrst að flytja hana drjúgan spöl niður að suður- þetta er ekki síður tækifæri fyrir áhugasamt fólk til að koma hug- myndum sínum á framfæri." Námsefni hefur hingað til verið unnið þannig að Námsgagnastofnun hefur leitað til fólks um gerð ákveð- ins efnis eða fengið send handrit með ósk um útgáfu. Ingibjörg segir að með þessari nýju leið sé vonin sú að nýjar og spennandi hugmyndir að námsefni fái enn greiðari aðgang að stofnuninni. „Við vonumst til að fá nýjar ferskar hugmyndir og nýtt fólk. Að sjálfsögðu erum við líka alltaf að reyna að finna hagstæð- ustu leiðina til að framleiða náms- efni og gera sem mest fyrir þá fjár- veitingu sem við fáum til námsefnis- gerðar fyrir grunnskólana." Hún segir enn fremur að þeh' strönd landsins sem yrði litlu skemmri vegalengd en frá virkjun- arsvæðunum austur á land um mið- hálendið. „Sæstrengir eru líklega fimm sinnum dýrari en loftlínur. Kostn- aðurinn yrði því um 125% af fram- leiðslukostnaði við raforkufram- leiðsluna en rætt hefur verið um að kostnaður af loftlínu yfir miðhá- lendið yrði um 25% af framleiðslu- kostnaði orkunnar fyrir austan,“ segir Haukur. Hann segir að hugmynd Katrín- ar sé framkvæmanleg en hún feli ekki í sér sparnað heldur mikinn kostnaðarauka. sem leggi fram tilboð til námsefnis- gerðar þurfi að vinna efnið í sam- ræmi við námskrá menntamála- ráðuneytisins. Auk þess geri Náms- gagnastofnun nánari verklýsingar í framhaldi af námskránni, misítar- legar eftir námsgreinum. „Það verður hlutverk Námsgagnastofn- unar að gæta þess að efnið sé ör- ugglega í samræmi við námskrá, að það sé skrifað á góðu máli og að það sé ekki á skjön við almenn gildi svo sem í jafnréttis- og mannréttinda- málum.“ Fái stór bókaforlög verk- efni við gerð námsefnis fyrir Náms- gagnastofnun segir Ingibjörg að þau muni þá sjálf hafa daglega rit- stjórn með hendi. Námsgagnastofn- un muni þó fara yfir allt efni og bera endanlega ábyrgð á útgáfunni. Bresk yfír- völd leita ættingja her- mannanna BRESKA varnarmálaráðuneytið stendur nú fyrir leit að ættingj- um mannanna sem fórust hér á landi með sprengjufiugvél breska flughersins árið 1941. Eins og Morgunblaðið greindi frá á laugardag fannst flak vélarinn- ar nýlega, ásamt jarðneskum leifum mannanna fjögurra sem voru um borð, á hálendinu milli Öxnadals og Eyjafjarðar. Leit- inni stýrði Hörður Geirsson, safnvörður á Minjasafninu á Akureyri. „Starfsfólk breska varnar- málaráðuneytisins er mjög þakk- látt Herði Geirssyni og hans fólki á Akureyri fyrir þá vinnu sem þau lögðu í þessa leit,“ segir Pet- er Evans, konsúll í breska sendi- ráðinu. Hann segir þennan fund stórmerkan og að þeir séu mjög ánægðir og þakklátir fslending- um því þetta sé mjög þýðingar- mikið bæði fyrir breska flugher- inn og einnig fyrir ættingja mannanna sem fórust. Þar sem slysið varð fyrir svo löngu má búast við því að nokkurn tíma taki að fínna ætt- ingjana og Evans segir leitina geta tekið nokkrar vikur ef ekki mánuði. Þegar þeir finnast verð- ur tekin ákvörðun um hvað gert skuli við jarðneskar leifar mann- anna. Ættingjarnir gætu óskað eftir því að leifarnar yrðu fluttar til Bretlands og jarðsettar þar en einnig sé hugsanlegt að þær verði jarðsettar hér á landi í grafreit breska hersins í Foss- vogi. En þangað t.il búið er að taka ákvörðun um greftrunina verða þær í vörslu Kirkjugarða Reykjavíkur. N ámsgagnastofnun býður út námsefnisgerð Sérblöð í dag Á ÞRIÐJUDÖGUM \ Heimili Patrekur leikur ekki með gegn Makedóníu / B1 Kraftarnir sparaðir, en markmiðinu náð /B6 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.