Morgunblaðið - 07.09.1999, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1999 19
Islenskir aðilar stofna fyrirtæki sem selja mun farsíma um allan heim á Netinu
Yerði leiðandi á sviði vef-
verslunar með farsíma
Morgunblaðið/Þorkell
STRAX Holdings Inc., sem er að
stærstum hluta í eigu Islendinga,
og Titan Holding SA, eignarhalds-
félag Skúla Mogensen, hafa stofn-
að nýtt internetfyrirtæki sem heit-
ir MobileStop.com og er því ætlað
að verða leiðandi aðili á sviði vef-
verslunar á alþjóðlegum vettvangi
með farsíma, aukahluti og annan
búnað sem tengist þráðlausum
samskiptum. Ai'nþór Halldórsson
hefur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri MobileStop.com, en hann
hefur undanfarið gegnt starfi fram-
kvæmdastjóra sölu- og markaðs-
sviðs Tals hf. MobileStop.com er
með lögheimili í Delaware í Banda-
ríkjunum.
Strax Holdings Inc. sérhæfir sig
í sölu og dreifingu á farsímum og
fylgihlutum tengdum þeim, en fyr-
irtækið rekur skrifstofur og vöru-
hús í Miami, Hong Kong og
London. Auk þess hannar og fram-
leiðir Strax Holdings Inc. ýmsa
aukahluti fyrir farsíma og selur
undir eigin nafni eða undir vöru-
merki kaupandans. Að sögn Skúla
Mogensen, stjórnarformanns
MobileStop.com, er stefnt að því að
byggja jöfnum höndum upp vef-
verslunina á neytenda- og fyrir-
tækjamarkaði og verður starfrækt-
ur uppboðsmarkaður þar sem ein-
staklingar og fyrirtæki geta boðið í
farsíma og aukahluti. Einnig er
stefnt að því að þjónustuaðilar geti
í gegnum vefverslunina boðið í við-
skipti einstaklinga og fyrirtækja.
Sjá fram á sprengingu á sviði
vefverslunar með farsíma
Amþór Halldórsson var fram-
kvæmdastjóri Tals hf. á uppbygging-
arstigi fyrirtækisins og starfaði hann
einnig í Bandaríkjunum í nokkur ár.
Gengið verður frá ráðningu annars
starfsfólks Mobiletop.com á næstu
vikum og er líklegt að íslendingar
verði í nokkrum lykilstöðum í fyrir-
tækinu auk annarra Norðurlanda-
búa og Bandaríkjamanna, en að sögn
Skúla Mogensen er stefnt að því að
ná saman öflugum hópi einstaklinga
sem spannar víðtækan þekkingar-
grunn á sviði veflausna, fjarskipta og
markaðsmála, og virkja síðan þann
hóp til þess að setja saman lausnir á
heimsmælikvarða.
„Við horfum fram á algjöra
sprengingu á sviði vefverslunar með
farsíma í nánustu framtíð," segir
Ai'nþór Halldórsson. Það mun
verða gífurleg framþróun í farsíma-
og þráðlausum gagnaflutningum á
næstu misserum, auk þess sem al-
þjóðlegir staðlar munu tryggja að
sömu tækin verða notuð hvar sem
er í heiminum. Þetta framtíðarum-
hverfi er nákvæmlega það sem
skapar réttu skilyrðin fyrir öfluga
vefverslun á þessu sviði, sem tengir
saman ólík markaðssvæði um allan
heim.“
Amazon.com fyrirmyndin
Farsímanotkun í heiminum hefur
aukist mjög hratt og að sögn Skúla
gera áætlanir ráð fyrir því að fjöldi
farsímanotenda aukist úr 300 millj-
ónum í um einn milljarð á næstu
þremur árum.
„A sama tíma er þess vænst að
samkeppni á heimsmarkaði meðal
símafélaga aukist stórlega með frek-
ari einkavæðingu og samruna í
rekstri alþjóðlegra símafélaga. Þessi
þróun skapar margvísleg tækifæri
og er markmið okkar að nýta mögu-
leika Netsins til að leiða saman
kaupendur og seljendur á sem hag-
kvæmastan máta, og við munum
bjóða einstaklingum og fyrirtækjum
víðtækt vöruúrval og þjónustu á
þessum markaði. Fyrirmyndin er
Amazon.com sem selur bækur, en
við munum selja farsíma."
MobileStop.com mun hefja starf-
semi 1. október næstkomandi og
verða höfuðstöðvar fyrirtækisins í
Miami í Bandaríkjunum, en síðan er
stefnt að því að starfsemi hefjist í
Evrópu og Asíu skömmu upp úr
næstu áramótum. Að sögn Skúla er
um þessar mundir verið að leggja
lokahönd á fyrsta hluta fjármögn-
unar sem alfarið fer fram hér innan-
lands.
Loftvarnarkerfið á
vegum Kögunar hf.
Samningur
til eins árs
í senn
ÞRÁTT fyrir að rammasamningur
Kögunar hf. annars vegar og varn-
armálaskrifstofu utanríkisráðu-
neytisins fyrir hönd Ratsjárstofn-
unar hins vegar hafi runnið út í
maí sl., sér Kögun hf. ennþá um
rekstur, viðhald og endurbætur á
loftvarnarkerfi landsins.
„Verksamningurinn hefur allan
tímann verið gerður fyrir hvert
fjárhagsár í senn,“ segir Gunn-
laugur Sigmundsson, fram-
kvæmdastjóri Kögunar hf. Einka-
leyfi Kögunar hf. er hins vegar
fallið úr gildi með rammasamn-
ingnum og á sama hátt þau ákvæði
sem leyfðu kyrrsetningu Kögunar
hf. í verkinu.
Gunnlaugur segir hugsanlegt að
önnur fyrirtæki gætu boðið í verk-
ið. „Raytheon, sem var samstarfs-
aðili okkar við hönnun kerfisins,
gæti boðið í verkið. Við erum enn-
þá í samstarfi við Raytheon á ýms-
um sviðum og ég á ekki von á því
að þeir hafi hug á að gera tilboð í
þetta verk.“
„Ég held það hafi hvorki verið
möguleiki hjá okkur né þeim hjá
utanríkisráðuneytinu að endurnýja
samninginn eftir alla þá umræðu
sem varð um einkaleyfi okkar á
þessu verki. Það er líka orðið
þannig í hugbúnaðargeiranum að
vömin í samkeppninni er fyrst og
fremst þekkingin,“ segir Gunn-
laugur.
Aukinn
hagnaður
hjá Air
France
HAGNAÐUR franska flugfélags-
ins Air France, þriðja stærsta flug-
félags Evrópu, hækkaði mjög á
fyrsta fjórðungi reikningsársins,
þó að rekstrarniðurstaðan sé vart
sambærileg við sama tímabil í
fyrra þegar félagið mátti glíma við
verkfall flugmanna, segir á frétta-
vef CNN-fn.
Air France var rekið með tæp-
lega 11,1 milljarðs króna hagnaði á
fyrsta ársfjórðungi í samanburði
við um 630 milljóna króna hagnað á
sama tímabili í fyrra. Velta fyrii'-
tæksins jókst um 19% og varð um
1.270 milljarðar króna.
Stærstu flugfélög Evrópu era
undir miklum þrýstingi vegna
samkeppni á lykilflugleiðum yfir
Atlantshafið og vegna aukinnar
velgengni lágverðs-flugfélaga.
Þannig gaf stærsta flugfélag Evr-
ópu, hið þýska Lufthansa, út af-
komuviðvöran í seinasta mánuði,
og hagnaður næststærsta félags-
ins, hins breska British Ainvays,
lækkaði um 90% á fyrsta ársfjórð-
ungi.
Stjórnendur Air France hafa
fengið hrós fyrir að snúa við tap-
rekstri þessa fyrrverandi franska
ríkisfyrirtækis með því að skera
niður kostnað um tæpa 35 millj-
arða króna árlega. Franska ríkið
seldi um 15% félagsins á markaði í
janúar. Vegna flugmannaverkfalls í
fyrra féllu þá niður mörg þúsund
flug og félagið varð af tekjum
vegna heimsmeistarakeppninnar í
knattspyrnu. Því eru farþegar á
fyrsta ársfjórðungi hjá Air France
21% fleiri en á sama tíma í fyrra,
en flest önnur flugfélög hafa notið
5% aukningar.
Loksins er fundarfriður!
Nýjun^f í þjónustu við íslensk fyrirtæki hvar sem er á landinu.
Við bjóðum fyrirtækjum saman í pakka flugfar og
Fl09ið 0? fundað fundaraðstöðu í dagsferðum til fimm helstu
áfangastaða Flugfélags íslands sem eru:
ísafjörður
Akureyri
Egilsstaðir
Höfn í Hornafirði
Vestmannaeyjar
Fljúgið að morgni, vinnið á fundi yfir daginn og snúið aftur heim um kvöldið.
Fundaraðstaða er í samstarfshótelum okkar á framangreindum áfangastöðum
Eitt símtal - o«f við sjáum um allan undirbúnin^
Við pöntum flugfar, akstur til og frá flugvelli á fundarstað, fundar-
aðstöðu og veitingar og sjáum til þess að allur búnaður verði til reiðu á
fundarstað. Pöntum gistingu, sé þess óskað, og tökum að okkur að
skipuleggja skoðunarferðir eða aðrar útivistarferðir á fundarstað.
Fínn kostur á f erðalöfum
Viltu ná umtalsverðum áran^ri á næsta fundi?
Hafðu strax samband við okkur í síma 570 3606
eða í tölvupósti: flugkort@airiceland.is
Flugfélag Islands, Reykjavíkurflugvelli, sími 570 3030,
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Air Iceland
fax 570 3001, www.flugfelag.is