Morgunblaðið - 07.09.1999, Side 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Smáfólk
Amma segir að þegar maður vaknar á morgnana Kins og t.d. að
þá eigi að þakka fyrir nýjan dag og síðan að leggja gefa hundinum
drög að því að gera eitthvað gott og jákvætt... að éta..
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavfk • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Á jafnréttisdegi
Frá Viðari Hörgdal:
ÖRYRKJUM í Reykjavík er eins og
öðrum skylt að skila sinni skatt-
skýrslu tO Skattstjórans í Reykja-
vík, Tryggvagötu 19. Þegar þangað
er komið er há brún af gangstétt að
inngangi, engum í hjólastól er
mögulegt að komast þetta án að-
stoðar. Því er ekki sett skábraut
fyrir fatlaða tO að auðvelda aðgengi
tO að skila skattskýrslu eða leita
skýringa?
I Hafnarfirði er hvergi skáað úr
gangstétt að götu í námunda við
samskonar skrifstofu í Suðurgötu 14.
Merki er tákna bflastæði aðeins
fyrir fatlaða eru fyrir framan flestar
stærri verslanir og fyrirtæki.
Kringlan hefur rutt brautina með
breiðum vel merktum bflastæðum
fyrir fatlaða.
Bónus, Austurver og fjöldi ann-
arra fyrirtækja eru með merkt
stæði en þau eru jafn mjó og al-
mennu stæðin, þannig að einstak-
lingur í hjólastól kemst hvorki í eða
úr bifreið. Hvaða tilgangi þjóna þá
merkin?
I Danmörku er skylt að breidd
stæðanna sé 450 sm eins og tekið er
fram í DS Handbok 105.
Hugurinn hvarflaði aftur tfl árs-
ins 1978 er jafnréttisganga fatlaðra
í Reykjavík var farið undir merki
sem á stóð JAFNRÉTTI.
A Kjarvalsstöðum endaði gangan
og ráðamenn þjóðarinnar mættu tO
að heyra kröfur fatlaðra. Mai’gt hef-
ur áunnist síðan en þó ekki nærri
nóg. í minningu um þessa göngu
orti ég þetta ljóð.
Ajafnréttisdegi
Við mætumst hér á mildum haustsins degi
og minnum á þann rétt er okkur ber,
að þjóðfélagið hömlum víki af vegi
svo velferð þegna jöfn sé hvar sem er.
I skólamálum margt skal betrum bæta
brautir smíða, handrið traust má fá,
þó hreyfihömlun margur verði að mæta
menntaveginn hugur leitar á.
Fólki reynist erfitt yfirferðar
upp af götu gangstígum að ná
miklar brúnir margar illa gerðar
mein er þeim sem hjólastólinn á.
Þér ráðamenn nú sýnið vilja í verki
og vandið betur húsasmið og lag.
Þvi styrk við stöndum undir einu merki
og áfram viljum bættan þjóðarhag.
VIÐAR HÖRGDAL,
öryrki.
R-listinn ekkert
án Framsóknar
Frá Hróbjarti Lúðvíkssyni:
REYKJAVÍKURFLUGVÖLLUR
verður ekki fluttur suður eftir nema
utanríkisráðuneytið afsali sér nú-
verandi yfirráðum yfir Keflavíkur-
flugvelli. Þetta skilja bæði sam-
gönguráðherra og flugmálastjóri.
Því ætti samgönguráðherra að af-
sala sér yfirráðum yfir innanlands-
og mOlilandaflugi Reykjavíkurflug-
vallar í hendur R-listavininum Hall-
dóri Asgrímssyni? Ef Reykjavíkur-
flugvöllur yrði fluttur á varnar-
svæði, KeflavíkurflugvöO, er Fram-
sóknarflokkurinn kominn með mikil
völd í flugmálum þjóðarinnar. Því
ætti Sturla samgönguráðherra að
stuðla að því? Þorgeir flugmála-
stjóri yrði varla áhrifamikill í flug-
málum eftir það.
Ingibjörg Sóh-ún borgarstjóri
þarf auðvitað áfram framsóknar-
gervifótinn undir R-listann og því
er henni ósárt um að leggja af flug-
völlinn í borginni og flytja undir
Halldór utanríkisráðherra. An
framsóknar er R-listinn ekkert!
HRÓBJARTUR LÚÐYÍKSSON,
útgerðarmaður Sólbakka, Mjóafirði.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Tölvupústur: sala@hellusteypa.is