Morgunblaðið - 15.10.1999, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ítarleg skýrsla um umhverfísáhrif álvers á Austurlandi hefur verið birt almenningi
Álverið, sem fyrirhugað er að byggja í Reyðarfírði, verður í gulgrænum lit. í fullbyggðu álveri verður lengd
kerskálanna um 1.000 metrar.
Alver hefur jákvæð
áhrif á atvinnulíf og
byggðaþróun
Morgunblaðið/Ásdís
Skýrsluna kynntu Sigurður Arnalds verkfræðingur, Guðmundur
Bjarnason bæjarstjóri og Magnús Ásgeirsson verkefnisstjóri.
MEÐ birtingu skýrslu
um áhrif álvers í Reyð-
arfirði á umhverfi er
stigið fyrsta skref í
ferli sem kallað er lögformlegt um-
hverfismat og byggist á lögum sem
Alþingi samþykkti 1993. Skýrslan
fer núna í almenna kynningu og þá
gefst almenningi færi á að gera við
hana athugasemdir. Skipulags-
stjóri mun kynna sér skýrsluna og
óska eftir upplýsingum og álits-
gerðum frá sérfræðingum um efni
hennar. Þegar hann hefur metið
skýrsluna og athugasemdir við
hana kveður hann upp úrskurð um
hvort leyfa á framkvæmdina og þá
með hvaða skilyrðum. Hann getur
þó áður ákveðið að óska eftir
frekara mati á einstökum þáttum
skýrslunnar áður en hann kveður
upp endanlegan úrskurð. Þann úr-
skurð má kæra tO umhverfisráð-
herra.
Skýrslan, sem kynnt var á Reyð-
arfírði í gær, tekur til fjölmargra
þátta. í henni er fjallað um sjálfa
framkvæmdina og áhrif hennar á
mannafla, umferð, samfélag og um-
hverfí. Fjallað er um mengun frá
álverinu eftir að það hefur hafið
starfsemi og áhrif mengunar á
gróður, dýralíf, lífríki sjávar og
fjöru. Fjallað er í skýrslunni um
áhrif á samfélag, atvinnulíf, breyt-
ingar á íbúafjölda og á þjóðarhag.
Fyrsta áfanga lokið 2003
Um 20 ár eru síðan farið var að
kanna grundvöll fyrir byggingu
stóriðju í Reyðarfirði. Margvísleg-
ar rannsóknir hafa verið gerðar á
svæðinu í gegn um árin og raunar
fullyrti Guðmundur Bjamason,
bæjarstjóri í Fjarðabyggð, að eng-
in stóriðjulóð á íslandi hafi verið
rannsökuð eins mikið og lóðin und-
ir fyrirhugað álver í Reyðarfirði.
Við gerð frummatsskýrslunnar
vora notaðar upplýsingar og rann-
sóknir sem unnar voru þegar hug-
myndir voru uppi um byggingu
kísilmálmverksmiðju á Reyðarfírði
á síðasta áratug. Hluti af þessum
rannsóknum hefur verið endurtek-
inn og borinn saman við eldri nið-
urstöður. Skýrslan er því mikO að
vöxtum, enda má segja að mikið sé
í húfí fyrir þá sem standa ætla að
byggingu álversins því ef skipu-
lagsstjóri telur skorta á rannsóknir
eða upplýsingar getur hann óskað
eftir frekara mati sem mun tefja
allt málið.
Skýrslan fjallar um umhverfisá-
hrif 480 þúsund tonna álvers, sem
byggt verði í þremur áföngum. Sig-
urður Amalds, verkfræðingur hjá
verkfræðistofunni Hönnun hf., seg-
ir að taka þurfí sjálfstæðar ákvarð-
anir um hvort farið verði út í alla
þrjá áfangana, en í fyrsta áfanga
verði farið út í 120 þúsund tonna
álver, sem er áætlað að kosti 30
milljarða. Aður en að hægt sé að
taka ákvörðun um þetta mikla fjár-
festingu verði eigendur álversins
hins vegar að hafa í höndum upp-
lýsingar um hvort umhverfið þoli
stærra álver, en útreikningar sýni
að hagkvæmt sé að stækka álverið
upp í 480 þúsund tonn.
Áformað er að lokið verði við
fyrsta áfanga álvers á síðari hluta
ársins 2003. Ársframleiðsla þessa
áfanga verður 120 þúsund tonn og
lengd kerskálans um 600 metrar. I
næsta áfanga er áformað að
byggja 1.000 metra langan
kerskála sem getur framleitt 240
þúsund tonn. Áætlað er að fram-
leiðsla í honum geti hafist 2008-
2012. Áætlanir gera ráð fyrir að
lokið verði við þriðja áfanga 2011-
2015 og með honum verði bætt 600
metrum við fyrsta kerskáíann.
Gangi þessar áætlanir eftir yrði
heildarframleiðsla álversins 480
þúsund tonn. Samtals myndu
framkvæmdir við uppbygginguna
standa í 15 ár.
Gert er ráð fyrir að við uppbygg-
ingu fyrsta áfanga álversins starfi
að meðaltali 500 manns og fari
mest upp í 850. Eru þá ekki taldir
Álver í Reyðarfirði mun
hafa jákvæð áhrif á at-
vinnulíf og byggðaþróun
á Austurlandi. Þetta er
meginniðurstaða skýrslu
þar sem lagt er mat
á umhverfísáhrif álvers
í Reyðarfírði. Egill Qiafs-
son kynnti sér skýrsluna,
en í henni er komist að
þeirri niðurstöðu að um-
hverfísáhrif álvers séu
ekki þess eðlis að þau
mæli gegn fyrirhugaðri
framkvæmd.
með þeir sem starfa við uppbygg-
ingu hafnar, lagningu háspennu-
línu eða byggingar virkjunar.
Þriðji stærsti vinnu-
staður á Austurlandi
I skýrslunni segir að 270 ársverk
muni skapast í álverinu þegar
fyrsta áfanga er lokið, en verði 720
við lok þriðja áfanga. Guðmundur
Bjamason bæjarstjóri sagði að oft
heyrðist sú gagnrýni að samfélögin
fyrir austan gætu ekki ráðið við
svona stóra framkvæmd. Hann
sagði að þó 120 þúsund tonna álver
væri vissulega stór vinnustaður
yrði álver af þessari stærð þó að-
eins þriðji stærsti vinnustaður á
Austurlandi. Bæði Síldarvinnslan
og Hraðfrystihús Eskifjarðar væru
fjölmennari vinnustaðir með sam-
tals 630 menn í vinnu. Guðmundur
benti á að ef byggt yrði 480 þúsund
tonna álver myndi íbúum á mið-
Austurlandi fjölga um 2.500.
Ráðgjafafyrirtækið Nýsir hf.
vann sérstaka skýrslu um félagsleg
áhrif álvers í Reyðarfirði. Þar er
m.a. reynt að meta þörf álversins
fyrir vinnuafl og hvað mörg störf
verði til í tengslum við það. Enn-
fremur er sett fram mat á því
hvaðan þetta fólk komi. í skýrsl-
unni er bent á þá staðreynd að árið
1990 bjuggu rúmlega 800 fleiri íbú-
ar á atvinnusvæðinu en búa þar í
dag. Hægt sé að taka við þeirri
íbúafjölgun án þess að fjölga fólki í
þjónustustörfum sem neinu nemi.
Vegna álversins muni ýmis lág-
launastörf og árstíðabundin störf
leggjast af því ekki muni fást fólk
til að sinna þeim.
Dregnr til sín vinnuafl
frá öðrum fyrirtækjum
Magnús Ásgeirsson, verkefnis-
stjóri STAR, Staðarvalsnefndar
um iðnaðarsvæði í Reyðarfirði,
sagði aðspurður að álverið myndi
vissulega keppa um vinnuafl við
aðra atvinnustarfsemi á Austur-
landi. Afleiðingarnar yrðu væntan-
lega þær að laun myndu almennt
hækka á svæðinu. Það væri hins
vegar engan veginn hægt að líta á
það sem neikvæðar afleiðingar.
Forsvarsmenn fyrirtækja á Aust-
urlandi væru almennt þeirrar
skoðunar að langtímaáhrif álvers
yrðu jákvæð fyrir atvinnulíf á
Austurlandi.
I skýrslunni segir að bændur og
iðnaðarmenn muni eflaust sækjast
eftir að fá störf í álverinu. Búast
mætti við að brottfluttir Austfirð-
ingar muni í einhverjum mæli snúa
til baka. Þá er bent á að 50-60 ný
störf þurfi að verða til á svæðinu
árlega ef ungt fólk, sem er að ljúka
skólagöngu, eigi að fá störf á Aust-
urlandi. Niðurstaða skýrsluhöf-
unda er að mannaflaþörf 120 þús-
und tonna álvers verði að stærst-
um hluta fullnægt á svæðinu. Þó
þurfi 50-60 brottfluttir Austfirðing-
ar að snúa heim og 50-60 nýir íbúar
að flytjast til Austfjarða frá öðrum
landshlutum. í þessum tölum er
eingöngu átt við starfsmenn ál-
versins. Vegna umsvifa álversins
verði til 200-250 afleidd störf og
samtals muni fyrsti áfangi álvers
leiða til 600-900 manna íbúafjölg-
unar á Austurlandi.
Gert ráð fyrir vothreinsi-
búnaði í öðrum áfanga
ítarlegar veðurfarsmælingar
hafa verið gerðar í Reyðarfirði í
mörg ár. Niðurstöður þeirra eru að
tiltölulega staðviðrasamt sé í Reyð-
arfirði og ríkjandi vindáttir séu út
og inn fjörðinn. Norsk Institutt for
Luftforskning var fengin til að
gera loftdreifingarspá til að hægt
væri að meta dreifingu flúors, ryks
og brennisteinstvíildis frá álverinu.
Auk þess var Rannsóknarstofnun
landbúnaðarins beðin um að rann-
saka áhrif mengunar á gróður.
Niðurstöður rannsóknanna eru
þær að útblástur flúors og brenni-
steinstvíildis frá 120 þúsund tonna
álveri sé fyrir neðan viðmiðunar-
gildi fyrir fólk. Áhrifa brennistein-
stvíildis geti gætt á viðkvæman
gróður í allt að 3 km í vestur og
áhrifa flúors geti gætt á viðkvæm-
an gróður í allt að 1 km frá verk-
smiðjusvæðinu.
Búast megi við að gróðurfar í
næsta nágrenni álversins breytist
á þann hátt að viðkvæmari gróður
hörfi fyrir þolnari gróðri. Áhrif á
dýralíf eru hins vegar talin vera lít-
fl. Engar sjaldgæfar dýrategundir
séu á svæðinu og landbúnaður
mjög lítill. Hreindýr hafi hins veg-
ar sést á svæðinu og í skýrslunni
kemur fram að vænta megi skerts
fæðuframboðs fyrir þau yfir vetr-
artímann. Lagt er til að ítarlegar
rannsóknir verði gerðar á gróður-
fari og dýralífi á svæðinu tfl sam-
anburðar eftir að framleiðsla áls er
hafin í verksmiðjunni. Ennfremur
er lagt til að umhverfið verði kerf-
isbundið vaktað eftir að framleiðsla
hefst.
Gert er ráð fyrir að í álverinu
verði notast við nýjustu og bestu
gerð af þurrhreinsivirki, en Sigurð-
ur Araalds segir að það hreinsi
99,7% af öllu flúori sem komi frá
kerunum. Hann segir að það sé
hins vegar niðurstaða norsku sér-
fræðinganna að magn brennistein-
stvíildis frá 120 þúsund tonna ál-
veri sé svo lítið að það þjóni engum
tflgangi að reisa við það vothreinsi-
búnað, en sá búnaður leysir
brennisteinstvífldið upp í sjó. Verði
aftur á móti farið út í að stækka ál-
verið upp í 360 þúsund tonn fari
magn brennisteinstvíildis upp fyrir
viðmiðunargfldi og því sé nauðsyn-
legt að reisa vothreinsibúnað sem
komi þá til viðbótar við þurr-
hreinsivirkið. Sigurður bendir á að
ekkert álver á Islandi sé með vot-
hreinsibúnað. Álverið í Reyðarfirði
verði því best búna álver á Islandi
hvað varðar mengunarvarnir.
Hann bendir ennfremur á að
brennisteinstvíildið sem komi frá
álverinu sé samskonar mengun og
verði tfl við brennslu olíu. Þetta sé
ekki hættulegt efni nema þegar
það verði til í miklu magni á af-
mörkuðu svæði.
Utflutningur eykst
um 16 milljarða
í frummatsskýrslunni segir að
bygging álvers á Austurlandi sé í
samræmi við þá stefnu ríkisstjórn-
arinnar að draga úr vægi sjávarút-
vegs í efnahagslífi landsmanna með
því að efla aðrar atvinnugreinar.
Með tflkomu fyrsta áfanga álvers á
Austurlandi muni útflutningsverð-
mæti aukast um 16 milljarða og
vægi stóriðju í heildarútflutningi
fara úr 16% í 24%. Erfitt sé að
meta þjóðhagsleg áhrif fram-
kvæmdanna, sem eiga sér stað á
löngum tíma. En þó sé ljóst að
beinar launagreiðslur fullbyggðs
álvers verði um 2 milljarðar. Að-
keypt þjónusta 480 þúsund tonna
álvers verði árlega u.þ.b. 3,7 mfllj-
arðar og þar af megi áætla að
launakostnaður nemi 1,1-1,3 mfllj-
örðum króna.
Það er eignarhaldsfélagið Hraun
sem lét gera skýrsluna, en hana
unnu verkfræðistofurnar Hönnun
hf., Verkfræðistofa Sigurðar
Thoroddsen hf. og verkfræðistofan
Hönnun og ráðgjöf.
Á næstunni er von á skýrslu um
umhverfisáhrif háspennulínu frá
Fljótsdal niður í Reyðarfjörð. Enn-
fremur er von á sérstakri skýrslu
um mat á umhverfisáhrifum nýrrar
hafnar í Reyðarfirði. Þá er ótalin
skýrsla um umhverfisáhrif Fljóts-
dalsvirkjunar, en reiknað er með
að hún verði kynnt fyrir mánaða-
mót.