Morgunblaðið - 07.09.1999, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1999 43 .
vel. Margar góðar stundir áttum við
í morgunkaffíklúbbnum okkar, síðar
var stofnaður saumaklúbbur sem
enn er starfandi en Sigrún er sú
þriðja sem kveður úr þessum klúbbi
gamalla starfsfélaga. Aður eru
horfnar úr hópnum, Klara Helga-
dóttir og Kristín Jónsdóttir. Við sem
eftir erum, Guðríður, Ásdís, Guðrún,
Sigríður og Ragnheiður, minnumst
þeirra allra með virðingu og þökk
fyrir samfylgdina.
Þá var einnig stofnaður þorra-
blótsklúbbur meðal eldri starfsfé-
laga og maka þeirra. Hafa nú fjórir
horfið með stuttu millibili, nú síðast
elskulegur vinur, Ai-naldur Valdi-
marsson, og Sigrún sem nú er
kvödd.
Eg minnist margra ljúfra stunda
á heimili þeirra Sigrúnar og Guð-
mundar, 60 ára afmælis, 70 ára af-
mælis ásamt fjölda annarra glæsi-
legra heimboða þar sem Sigrún naut
sín vel sem húsmóðir og var hrókur
alls fagnaðar.
Eg minnist heimsóknar okkar
Klöiu í sumarbústaðinn þeirra Sig-
rúnar og Guðmundar í Hlíð þar sem
svo vel var tekið á móti okkur og við
leystar út með gjöfum.
Ég minnist síðustu heimsóknar
minnar til Sigiúnar sem þá lá fársjúk
á Landakoti. Ég finn ennþá hlýja
handtakið hennar. Hugur hennar var
hjá Guðmundi. Umhyggja hennar
fyrir manni sínum og fjölskyldu var
henni efst í huga, ekki hún sjálf.
Þannig var Sigrún, dugleg, óeigin-
gjörn og umfram allt, góð kona.
Sigrún var ákaflega dugleg og
sjálfstæð. Kom það sér vel því hún
var sjómannskona og þurfti að bera
fulla ábyi'gð á heimilinu. Þegar ég
kynntist henni voru synirnir enn í
námi og bar hún hag þeirra mjög
fyrir brjósti. Þegar um hægðist og
Guðmundur var hættur á sjónum
nýttu þau hverja stund til þess að
ferðast. Þau ferðuðust víða erlendis,
stundum oft á ári, og var gaman að
heyra skemmtilegar ferðasögur
þeirra hjóna.
Sigrún var fróð um flesta hluti og
hafði sínar eigin skoðanir sem hún
var ófeimin að halda fram ef því var
að skipta. Hún var kát og félags-
lynd og naut sín vel í góðra vina
hópi. Sigrún stundaði nám við
Kvennaskólann í Reykjavík sem þá
þótti góður skóli fyrir stúlkur. Hún
saknaði þess þó að hafa ekki notið
meiri menntunar en hún fékk, enda
var hún vel gefin, góður námsmað-
ur og óhrædd við að takast á við ný
verkefni.
Ég kveð Sigrúnu með þökk fyrir
að hafa átt að vini þessa góðu og
gjöfulu konu. Ég þakka henni um-
hyggjuna sem hún ætíð bar fyrir
mér og fjölskyldu minni svo og allar
þær ljúfu stundir sem við áttum
saman.
Elskulegum eiginmanni hennar,
Guðmundi, sonum þeirra og fjöl-
skyldu allri votta ég samúð mína.
Blessuð sé minning Sigiúnar Sig-
urðardóttur.
Ragnheiður.
• Fleiri minningurgreinar
um Sigrúnu Sigurðardóttur
bíða birtingar og munu birtast
i blaðinu næstu daga.
Skilafrestur
minning-
argreina
EIGI minningargrein að birtast
á útfarardegi (eða í sunnudags-
blaði ef útför er á mánudegi), er
skilafrestur sem hér segir: I
sunnudags- og þriðjudagsblað
þarf grein að berast fyrir hádegi
á föstudag. I miðvikudags-,
fimmtudags-, föstudags- og
laugardagsblað þarf greinin að
berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrir birtingar-
dag. Berist grein eftir að skila-
frestur er útrunninn eða eftir að
útför hefur farið fram, er ekki
unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi. Þar sem pláss er
takmarkað getur þurft að fresta
birtingu greina, enda þótt þær
berist innan hins tiltekna
skilafrests.
+
Ástkær faðir minn, afi og langafi,
OTTÓ W. MAGNÚSSON
frá Seyðisfirði,
áður til heimiiis
á Skólabraut 5,
Seltjarnarnesi,
lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund mánu-
daginn 6. september.
Anna Fríða W. Ottósdóttir,
Ottó Winther Snorrason, Ellen Hrefna Haraldsdóttir,
Valdís Vilhjálmsdóttir,
Ingvar Vilhjálmsson, Helga María Garðarsdóttir
og barnabarnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
VICTOR J. GESTSSON
læknir,
Hringbraut 50,
áður Skaftahlíð 30,
lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund föstu-
daginn 27. ágúst.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Nína Victorsdóttir, Ragnar Friðriksson,
Svala Victorsdóttir, Peter Ellenberger,
Helmout Karl Kreidler,
Einar Victor Karlsson Kreidler,
Sólveig Erla Ragnarsdóttir,
Hlynur ívar Ragnarsson,
íris Ellenberger
og barnabarnabörn.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og
langamma,
HULDA INGIBJÖRG PÁLSDÓTTIR,
sem andaðist mánudaginn 30. ágúst, verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
8. september kl. 15.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeir, sem vildu
minnast hennar, láti líknarstofnanir njóta þess.
Borgar Garðarsson, Ann Sandelin,
Garðar Garðarsson, Caroll Garðarsson,
Guðbjörg Hlíf Pálsdóttir,
Haukur Pálsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, sonur og bróðir,
HAFSTEINN JÓNSSON,
sem lést þriðjudaginn 31. ágúst, verður
jarðsunginn frá Háteigskirkju miðvikudaginn
8. september kl. 13.30.
Elín Jóna Hafsteinsdóttir,
Sóley Hafsteinsdóttir,
Elín Sólmundardóttir,
Jón Bárðarson,
Guðlaug Erna Jónsdóttir,
Birna Jónsdóttir,
Guðmundur Ingi Jónsson.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
VILHJÁLMUR HENDRIKSSON,
Núpalind 8,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Krossinum, Hlíðarsmára
5—7 á morgun, miðvikudaginn 8. september,
kl. 13.30.
Ingibjörg Ólafsdóttir,
Guðmunda G. Vilhjálmsdóttir, Jón Tryggvi Þórsson,
fsak Jónsson,
Guðlaug Jónsdóttir,
Ingibjörg Birta Jónsdóttir,
Bryndís Vilhjálmsdóttir, Guðmundur Karl Guðnason,
Vilhjálmur Hendrik Karlsson,
Karen Dögg Karlsdóttir,
Tinna Björt Karlsdóttir,
Jóhann Friðrik Karlsson
og aðrir aðstandendur.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
SIGRÍÐUR LÁRA MARÍANUSDÓTTIR,
Njörvasundi 34,
lést á Droplaugarstöðum sunnudaginn
5. september síðastliðinn.
Jón Árnason,
Sigurður Halldórsson, Sigrún Þorsteinsdóttir,
Sif Sigurðardóttir, Rafn Rafnsson,
Anna Birna Rafnsdóttir,
Selma Sigurðardóttir.
+
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
SÓLVEIG SNÆBJÖRNSDÓTTIR,
Álfaskeiði 64,
Hafnarfirði,
iést á heimili sínu mánudaginn 6. september.
Grétar Ólafsson,
Ásdís Ólafsdóttir,
Ólafur Ólafsson,
Ómar Ólafsson,
Halldór Ólafsson,
Katrín Ólafsdóttir,
Helga Jónsdóttir,
Sigrún Oddsteinsdóttir,
Björg Aðalsteinsdóttir,
Ragnheiður Þengilsdóttir,
Stefán Eiríksson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
LIS RUTH SIGURJÓNSSON,
Háteigsvegi 26,
Reykjavík,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur föstudaginn
3. september.
Pia Ásmundsdóttir,
Kjartan Ásmundsson, Elfn Geira Óladóttir,
Egill Ásmundsson
og barnabörn.
+
Sonur minn,
BRYNJAR SVAN SIGFÚSSON,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstu-
daginn 10. september kl. 13.30.
Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna,
Guðrún Sigurðardóttir.
Elín Jónatansdóttir,
Aðalbjörg Silja Ólafsdóttir,
Áslaug, Rósa, Birna og fjölskyldur,
Aðalbjörg Ólafsdóttir og Jenni R. Ólason.
+
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ANNA SIGMUNDSDÓTTIR,
Dvalarheimili aldraðra,
Borgarnesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness laugardaginn
4. september sl.
Erling Jónsson, Sólrún Magnúsdóttir,
Edda Jónsdóttir, Gísli Kjartansson
og barnabörn.
+
Ástkær maður minn, faðir, bróðir og sonur
okkar,
ÓLAFURJENNASON,
Borgarnesi,
lést laugardaginn 4. september.