Morgunblaðið - 15.10.1999, Side 26
c>
26 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Tveir starfsmenn Sameinuðu
þjóðanna myrtir í Búrundi
Skæruliðasamtök
kenna hernum um
Nairobi. Reuters.
STÆRSTU skæruliðasamtökin í
Búrundi neituðu því í gær, að þau
bæru ábyrgð á morði tveggja
starfsmanna Sameinuðu þjóðanna.
Sögðu þau, að samtök innan stjórn-
arhersins hefðu staðið að ódæðinu.
Hefur öllu hjálparstarfi SÞ í land-
inu verið hætt um stundarsakir.
Mennirnir tveir, Chilemaður og
Hollendingur, voru skotnir sl.
þriðjudag er þeir komu í Muzye-
flóttamannabúðimar skammt frá
bænum Rutana í Suður-Búrundi og
sagt er, að sjö óbreyttir borgarar
og fjórir hermenn hafi einnig látið
lífið í skotárásinni. FuUtrúar SÞ í
Nairobi í Kenía og ríkisstjórnin í
Búrundi kenna skæmliðum hútúa
um verknaðinn en Jerome Ndiho,
talsmaður þeirra, sagði í gær, að
útilokað væri, að skæruliðar hefðu
verið að verki. Sagði hann, að
ílóttamannabúðanna eða fangabúð-
anna eins og hann kallaði þær væri
mjög vel gætt.
Hútúfólki smalað saman
„Fangabúðirnar í Muzye em
umkringdar tútsí-hermönnum og
þeir eru líka margir í búðunum
sjálfum," sagði Ndiho í viðtali við
fréttamann Reuters.
Herinn í Búrandi, sem er skipað-
ur tútsímönnum, smalaði saman
hundruðum þúsunda manna, aðal-
lega hútúmönnum, í síðasta mánuði
og kom þeim fyrir í búðum eins og í
Muzye. Gerði hann það til að hútú-
fólkið gæti ekki stutt ættbræður
sína, skæruliðana.
Ndiho sagði, að hópur innan
stjómarhersins, sem væri andvíg-
ur Pierre Buyoya, forseta landsins,
hefði staðið að morðunum en hann
vildi hrekja burt alla erlenda eftir-
litsmenn til að hann gæti „drepið
hútúmenn að vild“.
Talsmaður stjómarhersins vís-
aði þessu á bug í gær og sagði, að í
búðunum hefðu margir orðið vitni
að árásinni og borið kennsl á árás-
armennina.
Sergio Vieira de Mello, háttsett-
ur yfirmaður hjá SÞ, kom til Búr-
undi í gær til að kynna sér þetta
mál. Sagði hann, að á næstu dögum
yrði tekin ákvörðun um framhald
hjálparstarfsins í landinu.
Heimurinn með
kattaraugum
Los Angeles. Daily TelegT'aph.
VÍSINDAMENN geta nú virt
fyrir sér heiminn frá sjónarhóli
kattarins, þ.e.a.s. þegar búið er
tengja heila hans við tölvu.
Það eru vísindamenn við
Kaliforníu-háskóla, sem unnu
að þessu, en þeir tengdu raf-
skaut við 177 frumur í sjónstöð
kattarheilans. Þegar þeir
horfðu á tölvuna sáu þeir frem-
ur ógreinilega mynd af manni
líða yíír skjáinn. Talið er víst,
að sjón kattarins sé miklu betri
en tölvuskjárinn sýndi og því sé
nauðsynlegt að tengja rafskaut-
in við miklu fleiri frumur en áð-
ur sagði.
Vonast er til, að þessi árang-
ur geti orðið upphafið að því,
að gervilimir verði tengdir
beint við heilann og jafnvel,
einhvern tíma í framtíðinni, að
menn geti tengt sinn eigin
heila gerviheila og þá líklega í
þeim tilgangi að auka sér
greind.
Reuters
Kólombískir lögreglumenn leiða burt eiturlyfjasmyglara í Bogota eftir aðgerðirnar í fyrradag.
Eiturlyfjahringur upp-
rættur í Kólombíu
Talinn hafa smyglað allt að 30 tonnum af kókaíni
til Bandaríkjanna og Evrópu mánaðarlega
Bogota. Reuters.
YFIRVOLD í Kólombíu og Banda-
ríkjunum upprættu kólombískan
eiturlyfjahring í fyrradag en talið
er, að hann hafi smyglað allt að 30
tonnum af kókaíni til Bandaríkj-
anna og Evrópu mánáðarlega. Var
31 maður handtekinn og þar á með-
al tveir svokallaðir eiturlyfjakóngar.
Látið var til skarar skríða gegn
hringnum í rauðabýtið í fyrradag
og meðal hinna handteknu em þeir
Fabio Oehoa, æðsti maður í
Medellin-eiturlyfjahringnum, og
Alejandro Bemal, sem er sagður
umsvifameiri en nokkur annar í
eiturlyfjasmygli og peningaþvætti.
Tóku meira en 200 lögreglumenn
og útsendarar bandarísku eitur-
lyfjalögreglunnar þátt í aðgerðinni
og var ráðist inn í 76 hús í borgun-
um Medellin, Bogota og Cali. Þeir,
sem handteknir voru, em allir eft-
irlýstir í Bandaríkjunum og Janet
Reno, dómsmálaráðherra Banda-
ríkjanna, segist viss um, að þeir
verði framseldir.
15 til 53 milljarðar kr.
mánaðarlega
Sagj; er, að eiturlyfjasalarnir hafi
haft samvinnu við glæpasamtök í
Ekvador og Mexíkó en þaðan var
eitrið sent til Bandaríkjanna og
Evrópu falið innan um frysta
ávexti. Talið er, að andvirði þess
mánaðarlega hafi verið á bilinu 15
til 53 milljarðar ísl. kr.
Ekki er vitað hvernig yfirvöld
komust að því, að hringurinn hefði
smyglað allt að 30 tonnum af kóka-
íni mánaðarlega en áætlað er, að
kókaínframleiðslan í Kólombíu sé
um 165 tonn á ári. Kólombísku eit-
urlyfjahringarnir hafa hins vegar
einnig haft hönd í bagga með kóka-
íni frá Perú og Bólivíu og sagt er,
að um hendur þeirra hafi farið 80%
heimsframleiðslunnar.
Klima kanzlara falið sljórnarmyndunarumboðið í Austurríki
Minnihlutastj órn
eða nýjar kosningar?
Engin fordæmi fyrir minnihlutastjórn í Austurríki
Vín. Reuters.
THOMAS Klestil, for-
seti Austurríkis, fól í
gær Viktor Klima,
kanzlara og leiðtoga
Jafnaðannannaflokks-
ins (SPÖ), umboð til að
mynda nýja ríkis-
stjórn, þrátt fyrir að
ljóst sé að hann eigi
litla möguleika á að
takast það eftir að for-
ysta Þjóðarflokksins
(ÖVP), sem setið hefur
í stjórn með jafnaðar-
mönnum undanfarin 13
ár, lýsti því yfir að
hann myndi velja að
vera í stjórnarand-
stöðu.
Klima var falið stjórnarmyndun-
ammboðið sem leiðtoga stærsta
þingflokksins. I kosningunum 3.
október sl. hlaut SPÖ 65 þingmenn
af 183, sem sæti eiga á austurríska
þinginu. Þjóðarflokkurinn hlaut 52
þingmenn, nákvæmlega jafnmarga
og Frelsisflokkur hægrimannsins
Jörgs Haiders, en Wolfgang Schús-
sel, utanríkisráðherra
og leiðtogi ÖVP, sagð-
ist myndu standa við
fyrirheit sitt frá því
fyrir kosningarnar að
setjast frekar á stjóm-
arandstöðubekkinn ef
flokkurinn héldi ekki
stöðu sinni sem annar
stærsti flokkur lands-
ins. Frelsisflokkurinn
hlaut 415 fleiri atkvæði
en Þjóðarflokkurinn.
Græningjar hlutu 14
þingmenn kjörna.
Klima hefur útilokað
stjórnarsamstarf við
Frelsisflokk Haiders.
Kanzlarinn, sem áfram
fer fyrir bráðabirgðastjórn unz ný
hefur verið mynduð, tjáði blaða-
mönnum eftir fundinn með forset-
anum að hann vissi að fyrir sér lægi
snúið verkefni, en hann vonaðist til
að geta átt viðræður sem fyrst við
talsmenn allra hinna þriggja flokk-
anna, sem ættu fulltrúa á þingi.
A miðvikudag gaf Klima í skjm
að hann myndi frekar freista þess
að mynda minnihlutastjórn - sem
engin hefð er fyrir í Austurríki - en
að láta kjósa á ný, takist honum
ekki að mynda starfhæfa meiri-
hlutastjórn.
Haider segist sjá fleiri
möguleika í stöðunni
Jörg Haider sagðist geta hugsað
sér að mistakist Klima stjómar-
myndun kynni annar maður að taka
við leiðtogahlutverkinu í Jafnaðar-
mannaflokknum, sem ekki væri
bundinn af loforði Klimas frá því
fyrir kosningar um að taka ekki
undir neinum kringumstæðum upp
samstarf við Frelsisflokkinn. A
blaðamannafundi í París minnti
Haider einnig á, að í Þjóðarflokkn-
um hefði enginn, hvorki fyrir né eft-
ir kosningar, útilokað samstarf við
Frelsisflokkinn. Að fljótlega yrði
efnt til nýrra kosninga taldi Haider
ólíklegt, þar sem „valdaflokkarnir"
SPÖ og ÖVP óttuðust að slíkt
myndi reka enn fleiri af þeirra kjós-
endum yfir til Frelsisflokksins.
Viktor
Klima
Philip Morris opnar nýja heimasíðu
Viðurkennir
loksins skað-
semi reykinga
New York, London. Reuters.
PHILIP Morris, stærsti tóbaks-
vöraframleiðandi í Bandaríkjun-
um, hefur viðurkennt í fyrsta
sinn, að reykingar geti valdið
ýmsum banvænum sjúkdómum,
þar á meðal lungnakrabba.
Bresk samtök, sem berjast gegn
reykingum, segja, að engin
ástæða sé til að hrósa fyrirtæk-
inu fyrir játninguna því að þetta
hafi allir vitað í 30 ár.
Á nýrri heimasíðu Philip
Morris, sem var opnuð með það
fyrir augum að „eiga einlægari
samskipti við almenning“, segir,
að læknar og vísindamenn séu
flestir á einu máli um, að reyk-
ingar geti valdið lungnakrabba,
hjartasjúkdómum, lungna-
þembu og öðmm alvarlegum
sjúkdómum. Þá segir, að reyk-
ingar séu ávanabindandi í al-
mennum skilningi þess orðs.
Talsmenn fyrirtækisins hafa
til þessa hafnað þessu tvennu,
að reykingar séu óhollar og
ávanabindandi, en nú ætla þeir
að venda sínu kvæði í kross og
hætta að þræta fyrir það, sem
þeir og allir aðrir vita. Jafn-
framt verður hafin mikil kynn-
ing á framlagi fyrirtækisins til
ýmissa góðra mála. Em þeir
flokkar fjórir, baráttan gegn
hungri; aðstoð vegna náttúm-
hamfara; minni aðgangur ungs
fólks að tóbaki og heimilisof-
beldi. Verður varið til þessara
mála 7,3 milljörðum ísl. kr. á ári.
Gangist við ábyrgðinni
Amanda Sandford, sem
starfar fyrir ASH, bresk sam-
tök, sem berjast gegn reyking-
um, segir, að viðurkenning Phil-
ip Morris sé staðfesting á því, að
fyrirtækið hafi áratugum saman
reynt að þræta fyrir augljós
sannindi. Hins vegar vantaði al-
veg, að fyrirtækið viðurkenndi,
að það bæri nokkra ábyrgð á
fíkninni, sjúkdómunum og
dauðsföllunum, sem rekja mætti
til tóbaksins.