Morgunblaðið - 15.10.1999, Síða 46

Morgunblaðið - 15.10.1999, Síða 46
46 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + Haraldur Z. Guðmundsson fæddist á Grófliól- um í Arnarfirði 20. april 1910. Hann lést á Hrafnistu hinn 8. október síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Jónína Jónsdóttir og Guð- mundur Stefánsson. Systkini Haraldar voru Jón Stefán, f. ' 10.10. 1904; Bogey Ragnheiður, f. 9.12. 1905; Egill Ólafur, f. 24.3. 1908; Guð- mundur Richard, f. 16.1. 1912; Gunnar, f. 24.6. 1913; Sigurður Hallgrímur, f. 27.1. 1915; Krist- inn Július, f. 27.7. 1920, auk þess átti Guðmundur Indriða, f. 19.12. 1901 og Friðriku, f. 31.3. 1904. Systkinin era nú öll látin. Þegar Haraldur var eins og hálfs árs að aldri var hann sendur í fóstur að Syðri- Reykjum í Miðfirði og dvaldi þar til 17 ára aldurs. Fóstur- foreldrar hans voru Jónas Jónsson og Anna Kristófersdótt- ir. _ Árið 1940 kvæntist Haraldur Nönnu Jónsdóttur, f. 17.12. 1911, dóttur Jóns J. Skúlasonar og Salóme Jóhannesdótt- ur frá Söndum í Miðfirði. Nanna lést 20. október 1972. Dætur þeirra eru: 1) Jóhanna Ingibjörg, kaupkona, f. 20.9. 1941, gift Víði Þorgrímssyni kaupmanni, f. 2.3. 1941. Börn þeirra eru: a) Harald- ur Þór, kerfisfræðingur, kvæntur Huldu Hákonardóttur og eiga þau þrjú börn. b) Haukur, mat- reiðslumeistari, í sambúð með Unni Magnúsdóttur og á hann þrjú börn. c) Ingibjörg Margrét, húsmóðir, gift Jóni Magnússyni og eiga þau þijár dætur, d) Bj ö rn , n u d d fræð i ngu r, í sambúð með Önnu Lindu Guðmunds- dóttur og á hann einn son. 2) Anna Jóna, f. 27.7. 1949, banka- fulltrúi, gift Ævari Snorrasyni, f. 24.11. 1948, rafverktaka, og eiga þau tvær dætur: a) Nanna, nemi, og b) Arna, nemi. Haraldur stundaði verslunar- störf mestan hluta ævi sinnar, hann var verslunarstjóri hjá Kaupfélagi Hafnfirðinga, síðan í verslun Náttúrulækningafé- lagsins þar til hann opnaði eigin verslun, Hunangsbúðina í Dom- us Medica. Eftir að hann lét af störfum gat hann helgað sig fjölmörgum áhugamálum sínum og hafði hann sérstaka ánægju af garðyrkju og útiveru. Utför Haraldar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. HARALDUR Z. GUÐMUNDSSON Með örfáum orðum langar mig að minnast vinar míns og tengda- föður Haraldar Z. Guðmundsson- ar. Eg kynntist honum snemma árs 1970 þegar ég fór að venja Komur mínar á Kleppsveg 48, en ástæða þess var jarphærð og brúneygð heimasæta, dóttir þeirra Nönnu og Haraldar. Haraldur átti sér fjölmörg áhugamál, enda var hann sjaldan aðgerðalaus. Hann batt inn bækur, skar í tré, horn og hvaltennur. Til vitnis um hagleik hans eru margir gripir hans til prýðis á heimilum fjölskyldunnar. En stærsta áhugamál hans var garð- og trjárækt og er fram liðu stundir keyptum við í sameiningu sumarbústaðaland úr landi Helga- dals í Mosfellssveit. Þar áttum við ófáar ánægjustundir saman, en hann vakti áhuga minn á jarðrækt og var hann óþrjótandi fróðleiks- brunnur um þau mál. Góður og skemmtilegur ferðafélagi var hann og sama hvar á landinu við vorum stödd, alltaf þekkti Harald- ur til bæjarnafna og héraðs. Margar aðrar minningar á ég til um þann sem ég með sárum sökn- uði kveð í dag. Far þú í friði minn góði vinur. Ævar Snorrason. Kæri afi, það er erfitt að setjast hiður og skrifa um minningar sem ná yfir næstum fjörutíu ár. í gegn- um þig fékk ég innsýn í líf fólks fyrr á öldinni en þú varst alinn upp í torfbæ og gekkst í gegnum ótrú- legar þjóðfélagsbreytingar á ævi- skeiði þínu. A ungdómsárum þín- um þurfti ungt og auralítið fólk að ganga ef það þurfti að bregða sér af bæ jafnvel þótt um langan veg væri að fara. Það var alltaf gaman að heyra þig segja sögur frá þess- um tíma. Það var sterkt og gott samband milli okkar enda ég skírður í höfuð- ið á þér og fyrsta barnabarnið, sennilega er einfaldast að segja að við höfum alltaf verið góðir vinir. Þegar ég horfi til baka finnst mér ótrúlegt hvernig þú nenntir að taka mig með þér upp í sumarbústað, helgi eftir helgi, þótt ég stæði varla fram úr hnefa fyrstu árin. Það var ómetanlegt fyrir mig sem dreng að eiga afa sem alltaf hafði nógan tíma og lá aldrei neitt á. Fyrstu minningarnar um okkur eru frá því er ég sat í fangi þínu við eldhús- gluggann á Kleppsveginum og við skoðuðum útsýnið saman, sundin blá og Viðey. Alltaf var auðvelt að plata þig til að lesa barnabækur og það var ekki fyrr en nýlega sem þú játaðir að hafa verið orðin ansi þreyttur á Dagfinni dýralækni og félögum. Það var gaman að fylgjast með öllum áhugamálunum sem þú tókst upp við eftirlaunaaldurinn og hversu virkan þátt þú tókst í tóm- stundastarfi aldraðra en eftir þig liggja margir góðir og fallegir hlut- ir. En kæri afi, þú varst gæddur öll- um þeim kostum sem góður afi þarf að búa yfir og mér þykir verst að eiga aldrei aftur eftir að heyra þig segja „ert þetta þú nafni minn?“. Haraldur Þór Víðisson. Elsku afi. Minningarnar um þig eru óþrjótandi og ég gæti auðveldlega skrifað heila bók um allt það sem við gerðum saman. Það var alltaf svo gaman að vera með þér, því kímnigáfan var aldrei langt und- an. Við áttum alltaf svo vel saman og vorum svo góðir vinir. Það var ekki ósjaldan sem ég var í heim- sókn hjá þér og við töluðum um lífið og tilveruna. Það var alveg sama hvað ég gerði alltaf stóðst þú með mér. Mér fannst svo ánægju- legt hvað þú varst vel liðinn hvar sem þú varst. Þú hafðir alltaf svo mikla ánægju af því að ræða við fólk og ópalpakkinn var ekki langt undan þegar eitthvað bjátaði á hjá ungum sálum. Þau voru ekki ófá skiptin sem ég fór með þér upp í Grófhóla, en þar varst þú yfirleitt öllum stundum. Til þess að mér leiddist ekki bjóst þú til hús handa mér þar sem ég lék mér á meðan þú stundaðir þína gróður- og jarð- rækt. Það varst þú sem sást til þess að ég lærði að synda. Þú minntist þess oft, þegar sund- kennarinn kallaði á þig til þess að sýna þér að ég gat flotið. Einnig minntist þú þess iðulega þegar ég sagði að ég færi ekki í sund nema afi kæmi með. Þetta voru góðar minningar í okkar huga. Ég hlakkaði alltaf mikið til jólanna því þá vissi ég að þú kæmir til okkar að borða á aðfangadags- kvöld. Það var ekki ósjaldan sem ég beið úti í glugga eftir að sjá græna Saabinn og þig undir stýri. Þú varst alltaf svo þolinmóður við mig og aldrei var ég skömmuð. Það eina sem þú gerðir einstöku sinnum var að gefa mér selbita. Ég minnist þess þegar ég settist við skrifborðið þitt og rótaði í öll- um skúffunum og þegar ég límdi alla símaskrána saman svo hún varð ónothæf. Elsku besti afi minn, ég veit að þú ert kominn á góðan stað með ömmu Nönnu. Þú varst oft búinn að tala um að fá að fara því þú varst orðinn svo veikur. Ég mun alltaf minnast þín með hlýhug og ég þakka þér fyrir allt það sem þú gerðir fyrir mig. Þín Nanna. A fallegum haustdegi kvaddir þú, elsku afi, þennan heim eftir langan og strangan dag og eflaust ert þú nú hvíldinni feginn. Þú skil- ur eftir þig margar ljúfar minning- ar. Við munum þig alltaf með stríðnissvipinn og skondin tilsvörin þín með opal í vasanum á eitur- grænum Saab á leiðinni upp í Mosó. Þar undir þú þér alltaf best innan um gróðurinn sem var þér + Móðir okkar og tengdamóðir, PÁLÍNA ÞORSTEINSDÓTTIR, er látin. Ormar Þór Guðmundsson, Kristín Valtýsdóttir, Gerður Birna Guðmundsdóttir, Daníel Guðnason, Björn Þ. Guðmundsson, Þórunn Bragadóttir, Ásgeir R. Guðmundsson, Fríða Ragnarsdóttir, Atli Freyr Guðmundsson, Þorgerður Jónsdóttir. J t Ástkær móðir mín, MARGRÉT OLLÝ SIGURBJÖRNSDÓTTIR, Krummahólum 10, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu mánu- daginn 18. október og hefst athöfnin kl. 13.30. Haukur Ólafsson. svo kær. Þaðan eigum við okkur mai'gar kærar minningar um ævin- týrin sem Grófhólar buðu upp á fyrir krakka. En áhugamálin voru fleiri og eftir þig liggja margir fal- legir listmunir sem við munum ávallt varðveita sem ættargersem- ar. Það var sárt að horfa upp á svo sköpunarglaðan mann missa get- una til að sinna hugðarefnum sín- um. Það er gott til þess að hugsa að þú hvílir í friði núna og valsir um sveitir himnaríkis með ömmu þér við hlið. Kallið er komið, Komin er nú stundin, Vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem) Takk fyrir allt, elsku afí. Haukur, Inga og Björn. Elsku amma mín, ég kveð þig með þessari bæn, því ég veit að þér þótti hún svo falleg. I bljúgri bæn og þökk til þín sem þekkir mig og verkin mín. Eg leita þín, Guð leiddu mig, og lýstu mér um ævistig. Eg reika oft á rangri leið, sú rétta virðist aldrei greið. Eg geri margt sem miður fer og man svo sjaldan eftir þér. Sú ein er bæn í bijósti mér. Eg betur kunni þjóna þér. Því veit mér feta veginn þinn að verðir þú æ drottinn minn. (PéturÞórarinsson.) Loks hefur þú fengið hvíldina eftir hetjulega baráttu við þennan erfiða sjúkdóm. Aldrei heyrði ég þig kvarta meðan á þínum veik- indum stóð, frekar en ég heyrði þig nokkrum sinni gera í gegnum tíðina. Mig langar í örfáum orðum að þakka þér elsku amma fyrir all- ar þær góðu stundir sem við átt- um saman, og sér í lagi síðustu ár- in. Þú áttir sérstaklega auðvelt með að fá mig til að hlægja, enda fór ég alltaf í betra skapi frá þér, þar sem þú stóðst út á tröppum og baðst Guð að geyma mig og beiðst þar til ég var horfin sjónum, þessa mynd af þér mun ég varðveita í mínu hjarta. Ósjaldan var ég spurð af því af mínum vinum hvort þeir fengju nú ekki að kíkja með mér til ömmu þegar ég var að lýsa þér og þínum húmor. Ég mun sakna þess að geta ekki droppað við á Digranesveginum hjá þér og borðað pönnukökurnar þínar og hlustað á hvernig þú lést óspart skoðanir þínar í ljós á þinn ein- staka hátt. Þakka þér samveruna elsku amma mín og Guð geymi þig- Þín Helga Nanna. Nokkur orð til elsku afa míns: Ég trúi því vart að þú sért far- inn, þú sem ert búinn að vera svo stór hluti af lífi mínu alveg frá því að ég man eftir mér; alltaf jafn blíður og góður. Þér á ég svo margt að þakka, allt sem þú hefur gefið mér, það er ótæmandi. Þess vegna reynist mér það erfitt að skrifa þessi orð, af svo mörgu er að taka. Én eitt af því sem stendur mér efst í huga er kímnigáfan þín sem braust oft fram á ólíklegustu stundum, með henni tókst þér að lokka fram óteljandi brosin og létta lund. Þú hafðir sterkan per- sónuleika og lést ekki auðveldlega bilbug á þér finna. Af þér get ég margt lært og það sem þú hefur kennt mér verður gott vegarnesti út í lífið. Ég kveð þig með söknuði í hjarta en jafnframt gleðst ég fyr- ir þína hönd þar sem nú líður þér betur og þjáningum þínum hefur linnt. Þín Arna. Fyrir næstum 87 árum kom rúm- lega ársgamall drengur, Haraldur Z. Guðmundsson í fóstur til móður- foreldra minna Önnu Kristófers- dóttur og Jónasar Jónssonar, sem þá bjuggu á Dalgeirsstöðum í Mið- firði. Lífsbaráttan var hörð á þess- um árum og kotbýli gaf ekki mikla möguleika til framfærslu, ekki síst vegna þess að oft bjuggu 2-3 fjöl- skyldur á hverjum bæ. Hef ég grun um að stundum hafi verið þröngt í búi. Nokkrum árum seinna flutti Haraldur ásamt fósturforeldrum sínum að Syðri-Reykjum í Miðfirði og ólst hann þar upp til fullorðins- ára. Náin tengsl mynduðust milli Haraldar, fósturforeldra og fóstur- systkina og þá sérstaklega þeirra sem voru honum næst í aldri. Mér er í minni hversu kært var milli hans og yngstu fóstursystkina hans, Gunnars og Elínborgar móð- ur minnar. Ungur fór Haraldur að vinna fyrir sér og vann þá við hefð- bundin sveitastörf eða það sem til féll. Um tvítugt veiktist hann af berklum og varð að fara til dvalar á berklahælið á Vífilsstöðum, þar sem hann fékk lækningu og komst til góðrar heilsu. Nokkrum árum seinna flutti Haraldur suður til Hafnarfjarðar og fór að vinna hjá Kaupfélagi Hafnfirðinga. Þá hafði Haraldur kvænst ungri glæsilegri konu, Nönnu Jónsdóttur, ættaðri frá Söndum í Miðfirði og eignuðust þau hjónin tvær dætur, Jóhönnu og Ónnu Jónu. Alltaf var gott að koma á heimili Nönnu og Haraldar. Hús- bóndinn hress og kátur og vildi hvers manns vanda leysa og hús- móðirin þessi ljúfa og hlýja mann- eskja. Manni leið aUtaf vel í návist þeirra. Meirihluta starfsævi sinnar vann Haraldur við verslun. Fyrst í Hafnarfirði eins og áður var getið, en flutti svo til Reykjavíkur og rak Náttúrulækningabúðina um árabii. Síðan stofnaði hann ásamt öðrum eigin verslun, Hunangsbúðina, sem hann rak í nokkur ár í Domus Med- ica. Eftir að hann hætti verslunar- rekstri vann hann hjá Tóbakseinka- sölu ríkisins og á fleiri stöðum. Kona Haraldar lést á besta aldri eftir erfið veikindi. Fráfall Nönnu var honum mikið áfall. En Harald- ur var einn af þessum mönnum sem alltaf gat fótað sig þótt á móti blési. Um það leyti sem kona hans lést keypti Haraldur land hér í ná- grenni Reykjavíkur. Þar hóf hann ræktun á trjám, kartöflum og fleiru. Eftir að hann komst á eftir- laun má segja að hann hafi dvalið meira og minna í sumarbústað sín- um, frá því snemma á vorin og fram á haust. Það var gaman að koma í sveitina til Haraldar. Skoða hversu vel honum fórust ræktunar- störfin úr hendi, fræðast af honum og taka þátt í áhugamáli hans. Mér er í minni þegar Elínborg móðir mín lá banaleguna hversu annt Haraldur lét sér um hana. I tvö ár kom hann til hennar á hverj- um degi og dvaldi hjá henni tímun- um saman. í nokkur ár sá hann um allt við- komandi fjármál mín meðan ég var í námi erlendis og gerði það með miklum sóma. Síðustu ár ævinnar bjó hann í þjónustuíbúð íyrir aldraða við Dal- braut. Þótt heilsan væri farin að gefa sig fylgdist hann vel með og var gaman að koma til hans og rabba við hann. I íbúðinni hans voru hjá honum allir hlutirnir sem hann hafði skorið út, leirker og leirstytt- ur sem hann hafði formað og mynd- ir sem hann hafði teiknað. Haraldur var nefnilega mjög listrænn í sér. Fallinn er í valinn vinur til margra ára, en minningar um góð- an dreng fylgja manni. Dætrum Haraldar, þeim Jó- hönnu og Önnu Jónu og fjölskyld- um þeirra flyt ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Samúel.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.