Morgunblaðið - 07.09.1999, Side 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Helgi Björnsson jöklafræðingur um Mýrdalsjökul
Engin merki um vatns-
söfnun undir jöklinum
Fagradal _ HELGI Björnsson
jöklafræðingur segir að engin
merki sjáist um það að vatn hafí
safnast fyrir undir Mýrdalsjökli, en
að núverandi mælingar í ánum séu
sennilega ekki nægilega nákvæmar
til að greina rennsli sem er til kom-
ið vegna jarðhita undir jöklinum.
Ámi Snorrason, forstöðumaður
vatnamælinga Orkustofnunar, seg-
ist búast við að svör fáist í vikunni
um það hvort fjárveiting fáist til
kaupa á sjálívirkum mælingabún-
aði til að geta fylgst betur með
rennsli úr ám sem koma úr Mýr-
dalsjökli. „Það er verið að tala um
það að setja mæla í Markarfljót,
Hólmsá og hugsanlega í Skálm,“
segir Ámi. „Við emm með tvær
stöðvar uppi núna, í Jökulsá á Sól-
heimasandi og í Múlakvísl, en það
hafa engar breytingar mælst þar
um helgina."
Ámi segir að hver mælir kosti
um eina milljón króna. Helgi segir
að ísinn sem bráðnað hafi undir
Mýrdalsjökli að undanfömu sé í
raun og veru ekki mjög mikill og
því ekki víst að mælitækin greini
rennshð sem bráðnunin veldur.
„Sú bráðnun sem þarna gæti verið
er í mesta lagi 30 teningsmetrar á
sekúndu og væntanlega er hún
minni. Hún dreifist á nokkrar ár og
núna í þessari rigninga- og leys-
ingatíð held ég að erfitt sé að
greina hana. Þegar hins vegar
dregur úr leysingu á jökMnum
seinna í haust þá ætti vera hægt,
með bættu mælakerfi sem búið er
að sækja um, að fá úr þessu skor-
ið.“
Alþjóðleg
ferðamarkaðsfræði
Nú sem fyrr er Ferðamálaskóli íslands leiðandi skóli fyrir þá, sem
vilja auka menntun sína í ferðaþjónustu. Ferðamálaskóli íslands
var fyrstur skóla til að byrja með alþjóðlegt IATA/UFTAA
(Alþjóðasamband flugfélaga) nám, sem er viðurkennt um allan
heim og hlotið hefur miklar vinsældir hér á landi.
Ferðamálaskóli íslands hefur nú fyrstur skóla fengið samþykki
IATA/UFTAA til að bjóða uppá nýtt námsefni, sem IATA/UFTAA
hefur hleypt af stokkunum og á örugglega eftir að verða hagnýtt
og eftirsótt nám.
Alþjóðleg ferðamarkaðsfræði
Söluráðar Verðlagning
Markaðsrannsóknir
Markaðsumhverfið
Markaðshlutun
Arðsemi
Árstíðarsveiflur
Dreifing
Auglýsingar
Samkeppni
Markaðsáæltanir
Markaðsvirkni
Sölustjórnun
Sölutækni
Markmið
Stefnumótun
Ferðaþjónusta á Islandi
Námið er alls 300 stundir og kennt verður þrisvar í viku frá
kl. 18.15-22.00.
Námsefnið kemur frá IATA/UFTAA og tekið er próf í mars nk. og
veitir því alþjóðlega viðurkenningu, en kennslan fer fram á íslensku.
Námið hentar öllum þeim, sem
áhuga hafa og vilja auka
þekkingu sína á ferðaþjónustu.
Ferðamálaskóli Islands
Bfldshöfða 18
567 1466
Morgunblaðið/Atli Vigfusson
Miklar vega-
framkvæmd-
ir á Tjörnesi
Laxamýri - Langþráðar vega-
bætur á Tjörnesi eru nú í aug-
sýn en í sumar hefur verið
unnið við þjóðveginn í norður-
átt frá Héðinshöfða.
Ljóst er að um mjög kostn-
aðarsamar breytingar á vegar-
kaflanum er að ræða og þykir
mörgum sem hönnunarkostn-
aður sé of mikill og breyting-
arnar þurfí ekki að vera svo
umfangsmiklar sem raun ber
vitni.
Eigi að síður eru vegfarend-
ur mjög ánægðir með að fá
bundið slitlag, en vegurinn um
Tjörnes hefur oft á tíðum verið
mjög slæmur og jafnvel hættu-
Iegur vegfarendum.
FRETTIR
Yfírlýsing1 frá
V erðbréfaþingi
Islands hf.
Morgunblaðinu hefur borist eftir-
farandi yfirlýsing frá stjórn Verð-
bréfaþings íslands hf.
„í fjölmiðlum undanfama daga
hefur verið rætt um hugsanlegt
vanhæfi þriggja stjórnarmanna
Verðbréfaþings íslands hf. til að
fjalla um hvort samþykktir Skag-
strendings hf. fái staðist þær kröf-
ur sem gerðar em til hjutafélaga
sem skráð era á þinginu. Álitamálið
var að í stofnsamningi og sam-
þykktum Skagstrendings hf. era
ákvæði um að Höfðahreppur geti
ávallt tilnefnt 2 menn af 5 í stjórn
félagsins. Daglegt eftirlit með að
reglum þingsins sé fylgt er í hönd-
um starfsmanna og framkvæmda-
stjóra. Starfsmenn þingsins tóku
málefni Skagstrendings til skoðun-
ar í kjölfar þess að boðað var til
hluthafafundar í félaginu um breyt-
ingar á samþykktum þess. Fram-
kvæmdastjórinn vísaði síðan mál-
inu til stjórnar þar sem henni er
skylt samkvæmt reglum þingsins
að meta skráningarhæfi félaga.
Umfjöllun stjórnar
Á fundi sínum hinn 12. ágúst sl.
ákvað stjórn Verðbréfaþings ann-
ars vegar að samþykktir allra
skráðra félaga skyldu skoðaðar til
að kanna hvort fleiri ákvæði kynnu
að orka tvímælis og hins vegar að
óska eftir áMtsgerð Lagastofnunar
Háskólans í málinu. Framkvæmda-
stjóri samdi við Viðar Má Matthías-
son, prófessor við Lagadeild Há-
skólans, um að skila áliti. Viðar
Már skilaði áliti sínu ásamt vand-
aðri greinargerð með bréfi til Verð-
bréfaþings hinn 1. september og
var það tekið til umfjöllunar á
stjórnarfundi daginn eftir ásamt
fjölmörgum öðram málum. Það var
einróma niðurstaða stjórnar og
framkvæmdastjóra Verðbréfa-
þings, að fylgja áMti Viðars Más.
Akvæðið um stjórnarkjör í Skag-
strendingi hf. brýtur ekki í bága við
nýjar reglur um skráningu hluta-
bréfa í kauphöll.
Verðbréfaþing íslands hf. er
þjónustufyrirtæki
íslenskur verðbréfamarkaður
hefur þróast mikið á fáum áram.
Verðbréfaþing íslands hf. hefur og
mun kappkosta að bregðast við
breytingum og stuðla að því að
byggja upp heilbrigðan markað
sem stenst samanburð við þróaða
markaði erlendis. Verðbréfaþing er
hlutafélag og þjónustufyrirtæki í
eigu þingaðila, skráðra hlutafélaga,
lífeyrissjóða, samtaka fjárfesta og
Seðlabanka íslands. Það fékk
starfsleyfi samkvæmt nýjum kaup-
hallalögum 1. júlí sl. Félagið vill
leggja aukna áherslu á þjónustu-
hlutverk sitt, afmarka eftirlitshlut-
verkið og skerpa á verkaskiptingu
milli þingsins og Fjármálaeftirlits-
ins. I stjórn félagsins era tveir full-
trúar þingaðila, þeir Tryggvi Páls-
son og Ingólfur Helgason; tveir
fulltrúar skráðra hlutafélaga, þeir
Þorkell Sigurlaugsson og Róbert
Agnarsson; fulltrúi lífeyrissjóða,
Þorgeir Eyjólfsson; fulltrúi sam-
taka fjárfesta, Erna Bryndís Hall-
dórsdóttir, og fulltrúi Seðlabank-
ans, Sveinbjörn Hafliðason.
Hæfi stjórnarmanna
Langsótt er að efast um hæfi
Tryggva Pálssonar, framkvæmda-
stjóra hjá íslandsbanka hf., til um-
fjöllunar um ofangreint mál þó
Burðarás hf. eigi hlut í bankanum.
Einar Sigurðsson, varamaður í
stjórn þingsins og framkvæmda-
stjóri hjá Flugleiðum hf., taldi sig
hæfan þar sem Flugleiðir eiga enga
beina hagsmuni tengda málefnum
Skagstrendings. Þorkell Sigur-
laugsson, framkvæmdastjóri þró-
unarsviðs Eimskips, sem á beinan
hlut að málefnum Skagstrendings
vegna eignarhlutar Burðaráss til-
kynnti til stjórnarmanna þingsins
fyrir fundinn 12. ágúst að hann liti
á sig sem vanhæfan til þátttöku í
umræðum um málið. Hann sat ekki
þann fund og tók ekki þátt í um-
ræðu eða ákvörðunartöku á fundin-
um 2. september. Sú almenna regla
er viðhöfð hjá stjórn Verðbréfa-
þings að þegar hagsmunaárekstrar
kunna að verða taka stjórnarmenn
ekki þátt í umræðum og ákvörðun-
um eða víkja af fundi. Stjómin mun
meta hvort verklag það sem við-
gengist hefur á umliðnum áram
varðandi hæfismat þurfi endur-
skoðunar við.
I þessu máli var afdráttarlaus
niðurstaða stjórnarinnar byggð á
vönduðu og ítarlegu lögfræðiáliti og
vandséð að það hefði nokkru breytt
um niðurstöðuna þó fleiri stjórnar-
menn en Þorkell Sigurlaugsson
hefðu lýst sig vanhæfa. Engu að
síður er stjórn Verðbréfaþings ís-
lands hf. ljóst að ábyrgð hennar er
mikil að viðhalda því trausti sem
þingið nýtur. Það traust er nauð-
synlegt fyrir alla þá sem við þingið
skipta og þróun fjármagnsmarkaða
á Islandi.
Reykjavík 6. september 1999.“
Valt eftir
árekstur
ÖKUMAÐUR fólksbifreiðar
var fluttur á slysadeild með
sjúki-abifreið eftir að bifreið
hans lenti í árekstri við aðra á
gatnamótum Suðurlandsbraut-
ar og Grensásvegar um miðjan
laugardag með þeim afleiðing-
um að önnur bifreiðin valt og
lenti upp á umferðareyju.
Kranabifreið var kölluð á vett-
vang til að fjarlægja báðar bif-
reiðamar.
„Opinberunarbókin“
■ Biblían er auðsHildari en þig grunari
Við höfum ánægju af hví að hjálpa
fólki að kynnast Biblíunni betur og sýna
hvað hún hefur að segja um spurningar,
sem leita á fóik.
Leiðbeinandi er dr. Steinþór Þórðarson,
sem hefur staðið fyrir s|íkum námskeiðum
áratugum saman á íslandi og erlendis.
Mánudagar og miðvikudagar kl. 20.00.
Hittumst tvfsvar í vihu!- Við byrjum 13. sept.
Þar sem fjöldi þátttakenda er takmarkaður, er skynsamlegt að
innritast sem fyrst. Með einu símtali tiyggir þú þér þátttöku.
Þátttaka, Biblía og litprentuð námsgögn í möppu, ókeypis.
Innritun og nánari upplýsingar alla daga í símum 554 6850,564 6268 og 861 5371.