Morgunblaðið - 15.10.1999, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.10.1999, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ovissuferð endaði með strandi FARÞEGABÁTINN Náttfara frá Húsavík tók niðri á Pollinum á Akureyri í gærkvöld. Um borð voru 35 farþegar í skemmtisigl- ingu, þar á meðal Halldór Blön- dal, forseti Alþingis. Var þeim engin hætta búin, að sögn skip- stjórans. Halldór sagði í samtali við Morgunblaðið að þetta strand hefði ekki verið nokkur skapaður hlutur. „Þetta varð að óvissuferð,“ sagði Hörður Sigurbjarnarson, skipstjóri á Náttfara, í gær- kvöld. Hann gerir Náttfara út til skemmtisiglinga á Eyjafirði í vetur. Vegna veðurs var að þessu sinni dólað á Pollinum. Skipið fór of sunnarlega og tók niðri á Leirunum. Hafnsögubát- urinn Sleipnir var fenginn til að kippa í Náttfara og tafðist sigl- ingin aðeins um hálftíma. Hörð- ur sagði að gestirnir hefðu hald- ið áfram að borða og skemmta sér og hent gaman að þessari uppákomu enda hefði engin hætta verið á ferðum. Nokkrir farþeganna áttu bók- að flug til Reykjavíkur en þeir misstu af vélinni vegna strands- ins. Morgunblaðið/Einar Már Guðmundsson Farþegar Náttfara bíða eftir komu dráttarbátsins Sleipnis. Hæstiréttur heimilar að ÍR verði látið fjarlægja hús sitt á Tungötu Kaþólska kirkjan hyggst byggja íþróttahús á lóðinni næsta sumar HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá 15. september sl. þess efnis að kaþólska biskupsdæminu á íslandi væri heimilt að fá með beinni að- fararaðgerð íþróttafélag Reykja- víkur (IR) borið út með íþróttahús sitt af lóð við Túngötu. Að sögn Haraldar Blöndal hrl., talsmanns kaþólska biskupsdæmisins, er stefnt að því að hefja framkvæmdir við byggingu nýs íþróttahúss á lóð- inni við Túngötu næsta sumar. „Það verður ekki lagt af stað á morgun með jarðýtur," sagði Har- aldur. „Næsta skref er að semja við ÍR-inga og athuga hvort við ná- um ekki fram friðsamlegri lausn í málinu, nú þegar þetta ágreinings- efni er frá.“ Þorbergur Halldórsson, formað- ur IR, sagði að þar á bæ hefðu menn lítið velt fyrir sér framhald- inu. „Við hlítum að sjálfsögðu hæsta- réttardómi," sagði Þorbergur. „Við kærðum dómsniðurstöðu Héraðs- dóms til þess að komast að því hver væri réttarstaða okkar í málinu en það var aldrei meining okkar að traðka á eða koma í veg fyrir fram- kvæmdir kaþólska safnaðarins enda höfum við alltaf haft mjög góð samskipti við hann.“ Hús með mikla sögu „Það sem liggur íyrir næst er að athuga hvemig staðið verður að flutningi eða niðurrifi hússins. Okkur þætti það reyndar ákaflega súrt ef húsið yrði rifið því það er fullt af sögu og hefur að geyma margar minningur úr íþróttasögu Reykjavíkur. Síðan má heldur ekki gleyma því að þetta er fyrsta kaþ- ólska kirkjan sem reist er eftir siðaskiptin.“ Kaþólska biskupsdæmið leigði ÍR lóð undir íþróttahús árið 1930. Rann leigusamningurinn út árið 1964 og bar félaginu samkvæmt honum að fara með hús sitt af lóð- inni nema leigusamningurinn yrði framlengdur. Ekki var gerður nýr leigusamningur, en hús IR var áfram á lóðinni. I máhnu krafðist kaþólska biskupsdæmið heimildar til að fá ÍR borið út af lóðinni með íþróttahúsið. Talið var með vísan til laga nr. 46 frá árinu 1905 að ÍR hefði ekki unnið eignarrétt á lóðinni fyrir hefð, þar sem félagið hefði viður- kennt, eftir að leigusamningur rann út, að það nyti einungis af- notaréttar af lóðinni. Þá féllst dóm- urinn ekki á sjónarmið IR um að uppsagnarfrestur til að fara á brott með húsið hefði verið of skammur, en félaginu var sagt upp afnotum af lóðinni 30. mars í fyrra. Dómur- inn féllst heldur ekki á að brottnám hússins bryti í bága við þjóðminja- lög. 150 milljóna króna tap hjá Loðskinni hf. á Sauðárkróki Óskað gjaldþrotaskipta STJÓRN Loðskinns hf. á Sauðár- króki óskaði í gær eftir gjaldþrota- skiptum fyrir félagið. Samanlagður halli af rekstri fyrirtækisins síðustu tvö rekstrarár nemur hátt í 300 millj- ónum kr., meðal annars vegna niður- færslu birgða vegna verðlækkunar. Loðskinn hf. rekur sútunarverk- smiðju á Sauðárkróki og þar voru um 80 starfsmenn í byijun síðasta árs. Félagið hefur átt í miklum rekstrar- erfiðleikum. Þannig tapaði það 140 milljónum kr. á árinu 1997, þar af voru 90 milljónir vegna niðurfærslu á birgðum. Á síðasta ári var hlutafé fé- lagsins fært niður um 90% til að mæta tapinu og sveitarfélagið Skaga- fjörður, Búnaðai’bankinn, íslenska umboðssalan hf., Kaupfélag Skag- firðinga og aðrir smærri aðilar lögðu fram 130 milljóna króna nýtt hlutafé. Áframhaldandi erfiðleikar Erfiðleikar skinnaiðnaðarins hafa haldið áfram, ekki ræst úr með sölu og verð haldist lágt. Tap síðasta árs nam um 150 milljónum kr. og þar af voru um 100 milJjónir kr. vegna nið- urfærslu birgða. Að sögn Bjarna R. Brynjólfssonar, formanns stjómar, hefur reksturinn verið dreginn sam- an á undanfömum mánuðum enda fyrirtækið verið rekið með beinum framlögum sveitarfélagsins og Bún- aðarbankans. Starfsmenn era nú átta og vinna eingöngu við að taka á móti og salta gærur. Ekki hefur tekist að finna leiðir til að halda rekstrinum áfram og ákvað stjórnin að óska eftir gjaldþrotaskiptum. Ekki hafði Bjarni handbærar töl- ur um skuldir fyrirtækisins. Margir halda til rjúpna- veiða í dag RJÚPNAVEIÐITÍMABILIÐ hefst í dag. Mikið hefur verið að gera hjá veiðistjóraembætt- inu undanfarna daga við útgáfu veiðikorta og býst veiðistjóri við að margir haldi til rjúpna í dag og um helgina. Aki Armann Jónsson veiði- stjóri segir að niðursveifla sé hafin í ijúpnastofninum. Rjúp- um fækkar norðanlands og sunnanlands annað árið í niður- sveiflunni. Hins vegar fjölgar ijúpu heldur austanlands. Sveiflumar ganga venjulega yf- ir á tíu áram og miðað við fyrri reynslu ætti stofninn að vera kominn í lágmark árið 2003 en eftir það yrðu nokkur góð íjúpnaár. 5.200 rjúpnaskyttur Um 16 þúsund menn fá út- gefið veiðikort og þar af skila um 5.200 skýrslum um veiðar á rjúpu. Úmhverfisráðherra ákvað sem kunnugt er að banna ijúpnaveiðar í nágrenni höfuð- borgarsvæðisins, í landi Mos- fellsbæjar, Bláfjöllum og Heið- mörk, en þó ekki á Hengils- svæðinu. Skartgrip- um stolið BROTIST var inn í íbúðarhús í Garðabæ í gærdag og stolið skartgripum. Verðmætið er talið nokkur hundrað þúsund krónur. Innbrotið átti sér stað á milli klukkan níu og tvö í gærdag. Á meðan íbúar hússins voru að heiman notuðu þjófarnir tæki- færið og fóra inn um glugga. Þjófamir ollu engum skemmd- um en höfðu á brott með sér skartgripi og andvirðið er talið nokkur hundrað þúsund krón- ur. Málið er í rannsókn og segir lögreglan í Hafnaríirði að svo virðist sem þjófnaðurinn hafi verið skipulagður og því líklega um atvinnumenn að ræða. Lögreglan hvetur fólk til að vera á varðbergi og gæta vel að læsingum dyi-a og glugga. Ekiðá pósthús BIFREIÐ var ekið á pósthúsið á Hvolsvelli í fyrrinótt. Að sögn lögreglu er ökumaðurinn, sem var einn í bifreiðinni og slasaðist ekkert, granaður um ölvun við akstur. Að sögn lögreglu hefur bif- reiðinni verið ekið á talsverð- um hraða á pósthúsið því hún skemmdist mikið og var dregin í burtu. Klæðning á pósthúsinu isnuR ÁFÖSTUDÖGUM Á FÖSTUDÖGUM i * Nf spnding df ‘111 sloralæsileguin JLIT tm*0#0num Rúnar Kristinsson bestur í Noregi/C1 Viðræður Guðjóns og KSÍ í biðstöðu/Ci
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.