Morgunblaðið - 07.09.1999, Page 62
62 ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
I
l
t
t
í
E
i
!
• t
i
I
i
^eraroo
■0% afslátt,
Músafæla/hátíðnihögnl
Verð áður: 4.890.-
Orygglsskófatnaður: Allar gerðir.
20% afsláttur
BYGGINGAVORUTFI
MÁNAÐARINS
Virkir dagar Laugard. Sunnud. Virklr dagar Laugard.
Breiddin-Verslun 8-18 Sími: 515 4001 Breiddin-Timbursala 8-18 Sími: 515 4100 (Lokað 12-13) Breiddin-Hólf&Gólf 8-18 Sími: 515 4030 Hringbraut 8-18 Sími: 562 9400 10-16 10-14 10-16 10-16 11-15 Hafnarfjörður 8-18 Sími: 555 4411 qY|CIJ Suðurnes 8-18 WmB w w Sfmi. 4217000 Akureyri 8-18 Sími: 461 2780 www.byko.ls 9-13 9-13 10-14
FÓLK í FRÉTTUM
í verinu
LjósmyncJ/Björg Sveinsdóttir
Páll Oskar kallaði flokk strengjaleikara til liðs við sig í einu lagi.
Kafað í Pál Óskar
PÁLL ÓSKAR Hjálmtýsson hefur
verið áberandi í íslensku tónlistarlífi
síðustu ár, en þó er langt síðan hann
sendi síðast frá sér sólóskífu, Seif
kom út 1996. Páll er nú staddur í
hljóðveri í Wales að leggja síðustu
hönd á nýja plötu sem hann vinnur
með nokkrum frammámönnum í ís-
lenskri danstónlist.
Páll hélt utan í vikunni til Wales
að ljúka við upptökur á plötu sinni í
Jacobs hljóðverinu, en þar vann
hann einmitt Seif á sínum tíma.
Hann er með í farteskinu ellefu lög
sem hann hefur samið með nokkrum
helstu danstónlistarsmiðum, Barða
Jóhannssyni, Jóhanni Jóhannssyni,
Herb Legowitz og Bjarka Jónssyni.
Páll segir að þetta sé aðalteymið á
bak við plötuna, en fjölmargir aðrir
leggi honum lið.
Páll segist upphaflega hafa ætlað
sér að gera sjálfstætt framhald af
Seif-plötunni, „en núna finnst mér
eins og ég sé búinn að gera það og
40% til. Undanfarna mánuði hef ég
verið að leitast við að búa til Páls
Óskars „sándið“ og ég held að við sé-
um loksins búnir að finna það. Þetta
verður mesta keyrsluplata sem ég
hef gert, dansplata en þó ekki hörð
dansplata, frekar melódískt
danspopp, en textamir eru ekki
hefðbundnir diskó-textar.“
Páll segir að upptökur hafi gengið
mjög vel, með smá streitukafla undir
það síðasta áður en hann fór út til
Wales, en þar verður hann í þrjár
vikur og lýkur við plötuna með Ken
Thomas. „Ég verð að vinna með
sama liði og vann með mér Seif,
þannig að við þurfum ekki að eyða
tíma í að kynnast. Það skiptir líka
svo miklu að vera úti að vinna, því
umgangurinn í íslensku stúdíói er
svo mikill að það gæti tafið plötuna
um tvær vikur og hollt að komast í
annað umhverfi að hlusta á lögin, því
ég er orðinn samdauna þessum lög-
um í vesturbænum, vinnuumhverfi
sem ég er fæddur og alinn upp í. Það
verður gott að heyra þau í stúdíói
með beljur fyrir utan að bíta gras.“
Þó platan sé ekki tilbúin er Páll bú-
inn að ákveða nafn á hana, „hún heitir
Deep Inside Paul Oscar“, segir hann.
Táningur
selur 6
milljónir
POPPSTJARNAN Britney Spears
er fyrsta táningsstúlkan sem nær
að selja 6 milljónir eintaka af
breiðskífu sinni í Bandaríkjunum.
Spears, sem er 17 ára, náði þess-
um árangri með fyrstu breiðskífu
sinni, Baby One More Time, og
slær þar með met LeAnn Rimes,
sem seldi breiðskífuna Blue í 5
milljónum eintaka. Táningsstjörn-
urnar Brandy og Tiffany hafa selt
breiðskífur sínar í 4 milljónum
eintaka.