Morgunblaðið - 15.10.1999, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 15.10.1999, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999 6Í ____BRÉF TIL BLAÐSINS_ Ur einu í annað Frá Guðmundi Jóhannssyni: ÖÐUM styttist í að núverandi kjarasamningar renni sitt skeið, þótt segja megi að allt samnings- tímabilið hafi ver- ið launadeilur, sem verður að teljast óeðlilegt því samningar skulu standa og njóta fullrar frið- helgi. Hitt er svo annað og önnur hlið á málinu að krefjast verður af fulltrúum launa- stéttarinnar að sjá um að fá sinn hlut af þjóðarkökunni. Ekki er ósennilegt að tekist verði á í þeim samningum sem framundan eru og víst er að launastéttirnar eru á fullri ferð með að safna vindi í seglin, eft- ir að hafa fengið landsföðurlegar ábendingar frá forsætisráðheri'a, þar sem hann gaf tóninn, um að í komandi kjarasamningum yi'ði að gæta hófs í öllum kröfum um bætt kjör. Einhvem tímann var það sagt að „eftir höfðinu dönsuðu limirnir". Við þessa ábendingu forsætisráð- herrans varð einhverjum að orði: „Maður, líttu þér nær“. Af eðlileg- um ástæðum breíkkar hið launalega bil æ meir og meir mOli hinna ýmsu stétta, meðan prósentuformið er viðhaft. Ekki var meiningin að fjöl- yrða mjög um hin almennu kjara- mál það eru aðrir sem það gera. Frá þessum örstuttu hugleiðingum vendi ég mínu kvæði í kross og sný mér að því, sem nær mér stendur, máli aldraðra. Nú er ár aldraðra að renna sitt skeið, sem hófst með „pomp og px-agt“ 1. október fyrir ári síðan. Nýverið sá ég afrekskrá framkvæmdanefndar „Ars aldr- aðra“ og hlustaði síðan á hana á há: tíð aldraðra núna 1. október. í stuttu máli má segja að þar hafi ekki annað komið fram en að fundir hafi verið haldnir víða um land, svo og gerð könnun á stöðu aldraðra í þjóðfélaginu með hinni umræddu og umdeildu skýrslu Félagsvísinda- stofnunar. Sjálfsagt hefur það verið í góðri meiningu gert hjá Samein- uðu þjóðunum að stofna til þessa árs aldraðra, með yfirskriftinni: „Þjóðfélag fyrir fólk á öllum aldri“. Hvað aetli felist í þessum fyrirheit- um? I sannleika sagt finnst mér uppskera ársins mjög rýr. En við skulum vona, eins og Jón Helgason, fi’amkvæmdastjóri „Ars aldraðra“, komst að orði að sá snjóbolti, sem stofnað hefði verið til með fundar- höldum eigi eftir að stækka og bera árangur. Það ber að þakka jákvæða afstöðu ýmissa aðila til aldraðra og má þar nefna ungt fólk sem m.a. hefur tekið að sér að leiðbeina því í tölvunámi og kannski fleiru. Varð- andi skýrslu Félagsvísindastofnun- ar um kjör aldraðra, ski'ifaði ég grein fyrir noklmx þar sem ég óskaði eftir nokkrum upplýsingum um nokkur atriði í henni, þar á með- al hve margii’ sem í könnuninni voru hefðu haft launatekjur. Þessi forvitni mín hefur ti-úlega ekki vei-ið talin svaraverð, enda ekkert um það heyrst. Þó að mér sé ljóst að stjómvöld hvorki sjá né heyra þær ábending- ar, að stór hluti lífeyrisþega, ásamt ýmsum öðrum láglaunahópum, hafa setið við skertan hlut við veisluborð þjóðarinnar æði lengi, þá ætla ég eigi að síður að rifja upp það sem ljóst má vera að er hreint ranglæti, sem stjórnvöldum þóknast að við- halda gangvart öldruðum. Má þar fyrst nefna að með hækkandi launa- þróun og óbreyttum skattleysis- mörkum þýðir aukna skattbyrði hjá láglaunafólki, einnig skal bent á, þótt það hafi verið gert áður, að líf- eyrissjóðsþegar njóta ekki al- mennra laga um 10% fjár- magnstekjuskatt á greiðslum úr líf- eyrissjóði, þótt það sé viðurkennt að 2/3 af þeim' greiðslum séu fjár- magnstekjur, þá vita það allir að aldraðir hafa ekki fengið nema u.þ.b. helming af hækkun launavísi- tölunnar, fyrir síðastliðið tímabil. Hér hefur verið drepið á toppinn á ísjakanum á því í'anglæti sem aldr- aðir og aðrii- láglaunahópar hafa orðið að sæta af hálfu stjómvalda. Mér finnst þetta ekki hlægilegt, eins og tveir í’áðherrar virtust gera, í beinni sjónvarpsútsendingu í um- ræðum um stefnuræðu foi'sætisráð- herra, þegar stjórnarandstaðan vax- að deila á stjórn þeiri’a fyrii’ að um- ræddir hópar sætu við skertan hlut. Það er líka ömurlegt á að hlusta þegar fulltrúar stjórnvalda koma fram í fjölmiðlum og halda því blákalt fram að aldraðir hafi fengið sinn hlut af góðærinu, eins og Val- gerður Sveirisdóttir lét sér um munn fara í sjónvarpinu í fimmtu- dagsumræðunni 16. september, en því miður eru íleiri úr þeim herbúð- um sem leyfa sér svona málflutning. Það er ekki við góðu að búast á meðan stjómvöld brynja sig svona óheiðarleika i málflutningi. Aldraðir biðja ekki um nein sérfríðindi en þeir krefjast sömu réttinda og aðrir þjóðfélagsþegnai’. GUÐMUNDUR JÓHANNSSON, eftirlaunaþegi. Guðmundur Jóhannsson Þeir gefa það ekki einu sinni upp fyrir vestan Frá Ásthildi Cesil Þórðardóttur: AUSTFIRÐINGAR og Akureyr- ingar eiga góða veðrið. Þessu slá þeir stundum fram fréttamenn og veðurfræðingar í sjónvarpi og út- varpi. Ef það er sól og blíða dag eft- ir dag á Isafírði, segja þáttastjóm- endur gjarna: „Ertu að segja alveg satt, getur þetta verið?“ Kannski á þetta að vera fyndið, en gerið þið ykkur grein fyrir því, ágætu fjöl- miðlamenn, að ásamt vegakerfinu eigið þið stóran þátt í að fólk veigrar sér við að koma vestur á firði. „Æt- liði virkilega að fara að fara þama í þennan kuldapoll á hjara veraldar,“ segir fólk við vini og ættingja. I morgun, 8. október, sagði fréttamaðurinn og ræddi um hita- stigið í Bolungarvík: „Þeir gefa það ekki einu sinni upp.“ Ef það hefði verið fyrir norðan eða austan hefði einfaldlega verið sagt: „hitastig vantar". Þið þurfið að fara að hugsa um hvað þið erað að gera, þetta er ekki fyndið heldur eigið þið ykkar þátt í að koma því inn í þjóðarsálina að hér sé alltaf kalt. Það er einfald- lega ekki rétt. Hér er mjög oft gott veður og stundum jafnvel betra en annars staðar. Mestan þátt í því á sennilega lognið okkar og háu fjöll- in. Við eram kannski ekki nógu dugleg eins og Akureyringar og Egilsstaðabúar að hringja í útvarp- ið í hvert sinn sem sólin sýnir sig, en það þýðir ekki að sjólin skíni ekki, eða að það sé ekki hlýtt og notalegt. Hitastig er líka afstætt, það getur komið frost í hvaða mán- uði sem er fyrir austan og norðan inni í landi. I Kaupmannahöfn varð ég vör við að vori til að 16-17 hiti var skelfilega kalt, sem er mjög hlýtt á ísafirði. Ekki veit ég hvað veldur. Fyrir nokkram ánxm voru teknar upp veðurmælingar á Isa- firði. Það vora lögreglumenn hér sem sáu um það, þá voru oft hærri tölur hér en á Akureyri, því var svo hætt, því miður. Það getur vel verið að ykkur finn- ist þetta skemmtilegt, en okkur er ekki skemmt, mér er oft skapi næst að biðja ykkur einfaldlega að sleppa Vestfjörðum úr veðurfregnunum. Við betur sjáum um þetta sjálf. I dag eru aftur veðurmælingar á Isafirði, framkvæmdar af starfsmanni Veður- stofu hér en þær niðurstöður era ekki birtar, ekki veit ég af hverju. Sagt er að verið sé að hugsa um sjó- menn en hvaða gagn er sjómönnun- um okkar að veðurathugunum á Egilsstöðum, eða Akureyri? Við hér vestra eram orðin langþreytt á enda- lausum neikvæðum fréttum héðan. Að hluta til er þetta sjálfsagt okkur að kenna, en era menn ekki bara orðnir svo vanir því að allt sé svo nei- kvætt hér að það sé allt í lagi að halda í það spaug, eins og Hafnar- fjarðarbrandara, eða eitthvað álíka? En ég bið ykkur samt um að snúa þessu við og reyna að fara beggja blands, eða hætta einfaldlega að tala um okkur og láta okkur bara í friði. Utvarp og sjónvarp era stei’kir miðl- ar og geta þaft mikil áhrif á fólk ómeðvitað. Ég bið ykkur, fjölmiðla- menn, að hafa það í huga næst þegar ykkiu’ langar að koma með neikvæð- ar athugasemdir um veður eða at- burði á Vestfjörðum. ÁSTHILDUR CESIL ÞÓRÐARDÓTTIR, Seljalandsvegi 100, ísafirði. To p l\\Vao^ PERTTI PALMROTH Sérlega vönduð stígvél - Fró Finnlandi - Þola bleytu - Loðfóðruð - Ýmsar tegundir Teg. 10538/10552 Litir: Brúnir, svartir Stærðir: 37-41 Verð óðu r.MW Verð nú: 8.995 Póstsendum samdægurs 1 oppskórinn Veltusundi v/lngólfstorg. S: 552 1212 Húsbréf Útdráttur húsbréfa Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í eftirtöldum flokkum: 4. flokki 1992 - 24. útdráttur 4. flokki 1994 - 17. útdráttur 2. flokki 1995 - 15. útdráttur 1. flokki 1998 - 6. útdráttur 2. flokki 1998 - 6. útdráttur Koma þessi bréf til innlausnar 15. desember 1999. Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu. Auk þess liggja upplýsingar frammi hjá Ibúðalánasjóði, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafýrirtækjum. íbúðalánasjóður I Suðurlandsbraut 24 | 108 Reykjavík | Sími 569 6900 | Fax 569 6800 1899 |p 1999 Á íslandi síðan 1925 MULTIPLA FIAT Óvenjuskemmtileg og djörf hönnun sem svo sannarlega hefur slegið í gegn í Evrópu. Ótrúlegt rými fyrir sex manns. Bíll sem þú verður að skoða og prófa tii að trúa. Multipla Fiat - Fullkominn fjölskyldubíll Muitipla Fiat 103 hestöfl Renault Scenic 90 hestöfl MMC Space Star 86 hestöfl Mazda Premacy 115 hestöfl Fjöldi sæta 6 5 5 5 ABS hemlar Já Já Já Já Vél 1.6 16v 1.6 8v 1.3 16v 1.8 16v Loftpúðar 4 2 2 4 Stærð LxBxH 3.99 x1.87x1.67 4.13x1.72x1.60 4.03 x1.70x1.51 4.29x1.70x1.57 Samlæsinqar Já Já Já Já Faranaursrvmi lítr. 430/1300 410/1800 370/1370 370/1800 Okum.sæti rafstýrð Já Nei Nei Nei Verð 1.630.000 1.678.000 1.525.000 1.859.000 Istraktor ?p ILAR FYRIR ALLA Opið á laugardögum 13-17 SMIÐSBÚÐ 2 - GARDAB
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.