Morgunblaðið - 07.09.1999, Side 60
MORGUNBLAÐIÐ
~- j60 PRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1999
1754
VAKORT
Eftirlýst kort nr.:
4543-3700-0022-1781
4543-3700-0027-9888
4507-4300-0022-4237
4507-4500-0026-7523
4548-9000-0053-6690
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Islandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
fyrir að klófesta kort
og vísa á vágest
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
^mb l.i is
ALLTAf= CtTTH\0K£J /S/'ÝTI
FÓLK í FRÉTTUM
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Leikmenn Hótels Búða láta að sér kveða við mark andstæð-
inganna eins og svo oft á mótinu.
Hótel Búðir sigr-
uðu í myrkrinu
HIÐ árlega knattspyrnumót Pub mynda leikinn að finna þurfti arm-
Cup var lialdið á Tungubökkum bandsúr með ljósi handa dómaran-
við Mosfelisbæ um helgina. Eftir um sem átti svo í mestu vandræð-
harðvítuga keppni sem stóð fram á um með að fínna peninginn þegar
kvöld bar Hótel Búðir sigurorð af hann kastaði upp á hvort liðið ætti
Kaffibarnum í úrslitaleik með að byrja. Rifandi stemmning var í
tveimur mörkum gegn einu. Var herbúðum Búðamanna sem fögn-
þá komið svartamyrkur svo leik- uðu ákaft í Ieikslok. Uppskeruhá-
menn áttu erfitt með að sjá völl- tíð mótsins var haldin á Cafe Am-
inn, hvað þá knöttinn, og setti það sterdam, sem hafði veg og vanda
mark sitt á leikinn. Tafði það til að af skipulagningu mótsins.
Og þá var kátt á vcllinum ...
Hver ætli verði svo fyrstur í boltann?
BIOIN I BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson/ Arnaldur Indriðason/ Hildur Loftsdóttir
BÍÓBORGIN
The Thomas Crown Affair
irk'h
Vönduð, vel gerð og oft góð
skemmtimynd sem líður
fyrir flatan og
útgeislunarlausan leik
aðalleikaranna beggja.
The Big Swap kk
Fimm pör í dáðlausu
framhjáhaldi. Kemst hvorki
að kjamanum né niðurstöðu
en nokkiúr leikaranna sýna
ágæt tilþrif.
Svikamylla irA~k
Meistaraþjófarnir Sean
Connery og Catherine Zeta
Jones gerast
milljarðaræningjar. Það er stíll
yfir þeim og myndinni, sem er
vel lukkuð afþreying.
SAMBÍÓIN,
ÁLFABAKKA
„Analyze This
Fyndin og skemmtileg
mafiusaga um gangster sem
leitar hjálpar hjá sálfræðingi.
De Niro í toppformi í hlutverki
sem hann einn getur leikið.
Stjömustrið - fyrsti hluti:
Ógnvaldurinn irk
Fyrsti hlutinn í nýrri trílógíu
Lucasar veldur nokkrum
vonbrigðum. En þótt sagan sé ekki
mikil í henni og persónusköpunin
veik er fullt af brellum fyrir bömin
og sviðsmyndir fagrar.
Hin systirin irk
Frekar tilgangslaus mynd um
þroskahefta stelpu, fjölskyldu hennar
og kærasta. Nokkuð sæt á köflum.
Resurrection irk
Hreint ekki sem verst raðmorðingja-
og löggumynd frá Kristófer Lamba.
Spennan endist því miður ekki til loka.
Villta, villta vestrið kk
Innihaldsrýrt Hollywood-bruðl um
tvo félaga að bjarga gamla, góða
villta vestrinu. Ekki leiðinleg en
skilur enga innistöðu eftir.
Múmian kkk
Notalega vitfirrt ævintýramynd um
múmíu, fjársjóði, plágurnar 10,
bölvun, kumlrof, græðgi, spennu og
grín. Hvað viljið þið hafa það betra?
Fínt léttmeti.
Jóki björn kk
Jóki björn og Búbú lenda í
ævintýrum er þeir bjarga Sindí úr
vonda sirkusnum.
HÁSKÓLABÍÓ
Svartur köttur, hvítur köttur kkVz
Nýjasta mynd eins
athyglisverðasta
kvikmyndagerðarmanns samtímans
er galdraseiður um kynlega kvisti,
smákrimma, gæfu, lánleysi og
lífsgleði svo sjóðbullandi að það er
með ólíkindum að Kusturica tekst
að hemja hana á tjaldinu.
Allt um móður mína kkkVz
Almodóvar aftur á beinni braut með
sínar fjölskrúðugu kvenpersónur í
sterkri tragikómedíu úr
völundarhúsi tilfinningalífsins.
Notting Hill kkVz
Öskubuskuafþreying um breska
búðarloku (Hugh Grant) og ameríska
ofurstjörnu (Julia Roberts), sem
verða ástfangin. Skemmtilegur
aukaleikarahópur bjargar
skemmtuninni.
Fucking Ámál kkk
Sériega hrífandi og raunsæ saga af
tveimur stúlkum og hvernig líf
þeirra breytist við fyrstu kynni af
ástinni.
KRINGLUBÍÓ
„Analyze This“ kkk
Fyndin og skemmtileg mafíusaga um
gangster sem leitar hjálpar hjá
sálfræðingi. De Niro í toppformi í
hlutverki sem hann einn getur leikið.
Stjörnustrið - fyrsti hluti:
Ógnvaldurinn kk
Fyrsti hlutinn í nýrri trílógíu
Lucasar veldur nokkrum
vonbrigðum. En þótt sagan sé ekki
mikil í henni og persónusköpunin
veik er fullt af brellum fyrir börnin
og sviðsmyndir fagrar.
Villta, villta vestriðkk
Innihaldsrýrt Hollywood-bruðl um
tvo félaga að bjarga gamla, góða
villta vestrinu. Ekki leiðinleg en
skilur enga innistöðu eftir.
Matrix kkkVz
Bráðskemmtileg og hugmyndarík
framtíðarfantasía, með Keanu
Reeves í „Speed“-formi. Óvenju
útpæld afþreying.
LAUGARÁSBÍÓ
The Thomas Crown Affair kk1h
Vönduð, vel gerð og oft góð
skemmtimynd sem líður fyrir flatan
og útgeislunariausan leik
aðalleikaranna beggja.
Sérsveitin: Endurkoman 'h
Sérlega vond Van Damme-mynd.
Njósnarinn sem negldi mig kk
Nær ekki hæðum fyrri myndarinnar,
treystir of mikið á endurtekið efni,
REGNBOGINN
Stjörnustríð - fyrsti hluti:
Ógnvaldurinn kk
Fyrsti hlutinn í nýrri trílógíu
Lucasar veldur nokkrum
vonbrigðum. En þótt sagan sé ekki
mikil í henni og persónusköpunin
veik er fullt af brellum fyrir börnin
og sviðsmyndir fagrar.
Skrifstofublók kkk
Kemur á óvart, enda óvenju
hressileg og meinfyndin mynd sem
má taka á ýmsa vegu. Þó einkum
sem háðsádeilu á kerfið og almennan
aumingjaskap.
STJÖRNUBÍÓ
Latar hendur k
Gamanunglingahrollvekja sem er
algjör della en gæti skemmt
unglingum sem gera ekki alltof
miklar kröfur.
ROBERT De Niro og Billy
Crystal í óhefðbundinni
mafíumynd Analyze This.