Morgunblaðið - 15.10.1999, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999 65,
I DAG
ÁRA afmæli. Á
morgun, laugardag-
inn 16. október, verður sjö-
70
tug Sigríður Siguijónsdótt-
ir, Brekkugerði 9, Reykja-
vík. Eiginmaður hennar er
Björn Onundarson, læknir.
A afmælisdaginn munu
börn Sigríðar halda henni
afmælisfagnað í Félags-
heimilinu Drangey, Stakka-
hlíð 17, Reykjavík, frá kl.
16-19. Eru allir vinir og
vandamenn hjartanlega vel-
komnir til að samgleðjast
afmælisbarninu.
BRIDS
Umsjún Guðmundur
l'áll Arnarsun
I þættinum í gær sáum við
Gabriel Chagas upp á sitt
besta. Hér er annað spil úr
leik Brasilíumanna og Kín-
verja frá IOC-mótinu í
Sviss, en nú stóð Chagas sig
ekki eins vel.
Suður gefur; allir á
hættu.
Norður
A -
V D43
♦ ÁD10752
* 10954
Vestur Austur
A109 A KD87654
* G852 V 32
♦ KG43 ♦ -
*632 * 98
Suður
A ÁG V ÁK10976
♦ 6 + KDG8
Vestur Norður Austur Suður
Boas Zhang Campos Liu
- - 1 lauf*
Pass 2 tíglar 4 spaðar Pass
Pass 6 tfglar Pass 6 hjörtu
Pass Pass Pass
*Sterkt lauf.
Þannig gengu sagnir í
lokaða salnum. Kinveijarnir
Zhang og Liu fá mjúka
lendingu í sex hjörtum, sem
er prýðileg slemma, en tap-
ast þó ef vestur hittir á að
spila út tígli. - Hvernig þá?
Jú; væntanlega mun sagn-
hafí fara upp með ásinn, því
hann telur sig geta trompað
spaðagosann í blindum. En
hin slæma tromplega setur
strik í þann reikning.
En auðvitað kom vestur
út með lit makkers. Liu
vandaði sig nú þegar hann
kastaði tígli úr borði og tók
a spaðaásinn heima. Hann
lagði svo niður hjartaás og
sá leguna. Næst lét hann
hjartatíuna rúlla yfir og
spilaði loks galvaskur tígli á
drottninguna. Þegar svín-
ingin gekk gat hann hent
spaðagosa niður í tígulás og
gaf því aðeins einn slag á
laufásinn.
En hvað kemur Chagas
þessu máli við? Hann var í
norður í opna salnum.
Branco vakti á hjarta og
Chagas ákvað að svara með
tveimur tíglum. Austur
stökk í fjóra spaða og við
því sögðu allir pass!?
Branco taldi að tveggja tígla
svarið hefði myndað kröfu-
pass-stöðu, en Chagas var á
öðru máli. Fjórir spaðar
láku einn niður, sem þýddi
að Kínverjar unnu 15 IMPa
á spilinu.
Arnað heilla
Q ÁRA afmæli. Næst-
öð komandi mánudag,
18. október, verður áttatíu
og fimm ára Sofus Berthel-
sen, Iljallabraut 33, Hafn-
arfírði. Hann býður ætt-
ingjum og vinum til kaffi-
drykkju laugardaginn 16.
október í matsal þjónustuí-
búða, Hjallabraut 33, kl.
15-19.
Q A ÁRA afmæli. Á morg-
ÖU un, laugardaginn 16.
október, verður áttræður
Gunnar Rósmundsson,
Lokastig 18. Af því tilefni
tekur hann ásamt eiginkonu
sinni, Þóru Þorsteinsdóttur,
á móti ættingjum og vinum í
Kaffi Dímu, Armúla 21, frá
kl. 15 á afmælisdaginn.
O A ÁRA afmæli. í dag,
O vJ föstudaginn 15. októ-
ber, verður áttræður
Eyjólfur Guðmundsson,
Hvassaleiti 58, Reykjavík.
Eyjólfur, sem hefur starfað
í Síld og fisk í rúm sextíu ár,
dvelst með konu sinni,
Svanfríði Þorkelsdóttur, á
Hotel Levante Club,
Estoeolmo 8, 3500
Benidorm, á Spáni.
ÁRA afmæli. Hinn
13. október sl. varð
sjötugur Skafti Einarsson.
Hann býður fólk velkomið
til að þiggja veitingar í
Ljósafossskóla, Grímsnesi,
laugardaginn 16. október kl.
17.
Með morgunkaffinu
Þessi duglegu börn söfnuðu með tombólu 7.000 kr. til
styrktar Barnahúsi, Sólheimum 17. Þau heita Valdís
Björk, Unnur Ósk og Hreinn, sem er bróðir Unnar.
Þessar duglegu stúlkur söfnuðu með hlutaveltu kr.
3.154 til styrktar Neistanum. Þær heita Telma, Krist-
ín, Árný og Unnur.
TIL FÁNANS
Rís þú, unga íslands merki,
upp með þúsund radda brag.
Tengdu í oss að einu verki
anda, kraft og hjartalag.
Rís þú, íslands stóri, sterki
stofn með nýjan frægðardag.
Skín þú, fáni, eynni yfir
eins og mjöll í fjallahlíð.
Fangamarkið fast þú skrifir
fólks í hjartað ár og síð.
Munist, hvar sem landinn lifir,
litir þínir alla tíð.
Einur Benediktsson.
STJÖRJVUSPÁ
eflir Prances Drake
VOG
Afmælisbarn dagsins: Þú
lætur vel að listum og
kannt því vel að umgangast
listamenn og listaðaáendur.
En þú þarft líka þínr einka-
stundir.
Hrútur _
(21. mars -19. apríl)
Það er engin ástæða til þess
að láta hugfallast, þótt á móti
blási um stund. Frostið oss
herðir og allt verður léttara,
ef rétt er á hlutunum tekið.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er vandi að velja sér vini,
en fátt gefur lífinu meiri lit
en góð vinátta, sem alltaf er
til staðar. Þú þarft líka að
vera slíkur vinur.
Tvíburar
(21. maí-20. júní) nfl
Það má svo sem vera að ver-
öldin sé ófögur skepna fyrir
mannanna verk. Reyndu að
láta gott af þér leiða og
leggja þannig lífinu lið, sem
ekki veitir af.
Krabbi
(21.júní-22. júlí)
Láttu það ekki draga þig nið-
ur, þótt þér finnist aðrir ekki
skilja þjáningar þínar. Leit-
aðu orsaka þeirra hjá sjálfúm.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú mátt ekki láta söknuðinn
drepa þig í dróma, þótt vík sé á
milli vina. Minnstu allra góðu
stundanna með viðkomandi og
láttu þær létta þér lífið.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) (OSL
Þú getur ekki lengur vikist
undan því að hafa frumkvæði
að lausn mála. Láttu aðra
ekki draga úr þér kjarkinn,
því bak við úrtölur býr öfund.
vvT
(23. sept. - 22. október)
Nú er komið að þvi að þú
leggir lausnir þínar á borðið
og sjáðu til; þú munt eiga að-
dáun félaga þinna vísa, ef þú
ert hreinskilinn og gagnorður.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Kastaðu öllum efasemdum
um eigið ágæti út í hafsauga.
Þín áform eru til fyrirmynd-
ar og ekki eftir neinu að bíða
með að framkvæma þau.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember)
Þótt þú eigir auðvelt með að
hrífa aðra er ekki þar með
sagt, að allir viðhlæjendur
séu vinir. Hafðu gát á öllu,
því þannig kemstu hjá áföll-
unum.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) *Se
Það hefur ekkert upp á sig
að setja markið lægra en þú
veizt að þú ræður við. Settu
það hærra en síðast og
leyfðu hæfileikum þínum að
njóta sín.
Vatnsberi r .
(20. janúar -18. febrúar)
Það getur reynst varsamt að
tengja sig um of við einstaka
hluti. Enginn þeirra er svo
dýr að það setji lífið á annan
endann, þótt hluturinn týnist.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Reyndu að sýna lipurð, þeg-
ar þú vinnur málstað þínum
framgang. Taktu andbyr
með brosi á vör, því þinn er
sigurinn, þegar upp verður
staðið.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
SPARTAN SCHOOL OF
AERONAUTICS, U.S.A.
Síðkjólar
Kynnum nýja vetrarlínu í síðkjólum
fró ARIELLA í dag og ó morgun
20% kynningarafsláttur
Ö/ssa ■tíekuhúe &ieea tíekuhúe
Hverfisgötu 52 Laugavegl Ö7
áformar að halda kynningarfund um störf í flugheiminum
kl. 19.00 og 20.30 laugardaginn 16. október
____________á Hótel Sögu____________________
Þessi fundur er hugsaður fyrir þá sem vilja læra flug, flugvirkjun og
rafeindafræði.
Hittið fulltrúa okkar, RAMI MASTRI og DAMON BOWLING.
Þeir, sem vilja prófa nýjan starfsvettvang eða skipta um störf, er boðið!
Fræðist um flugheiminn eins og hann er, íslensk námslán, það nám
sem er í boði hjá skólanum og aðstæður í Tulsa í Oklahoma.
Þeir, sem vilja nánari upplýsingar, vinsamlega hafið samband í gegnum
netfangið rmasri@mail.spartan.edu, fax 001 918 831 5287 eða í síma
001 918 836 6886.
Lyf&heilsa
sími 562 1044
Kynnum nýju
vetrartískuna
frá OROBLU í
dag kl. 14-18
20%
kynningar-
afsláttur af
öllum OROBLU
sokkabuxum,
Nv sending
Buxur — stærðir 18—52
Peysur — margir litir, stórar stærðir
r (imfu/'oe/H,
Háaleitisbraut 68, sími 553 3305.
r
v*
r